Tíminn Sunnudagsblað - 24.05.1970, Blaðsíða 3
|jjj* •"»'« *,J *• Sirt“- ,i
Mih wMat 5
ví.!-:
■V ::
M^-7ímí;»wvaaíWíto-
Þegar sneyðist um fæðu hjá anabas,
skriSur hann á land og leitar sér aS
nýjum polli. Einu sinni skreið slíkur
fiskur hundrað metra á þrjátiu mín-
útum, og fór bæði yfir þjóðveg og
blómabeð.
Roðið á klifurfiskinum er þykkt. Það
hindrar útgufun, þegar hann fer á
land. Hann vegur sig áfram á ugg-
unum, og hart og stórgert hreistrið
er honum vörn gegn ránfuglum.
Fiskur einn, sem lifir í leðju, getur
stokkið metra upp úr vatninu með
því að siá tii sporðinum, Þannig
grípur hann flugur, en honum er
lika lífsnaiðsyn að anda að sér lofti.
Klifurfiskar og skriðfiskar hafa samið sig svo að lífskll-
yrðunum á þurru landi, að þeir drukkna, ef þeim er
haldið of lengi á kafi í vatni. Þessir fiskar hafa horfið
frá fornum lífsháttum kynstofns síns og lagt á nýjar
brautir.
Þessir fiskar voru af Clariidae-ætt-
inni og voru kynjaðir frá Afríku.
Þeir höfðu verið látnir í fiskatjörn
við hús eitt, en vatnið í tjörninni
hafði spillzt og þeir lagzt i flakk.
Maður einn á Flóridaskaga varð í meira lagi undrandi, er
hann rakst á tvo fiska á skriði í grasinu. Annar þeirra
gleypti frosk, sem varð á leið hans. Ekki var annað að sjá
en fiskarnir kynnu vel við sig. Maðurinn komst seinna að
því, hvers kyns var.
,ww í.afif'.UrM’ liil
Sf-
vtsfn if.v <:
wrtK
Óndunarfæri slikra fiska eru öðru
vísi en títt er um fiskakyn. Tálknin
eru að sumu leyti til þess gerð, að
þeir geti lifað í vatni, en að nokkru
leyti miðuð við það, að þeir andi sér
lofti.
í Asiu er fiskur, sem Malajar kalla
undicolli. Það þýðir fiskur, er skríður
upp í pálmavið. Klifurfiskurinn ana-
bas hefur lika fundizt uppi í trjám,
jafnvel allnokkra metra frá jörðu.
1ÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
387