Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1968, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1968, Blaðsíða 21
Helgi frá Þórustöðum: ÞRJÚ KVÆÐI i. Oft hef ég numið staðar og hrópað til þess, er sendi mig: Hvert eru að senda mig? Og mér hefur þá ávallt fundizt l ég hljóta svar, og því lagt af stað á ný. Og drjúgan spöl hef ég jafnan farið áður en mér hefur skilizt, að það, sem ég hugði svar við ákalli mínu. var aðeins bergmál minnar eigin raddar frá þverhnípi dauðans. II. Ég og náunginn horfðum á spegilmynd mína, og ég var stórum meiri og glæstari í eigin augum en hans. En það raskaði þó ekki ró minni, því ég vissi, að við báðir erum rangsýnir. Svo hvorugur fékk séð mína raunverulegu mynd. III. Maðurinn gæddist viti, svo hann fengi þekkt takmörk sín. Veig gerðist örvandi, ástum veittist algleymi, svo kalsár hversdags- leikans yrðu honum ekki banvæn. TÍNT UPP AF GÖTUNNI IVEikiIvarmælska séra Árna Uppeldisdóttir Ólafar Svein- bjarnardóttur á Rauðamel, Ingi- björg Friðgeirsdóttir, þá 13 ára að aldri, gekk til spurninga hjá séna Árna Þórarinssyni á Stóra- hrauni. Eitt sinn, þegar Ingibjörg er að koma frá spurningum. seg- ir Ólöf við hana: „Nú held ég, að þú hljótir að vita mikið“. Ingi- hjörg svarar: „Mamma, hvað held- ur þú, að það þýði að setja litla fötu undir fossinn?" (Sögn Ólafar á Rauðamel). T f M l N N — SUNNUDAGSBLAÐ 405

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.