Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Qupperneq 22

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Qupperneq 22
VIÐ GLUGGANN LíFSHÆTTA Á KAUPMANGARANUM Mælingar hafa sýnt, að suma sumardaga kemst mengun andrúmslofts á Kaupmangara- götunni 1 Kaupmainnahöfn á það stig, sem sænskir vísinda menn hafa talið hættuiegt. Hvergi í allri Kaupmannahöfn eru jafnmikil brögð aó mengun og þar. Ótti manna við mengun ina er orðinn mj'ög mikill víða um lönd, enda ekki óeðliíegt, þegar í háfum heimsálfum er ekki framar til loft, sem ekki hefur orðið fyrir mengun. Er þar dæmi Bandaríkjanna fræg- ast. RÉTTARFAR Á VILLIGÖTUM Danskur lögfræðingur, Erik Dynesen, hefur gert harða hrið að dönsku réttarfari. Hann seg- ir, að dómstólamir séu ekki eins og þeir ættu að vera. Kerfið verndi þá, sem ríkir séu og áhrifamiklir, ákæruvaldið níð- ist á sakborningunum, sem geti litlum vömum við komið oft og iðulega. f framkvæmd fari oft svo, að það sé sakborning urinn, sem verði að sanna sak- Ieysi sitt, í stað þess að ákærandinn sanni sekt hans. Lögreglan annast alla málsrann sókn, og hefur til þess mann- afla, fjármuni og hjálpartæki, og ÖH viðleitni hennar beinist að því að sanna sekt sakborn- ingsins. Ekkert viðlíka sé gert til þess að sanna sakleysi hans, og sjálfur hafi hann ekki til þess aðstöðu, sem að neinu leyti verði jafnað saman við aðstöðu Iögreglunnar, nema þá hann sé auðugur maður. Þetta mun víðar eiga við. LITIÐ TIL NORÐURLANDA Einn af leiðtogum frelsis- breyfingar Angólamanna, sem um árabil hefur átt í istyrjöld við Portúgali, Chipenda að nafni, kom fyrir skömmu til Kaupmannahafnar þeirra er- inda að ná vináttusambandi við jafnaðarmannaflokkana á Norð- urlöndum og leita eftir liðsinni þeirra á alþjóðavettvangi. íst. Þetta, sem hér er skráð, er ekki nema örlítið brot af starfs- sögu Valdimars Þorvarðssonar. Hann var maður sinnar kynslóðar, en þó í framtaki sínu nokkuð á undan samtið sinni. Hvort saga hans verður á blöð skráð eða ekki, mun hann með henni lifa og ekki gleymast þeim, er honum urðu samferða og hjá honum unnu. Þurrkhúsið smíðaði að öllu leyti völundurinn og dugnaðarforkur- inn Ólafur Andrésson, er 'smíðaðf þá jöfnum höndum hús og skip Hnífsdælinga og annarra, er til hans leituðu. Á þeim stað, sem þurrkhúsið stóð og fiskreiturinn hans Valdi- mars var, er nú risið félagsheim- ili þeirra Hnífsdælinga. Þar fer fram önnur starfsemi og skapast ný saga. En hvort endurminningar þeirra æskumanna, sem þar njóta gleðistunda, verða hlýrri, þegar tímar líða, en endurminningar drengsins, sem stóð við vaskakarið í steinskúrnum hans Valdimars, er spurning, sem aldrei fæst svar við. FERÐ UM ÍSLAND — Framhald af 515. síðu. mittið i von um að geta hitað mér á sprettinum. Við riðum í loftinu niður að Þjórsárholti, myndarlegum sveitabæ, sem stendur á hæð við stórfljót, sem heitir Þjórsá. Klukk an var langt gengin tíu, en ég vildi halda áfram og komast yfir ána. Áður en varði var ég umkringdur af heimilisfólkinu, sem þrábað mig að vera um kyrrt. Ég neyddisf til að verða við óskum þess og sá ekki heldur eftir því. Óveðrið, sem fór stöðugt vaxandi, kyrrsetti mig í tvo sólarhringa á þessum bæ, og kom mér í náin og hrífandi kynni við hina sönnu íslenzku menningu. Það, sem ég kynntist þarna, var efcki síður nýstárlegt, en ævin- týri mín á Torfastöðum. SAGAN AF ÓG — Framhald af 523. sífiu. Fimm fullir vöruvagnar komu til Þrælaborgar. og fóru í gegn. án þess að tollur væri greiddur. Því að hanzkamir reyndust allir vera á vinstri hönd — hver og einn einasti. ÓG dró sig i hlé og settist að á búgarði sínum, er þó var margveð- settur. -Hann var þreyttur og von- svikinn, í rauninni bugaður maður, þótt hann væri vada kominn á miðjan aldur. Stuttu síðar, í apríl- mánuði 1922, varð hjartabilun honum að aldurtila. Ættingjarn- ir afsöluðu sér arfi í skyndi, og gjaldþrotið gekk nærri mörgum peningastofnunum landsins. ÓG lét einna helzt eftir sig mómýrar, nær helming allra nýtanlegra mó- mýra í Svíþjoð. En mór var ekki lengur verðmæt eign og varð bað ekki á ný fyrr en í heimsstyrjöld- inni seinni. Sömu dagana og ÓG dó, geisp- aði Alma Jedriksson golunni, kom- in á nítugasta og þriðja aldursár. Þau hvíla bæði í grafreit ættar- innar í Málmey. Á legsteini Ósk- ars G. Jónssonar standa þessi l^mn wiw ii— ■ — iyi Lausn 21. krossgátu orð: „Náð guðs fylgi úlfaldanum í gegnum nálaraugað". Á legstein gömlu konunnar er aftur á móti letrað: „Þeir, sem guðirnir elska, deyja ungir“. Símon Ottósson reisti bæði minnismerkin og valdi áletrunina. H.H.J. þýddi. 5 Sfd £ R A H i o r rn r r i l s « fí L T fl fí £ T s r A K R fl WffdT / i f fí <J * L i) T/) N fí r n SN'Ci I N S QN I NN J I N N t £ S r RR Cr J 'fl N fí M S T fí U X M fí'O S 5 ’fl L K U R N'fl t R * * L L l 'fl fl S t R $ fí r P fl ML p t Nfl r K ú V f S I Þ fl N xó N L * *L L, fl T f\ ft p 0 S H * ð þ L A / ý S fl N U fl i> fí P fl r ZÚ S á LrN L R b N i fl V fl L T ffN SANPSTK & N & I N /V 1 526 T I U I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.