Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Page 20
KonungshliðiS í Svíaborg. lega, og enn einn dagur er lið- inn. Allt stendur á höfði i kring um þá þetta hlýja júlíkvöld. Sand- urinn undir þeim er enn volgur, þó að sólargeislarnir heinist nú út í himingeiminn, þar sem þeir stingast eins og glóandi spjót í letilegar skýjaslæður, sem hafa lokið dagferð sinni á himninum. Hafið er líkt og runnið saman í silfurskjöld og bærist ekki leng- ur, en hátt yfir því blikar á guH- trefjar í loftinu: Það er síðasta sólkveðjan á vængjum mávanna. í fangabúðunum bak við þá er varla nokkur lífsvottur. Þúsundir þreyttra Jíkama eru ííkt og stein- runnir og grónir við jörðina. Allt er svo hljótt — ekkert hefur gerzt í dag, hversu margir sem kunna að hafa vænzt einhvers, og ekkert gerist. Þarna er ekkert kvikt, nema fáeinar mýflugur, sem suða gráðugar yfir vondu blóði fanganna. En þeir verða þeirra ekki varir. Faðirinn hefur lagt af að und- anförnu, «n Bro er þó miklu hor- aðri, svo oft er hann búinn að gefa matarskammtinn sinn. Herða blöðin skaga út úr breiðu baki hans undir óhreinni mussunni eins og vængbein hafi verið þar klippt í sundur, og andlitið er grátt og tekið. Honum finnst vera blý i fótunum á sér, og það er eins og graftól séu að verki inn- an í honum. Hann hefur barið höfðinu við steininn, þegar vílið sótti á hann, en nú finnur hann allt í einu, að það má ekki seinna vera, að hann fái svar við spurn- ingu, sem honum hafði búið i huga síðan i morgun, þegar hann tók ókunnugt barn sér við hönd og reikaði út að Kóngshliðinu. Hann varð að heimta svar, ef annað stoðaði ekki. Hann hvessir augun á föður- inn, miskunnarlaus í spurn sinni: — Segðu mér eitt: Þessi telpa þín . . .ertu að bíða eftir henni eða matarbögglinum, sem hún hef ur stundum meðferðis? Föðurnum verður hverft við. —Ja þannig hef ég spurt sjálf- an mig. Og hann bætti við lágum rómi, þegar hann hafði velt vöngum dá- litla stund: — En þú skilur kannski, hvað þetta er allt undar- legt. Ég veit ekki. einu sinni, hvort ég á þetta barn. — Eigi einhver barnið, þá ert það þó líklega þú. — Það hef ég líka oft sagt við sjálfan mig. Enginn hefur verið mér sem hún. En samt sem áð- ur . . . Það er dálítið, sem ég verð að segja þér. Bro dró andann djúpt. Nú átti hann loks að fá að vita eitthvað. — Jú, ég var ökumaður á Rist- arbæ — sem sé. Það ár kom þang- að nýr husbóndi — ungur skratti, en hressilegur í tali og kumpán- legur, svo að okkur varð vel til hans fyrst í stað. Nema hvað frú- in, sem var dönsk, rauk allt í einu burt og heim til sín. Okkur grunaði reyndar, hvað olli. Óg svo er það dag einn, að húsbónd- inn ungi sendir mér skilaboð að koma til sín í skrifstofuna. — Valli, segir hann, þegar hann hef- ur aðgætt, hvort hurðin sé lok- uð, — ég er búinn að setja kúlu framan á stelpuna í fjósinu. Og nú ætla ég að gefa þér hana, Valli minn. Ég tvöfalda kaupið þitt . . . Hvað er þetta maður? Þú stendur þarna eins og draugur á miðju gólfi og rekur undir þig haus- inn . . . Ja, hvers vegna ekki, húsbóndi góður, svara ég. Því að það leyndi sér ekki, þetta rneð stúlkuna. Og þannig eignaðist ég konu. Barnið þeirra dó rétt eftir fæðinguna, en kauphækkuninni 980 Tífl I M N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.