Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Qupperneq 18

Tíminn Sunnudagsblað - 19.10.1969, Qupperneq 18
Grænlendingur leikur iistir sínar á húSkeip. Kirkjan i Kúlúsúk, byggð árið árið 1922, hvers vegna þessir krossar eru þarna á víðavangi. Þetta eru gaml ar dysjar eins og tíðkuðust einu sinni á íslandi. Hér eru ekki nein ir kirkjugarðar, og þess vegna er fólk dysjað hér og þar eins og gerðist í heiðni. _ Gangan mjakast áfram, og kross unurn fjölgar eftir því, sem nær dregur þorpinu. Fóiikið lætur ým iiss orð falla, því að fæst af því hef- ur litið neitt slikt áður — sumir virðast jafnvel hálfhneykslaðir. En sinn er siður i landi hverju. Loks kemur þorpið í ljós í lít illi vík, sem segja má, að sé full af ís. Húsin lítil — rauðmáluð timburhús og nokkuð þokkaleg að sjá. En þau hefur danska stjórn in látið byggja og gefið fólkinu. Það virðist lifa þarna áhyggjulitlu lifi á kostnað dönsku stjórnarinn- ar, og einhver segir, að ódýrara væri að vista það á dýru gistihúsi í Kaupmannahöfn en hafa það þarna. En hér lifir það lífi sínu og lætur hverjum degi nægja slína þjáningu, alls um fjögur hundruð manns. Við skoðum okkur um í þorp inu um stund og horfum meðal annars á Grænlending leika listir sínar á búðkeip, er allur er úr selskinni, sem mun orðið sjald- gæft. Þá var kirkjuklukkum hringt. Flestir ferðalanganna fara inn í guðshúsið, þar sem einnig er skóli þorpsins. Kirkju þessa reistu skipbrotsmenn árið 1922. Hún ber þess líka merki, að hún er nokk uð komin til ára sinna. Það er dá- lítið einkennilegur hugblær, sem ríkir þarna í kirkjunni á þessum drottins degi, og mér verður hugs að til gamallar sveitakirkju úr torfi á íslandi — kirkjunnar á Hofi í Öræfum. Það er sérstætt guðshús, þokkalegt og betur hirt en þetta, sem við sitjum nú í hér kyrjandi sátma á hjara veraldar. Flestir taka undir við hinn bland- aða, grænlenzka kór, sem gerir sálmunum góð skl, eins og organ istinn. Þessi sérstæði kór hefði sómt sér vel í hvaða kirkju sem væri. Prestur er enginn til þess að stíga í stólinn. En á altarinu ligg- ur grænlenzk biblía opin, en sú heilaga bók var fyrst prentuð á þeirri tungu árið 1856. En græn lenzku skilja víst engir., sem þarna eru inni, nema heimamenn. 834 T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.