Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 08.03.1970, Síða 18
Otrardalur, þar sem Guðmundur Sigurðsson átti athvarf um skelð. Ljdsmynd: Páll Jónsson. JÓN KR. ÍSFELD: Sveitarvísur úr Ketil- dalahreppi árið 1882 Þegar skyggnzt er langt aftur í tímann, er líkast því, að rýnt sé inn í rökkvaða stofu. Þegar menn fara að venjast myrkrinu, eins og sagt er, verður umhverfið smám saman greinilegra, þótt aldrei verði það fullkomlega skýrt. Þegar menn sökkva sér niður i eitthvert efni frá liðna tímanum, fer oft svo, að það skýrist betur og betur, eftir því sem áhuginn á því vex og athyglinni verður skarpara beint að því. Sveitarvísur, sem hér verða FYRRI HLUTI nú bi-rtar, eru ortar um húsbænd- ur í Ketildalahreppi í Amarfirði á árinu 1882, sennilega snemma á því ári. Má nokkuð ráða það af manntalinu frá þessum tíma. Þó að ekki sé lengra um liðið frá því vísurnar eru ortar, hefur reynzt erfitt að fá viðhlítandi upplýsing- ar um margt af því fólki, sem þarna er nefnt. Það er líka ekki fyrst og fremst tilgangurinn með birtingu þessara vísna að gefa sam- tímis þeim fullkomna lýsingu á fólkinu, sem þar er talið upp. Meg- intilgangurinn er sá að vernda þessar vísur frá glötun. Þær eru allt of dýrmætar til þess að glopra þeim í glatkistuna. Flest það fólk, sem í vísunum er sagt frá, á niðja ó lífi, bæði í Arnarfirði og víða annars staðar á landinu. Það get- ur verið skemmtílegt viðfangsefni þessum ættmenmun að leita sér nánari vitneskju um þessa forfeð- ur og formæður. Ég vil geta þess, að fyrir nær tuttugu órum sá ég vestur í Arn- arfirði handrit með Iþessum vísum. Fékk ég að skrifa þær upp og birti þær síðan í safnaðarblaði mínu. Ekki man ég nú, hjá hverj- um ég fékk þetta handrit lánað. Ég skilaði því til eigandans. Þess vegna veit ég ekki, hvort bandrit- ið er nú til. Gaman væri, ef hægt vœri að fá það til geymslu, til dæmis í þjóðskjalasafninu. Hand- ritið var talið skrifað af Jens Þor- valdssyni, sem 1882 var bóndi í Feigsdal. Hann hefur skrifað það fyrir höfundinn, Guðmund Sig- urðsson, sem ekki er vitað til, að hafi sjálfur skrifað Ijóð sín. Höfundurinn kynntur. Guðmundur Sigurðsson fæddist 2. nóvember 1841 að Botni í Tálknafirði, sonur Sigurðar Ás- grímssonar, bónda þar, og konu hans, Ingibjargar Asbjörnsdóttur. Það má telja nokkurn veginn víst, 86 T 1 M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.