Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Síða 13
f ■■■ ,M, Slefán Stefánsson var kunnastur leiðsögumaður útlendra ferðamanna á landi hér. Hann gerþekkti landið af löngum ferðalögum á hestum hvert einasta sumar. Þó mun Krisuvík hafa verið honum kærari en flestir staðir aðrir. Við Kleifarvatn hefur skjöldur verið felldur í klett til minningar um hann og höfði verið nefndur eftir honum. Á þeim stað var ösku hans dreift út á vatnði að fyrirlagi hans sjálfs. Grein þá, sem hér birtist, mun Stefán hafa ritað alllöngu áður en hann lézt, og var það einn þátturinn í ræktarsemi hans við Krísuvík. þessara tveggja kletta væri Dagon. Um þetta mál sýndist sitt hverj- um. Vísast um þetta mál i sýsiu- bækur Gullbringusýslu. Á korti herforingjaráösisis danska, er Dagon sýndur mjög greinilega, en hér kemur til greina, eins og reyndar víöa annars staðar, hversu öruggar heimildir þeirra mælingamanna hafi verið. Bilið millum hinna tveggja hraundranga, eða fjöruræma sú, sem deilurnar hafa verið um, mun eigi lengri en það, að meðalstóran hval gæti fest þar. Ummál Krísuvíkurlandareignar, er milli sextíu til sjötíu kílómetrar, en flatarmálið eitthvað á þriðja hundrað ferkílómetra. Er stórmikill hfuti af þessu víða flæmi ýmist ber og nakin fjöll með smáa og strjála grasteyginga upp í ræturnar eða þá víðáttumiklar hrauiibreiður, þar sem lítinn gróður er að finna ann- an en grámosa gnógan og svo lyng á stöku stað. Aðalgraslendið í land- areigninni er í sjálfu Krísuvíkur- hverfinu og þar í nánd. Má segja, að takmörk þessa svæðis séu Ög- mundarhraun að vestan, Sveiflu- háls að norðvestan, Kleifarvatn að norðan, gróðurlítlar hæðir og mel- ásar að norðaustan og svo Geita- hlíð, Eldborg og Krísuvíkurhraun að austan, en bjargið og hafið að sunnan. Þessi óbrunna landspilda er nálega sex kílómetra breið syðst — sem svarar allri lengd Krísu- víkurbergs frá Ytri-Bergsenda til hins eystri, en mjókkar svo jafnt og þétt allt norður að Kleifarvatni og verður þar ekki breiðari en suðurendi vatnsins, einn til tveir kílómetrar. En frá bjargbrún og inn að Kleifarvatni eru um níu kílómetrar. Á svæði þessu skiptust á tún, engi, hagmýrar og heið- lendi, vaxið lyngi og lítils háttar kjarri. En víða er gróðurlendi þetta sundurslitið af gróðurlausum mel- um og grýttum flögum. Geta mætti þess til, að valllendið og mýrarnar á þessu svæði hafi verið tíu fer- kílómetrar. Ýms fell og hæðir rísa upp úr sléttlendi þessu, svo sem Lamba- fellin tvö, sem aðskilja Vesturengi og Austurengi, Bæjarfellið norðan við Krísuvíkurbæinn og Arnarfell, suður af bænum. Bæði þessi íell eru móbergsfjöll. Sunnar nokkru, er hálsdrag eitt austur af Fitatúni. Eru þar vestastir móbergstindarn- ir Strákar, þá Selalda, Selhóll og Trygghólar austastir. Það var tal- inn hádegisstaður frá Krísúvík, þar sem mætast rætur Eystri- Trygghólsins og jafnsléttan aust ur af honum. Suður af Selöldu og fremst á brún Krísuvíkurbjargs er hæð sú, er Skriða heitir. Mun þar vera hinn eini staður í berginu, sem nokkurs móbergs gætir, en vestanvert við hæð þessa er basalt- lag, eitt eða fleiri. Efst í bjarg- brúninni skagar basaltið þar lengra Bæjarhóllinn í Krísuvtk og kirkjan, tröðin heim að bænum og gömul, jarðsigin garðlög. TT í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 541

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.