Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 8
Ureyri 1959. Skólahúsið á Möðru- Völlum brann 22. marz 1902. Flutt- ist stofnunin eftir það til Akur- eyrar — eins og amtmaðurinn. Það er svo með nýrri prestakallsskip- un 1907, að hálfir Möðruvellir verða prestsetor. Stendur svo enn að nafni til, því að prestur fyrir- finnst enginn. Það getur víðast orð ið, að prestlaust sé um einhver misseri. En ef prestur kæmi nú að nýju að Möðruvallaklausturs- brauði er vandséð hvar ætti að sitja þar sem öll prestsetursjörðin hef- ur verið leigð fram í tímann. Eru sMkt raunar pólitísk afglöp, sem toostaði eigi lítið gerræði til að fram næði að ganga. En vandséð er hvernig herra biskup geti aug- lý&t embættið, hinar nýju afmark- anir á bæjarhlaði, eða hvort tilvon- andi prestor ætti að sitja í stofu- fangelsi og þiggja fyrir það laun úr hendi fjármálaráðherrans! Lík- , lega er þó óþarft að velta vöng- um yfir hugsanlegum útgönguleið um þessara aðila. Ef prestur kæmi að Möðruvöllum yrði hann annað- hvort þingaprestur — eða flytti aðsetrið til Akureyrar, eins og amtmanninum fór og skólastofn- uninni eftir hinn eyðandi eld. Prófasturinn í Eyjafirði er farinn og getur því naumast orðið ráð- gjafi í þessu máli til enda. II. Foreldrar mínir gengust fyrir 90 ára afmælishátíð Möðruvalla- iklausturskirkju haustið 1957. Þá var hið aldna og fagra guðshús þéttskipag, eins og raunar svo oft 1112 athöfnina í kirkjunni safnaðist mannfjöldinn saman við leiði kirkjusmiðsins, þar sem faðir minn flutti svofellt ávarp: „Kærir tilheyrendur. Hér stend- ur kirkjan í garðinum. Þegar minn ingar eru raktar, þær, er koma við sögu hennar, hlýtur hugur vor oft að staldra við kuml hinna dánu, gömul og gróin leiði, signar graf'hellur með fölnað og óskýrt letur, og önnur minnismerki geng- inna kynslóða. — Minningarnar kunna ekki síður tök á oss í þess- um sporum. Og ástæða væri til, einmitt í dag, að ganga hér að mörgu leiði í virðing og þökk. En vér látum oss nægja að koma að- eins hingað í þetta sinn örstutta stond, að gröf Þorsteins Daníels- sonar, kirkjusmiðsins. Hér er leiði hans að kórbaki, þar sem sólar nýtur fyrst hvern heiðan morgun og í vari fyrir mestum veðrum. Allt svo táknrænt fyrir líf og starf þessa mikla dugnaðarmanns, sem svo oft reis sjálfur með sól og byggði svo mörgum og bjó storma hlé. Á varðanum gamla, sem hér hef ur nú aftur verið reistur, að mestu óskemmdur, standa þessi orð: HÉR HVÍLA HEIÐURSHJÓNIN ÞORSTEINN DANIELSSON DBRM. OG MARGRÉT ÞORLÁKSDÓTTIR FÆDDUR 1796- DÁINN 1882 FÆDD 1800- DÁIN 1881 MANNKOSTIR OG DUGNAÐUR ÞEIRRA VAR FRAMÚRSKAR- Og nú Ijúkum vér 90 ára af- mæJishátíð Möðruvallaklausturs kirkju hér við gröf kirkjusmiðs- ins með því að ég, fyrir hönd safn- aðarins, legg þenna heiðurs- og minningasveig á leiði hans. Friður guðs hvíli yfir vígðum reit hinna dánu. Vér biðjum þeim ævarandi miskunnar og blessunar drottinis. Drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, sem lifa“. Sunnudagurinn 5. ágúst 1866 var Möðr u vallaklaustur skirk j a, virðulegasta og veglegasta timbur- kirkja í landinu allt til þessa dags, vígð. Þorsteini á Skipalóni bótti vænst um þessa kirkju af öllum byggingum sínum. Vígsludagur- inn hefur verið mikill tímadagur í lífi kirkjusmiðsins, amtmannsins á staðnum, en vegna aðseturs hans þar, var kinkjan gerð svo vegleg, og prestsins, séra Þórðar Þ. Jón- assens, og að sjálfsögðu sókr.ar- manna allra. Ailt um kalsaveður á norðan var mikill grúi fólks úr ölluim áttom á Möðruvöllum þenna dag, eins og Sveinn amtskrifari segir í dagbók sinni. Meðal fólks- ins var ungur sonur hans, Nonni, sem síðar varð heimskunnur rit- höfundur og kaþólskur prestur. — Síra Daníel Halldórsson pró- fastur á Hrafnagili hefur vígt kirkj una, og auk síra Þórðar má telja víst, að þar væri viðstaddur tiá- grannapresturinn síra Páll Jóns- son á Völlum, sálmaskáldið. En síra Arnljótur á Bægisá tepptor á Alþingi. Enda þótt Kristmundur Bjamason lýsi vel kirkjunnj á Möðruvöllum i bók sinni: Þor- „Leikhúsið" í Möðruvöiium, það er að seg|a iþróttchús MöðikjvalLaskóla. T t M I N N - SUN NUDAGSBLAÐ áður og allt fram til 1966. Eftir ANDI. Stofan á Skipalónl frá 1824 og pakkhúsið frá 1843. Bygglng- ar Þorsteln Danlelssonar.

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.