Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Blaðsíða 22
eins nokkur eintök af bókinni, sem frúin var svo að gefa á tombólur næstu árin! Af öðrum ritstörfum hans má nefna Nýtt stafrofskver, sem hann samdi, og greinar i Kirkjubiaði og Verði ljós. í hand- riti hafa varðveitzt dagbækur hans og ræður og skýringar á Davíðs- sálmum. Hebreskubækur voru til á Hofi fram undir 1960. Frú Sigríður dó a allrasálna- messu 1920. Var hún jarðsungin i Hofsreit í Möðruvallagarði, hjá manni sínum, Ólafi syni þeirra og yngri börnum þeirra hjóna, en alls höfðu þau misst 7 börn ung, bæði á Felli og í Möðruvallaklaust- ursþingum. Við fardaga 1905 tók síra tleir Sæmundsson við nágrannaþjón- ustu í prestakallinu. Helzt svo til vors 1907, er síra Jón Þorsteins- son kom í Möðruvelli, fyrstur stað arpresta i nýjum sið. Þjónaði síra Jón svo Möðruvölium og Glæsi- bæ til vors 1928. Mikil umskipti voru nu orðin á staðnum, skólinn farinn eftir brunann, sem fyrr er getið, hinn gamli grunnur klauslursins enn opinn eftir bruna. Fyrst er getið um bruna í þennan grunn 1316, síðan 1823, stofa Steíans Þórarins- s-onar, 1874, Friðriksgáfa, og loks 1902, skólahúsið. Síra Jón Þorsteinsson var fædd- ur á Hálsi í Fnjóskadal 22. apríl 1849, son síra Þorsteins Pálssonar og frú Valgerðar Jónsdottur prests í Reykjahlíð og Kirkjubæ í Hróars- tungu Þorsteinssonar. V^rð stú- dent 1869 ag prestaskólakandidat 4 árum síðar. Var þá sira Þor- steinn faðir hans nýlátinn. Þennan vetur hafði Jón ' guðfræðinemi kvænzt Helgu dóttur Kristjáns Möllers gestgjafa í Re'*iavik. Vet- urinn 1873—1874 voru þau heima á Hálsi, þótt nýr prestur væri kominn þar, síra Stefán Árnason, sem áður getur á Kvíabekk. en vorið 1874 vígðist kandidat Jón Þorsteinsson til Mývatnsþinga. Voru þau hjón þar að brauði afa síra Jóns í 3 vetur, en hurfu þá að Húsavíkurbrauði, tæp 2 ár þar, en fengu Lundarbrekku 1879,* bjuggu á Halldórsstöðum. Þaðan vék síra Jón 1898 og hvarf út á Sauðanes, embættislaus, en frú Hólmfríður, kona síra Arnljóts, var systir síra Jóns. Á útmánuðum 1899 er síra Jón settur aðstoðar- prestur mágs síns á Sauðanesi og hélzt svo til 1906, er hann fékk veitingu fyrir Skeggjastöðum á Langanesströnd. Þaðan svo aftur í fardögum 1907 að Möðruvöllum. Er hér var komið voru þau hjón bæði nær sextugu. Höfðu lengst af verið í sambýli eða setið í búi ann- arra. Hófu því ekki búskap á Möðruvöllum, en fengu íbúð i hluta hins stóra staðarhúss frá dög um skólans urðu þau því svo lít- ið fyrir öðrum á staðnum, sem frekast var unnt. Segir ekki gerr af því hér. En vinsæ’da nutu þau hjón í báðum sóknum 03 áttu goða vini á Akureyri. Þá voru þau í frændsemi við prastshjónin á Bægisá, en frú Jóbaana Gunnars- dóttir var systurdóítir sira Jóns. Einn son áttu þau Möðvuvaliahjón, Kristján Ludvig fæddur 1873, bók bindari og síðar verksmiðjustarfs- maður í Harðangri. Fru Helga lézt 1926, áður en sumarblómin föln- uðu og síra Jón snemma vars 1930, þá hjá Helgu sonardóttur sinni á Hjalteyri. Legstaður þeirra hjóna er austur frá kirkju á Möðru völlum og smekklega girtur og prýddur legsteini, sem sóknarbórn in reistu. Næstu presthjón á Möðruvöllum voru foreldrar mínir, síra Sigurð- ur Stefánsson og frú María Ágústs dóttir. Þau komu á staðinn vorið 1928, ung skólasystkin úr Reykja- vík með fagra drauma og glæst áform, en hurfu þaðan aftur haus-t ið 1966 eftir 38 ára veru í Novð- urlandi, að vísu með merka st.arfs- sögu að baki, frábæra í uppbygg- ingu staðarins og ræktun jarðar- innar og einstaka um hina kirkju- Iegu þjónustu, en þó með brostn- ar vonir og horfinn lífsþrótt Það þarf sjálfsagt ekki að gera ráð fyrir því að önnur biskups- hjón verði flæmd burt frá Möðru- völlum í Hörgárdal á þessari öld eða u-m næstu mannsaldra. Staðurinn er í álögum. Þess vegna varð hundrað ára afmælis- hátíð Möðruvallaklausturskirkju engin hátíð „aðeins fásótt, mis- lukkuð prestasýning", eins og gam all og reyndur bóndi i sókninni orðaði það í haust. Lausn 46. krossgátu JOLAHUGLEIÐING Framhald af 1110. síðu. það svo frúartitillinn, sem er kon- unni vörn og hlíf. Þær konur, sem hann bera, njóta meiri virð- ingar þjóðfélagsins, hversu latar og leiðinlegar, sem þær kunna að vera, heldur en einstæðar mæð- ur, sem berjasf við að koma barna hópum til manns, eftir að faðir- inn hefur gefizt upp. Uppeldis- vandi hinna einstæðu mæðra létt- ist ekki við það, að venjulega hafa -þær naum fjárráð, gjalda gamalla fordóma hjá ættingjum og um- hverfi, skortir hjálp með börnin. Það væri æskilegt, að við hvern barnaskóla væri dagdeild, þar sem börnin gætu dvalið við lestur eða föndur utan skóla, ef móðirin þyrfti að afla tekna eða biátt áfram að halda sér andiega vak- andi með því að skipta um um- hverfi og hitta annað fullorðið fólik nokkra tíma á dag. Það er nógu erfitt fyrir bórn- in, að alast upp hjá móður sinni einni, þótt móðirin sé ekki ein- rænn, útskúfaður vesaiingur, hrjáður af minnimáttarkennd. Minnimáttarkennd gagnvart okk ur, sem erum gift og stöndum saman. Okkur, sem erum rík. en þó svo nízk. Við eigum bvert ann- að og höfum bað gott, og svo verða aðrir að bjarga sér. Ekki fékk María mey inm i gistihúsinu. Hún ól barn sitt í jötu. Og lán- aðist ágætlega. Ei.istæðar mæður hafa þó íbúðir nú til dags. Líð- ur þeim ekki alveg prýðilega? Eða hvað? Inga. ¥ó. s £. G. s í s □33 ■2_ fl T R U L. L L k. israa á Rj fl sqq L fl N a s L'i F \ fl T ii ioj V \ X L 13 s; jv 2 { ' V H « Rl » : l\ 71 E t 4 \ 1 & vj O \jN \j I V 5 N m \ H 7 K fí L ! \JN fl 9 fl Í7 g! íii if! fl N S M i; E a N Nl ffll \ K Æ: R T fí u \R I N! N T \ M ~o r s Hl i N° É & n n! £ ul t7i I N S F 7 gT \T 0 tr V fli \ 1 71 X S fí L \ 7 löiaCiHHfiSíaaHÍ3S5í2EIE2a« \ ÍL. u Ni N! X V 11 Si U Nl Di BS E m \ dl ‘fl’ N x> fl KI T1 § 7 S Ki S 11 \ 0] §j fl! 17 K fll N L ul T' ö M! V Fj l1 í n1 n! fl jý Fu E F fl Li T1 D \ yl L! r. 1S1 W L! F s Ð! I í Ðl \ s fí T 3 ■01 MRÍ s fll fí Ðl F R IK. 1126 T t U ( N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.