Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Page 15

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Page 15
sem verður að gera, niðurbrotin aí fjárhagsáhyggjum, kvíðafull vegna kjaraskerðinga, atvinnuleysis, gengisfellingar? Langar ykkur ekki lika i stærri fbúð, betri bfl, meiri föt, meiri ferðalög, fínni vini? Er ekki fyrirsjáanlegt að yf- irstandandi efnahagskreppa þjóð- arbúsins leiði til þess, að það verð- ur taugahæli en ekki Mallorka, sem við gistum á þorra? Og þá hittum við allt í einu þennan útilegumann, orðhagan tjaldara, ósnortinn af kauphallar- gengi íslenzku krónunnar. Hann getur meira að segja gef- ið einfalda skilgreiningu á ham- ingjuleysi nútímakapphlaupsins. — Ýmist hafa menn áhyggjur af því að missa það sem þeir eiga, eða þeir hafa áhyggjur af þvi að þeir hafi ekkert til að missa. Enda sagði Ragnar i Smára, þeg- ar hann ók við handritinu að Klettabelti fjallkonunnar- — Þú kemur með sólskinið til okkar. Og hvið hugsar þá tjaldarinn? Hvaðles hann? Þegar ég var ungur maður. um tvitugt, las ég öll þessi gömlu aðalskáld. Þá gat ég ekki viður- kennt aðra en Einar Benediktsson, og einstaka kvæði eftir Grim Thomsen og Stefán G. En skil- greiningar tilheyra æskunni. Nú kann ég að meta aðra, þótt þeir fari ólíkar leiðir. En Einar er svo vandvirkur og vitur. Hann byrjar með róttækri ættjarðarást, endar i heimspeki, sem, fáir skilja, en talar til mín. Hann er undir áhrifum af rís- T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ andi auðvaldshyggju þessara ára. Heimspekingar frá yfirstétt Ind- lands síast til hans gegnum ensk- ar bókmenntir. Ég held að Einar Ben, Magnús Ásgeirsson og Steinarr hafi allir lært af enskum miðaldaskáldum. Ég komst að þessari niðurstöðu einu sinni þegar ég reyndi að þýða þessi skáld. Margbrotin hugs- un, óbotnandi. Fanns+ ég ekki ráða ' við það. Nú er ég að bauka við að þýða bandarisk skáld. Frá því fyrir aldamót og fram undir okkar dag. Jónas Svafár er jafnhrifinn af bandarískri menningu eins og hann er fullur andstyggðar á bandarisku hernámi. Margir munu kannast við kvæði hans um dreng- inn, sem kom inn á kaffihús með íslenzkri móður sinni og tveimur dátum. Hann fór i stríðsleik við stólana og móðirin brosti þrívídd- arbrosi af hreykni og sagði: That is the best picture I have ever seen. — Þetta er bara lýsing á at- burði sem ég sá. Þegar ég var búinn að skrifa hana, sá ég að hún gat verið kvæði. En þú varst að spyrja, hvað ég læsi. Undanfarin ár hef ég helzt lesið blöðin Enda sru kvæði Jónasar mörg eins og athugasemdir við eða á- lyktanir iregnar af gangi þjóð málanna. Hann yrkir um hand- ritin. sjómannadaginn, landhelg- ina. níðangursleg kvæði um ráð- herra og ríkisstjórn. efnahagsmál og hernám Fyrir kosningar yrkir hann m.a. Alþingishúsið var reist á síðustu steinöld danskra yfirráða á íslandi — þeir sem hafa aldur til að káupa áfengi til að gleyma lof- orðum frambjóðenda hafa kosningarétt með bví aP nota bifreiðamerk1 Þingvalla. en það var bókstdfu> • inn X Þeir sem stjórna ríkinu em flestir hljóðdunkslausir glamrarar með gallaða hemla á glerhálku verðbólgunnar og gönuhlaup í stýri rikisins. en ganga fyrir viðreisn á blekkingum og fjármagni. Einu sinni var heimspekingur, sem bjó i tunnu. Hér höfum við annan sem bjó í tjaldi. Og því er ekki að neita að sá sem hundsar kröfur þjóðfélagsins. verður að horfast i augu við ❖msa erfiðle k3. — Undanfarinn hálfur mánuð- ur hefur verið erfiður hjá mér segir skáldið Ég hef ekki bragðsð mat i þrjá daga f morsun dreymdi mig blóð Það var verið að 'i’-eoa margt fólk Ég ætlaði að forða mér. en þá var kastað eftir mér hnifi Ég fékk hann milli herða- blaðanna. Þegar ég vaknaði fannst mér ég liggia f blóðpolli. — Hvar ætlarðu að gista i nótt? — Ég veit það ekki, segir skáid ið, brettir upp frakkakragann, og hverfur mjög áhvegjufullt á svip út f kvöldmvrkrið Kannske lifa nokkrar hendingar eftir hann fram á tuttugustu og fyrstu öld pegar við duglega fóLk- ið erum gleymd með öllu. Víst er hann blankur, en eins og hann segir: . . .ég 4 krónu á himni sem hnígur við sjóndeildarhring í karlsvagni strætisins ek ég vetrarbrautina heim 1 myrkrið. Inga 975 I

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.