Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Side 12

Tíminn Sunnudagsblað - 24.10.1971, Side 12
ig á mér liggur þá“. Og þar með sner hann sér aftur að saman- tektinni, en ég hljóp til bílsins, sem beðið hafði með stakri þolin mæði á meðan þessu fór fram. Daginn eftir hringdi ég eins og um hafoi verið taiað, og Einar lét tilleiðast að spjalla við mig. En það var þurrkur í Mýrdal þessa dagana og engin von til þess, að bændur gætu sinnt flækingum úr Reykjavík fyrr en að loknu dags- verki. Kvöldið eftir var ég seztur inn í stofu til Einars og tekinn að lit ast þar um með forvitni þess manns, sem kemur á bæ í fyrsta sinn. Ég vissi, að þeir hlutir, sem prýða stofu þeirra Skammadais- hjóna, eru ekki keyptir í Reykja hans. Hér er líka mikið af alls kon- ar útskurði, þar á meðal bókastoð ir forkunnlegar, skornar í birki. Margt fleira mætti telja, en ein- hvers staðar verður að stanza. Þetta ætti líka að nægja til þess að sýna þeim, sem ekki vissu það áður, að .það er enginn venjulegur bóndi, sem hér býr. — Hvenær byrjaðir þú á þínu fræga grúski, Einar? varð mér fyrst fyrir að spyrja, þegar ég loks- ins gat slitið mig frá bókastoðun um hans. — Það hófst nú eiginlega strax á barnsárum mínum. Ég hafði snemma mikinn áhuga á náttúru fræði, og það kom fyrir, að ég þætti vera lengi, þegar ég átti að r» „Þeim mun dásamlegra er lífið, sem maður kynnist því beturu Við ókum austur Mýrdalinn í stillilogni og glampandi sólskini. Það var tekið að halla degi. „Viltu ekki stanza fyrir neðan Skamma- dalshól“, sagði ég, „mig langar til að hitta Einar bónda að máli“. BíIIinn stanzaði þar sem um hafði verið beðið, og ég stökk út. Einar var að taka saman hey á skákinni rétt neðan við bilveginn. Við heils uðiimst. „Ég er að skrifa viðtöl við merká menn í Sunnudagsblað Tím- ans“, sagði ég. „Við merka menn?“ spurði Einar og hló. „Þá er nú aldeilis ekki víst, að þú sért á rétt um stað“. En maðurinn var of vin- gjarnlegur til þess að hægt væri að leggja strax árar í bát — ég hélt áfram að biðja um viðtalið. „Jæja, hringdu til mín um eittleyt ið á morgun, við skulum sjá, hvern vík, heldur búnir til af bónda sjálf- um — og það jók forvitni mína um allan helming. Það, sem fyrst vekur athygli, eru málverk á veggjum, bæði mörg og falleg: Reynisdrangar og umhverfi þeirra, þar sem öldur orotna á skerjum á merkilega sann færandi hátt. Mynd frá Vestmanna- eyjum (smáeyjar) — Mýrdalsjökull og heiðarnar að honum — landsýn frá Dyrhólaey bátar í austfirzkri höfn „Neðri bærinn" á Kálfa- felli í Fljótshverfi. Þetta eru hvorki meira né minna en fimm málverk. Og þótt undir- ritaðan bresti allt, sem til þarf að dæma þau frá listrænu sjónarmiði, þá gleðja þau augað. En það er fleirá en málverk, sem prýðir stofu Einar H. Einarssonar og konu mrnmmmummmmm- sækja hestana. Þeir gengu í heið inni hérna fyrir ofan bæinn. — Hvað varstu þá að skoða? — Það gat verið berglag í kletti, blóm við læk eða bara jörðin, sem ég gekk á. Þú gat það auðveldlega komið fyrir, að ég steingleymdi því, að mér hafði verið sagt að flýta mér, eða að ég væri yfirleitt að sækja hesta. En þegar ég rank- aði við mér og var kominn á bak, þá var kannski reynt að fara þeim mun hraðar yfir. — Það hefur náttúrlega ekki verið mi'kið um tækifæri til þess að láta eftir slíkri „ónáttúru"? — Onei. Það var nóg annað að gera. Ég var einkabarn foreldra minna og því ekki öðrum að ýta en mér. Það er sömuleiðis því að þakka eða kenna, að ég bý hér nú. 780 1 I M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.