Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 9
suridí Muri varla vera tll sá tum í Kaupmannahöfn, að ég hafi ekki einhvem tíma verið þar uppi. Kaupmannahöfn hefur verið fóstra æðimargra islenzkra náms- manna öldum saman, og er svo enn. Margir íslendingar hafa setzt þar að og fjölmargir dveljast þar nokkur ár til að sjá sig um og stunda þá ýmsa vinnu sér til fram- dráttar. Kaupmannahöfn hefur jafnan verið mikil menningarborg. Þangað hafa fljótt borizt menning- arstraumar frá Frakklandi, Þýzka- landi og fleiri löndum Evrópu. Skáld og listamenn hafa oft flykkzt þangað amnars staðar af Norðurlöndum, sér til andlegrar hressingar. Menningarstofnanirn- ir eru margar — bókasöfn, lista- söfn og svo framvegis. Það er létt yfir borgarfólkinu, skemmtistaðir mýmargir og marg- víslegir. Það er margt að sjá í borg hinna sægrænu turna við Sundið. Borgarstæðið er flatt að mestu og stýra oft ókunnir göngu sinni eftir turnunum. Allt fram á okkar daga hafa það verið geysileg viðbrigði að koma úr fásinni á íslandi í ið- andi borgarlífið og glauminn, enda hefur ófáum orðið hált á því. Á íyrri öldum mun og tæringin hafa orðið mörgum að aldurtila. Hinir voru þó fleiri, er sóttu þangað menningu og manndóm og senni- lega á tunga vor og þjóðhamingja fáum stærri skuld að gjalda en ís- lenzkum Hafnarstúdentum. íslend- ingar hafa í um fjórar aldir sótt til Hafnarháskóla og flutt heim til íslands evrópska menningu. Bjarni Jónsson frá Unnarholti hefur með mikilli elju gert skrá yfir stúdenta frá íslandi, er innritazt hafa í Hafn arháskóla _frá upphafi og birt í bókinni „íslenzkir Hafnarstúdent- ar“, er út kom á Akureyn árið 1949. Nær skrá Bjarna yfir tíma-. bilið 1592—1944 og telur 1252 is- lenzka stúdenta alls. Allmargir hafa bætzt við síðan, svo að talan er senriiléga komin í fjórtán hundruð eða meir. Svo mörgum hefur Kaupmannahöfn verið gluggi að menningu Evrópu. Hafinarháskóli var vígður árið 1479, en heimildir um íslenzka stúdenta munu litlar framan af. Sumarið 1967 héldu Danír hátíð- legt 800 ára afmæli Kaupmanna- hafnar. Undirritaður fór þangað til að nema náttúrufræði við háskólann. Ilófst námið með heimspekinni eins og heíiriá á ístandl. Um þrjá prófessora var að velja — Brand, Kára og Jörund. Stúdentar sóttust eftir að komast til Kára (Kuhr), því námið þótti auðveldast og skemmtilegast hjá honum. En venjulega voru nemendaskrár hans yfirfullar, þegar íslendingar komu til Hafnar á haustin frá sumarvinnu sinni. Svo var 1929. Jörundur hafði þá einn pláss. Hann var rauðhærður og greind- arlegur, virtist allmjög stærðfræði- lega sinnaður, talaði skipulega, en því miður lágt og áherzlulaust. Það var líkt og skilvinduhljóð. Ég kom í tíma með doðrant hans mik- inn undir hendinni settist framar- lega, en skildi samt lítið fyrst 1 stað. Leit stundum að gamni sínu í fyrirlestrasal Kára, en þar var jafnan þröng á bekkjum. Kári ið- aði af fjöri, kom með smellnar samlíkingar og lét brandarana fjúka. Hann sótti mikið „mjólkur- póstabíóið“ á Vesturbrú og sat þar oft bak við súlu. „Hvergi er betra að sitja hugsunarlaus og hvíla sig“, er haft eftir honum. Ekki var hætta á, að kúrekamyndirnar kæmu róti á hugann. í eðlisfræði kenndi bráðmyndar- legur maður, Hansen að nafni, heljarmikla bók á þýzku, þræl- þungri. Hann var prýðilegur kenn- ari og vinsæll, þegar hann var heilbrigður. En ef hann kenndi kvefs eða annars lasleika, um- hverfðist karl — hélt reglulegt réttarhald og lét menn gata og snargata. í efnafræði þótti mér mest gam- an að Petersen í verkfræðingaskól- anum. Kennsla hans var ljós og fjörleg og oft lauk tímanum með óvæntum, geysilegum herbresti, svo að alíir hrukku við. Vitanlega ★ Séð upp i glugga íbúða' Jóns voru verklegar æfihgar auk fyrtr- lestra og yfirheyrslu. Vorum við íslendingar greinilega verr undir það búnir en Danir — og varla þekkti ég nokkurt tré eða runna, þegar til Hafnar kom. Þetta var fyrsta skólaárið. Einu sinni leit ég inn í jarðfræðitíma hjá prófessor Böggild þann vetur og hitti svo á, að hann var að lesa skemmtilegan kafla um eldgos og jarðskjálfta — úr ritum Þorvalds Thoroddsens. Seinna heyrði ég hann minnast Helga Pjeturss lofsamlega. Sumarið 1930 athugaði ég ofur- lítið jurtaleifar í mólögum, gerði þverskurðarriss og tók einnig nokkur öskusýnishorn í Fljótshlíð og víðar og færði Böggild. Ekki vildi hann trúa því, að bæði tjóa og dökk aska gæti verið í sama öskulagi, upprunnin úr sama gosi. Sýnishornin hlytu að hafa blandazt hjá mér. En ég vis9i að svo var ekki. Mun fyrirbærið eg vel kunnugt nú. Álimikið þurfti ég að mér að leggja við námið, en get samt tedc- ið undir með Skúla landfógeta: Ljúft er hrós fyrir liðna stund, lifði ég í Höfn með gleði. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 177

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.