Morgunblaðið - 01.05.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 01.05.2004, Síða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ FORDÆMA PYNTINGAR Misþyrmingar bandarískra her- manna á íröskum föngum í Bagdad fyrir nokkrum mánuðum hafa verið fordæmdar víða um heim, ekki síst í heimi araba. Bandaríska sjónvarps- stöðin CBS birti ljósmyndir af vörð- um að pynta fanga í Abu Ghraib- fangelsinu. Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og George W. Bush Bandaríkja- forseti fordæmdu í gær athæfi fangavarðanna. Stækkun ESB í höfn Aðildarríkjum Evrópusambands- ins fjölgaði um tíu í gærkvöld og eru þau nú alls 25 og íbúar rúmlega 450 milljónir. Sambandið er jafnframt öflugasta efnahagsheild heimsins. Mikil hátíðarhöld voru í öllum aðild- arríkjunum. Segja frá fjöldagröfum Stjórn Bosníu-Serba hefur nú í fyrsta sinn veitt upplýsingar um staðsetningu fjöldagrafa sem geyma lík fórnarlamba fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995. Um 7.000 manns eru talin hafa verið myrt í borginni af sveitum Bosníu-Serba. Tveir handteknir Nýjar vísbendingar lögreglu um bankaránið í SPRON við Hátún í janúar hafa leitt til handtöku tveggja manna. DNA-rannsókn lög- reglu sýndi að lífsýni úr öðrum þeirra fannst í nælonsokk, hanska og húfu sem fundust utan við bank- ann rétt eftir ránið. Hinn grunaði er 42 ára gamall og félagi hans 35 ára. Þeir neita allri aðild. Kamfílóbaktersmit minnkar Kamfílóbaktersmit í mönnum er á undanhaldi að því er fram kom á Vís- indadegi að Keldum í gær. Jarle Reiersen, dýralæknir og sérfræð- ingur í alifuglasjúkdómum, segir að þrátt fyrir að neysla á ferskum kjúk- lingum hefði aldrei verið meira hefði kamfílóbaktersmit í mönnum 2003 verið 16% af sýkingum sem greind- ust 1999. Y f i r l i t Kynningar - Með Morgunblaðinu í dag fyrlgir auglýsingablað frá Happa- drætti Das. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FJÖLÆRBLÓM•BLÓMLAUKAR•MATJURTIR•TYRFING•SÁNING Garðyrkjumeistarinn ehf., útgáfa og ráðgjöf „Allt sagt í bókinni. Garðyrkjubiblían mín.” Rannveig Þorsteinsdóttir garðyrkjuáhugakona. U P P E L D I • Á B U R Ð U R • J A R Ð V E G U R • V Ö K V U N • L ÍF R Æ N R Æ K T U N „Falleg bók og fróðleg, vel skrifuð, vel fram sett, mæli með henni.” Ólafur B. Guðmundsson fyrrv. ritstjóri Garðyrkjurits Garðyrkjufélags Íslands. „Okkar viðskiptavinir hrósa bókinni bæði vinstri og hægri. Það gerum við líka!” Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur, Hveragerði. „Hafsjór af upplýsingum í orði og myndum frá fagmanni.” Lára Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur í Blómavali. „Greinargóðar upplýsingar, agaður texti, öguð bók.” Hafsteinn Hafliðason garðyrkjusérfræðingur. Á TOPP TÍU Á FYRSTU SÖLUVIKUM ! TRÉ-RUNNAR • TRJÁKLIPPINGAR • GRÓÐURSETNING • FRÆSÖFNUNF J Ö L G U N • S U M A R B Ú S T A Ð A L A N D IÐ • S K Ó G R Æ K T • S U M A R B L Ó M Í dag Sigmund 8 Forystugreinr 36 Viðskipti 14/16 Fermingar 43/45 Erlent 18/19 Kirkjustarf 43/45 Höfuðborgin 23 Bréf 56 Akureyri 24/25 Dagbók 58/59 Suðurnes 26 Myndasögur 58 Árborg 27 Staksteinar 58 Landið 28 Íþróttir 60/61 Listir 29/30 Leikhús 64 Úr Vesturheimi 31 Fólk 64/79 Daglegt líf 36 Bíó 67/69 Ferðalög 37 Ljósvakamiðlar 70 Umræðan 34/42 Veður 71 * * * RANNSÓKNARNEFND flug- slysa, RNF, telur að reynsluleysi erlends flugmanns hafi orðið til þess að hann ákvað of seint að hætta við lendingu á Reykjavíkurflugvelli þegar honum var orðið ljóst að vélin var ekki í aðflugi á rétta flugbraut. Telur nefndin í skýrslu sinni um flugatvikið að orsök þess sé að hann var óvanur blindaðflugi og meðvirk- andi orsök sé að vélin var illa tækj- um búin, tungumálaerfiðleikar og ónógur undirbúningur við flugið. Atvikið átti sér stað um kvöld- matarleytið 29. júní í fyrra. Vélin, sem var af gerðinni Piper PA, var tveggja hreyfla, skráð í Litháen og tveir menn um borð. Hún hafði lagt upp frá Bergen um hádegisbil og var þetta annar leggur vélarinnar á leið hennar frá Litháen til New York. Þegar vélin nálgast Reykjavíkur- flugvöll fær flugmaðurinn nýjar upplýsingar um veður en þoka var, skyggni 5 km og nokkuð skýjað í 300 feta hæð og skúraský í um 800 feta hæð. Flugumferðarstjórn tjáir flugmanni að braut 19 sé í notkun sem þýðir lokastefnu yfir Reykja- víkurhöfn. Fær hann nauðsynlegar stefnuupplýsingar til að lenda í blindflugi og á lokastefnu fær hann enn nýjar upplýsingar um skýjahæð sem sögð er 250 til 300 fet. Taldi flugmaðurinn þar átt við metra. Nokkru áður en vélin er komin að flugbrautinni sér flugmaðurinn til jarðar og er vélin þá í um 300 feta hæð og segir í skýrslunni að hann líti þá upp frá mælum vélarinnar til að kanna hvort hann sjái í brautina. Kveðst hann hafa séð hindrun til vinstri og kirkjuturn. Hann sér og flugbrautina vinstra megin við sig og sveigir vélinni í þá átt en upp- götvar fljótt að það er flugbraut 24, suðvestur-norðaustur brautin, og að braut 19 sé honum á hægri hönd. Sveigir hann þá skarpt til hægri til að freista þess að lenda á réttri flug- braut til suðurs. Lendir hann mjög innarlega á brautinni, við brautar- mótin, en þar sem flugmaðurinn taldi of lítið eftir til að stöðva vélina tekur hann hana á loft á ný. Flugumferðarstjóri heimilar það og beinir honum í hægri beygju. Flugmaðurinn beygir hins vegar til vinstri og flýgur í norðausturátt yfir borgina og segja vitni vélina fara mjög lágt. Flugumferðarstjóri kall- aði nokkrum sinnum í flugmanninn og ítrekar að hann hækki flugið þar sem hindranir séu í þessari hæð austur af vellinum. Í framhaldi af því hækkar hann flugið í tilskilda 4 þúsund feta hæð og lendir heilu og höldnu tæpum hálftíma síðar. Eftir atvikið var flugleiðsögubún- aður vallarins skoðaður og ekkert fannst athugavert. Hluti af leið- sögubúnaði vélarinnar reyndist ekki í lagi við skoðun en flugmanni hafði ekki verið kunnugt um það. Var vélinni aðeins heimilað sjónflug áfram. Þá kom í ljós að flugmað- urinn hafði aðeins kort og leiðbein- ingar til blindaðflugs á braut 19 í Reykjavík, ekki á aðrar brautir vall- arins eða á öðrum völlum á Íslandi. Heildarflugtími flugmannsins var 600 tímar, þar af á þessa vél 120 tímar og hann hafði ekki áður flogið blindaðflug við lágmarks veðurskil- yrði. Reynsluleysi erlends flugmanns talið orsök flugatviks við Reykjavíkurflugvöll Stefndi á ranga flugbraut og flaug of lágt í fráhvarfsflugi                                       RAUÐAKROSSHÚSIÐ á Tjarn- argötu 35 hættir starfsemi frá og með deginum í dag en það hefur verið athvarf fyrir unglinga í vanda frá 1985. Verulega hefur dregið úr gestakomum á síðustu misserum á sama tíma og önnur úrræði fyrir ungt fólk hafa bæst við. Ungt fólk í vanda getur áfram haft samband við Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og fengið þar leiðbeiningar um hvert það geti leitað. Rauði krossinn hefur á undan- förnum árum lagt aukna áherslu á forvarnastarf í þágu barna og ung- linga. Félagið átti frumkvæði að stofnun Fjölsmiðjunnar í Kópa- vogi, hefur tekið þátt í að koma á fót svokölluðum ungmennahúsum víða á landsbyggðinni og hefur eflt almennt fræðslu- og forvarnastarf á mörgum sviðum. Reykjavíkurdeild Rauða kross- ins er að skoða möguleika á að koma upp neyðarathvarfi fyrir heimilislausar konur og er að leita að hentugu húsnæði fyrir þá starf- semi. Húsið við Tjarnargötu, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, fer aftur í hendur eigenda sinna. Rauðakrosshúsið hættir starfsemi Önnur úrræði hafa bæst við og veru- lega hefur dregið úr gestakomum STJÓRNVALDSSEKTUM verður ekki beitt gegn tryggingafélögunum fjórum sem hafa verið til rannsóknar hjá Samkeppnisstofnun í tengslum við meint samráð þeirra, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mun þetta hafa verið niðurstaða fundar samkeppnisráðs í gær. Þá verða jafn- framt gerðar breytingar á því hvernig skipað verður í stjórn Sambands ís- lenskra tryggingafélaga og kveðið verður skýrar á um þau verkefni sem SÍT tekur að sér. Morgunblaðið greindi frá því í síð- asta mánuði að niðurstöðu væri að vænta í rannsókninni og að hún fæli ekki í sér sektargreiðslu. Trygginga- félögin sem um ræðir eru Sjóvá-Al- mennar, VÍS, Tryggingamiðstöðin og Íslensk endurtrygging auk Sam- bands íslenskra tryggingafélaga, SÍT, sem er sameiginleg stofnun þessara félaga. Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs Samkeppnis- stofnunar, vildi ekki staðfesta að horf- ið yrði frá sektargreiðslum en að sátt hefði náðst á fundi samkeppnisráðs sem kynnt yrði félögunum á mánu- dag. Aðdragandi málsins hefði verið sá að í desember óskuðu trygginga- félögin eftir viðræðum við stofnunina með hugsanlega sátt fyrir augum. Viðræður hafi staðið frá þeim tíma sem lauk með drögum að sátt sem stofnunin hafi fjallað um á tveimur fundum og lauk með niðurstöðu á fundi samkeppnisráðs í gær. Að sögn Finns Ingólfssonar, for- stjóra VÍS, var honum ekki nákvæm- lega kunnugt um niðurstöðu fundar samkeppnisráðs en að hún yrði birt tryggingafélögunum á mánudags- morgun. Að hans mati væri ekki ólík- legt að fallið yrði frá sektargreiðslum. „Við höfum átt viðræður við Sam- keppnisstofnun um stöðu málsins núna upp á síðkastið og mér fyndist það ekki ólíklegt að það yrði niður- staðan, að það yrði ekki um að ræða sektargreiðslur.“ Rannsókn er lokið á meintu samráði tryggingafélaganna Stjórnvaldssektum verður ekki beitt ATLANTSOLÍA hefur ákveðiðað hækka verð á olíu og bensíni. Eftir hækkun kostar lítrinn af dísilolíu 39 krónur og bensín- lítrinn 96,90 krónur. Í fréttatilkynningunni frá fyrirtækinu segir að undan- farna mánuði hafi eldsneytis- verð farið stighækkandi í inn- kaupum án þess að útsöluverði hafi verið breytt. Þannig hafi verð á dísilolíu haldist óbreytt í um 200 daga og sömuleiðis hafi bensínverð haldist óbreytt frá því sala á því hófst í janúar. „Bundnar voru vonir við að innkaupsverð lækkaði á vor- dögum og að ekki kæmi til hækkana. Það gekk ekki eftir,“ segir í fréttatilkynningu. Atlantsolía hækkar verð á olíu og bensíni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.