Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Síða 13
 Karmelklaustrið á Jófríðarstöðum í Hafnarfirði. Um 1100 settust einsetubræð ur að á fjallinu Karmel í Pale- stínu að fordæmi spámannsins mikla, Elíasar, sem þar var um 000 árum áður en tímatal kristninnar hófst. Þegar fram liðu stundir sameinuðust ein setubræðurnir í klaustri, og þarna var sett klausturregla um 1214 — ein hin strangasta klausturregla með sífelldri bænagerð við kvrrð og einangr un. Síðar dró nokkuð úr strang leika hennar, en um miðja sex tándu öld færðist hún aftur nær sínu fyrra horfi með starfi og fordæmi spænskrar Karmel systur, hinnar heilögu Teresu frá Avíla, sem talin er eins lcon ar endurstofnandi reglunnar. Karmelklaustur eru um allan heim. 1961 voru til 327 Karmel munkaklaustur og 732 Karmel nunnuklaustur. Fvrsta nunnu klaustrið var stofnað 1452 í Geldern, sem er rétt hjá Diissel- dorf í Þýzkalandi. Klaustrið í Hafnarfirði var stofnað árið 1939. Það ár komu hingað til lands þrjár nunnur frá Karmel klaustrinu í Egmond í Hollandi í því skyni að koma hér á fót klaustri. Þegar fyrsta álma kiaustursins var næstunl full- byggð, skall styrjöldin á. Það varð þess valdandi, að nunii . urnar þrjár misstu allt samband við Holland og fóru því til Ame- ríku og voru þar í Karmrl klaustrum, unz styrjöldinni s!ot aði. 1945 komu þær svo aftur hingað til lands, og var þá lok ið við fyrstu álmu klaustursins. Seinna var það stækkað wikið. Nú eru hér fimmtán nunnur í Karmelklaustri og una vel hag sínum á okkar — og þeirra — kalda landi. Því að KaiVht.-Uyst- ur eru íslenzkir rikisborgíirar og heita íslenzkum nöfnum. og þangað komu systurnar hver af annarri í brúnum búningum reglu sinnar — konur af fjarlægum lönd um, sem snúið hafa baki við glatwni heimsins og eignazt nýtt heimlkynni í friðsæld Jófríðar islaða. Syistir María Ólöf er doktor i bókmenntum og heimspeki frá há skóianum í Utreeht í Hollandi. í doklorsritgerð sinni fjallaði hún urn bókmenntalegt giidi Njálu, sem hún tatdi að verulegu leyti skáJdsögu. — Hvað oMi því, systir Ólöf, að þú valdir þér þetta verkefni? — Á árunurn kringum 1920 var mikill áhugi á Eddufræðum og íslendingasögum, bæði í Þýzka- landi og Hollandi. Norræna var kennd í háskólunum hollenzku — í Amsterdam, Utreeht, Leiden og Groningen. Prófessor R.C. Bauer og dr. Van Eeden, norrænufræð ingur frá Amsterdam, fóru báðir til íslands og skoðuðu marga kunna sögustaði sumarið 1912. Ár ið 1923 var dr. A.G. van Hamel skipaður prófessor í forngermönsk um fræðum við Utrechtháskó'la, hágáfaður maður og ágætur kennari. Þetta varð meðal annars til þess, að ég fór að lesa norrænu sem aukagrein að loknu kandidats prófi í Utrecht. Ég ætlaði mér þá að verða kennari, og þess vegna var bollenzka aðalnámsgrein mín. Þar að auki lagði ég stund á forn- þýzku. Prófessor van Ilamel er mörg um íslendingum að góðu kunnur. Hann kom mörgum hollenzkum TlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 829

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.