Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Síða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Síða 6
og hirti fikkert um neinar af hans regluni. S: Svo er ekkert hægt að snúa sér, enginn til að leita hjálpar hjá. Fólk, sem hefur starfað við barna- og geðverndarmál í Reykja vík, telur brýna þörf fyrir ein- hverja stofnun á vegum ríkis eða bæjar, þar sem hjón í ógöngum geta laigt vandræði sín undir álit hlutlausra, sérfróðra aðila. Að vísu er ofdrykkjan geysieríið viðfangs, en mörg minni vandamál hafa eitrað andrúmsloftið milli jnanns og konu. Mörgum konum feliur illa að þurfa að biðja menn sína um peninga, eins og betlar- ar. Sumum karlmönnum fjnnst heimilið og það fé, sem til þess rennur, vera baggi á sér og láta jafnvel konuna heyra það. Þá væri ágætt að geta fengið hlut- lausan aðila^. til að segja, hvernig sanngjarnast væri að skipta tekj- unum milli hjónanna. Við slíka at- hugun gæti líka þveröfugt komið í Ijós, ,sem sé, að konan eyddi of miklu, til dæmis í föt eða heimil- isvélar, miðað við tekjur manns- ins. Það eru nefnilega bæði til eiginmenn, sem drekka of mikið, og eiginmenn, sem drekka of lítið. Við suma banka á Norðurlönd- um eru starfandi hagfræðimennt- aðir ráðgjafar um bezta nýtingu heimilistekna. Slík þjónusta er byggð á óskum um að bæta fjár- hag viðskiptavina, en ef mst bæt- ir hún líka margt hjónabandið, því utan ofdryikkju ,er fátt skeinu- hættara hjónabandshamingju en peningaáhyggjur. Nema eitt: Ótryggð. G: Vinkona mín komst í bréf frá manninum sínum til annarrar konu. Hún skildi það svo, að milli þeirra væri náið samband, fannst hún aldrei geta treyst manni sín- um framar og heimtaði skilnað. Um seinan kornst hún að því, að eiginmaðurinn var ekki eins brot- legur og hún hafði haldið. Um seinan komst hún að því, að hún hafði ekki hætt að elska hann. S: Konur eru oft alltof tor- tryggnar. J: En ef maðurinn ykkar væri farinn að heiman og byggi með annarri konu, eins og ég hef orð- ið að reyna, þá er ekki um ann- að að gera en reyna að standa á eigin fótum. Víst er það sárt og erfitt, en það væri þó miklu léttara, ef ekki væri tvennt, aura- leysið og mannréttindaleysið. Ég veit, að margar fráskildar konur eru betur settar en ég. Það hjiálpar mikið að eiga eða vera að eignast íbúð. Krakkarnir mínir spyrja á hverju ári: Hverí eigum við að flytja næst? Ég hef engar fastar tekjur nema tryggingaféð (mæðralaun, meðlag og fjölskyldu bætur). Þetta eru samtals 8.600 krónur á mánuði. Það eru nú öll ósköpin. Ég reyndi að vinna úti, en pað er blátt áfram of kostnaðarsamt með fjögur börn. Fyrir þau minni þarf að borga barnaheimili. Eng- inn tími gefst til að spara með því að sauma á þau föt. Vinnunni fylgir kostnaður vegna strætis vagnaferða, kostnaður vegna fata og snyrtivara, því ekki er hægt að mæta ógreidd á slopp. Svo er skóslitið meira. Skatturinn hærrf. Ofan á allt bættist, að meðan ég vann úti, neituðu bæjaryfir- völdin mér um húsaleigustyrk. Þeir sögðu, að ég væri svo dug- leg að bjarga mér. Útkoman varð sú, að það borgaði sig ekki fyrir mig að vinna utan heimilisins all- an daginn. Ég er hætt því núna, og mér líður miklu betur á sál- inni. Það var ekki gaman að láta eldri krakkana ganga sjálfala. En það er sama, hvað ég spara og sauma sjá-lf, þetta eru efcki nógir peningar. Ég vildi óska, að ég gæti fengið vinnu einhvers stað ar, svo sem tvo þrjá tím-a á dag. Það mættu gjarna vera gólfþvott- ar. Mín eina sérmenntun. G: Meðan ég var sjálf gift, hetfði ég aldrei getað trúað þvi, hv-ernig lif einstæðrar konu var. En ég finn sannarlega skilnings- leysi annarra bitna á mér núna. Jafnvel fjölskylda mín viriðst skammast Sín fyrir mig. S: Já, enda fyllist maður ein- hverri minnimáttarkennd gagn- vart þjóðféiaginu. J: Mér liggur við að segja, að einstæðar mæður njóti ekki mann- réttinda. G: Þegar maður er svo örvænt- ingarfuUur, að hughreystandi klapp á öxlina er kærleik-sverk, þá fær maður framan í sig: Þú hlýtur að vera að drepast úr karl- mannisleysi. S: Ó, hvort ég kánnast við þetta. Og helsærð eins og ég var, orð- in komu eins og sýra í sárið. J: Fólk missir margt upp úr sér, sem nístir. G: Meira að segja, þegar maður ætlar að reyna að skemmta sér! Afþakki ég dans hjá drukknum herra, þá kernur: Heldurðu ba-rasta að þú getir valið úr, góða? S: En útskúfuðum aumingjum, eins og okkur, treystir þjóðfélag- ið til að standa hjálparlaust fyrir uppeldi barna. J: Er ekki byrjað á öfugum enda með því að rei-sa hæli fyrir ta-ugaveikluð börn, meðan tauga- veiklaða-r mæður eiga ekkert at- hvarf? Það mótsagnakennda er, að ein- stæða, fyrirlitna móðirin hefur orðið að treysta svo mjög á sjálfa sig, að hún er kannske orðin bæði þros-kaðri og sjáltf-stæðari per- sónuleiki hel-dur en kona, sem alltaf hefur verið hugsað fyrir. J: Ég var vön að kjósa sama lista og allir kusu heima. Nú hef ég mínar eigin skoðanir á stjórn- málum. G: Ég hafði aldrei borgað raf- magnsreikninginn sjá-lf. Ætli ég hefði vitað, hvernig átti að fara að því. S: Ég hef kynnzt miklu fleira fólki, og séð miklu meira af líf- inu, heldur en ef mér hefði ver- ið fært allt upp I hendumar. G: Já, stelpur, það þýðir ekk- ert að gefast upp. Og e-ftir fimmt- án ár, vitið það, hvað ég ætla að gera þá? Ég ætla að Iæra leirbrennslu. Ég ætla að fá mér litla kompu og bjástra þar allan daginn. Búa til leirmuni, skiljið þið. Ekki til að selja, heldur sjálfri mér til skemmtunar. Ef fólki finnst þeir ljótir, fær það ekki að sjá þá. S: Ég ætla að fara í hnattsigl- ingu. J: Ég er að hugsa um að helga mig félagsmálum. Stofna félag ein stæðra mæðra með hækkun barns meðlaga efst á blaði. Ég þoli ekki að vera eins og ómagi á þjóðfélaginu. Ég hata að láta gefa mér. Mér leiðist fólk, sem göslar I góðverkum. Það er sælla að gefa en þiggja. Ef stúlka átti barn u-tan hjóna- band-s hér áður fyrr, þá var hún eftir það titluð stúlka, en ekki ungfrú á bréf-um. Enn í dag er Frarahald á 1126. siðu. ino T t « I IM N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.