Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Qupperneq 15

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Qupperneq 15
INGÓLFUR JÓNSSON: Hvítar hendur * Hrafni varð starsýnt á hendur Jónasar, sem hann lét hvíla á skrif- borðinu fyrir framan sig, þannig að lófarnir sneru upp. Gat það verið, að þessi stóri, breiðvaxni maður ætti þessar m.iólkurhvítu, litlu hendur, sem frekar virtust tilheyra barni en manni um fimm- tUigt. Jú, það var nú enginn vafi á þvi, hugsaði Hrafn, enda sat hann sjálfur gegnt Jónasi við skrif borðið, svo að um missýningu gat ekkl verið að ræða. T f M 1 N N — SUNNUÐAGSBLAÐ — Þetta tal er ekki til neins, get ég sagt yður, sagði nú Jónas, þeir á ráðningarskrifstofunni höfðu heimild til að vísa til mín mönnum, en mitt er að velja eða hafna. Og þér skiljið víst bezt sjálf ur, að hjá mér er ekki staða handa yðtir. Yður hefði verið nær að missa ekkj þessa stöðu, sem þér höfðuð. Að þessum orðum töluðum reis Jónas úr sæti sínu og gaf með því til kynna, að samræðum þeirra væri lokið. Hvítar hendur, hugsaði Hrafn á leið sinni niður stiga þessa harð- viðarklædda, reykvíska verzlunar- húss, sem Jónas réði fyrir. Hvítar hendur og harðviður eiga ekki illa saman, bætti hann við með sjálf- um sér. En höfðu hendur Jónasar ávallt verið svona litlar og hvítar? Lik- lega höfðu þær verið það. Jónas hafði snemma kunnað þá list að hlífa höndum sínum. Hrafn mundi hann ungan, þegar þeir voru báð- ir nýkomnir til Reykjavíkur í at- vinnuleit. Það var á dögum hins brezka hernáms, þegar allt í einu var næg vinna handa öllum. Þeg- ar rautt gull Bretans seiddi fólk kyrrlátra sveita suður, þar sem bær var að breytast í borg. Þá hafði fundum þeirra Hrafns og Jónasar borið saman í rykug- um flutningadöllum við hafnar- bakkann í Reykjavík: Uppskipun- arvinna dag eftir dag og viku eftir viku. En dvöl Jónasar í sveit hafn arverkamanna varð ekki löng. Ávextir og vindlingastokkar, sem stundum losnuðu úr umbúðum, áttu greiðan aðgang að vösum Jónasar og urðu nær samtímis að verzlunarvarningi í höndum hans. — Margt smátt gerir eitt stórt, var orðtak Jónasar, sem einn dag- inn kvaddi vinnuhópinn við höfn- ina og gekk fyrstu skrefin I áttina til þessa glæsta húss, sem hann átti nú og réði yfir eins og kéng- ur. Þaðau stjórnaði hann útibúum sinum og varð jafnan fyrstur manna til að gefa efthiéktarverð- ai gjafir til líknarmála, einkum þær gjafir, sem voru frádráttar- hæfar til skatts. Ósvífnar tungur sögðu, að Jónas hefði eygt þann möguleika að byggja nógu veglegt hús, þar sem stórfjárhæðir gætu týnzt, svo að skattalögreglan, sem jafnvel veitt- ist að máttarstólpum þióðfélagsins, færi ekki neina sigurför til hans. Hvítu hendurnar hans Jónasar hafa dugað honum dyggilega, hugs- aðj Hrafn um leið og hann gekk upp tröppur lítils og fremur ó- sjálegs húss. í það átti hann sama erindi. Þar kom maður til dyra, og Hrafn sá sér til undrunar annan vinnufélaga frá hernámsárunum — mann. sem margt hafði reynt, en kunnað að taka sigrum og ósigr- um, sem höfðu skipzt á undalega oft í lífi hans, með sömu yfirlætis- lausu róseminni. — Svo að þú ert að koma frá Jónasi, kunningja okkar, sagði hús- ráðandi: Og fékkst ekki vinnuna. Já, ráðningarstofan er búin að segja mér frá þér, og starfið þíður þín, ef þú vilt. — Já, en þú veizt, Hreinn, að ég missti stöðuna, fannst Hrafni, að hann yrði að segja, svo að hann villti að minnsta kosti ekki á sér heimildir. — Misstir stöðuna — hvað varð ar mig um það? sagði Hreinn og brá fyrir glettnisbjarma í bláum augunum. — Trén vaxa upp úr rústunum, drengur, og við erum því aUtaf einhvers virði meðan ein- hverjum finnst taka því að taia ilia um okkur. Komdu nú og fáðu þér kaffisopa og reyndu að gleyma Jónasi, sem varð fyrstur okkar til að kveðja kola-og sementsdalla Bretanna. Hrafn gekk á hæla þessa gamla félaga síns inn í lítil og þröng húsa kynni, sem þó voru í augum hans bgartari en bin, sem hann hafði fyrir stundu kvatt, þó að þar bæri hvttar hendur við ljósan harflvið. 183

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.