Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 2
mér? Hann gáði inn í allar koj- urnar, en þegar hann kom að minni, var mér nóg boðið. — Þú ættir nú að fara að leggja þig, Palli minn, sagði ég. — Ég skal finna hann, sagði hann. Hann var hérna. Við drukk- um saman. — Þú ert með de'rdum, sagði ég,'og itrekaði heiðni mína, að hann færi að leggja sig. — Ég' með deliríum? sagði hann móðgaður. Þá þekkirðu mig illa. — Ég þekki þig vsl, Palli minn, sagði ég. — Hann hefur kannski skropp- ið upp, sagði hann. — Hann hlýtur þa að koma bráð lega, sagði ég. Bíddu rólegur á meðan. — Ég verð aldrei rólegur fyrr en ég finn Harvey, sagði hann og Framihald á 1125. sfðu. fAAAGNÚS JÓHAMNSSON FRÁ HAFNARNESI: Skáfoh við Harvey Hann kom slaganc’i út úr gra- um morgninum milli vöruskemm- anna, stefndi til skips með sení- verbrúsa í beltinu. Við höfðum beðið eftir honum, og karlinn var farinn að ókyrrast í brúnni — Það var ekki völ á beiri sjómanni, góðum dreng og félagi, þó hann skvetti í sig. Við höfðum verið skipsfélagar lengi, stútað margri mænunni saman, glaðzt og hryggzt yfir dýrum veigum. Ég var kunnur sögu hans. Hann hafði lent í sly.-i fyrir nokkrum árum. Hann kenndi sér um þetta slys, ásakaði sig fyrir að hafa ekki einnig farið í djúp- ið með félaga sínum, sem ekki hafði pláss á kilinum, er hvoift hafði undir þeim bátkænu í er- lendri höfn. Þessi asökun kom ætíð fram, er hann var með vmi. — Ég drap hann, sagði hann. —Hann hékk í mér. Ég hefði átt að fara líka. Þegar hann var kominn undir þilljur, og skipið komið á skrið, tók hann upp veski sitt. Við átt- um einhverjar krónur hjá honum, strákarnir. Það var jafnan venja, að hver lánaði öðrum, ef skorti fyrir drykk, þá sjaldan við sáum land. — Vertu ekki að þessarí vit- leysu, sagði ég, er hann rétti mér seðlana. — Heldurðu, að ég sofi ekki fyrir þessu í nótt? — Veit ég það, Sveinki, sagði hann — En nú ætla ég að gera upp. Þessi orð hans snurtu mig illa. Þau voru þannig sögð, eitthvað í röddinni, sem ég kunni ekki við. Það var ekki undankomu auð- ið. Hann tróð seðlunum í vasa minn og gerði slíkt hið sama við hina, þó að þeir mölduðu í mó- inn. Hann var óvenju þögull og minntist ekki á slysið, eins og þó ætíð var vani hans drukkins. Ég fór í koju, en sneri mér fram og fylgdisf með honum, þar sem hann sat við borðið, biandaði drykk handa tveim og skálaði við ósýnilegan félaga. —Skál, Harvey, sagði hann og lyfti glasinu. Ég sá í huganum félaga hans drekka honum tiL Þannig hélt hann áfram að skála oig tala við hinn ósýnilega gest, þar til flaskan var tóm. Hann var glaður meðan á þessu stóð, rak stundum upp hláturrok- ur, beygði sig fram, eins og hann væri að minnast af kærleika við mótseta sinn. Strákarnir voru löngu sofnaðir. Slákt sem þetta var þeim ekkert nýnæmi. Hrotur þeirra voru drungalegar. Hann stóð upp, leit í kring um sig, eins og sýnin hefði horfið augum hans: Hvar ertu Hai-vey? Af hverju ertu að fe’a þig fyrir 1106 T t U 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.