Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Side 18

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Side 18
Dómkirkjan i Helsinki. ar borgir, eru sölutorgin, sem jafn- an eru þéttskipuð fólki með hvers konar var.aing lítið eitt fram yfir hádegi, svo að þar verður vart þverfótað, en eru svo allt í einu orðin auð og mannlaus. Sölutorg- ið í Helsinki er þeirra stærst og kunnast. Það er við Syðrihöfnina, rétt neðan við forsetahöllina, ráð- húsið og lögreglustöðina, sem standa hlið við hlið að kalla, og örlítið fjær gnæfa gylltir Iauk- turnar rússnesku kirkjunnar, mesta musteris grísk-kaþólskra manna í landinu. Hverju sölutorgi fylgir svonefnd kauphöll, sem raunar er fyrst og fremst kjöt- markaður. Yfir þessum sölutorgum hvílir hálf-austurlenzkur svipur, þótt ekki sé þar þjarkað og þrefað um verð né höfð uppi hróp. Ekki spill- ir það, að á þeim má jafnan eiga víst að sjá nokkra Sígauna — lurfu lega karla, oft hálfdrukkna, og bústnar svarthærðar konur í afar- síðum og viðurn pilsum, oft ísaum- uðum og með hringi í eyrum og festar og armbönd eftir efnum. Börnin, sem þessu fólki fylgdu, voru aftur á móti hálfnakin og stundum allsber og gengu um betl- andi, einkum ef þau komu auga á útlendinga, sem liklegri voru til þess að láta eitthvað af hendi rakna en heimamenn, er vanir voru sníkjum þeirra. Jafnskjótt og Sígaunaböfnum hafði eitthvað fén- azt, var fullorðna fólkið komið á vettvang til þess að hremma feng- inn, og voru handatiltektirnar oft þær, að þrifið var í hárið á krakka nórunum og þeim haldið á því á meðan leitað var á þeim. í Finnlandi er mikil gróska, og mátti það hvarvetna sjá, ekki sízt í Helsinki. Allar búðir voru full- ar af fallegri vöru, og fólkið á götunum vel og snyrtilega búið, þótt algengt sé, að unglingar og jafnvel fulltiða konur gangi ber- fættar og skólausar úti við í sum- arhitunum, sem oft eru miklir á þessum slóðum. Sama sið hafa Iíka afgreiðslustúlkúr sums staðar. Finnskur iðnaðarvarningur hef- ur á sér það orð, að hann sé vand- aður og smekklegur. Þegar haf- izt var handa um að reisa landið úr rústum eftir styrjaldirnar, varð iðnaðurinn helzta bjargráðið. Á þann hátt bættu Finnar sér upp landmissi — unnu það inn á við, er þeir höfðu misst út á við. Dýrtíð er mikil í Finnlandi og verðlag allt hátt, og af þeim sök- um og öðrum fleiri er þess lítil von, að þeir geti framleitt iðnað- arvarning, sem seljist verðsins vegna á erlendum mörkuðum í harðri samkeppni við stórþjóðir, er betur fá notið sín við fjölda- framleiðslu. Þess vegna var að því ráði horfið að leggja megináherzlu á gæðin — láta einskis ófreistað til þess, að finnsk vara yrði jafn- an álitin góð vara. Þetta hefur kostað mikla ár- vekni og strangt eftirlit, en Finn ar eru ekki neinir undansláttar- menn í eðli sínu, og með elju þeirra og listfengi hefur öllu farn- azt vel. Vinnukapp er áreiðanlega mikið, og, líkiega taka konur hvergi á Norðurlöndum jafnmikinn þátt í hvers konar störfum sem þar. Finnskar konur fengu mjög snemma Kosningarétt, svo undar- lega sem það hljómar, svo að ekki er nema eðlilegt, að þær skipi sinn sess í félagsmálum. En auk þess sinna þær margvíslegum störfum, sem karlmenn gegna yfir leitt annars staðar á Norðurlönd- um. Þær fást við byggingavinnu, uppskipunarvinnu, akstur, gatna- 978 r 1 M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.