Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Qupperneq 9

Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Qupperneq 9
mennum sögunnar, þegar þeir unnu afrek sín. Er það einhlítt, er þeir sjálfir segja um hvatir sínar, >eða freistast þeir til þess að færa það fram, er þeir vissu, að telrið yrði gott og gilt? Á þeim öldum, er evrópsk vísindi voru að mót- ast, voru vísindastörf yfirleitt tal- in jafngilda því að þræða „hugs- anir guðs“. Sköpunarsaga í fræð- um Gyðinga og kristinna manna lagði drottnara jarðarinnar skyldu á herðar, og þetta stuðlaði að því, að vísindalegar athuganir voru klæddar hjúpi trúarlegrar undir- gefni. Það, sem hér hefur verið sagt, virðist hljóta að leiða til ályktana, sem mörgum trúmanni munu þykja beiskar. Samt sem áður munu kannski sumir þykjast geta lesið sitthvað út úr þessum orð- um, er vera má til stuðnings trú þeirra. Það væri einkum tvennt: Vísindi nútímans eru sögu- lega séð framhald náttúruguð- fræðinnar, og hin háþróaða tækni getur að minnsta kosti að sumu leyti talizt uppfylling mikil- vægra kennisetninga í kristnum fræðum um ágæti mannsins og vald hans yfir náttúrunni. Eins og nú er komið neyðumst við þó til þess að horfast í augu við stað- reynd, sem verður ágengari og ágengari: Vísindi og tækni, sem þar til fyrir hundrað árum voru hugtök án tengsla, hafa nú fallizt í faðma og lagt mönnum í hend- ur ofboðslegt vald, sem þeim er um megn að hafa stjórn á, eftir áhrifum þess á náttúru og um- hverfi að dæma. Sé þetta rétt rök- semdafærsla, hvílir þung ábyrgð á krisftndóminum. Það er næsta hæpið, að tortím- andi mengun umhverfisins verði afstýrt með því að beita vísindum og tækni enn frekar en orðið er til lausnar þvílíkum viðfangsefn- um. Vísindi okkar og tækni hafa sprottið úr jarðvegi, er tilreiddur var af kristnum hugmyndum um afstöðu mannanna til náttúrunnar umhverfis sig, og þessar hug- myndir hafa ekki aðeins kristnir og nýkristnir menn tileinkað sér, heldur einnig þeir, sem talsverðri hreykni kalla sjálfa sig eftir- kristna. Kommúnistar eru til dæmis haldnir þessum hugmyná6 um, ekki síður/ en aðrifj og það sýnir meðal annars, að marxism- inn hefur sprottið af rétum krist- indómsins, alveg eins og Múham- eðstrúin, og má raunar færa rök að því eftir öðrura leiðum. Þótt við höfum átt Kóperníkus, er jörð- in enn miðdepill alheimsins, og öll tilveran snýst um hana. Þótt við höfum átt Darwin, skynjum við ekki okkur sjálf eins og þátt í náttúrlegu samhengi stórrar heildar. Við stöndum utan við náttúruna, við fyrirlítum hana og auvirðum, og við errnn reiðu búin til þess að misbjóða henni, ef við þykjumst hafa eyrishagnað af því. í þessum anda talaði ríkis- stjórinn í Kaliforníu, Ronald Reg- an, þegar hann lét til sín taka deil- una um stofnun Rauðviðargarðs- ins, einhverja hatrömmustu deilu, sem orðið hefur um friðunarmál í Bandaríkjunum: „Hafið þið séð eitt rauðviðartré, hafið þið séð þau öll!“ í augum manns, sem er á valdi hins kristna viðhorfs til nátt úrunnar, getur tré aldrei verið annað en stofn með greinum og Horft úr Almannagjá til Ármannsfells. Nafnlð ber þvi vltnl, að felltð hefur f öndverðu verið bústaður vætt. ar, ármanns, sem trúlega hefur vakað yflr þlnghelglnnl. Engtnn hefðl leyft sér að vlnna spjöll I Ármannsfelll á þelm tímum, Bifreiðin er ávöxtur af samruna og samvinnu vlslnda og tæknl. Nú rista blfntiðir sundur gróðurinn I Bolabási, og alW bendlr tll þess, að klarrbrekkurnar I sk|óll Ármannsfells breytist I gróðurvana au'ðn á tHtölulega fáum árum. 4«"" j. f T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 777

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.