Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Qupperneq 14

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1967, Qupperneq 14
fram en móbergið (af skiljanlegum ástæðum, svo að loftsig er alla leið niður í urðina, sem þar er neðan undir. Er þarna einn hinna fáu og fremur smáu staða á allri strandlengju Krísuvíkur, sem vænta má, að nokkuð reki á fjör- urnar. » Framan í Skriðunni er Ræningja stígur (hans er getið í Þjóðsögum J. Á. og ef til vill víðar). Stígur þessi er gangur einn, sem myndazt hefur í móberginu og liggur ská- hallt ofan af bjargbiiin og niður í flæðarmál. Ræningjastígur hefur verið fær til skamms tíma, en nú er sagt, að svo mikið sé hrunið úr honum á einum stað, að Mtt muni hann fær eða ekki. Utan þessa svæðis, sem hér er nefnt, má telja til gróðurlendis hina svonefndu Klofninga í Krísu- víkurhrauni. Þar er sauðfjárbeit góð, þá er Fjárskjólshraun sunnan 1 Geitahlíð, austarlega, og hólm- arnir tveir i Ögmundarlhrauni, Hús hólmi og Óbrennishólmi. Er. á öll- um þessum stöðum lynggróður mikill og dálítið kjarr, sprottið upp úr gömlum hraunum. Þá eru hjáleigurnar tvær. Aust- an við Núphlíðarháls voru Vigdís- arvellir og Bali með túnstæði sín og mýraskika í nágrrenninu, og svo að lokum Dalirnir og vallendis- flatirnar fyrir innan Kleifarvatn, ásamt grasbrekkum no'kkrum, sem ganga þar upp í hlíðarnar. Sævarströndin. Strandlengja landareignarínnar frá Dagon á Selatöngum og austur í sýslumörk á Seljabót er fimmián til sextán kílómetrar. Frá Dagon og á austurjaðar Ögmundarhrauns eru fimm til sex kílómetrar. Er það óslitin hraunbreiða állt í sæ fram, að yndantekinni Húshólmafjóru, sem vart er lengri en 300 til 400 metrar. Austan Ögmundarhrauns tekur við þverhnípt bjargið (Krísuvíkur- berg) og er það talið þrítugt til fertugt að faðmatali. Ekki er ó- líklegt, að þessi áætlun um hæð bjargsins sé nokkuð rífleg, því að á korti herforingjaráðsins eru sýnd ar tvær hæðamælingar á bjargbrún inni og er önnur 33 metrar, en hin 36. Ef til vill gæti það átt við hér, sem Páll Ólafsson kvað forðum: „Þeir ljúga báðir, held ég megi segja.“ Fyrir austan Eystri-Bergsenda tekur við Krísuvíkurhraunið, allt austur á Seljabót, og þar fyrir aust- an Herdísarvíkurhraun. En þá er komið austur fyrir sýslumörk, og skal því staðar numið. Þar sem hraun þessi, Ögmund- arhraun og Krísuvíkurhraun, ganga fram á sævarströndina, verða víðast hvar hamrar nokkrir, en þó ekki nægilega háir til þess, að bjargfugl geti haldizt þar við um varptímann. Þrátt fyrir þessa miklu strand- lengju eru þó furðulega fáir staðir á henni, þar sem reka getur fest og rnunu rekasvæðin öll til samans vart vera lengri en einn kílómetri. Af þessum stuttu fjörustúfum eru Skriða, sem áður er nefnd, en þar er bjargsig allmikið og verður að draga upp í festum hvern þann hlut, sem þar rekur á fjöru og að nokkrum notum skal koma. Sama máli gegnir og um Bergs- endana báða, þá sjaldan nokkað slæðist þar á fjörurnar. Á Kefla- vík eða Kirkjufjöru í Krísuvíkur- hrauni og eins á Miðrekunum, milli Selatanga og Húshólma, er og lítils háttar reki. En um illan veg er að sækja,, ef afla skal fanga af öðrum hvorum þessara staða. Austarlega í Ögmundarhrauni verða tveir básar upp í hraun- brúnina frammi við sjóinn, Rauði- bás og Bolabás, en ekki er fjaran í hvorum þeirra nema fáeinir metr- ar. Eitt er það um Krísuvík, sem fá- staðar mun vera til á íslandi, en það er að heiman frá höfuðbólinu og reyndar frá flestum öðrum bæj- um í hverfinu, sást engin skák af landi né fjall, svo að ekki ^æri það innan landareignarinnar, nema ef telja skyldi, að þegar hann er óvenju austanhreinn, þá sjást Vest- mannaeyjar hilla uppi. Er svo talið, að jafnan viti „eyjahillingar" á mjög mikla úrkomu. Dr. Bjarni Sæmundsson getur þess einnig í ritum sínum, að í Grindavík sé það trú manna, að eyjahillingar boði hálfsmánaðar rigningu. Frá Krísu- vík eru rösklega tíu tigir kílóimetra sjónhending til Vestmannaeyja, en nálega stórt hundrað kíló- metra úr Grindavík. Eyjarnar eru að sjá frá Krísuvík sem sex, misstórar þúfur yzt við hafs- brún. Hjáleigur Krísuvíkur. Krísuvík, með hjálelgum sínum öllum, var um langan aldur sér- stök kirkjusókn, og mun kirkja jafnan hafa handizt þar frá ómuna- tíð. Líklegt má tglja, að það hafi gerzt í kaþólskum sið, að Krísu- víkurkirkja eignaðist jörðina Her- dísarvík í Árnessýslu, en eftir að kirkjan í Krísuvík var lögð niður, var ekkert því til fyrirstöðu, að jarðirnar yrðu aðskildar eignir, Enda er og nú svo. — Herdísarvík hefur jafnan talizt til Sel- vogshrepps og fólk þaðan atti kirkjusókn að Strandarkirkju. Sé Stóri-Nýjabær talinn tvíbýlis- jörð, eins og oftast mun verið hafa fram undir síðastliðin aldamót, og sé því ennfremur trúað, að nokk- urn tíma hafi verið byggð á Kald- Svona þykkur jarðvegur hefur einhvern tímann verið á Krísuvikurbergi. 542 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.