Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1971, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1971, Page 13
Hákon Bjarnason skógræktarstjóri — cinn allt of fárra eldhuga, sem ævh langt hefur unniS sleitulaust aS framgangi þess málefnis, .sem. hann tók ástfóstri viS þegar í æsku. — En hvenær hóíst áhúgi þinn á skógræktinni? — Hann kom nú svona smátt og smátt. Á uppvaxtarárum mínum í Reykjavík var búskapur svo að segja í hverju horni, þótt víðast væri hann heldur smár í sniðum og lítið, sem menn báru úr býtum. Þetta voru erfið ár, og mikil fá- tækt víða hjá almenningi. En hvað skógræktinni viðkemur, þá hef ég líklega orðið fyrir sterkustum áhrifum af Einari Helgasyni í Gróðrarstöðinni í Reykjavík. Hann var nágranni okkar, og við vorum alltaf að sniglast í kringum hann, strákarnir úr hverfinu. Hann var ákaflega barngóður, eins og þeir Laufásmenn og fleiri, og því afar- auðvelt fyrir unglinga að hænast að honum, enda varð sú raunin. — Svo leggur þú auðvitað út á námsbrautina eins og ætt þín og uppeldi stóð til? — Já. Ég settist í menntaskól- ann í Reykjavík og lauk stúdents- prófi, en ég viðurkenni fúslega, að það gerði ég ekki vegna þess, að ég væri hrifinn af náminu, nema því, sem Bjarni Sæmur.ds- son kenndi mér. Menntaskólanám þótti mér aldrei skemmtilegt, en ég vissi ofurvel, að það var óhjá- kvæmilegur áfangi, ef maður ætl- aði eitthvað að sækja fram í lífinu, svo ég gekk að því eins og hverju öðru verki. í menntaskólanum eignaðist ég marga góða vini og félaga, þótt við svo síðar dreifð- umst í ýmsar áttir, og ævistörf og lífsviðhorf hafi orðið með ýmsu móti. — Það væri nú gaman að heyra nöfn einhverra þessara gömlu fé- laga? — Já. Mér koma í hug núna á stundinni nokkrir, sem öll þjóðin kannast við. Menn eins og Bjarni heitinn Benediktsson, Finnbogi Rútur Valdimarsson, Gísli Guð- mundsson, Ragnar Ólafsson og Jó- hann heitinn Sæmundsson, en ég nefni þessa menn af því, að þeir fóru hver sína götu í stjórnmálum síðar meir. — Hvað tókst þú þér fyrir hendur, þegar stúdentsprófið var um garð gengið? — Ég sigldi til Kaupmannahafn- ar eins og margir íslendingar hafa gert, bæði fyrr og síðar, og hóf þar nám í skógrækt. — Varstu lengi í Danmörku? — Þetta var sex ára nám, og því lauk ég á tilsettum tima. Segja má, að allur tíminn væri eitt óslit- ið nám, því á veturna voru kennd- ar bóklegar greinar, en verklegar æfingar voru að sumrinu. Þó gat ég skroppið heim, eitthvað tvisvar eða þrisvar, á meðan á þessum tíma stóð. En þetta var strangur skóli og erfiður, einkum framan af. En námið var skemmtilegt og ákaflega fjölþætt. Við vorum send- ir um alla Danmörku og meira að segja suður í Þýzkaland. Þetta var með öðrum orðum bæði skemmti- legt og girnilegt til fróðleiks, þrátt fyrir harðan skóla. — Var þetta fjö&nennur skóli? — Nei. í minni deild vorum við aðeins átta — og einhvern tíma heyrði ég því fleygt, að við vær- um dýrustu skólanemendur Dana- veldis. í raun og veru er alls ekki ósennilegt, að svo liafi verið. En vegna þess, hve fáir við vorum, lærðum við lika meira. Og hafi það verið rétt, að við værum dýr ustu nemendur Danmerkur, þá gat Danmörk aftur í staðinn hrósað sér af því að eiga þann skógrækt- arskóla, sem einna mestrar virð- ingar naut í allri Evrópu. — Komst þú svo strax heim að námi loknu? — Þegai ,, þessum sex árum var lokið — }að var vorið 1932 — var ekki a8 neinu að hverfa fyrir mig hér heima, enda kreppa og atvinnuleysi í landi. Við það lengd- ist dvöl mín í Danmörku um eitt ár. Ég vann — kauplaust að vísu — við jarðvegsrannsóknir hjá prófessor Weis, sem verið hafði kennari minn, og einn þeirra, sem ég mat hvað mest. Hann var langt á undan samtíð sinni, enda misskil- inp af mörgum, og frábær kenn- ari. Það var hrein unun að heyra hann flytja ræðu, því hann talaði dönsku svo vel. Já, danskan er fallegt mál í munni góðs manns, skaltu vita! TlMINN - SUNNUUAGSBLAÐ 373

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.