Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Síða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 05.11.1967, Síða 21
hélt ég. Þetta var svo sem ekiki að lasta, og ég var ánægður með konuna. Hún var dugleg við öll verk, og ég gat ekkert að henni fundið. Þar til eitt kvöld. . . Hann þagði litla stund, eins og hann yrði að taka sér ofurlitla málhvíld áður en hann treysti sér til þess að hreyfa við illa grónu meini. Svo hækkaði hann róminn: —Þig grunar það kannski — mig fór að óra fyrir því, að ekki myndi allt með felldu. Svo var það einu sinni, ja, það var á milli hátíðanna, að húsbóndinn bauð öðrum stórbændum í héraðinu til veizlu, og um miðja nóttina lét hann vekja mig til þess að aka þeim heim blindfullum. En ég var ekki kominn langt, þegar einn þeirra veiktist í sleðanum, svo að ég varð að snúa við. Ég fór að svefnherbergi húsbóndans og barði að dyrum, og þá varð ég þess var, að einhver læddist út bakdyrameg in. Það var konan mín. Þá nótt varð hún að standa úti í fönn og gaddi og kannski var það líka heppilegast, því að annars hefði ég barið liana til óbóta. En dag- inn eftir snarast ég inn í skrif- stofuna til húsbóndans. — Þetta, sagði ég, — þetta var aidrei í samningum okkar. Því að rétt skal vera j-étt, og hafi ég eignazt konu, þá er hún konan mín. Hann lofar að hækka kaupið mitt í ann- að sinn, en ég stappa í góifið og æpi framan i hann, að ég vilji ekki nein hórgjöld, og svo hræki ég til hans og rýk út. Ég fékk mér undir eins vinnu annars stað- ar, og við fórum burt, ég og kon- an mín. Það greri aldrei um heilt með okkur eftir þetta, þó að kyrrt lægi, og fimm eignuðumst við börnin áður en hún dó. Elzt þeirra er hún, telpan hérna, og fæddist hálfu ári eftir að við fórum frá Ristarbæ. Og hvort hún er barn mitt eða barn hans — það veit enginn. Ég held jafnvel, að hann hafi átt hana. — Hvers vegna þarft þú að vita það? Barnið hefur gert þig að föður sinum. Það veiztu að minnsta kosti. — Já, segir faðirinn hugsi og horfir tómlátlega í áttina að gadda vírsflækjunum kringum fangabúð irnar — eiginlega var hún bezt af öllum börnunum, telpuanginn. . . . Hvernig skyldi hinum fjórum líða heima núna? Bro situr álútur með lokuð augu — Það setur að honum svima við allt það, sem honum hefur verið sagt. Hann sér í anda dökka, þykka fléttuna, sem hékk svo umkomulaus niður á' bakið á henni morguninn forðum, þe»# ar hún stóð við dyrnar á her- mannaskálanum og starði þegjandi niður á tærnar á götugum skón- um sínum. En augnabrúnirnar, siikimjúkar og bogadregnar, minntu á Andrés — nei, það var líklega ekki nein tilviljun. Hann biður þess, fullur angistar, sem kemur næst. Hann veit, að sög- unni er ekki lokið. Þegar hann opnar augun, sér hann, að svartur gufubátur stefn- ir inn álinn og dregur kolareyk- inn eins og sorgarslæðu á eftir sér. Honum dettur í hug, að þessi blakki bátur sé táknmynd þess, sem menn nefna örlög. Hann held- ur með þann farm, sem í hann hefur verið látinn, til þeirrar hafn ar, sem honum hefur verið ákvörð uð, og það er ekkert undanfæri að taka á móti því, sem í lestinni er. Sjálfur trúir hann á þann, sem bátinn sendir, og þann, sem við stýrið er — að þetta gerist ekki allt í blindni. Það skynjar hann með hverjum dropa blóðs í hjarta sínu. En hann lokar samt augun um með nroll í æðum og bíður. Einhvers staðar langt inni í sér heyrir hann þessi venjulegu köll úr klefa Agústs Ripös — neyðar- óp alls, sem lifir, til guðs og manna. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAfi 981

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.