Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Qupperneq 10
Vélbúnaðurinn í auga því, sem sjórinn streymlr um viS aSfall og útfall. ir, sem glímdu við þessa þraut, og skömmu eftir heimsstyrjöldina fyrri sóttu tvö hundruð og átján menn á einu og sama ári um einka- rétt á aðferðum til þess að virkja sjávarföllin. En engin þessara að- ferða reyndist hagnýt, þegar til kastanna kom. Hlutföllin milli til- kO'stnaðarins og orkunnar, sem í vonum var, voru svo óhagstæð, að ekki koma til greina að beita þeim. En nú er öldin önnur og sigr- uð sú þraut, er virtist óyfirstígan- Prestur nokkur hóf stólræðu sína á þessa leið: Vér sáum örn úti á Gíslakots- bökkum í gær. Vér meintum, að hún hefði misst undan sér hið hægra lærið. Svo fer Guð með oss hinar • skynsemdarfullu skepn- ur. Hann sviftir oss hinu andlega læri. Tak þú því skónál skynsem- innar, þræddu hana með þræði þrenningarinnar, taktu lepp lítil- mennskunnar og legðu fyrir sálar- innar holudyr, svo að hinn hel- vízki kattarormur, djöfullinn, kom ist ekki inn og nái að gera svona og svona ... Og presturinn klóraði út í loftið. leg fyrir tæpum fimmtíu árum. Sjávarfallorkuverið í Rancesfljóti hefur því dregið að sér at- hygli verkfræðinga um heim allan, þótt víðar séu á döfinni svipaðar fyrirætlanir. Ráðstjórnin í Sovét- ríkjunum hefur til dæmis á prjón- unum miklar áætlanir um sams konar orkuver við Hvítahaf og Bar- entshaf í nánd við heimskautsbaug eða jafnvel norðan hans. Það er einn þátturinn í sóknihni norður á bóginn, en eins og kunnugt er Hér er byrjun á stólræðu: Ég ætla að leggja út af hinum „narraktuga" Farísea og hinum „skítaktuga“ tollheimtumanni, er þeir gengu upp í musterið að biðj ast fyrir. Tollheimtumaðm’inn nögraði og hökti, bögraði og bökti, skjögr- aði og skjökti, unz hann loksins komst upp í kórbekkinn og lá þar eins og í doðasótt. En Faríseinn gekk nokkuð ribb- aldalega upp að altarinu og flutti þar langa rollu, og síðan tók hann bæn sína, rétt eins og þegar smala maður snýr roð upp í smalatík sína og smeygir því upp í andlitið á sér. hafa Rússar lengi varið ógrynni fjár til rannsókna og tilrauna í við ernum hinna norðlægu héraða ríkis síns og hafið þar stórfellt landnám, er sífellt færist í aukana. Það eru ekki eingöngu stórþjóð- irnar, sem glímt hafa við þá þraut, hvernig hafa mætti not af sjávar- föllunum og láta þau vinna fyrir sig. Vestur í Breiðafjarðareyjum var bóndi, Vigfús Hjaltalín í Brok- ey, ekki lét sér vaxa í augum að reyna að beizla fallstrauminn við eyna. Og honum tókst það á sinn hátt. Svo hagar til, að milli heiraa- eyjarinnar og svonefndrar Norður- eyjar er mjótt sund, og er í því stríður strengur á sjávarföLlum, einna líkastur straumharðri á. Þarna kom Vigfús upp vatnsmyllu skömmu eftir aldamótin síðustu, og var hún notuð í tvo áratugi til þess að mala korn. Er enn tii sýn- is mylluhústóftin í Brokey, og liggja í henni myllusteinarnir, sem möluðu mjölið handa Brokeyjar- heimilinu, ásamt leifum af myllu- karli og tannhjóli úr tré, og minna á hugkvæman framtaksmann, sem leysti af höndum mikla þraut með þeirri prýði, að óvíst er, að öðrum hefði betur tekizt, þótt meiri lær- dóm hefði haft við að styðjast. PRESTAGAMAN 538 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.