Morgunblaðið - 01.05.2004, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
hlutfallið 42% og í vátryggingastarf-
seminni 38%. Markmiðið er að hlut-
fallið sé undir 50% í bankahlutanum
og undir 17% hjá tryggingafélaginu.
Tjónshlutfallið í tryggingastarfsem-
inni var rúmlega 100%, en var 83%
fyrir allt árið í fyrra.
Framlag í afskriftareikning nam
980 milljónum króna, sem er 94%
aukning frá sama tímabili í fyrra. Í til-
kynningu frá bankanum segir að
hærra framlag endurspegli vöxt út-
lána, en hækkunina megi einkum
rekja til styrkingar á almennum hluta
afskriftareikningsins.
Útlán jukust um 9% á tímabilinu og
námu 343 milljörðum króna í lok
mars. Innlán námu 103 milljörðum
króna og drógust saman um 4% frá
áramótum. Vátryggingaskuld nam 21
milljarði króna og jókst um 7% á
tímabilinu. Eiginfjárhlutfall, reiknað
á CAD-grunni, var 10%.
Um horfur á árinu segir í tilkynn-
ingu frá Íslandsbanka að afkoman
hafi verið umtalsvert betri en fyrirséð
hafi verið í byrjun árs. Góðar líkur séu
á að afkoma af kjarnastarfsemi bank-
ans verði viðunandi á árinu og hagn-
aður aukist milli ára.
fyrir skatta nam 5.459 milljónum en
var 1.296 milljónir í fyrra. Í tilkynn-
ingu frá Íslandsbanka segir að um
3.465 milljónir króna af hagnaði fyrir
skatta megi rekja til sölu á hlutabréf-
um í Straumi fjárfestingarbanka og
markaðsvirðingar hlutabréfa í
Straumi í eigu Sjóvár-Almennra.
Hreinar vaxtatekjur jukust um
18% milli ára og námu 2.988 milljón-
um. Vaxtamunur, munur á vaxta-
tekjum og vaxtagjöldum í hlutfalli af
meðalstöðu heildarfjármagns, lækk-
aði úr 3,2% í fyrra í 2,6% nú. Á síðasta
fjórðungi fyrra árs var vaxtamunur-
inn 2,9%. Gengishagnaður ríflega sex-
faldaðist og nam 2.814 milljónum,
sem er aðallega vegna veltuhluta-
bréfa í eigu bankans. Þóknanatekjur
jukust um 34% og námu 1.385 millj-
ónum á fyrsta fjórðungi.
Hreinar rekstrartekjur námu sam-
tals 11.746 milljónum króna og jukust
um 195% milli ára. Þegar bankinn er
skoðaður án tryggingafélagsins er
þessi tala lægri, 6.602 milljónir króna
og aukningin er 66%.
Kostnaðarhlutfall samstæðunnar,
þ.e. hlutfall gjalda og tekna, var 31% á
fyrsta fjórðungi. Hjá bankanum var
HAGNAÐUR Íslandsbanka á fyrsta
fjórðungi ársins nam 4.569 milljónum
króna, en á sama tímabili í fyrra var
hagnaðurinn 1.062 milljónir króna og
aukningin er því 330%. Arðsemi eigin
fjár var 78% en á sama tímabili í fyrra
var arðsemin 24%.Greiningardeild
Landsbankans hafði spáð Íslands-
banka 5.570 milljóna króna hagnaði
og greiningardeild KB banka spáði
4.211 milljóna króna hagnaði. Með-
alspáin var því tæpar 4.900 milljónir
króna og afkoman undir meðalspá.
Samanburður við fyrra ár er erf-
iður í tilviki Íslandsbanka, því að á
seinni hluta fyrra árs keypti bankinn
Sjóvá-Almennar tryggingar, sem nú
eru inni í samstæðu bankans en voru
það ekki á fyrsta fjórðungi í fyrra.
Flestar tölur bera þessari breytingu
merki og þar með afkoman, bæði fyrir
og eftir skatta.
2,5 milljarðar af bankahlutanum
Hagnaðurinn skiptist þannig milli
banka- og tryggingahlutans að bank-
inn skilaði 2.484 milljóna hagnaði, en
var með 1.062 milljóna hagnað í fyrra,
og tryggingafélagið skilaði 2.085
milljóna króna hagnaði. Hagnaður
GÓÐUR hagnaður var af rekstri Ís-
landsbanka á fyrsta fjórðungi árs-
ins, en segja má að viðbrögð mark-
aðarins við uppgjörinu hafi verið
hlutlaus, því að bankinn lækkaði um
rúmlega 1% líkt og Úrvalsvísitalan.
Það sem helst setur svip á afkomu
bankans er sala hlutabréfa í Straumi
fjárfestingarbanka, en augljóst er að
ekki má gera ráð fyrir að sambæri-
legur atburður endurtaki sig. Hagn-
aður vegna sölu Straums nemur um
3,5 milljörðum króna og ef hann er
tekinn út er hagnaður fyrir skatta
tæpir 2 milljarðar króna og aukn-
ingin milli ára væri þá 54% en ekki
yfir 300%. Engu að síður er um veru-
lega hagnaðaraukningu að ræða. Og
jafnvel þó að hagnaði Sjóvár-
Almennra á fyrsta fjórðungi í fyrra
sé bætt við afkomuna þá, eykst
hagnaðurinn um nær þriðjung milli
ára sem hlýtur að vera mjög við-
unandi.
Kostnaðarhlutfall í trygginga-
starfseminni hefur versnað frá síð-
asta ársfjórðungi og er langt yfir
settu marki, en í bankastarfseminni
er kostnaðarhlutfallið vel undir
mörkunum. Þegar horft er framhjá
gengishagnaðinum horfir þetta þó
öðruvísi við, því að þá fer kostn-
aðarhlutfallið í bankahlutanum vel
yfir 50% markmiðið, en er þó lægra
en í fyrra sem er jákvæð þróun.
INNHERJI |Íslandsbanki
Straumur vegur þyngst
!"# $%
&
'$%
innherji@mbl.is
Íslandsbanki hagnaðist um 4,6 milljarða
HAGNAÐUR af rekstri Bakkavar-
ar nam tæpum 2,2 milljónum punda
á fyrsta ársfjórðungi, eða sem svar-
ar til 289 milljóna íslenskra króna,
og er það meira en 13% aukning frá
sama tímabili í fyrra.
Rekstrartekjur Bakkavarar á
fyrstu þremur mánuðum ársins
voru 34 milljónir punda (4,5 ma.kr.)
og jukust um 2,5% frá fyrra ári.
Sala félagsins í undirliggjandi
rekstri er í tilkynningu frá Bakka-
vör sögð hafa aukist um 17% á
tímabilinu. Hagnaður fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði nam á tímabilinu
5,2 milljónum punda (682 m.kr.) og
nemur aukningin 5% frá í fyrra.
Hlutfall EBITDA af rekstrar-
tekjum var 15,1% samanborið við
14,8% árinu áður en þetta hlutfall
er jafnan lægst á fyrsta fjórðungi.
Hagnaður fyrir skatta var 3,1 millj-
ón punda (411 m.kr.)
Eignir félagsins reyndust vera
209,3 milljóna punda virði í lok
tímabilsins og minnkuðu þær um
5,5 milljónir punda (727 m.kr.) frá
síðustu áramótum til marsloka. Var
það meira og minna vegna lækk-
unar á veltufjármunaliðum. Þannig
minnkuðu birgðir um 31% frá ára-
mótum og kröfur lækkuðu um 5,6%.
Skuldir drógust einnig saman á
fyrsta ársfjórðungi, sér í lagi þó
skammtímaskuldir sem lækkuðu
um 5,7 milljónir punda og voru
18,6% lægri í lok mars en þær voru
um áramót. Langtímaskuldir
minnkuðu um 2,2%. Veltufjárhlut-
fall batnaði verulega frá fyrra ári,
úr 1 í 3,2. Ávöxtun eigin fjár minnk-
aði á hinn bóginn úr 13,1% í 11,6%
á milli ára.
Í samræmi við áætlanir
Þá jókst veltufé frá rekstri um
nær fjórðung samanborið við sama
ársfjórðung í fyrra og nam 3,9
milljónum punda (517 m.kr.).
Reksturinn skilaði hins vegar
nokkru minna handbæru fé á fjórð-
ungnum en í fyrra, sér í lagi vegna
áhrifa frá breytingum á skamm-
tímaskuldum og viðskiptakröfum.
Handbært fé í lok tímabilsins var
þrátt fyrir þetta 55,2 milljónir
punda (7,3 ma.kr.).
Í tilkynningu frá Bakkavör segir
að rekstur félagsins hafi gengið vel
á fyrstu þremur mánuðum ársins
og hann hafi verið í samræmi við
áætlanir félagsins. Reksturinn sé
nú, eftir sölu sjávarútvegshlutans,
minna háður árstíðabundnum
sveiflum en fyrsti ársfjórðungur sé
þó enn slakasti fjórðungurinn.
Bakkavör með 289
milljóna hagnað
ÞRÁTT fyrir alveg ágæta afkomu
Bakkavarar á fyrsta ársfjórðungi er
hún talsvert undir þeim væntingum
sem greiningardeildir bankanna
gerðu. Meðalspá bankanna lýsti
nokkurri bjartsýni, hljóðaði upp á
365 milljónir króna en raunin varð 76
milljónum króna lakari afkoma.
Innri vöxtur félagsins var 17% á
fjórðungnum, sem telja mætti nokkuð
gott nema hvað markmið félagsins er
að vaxa um 20–30% á ári. Að vísu má
gera ráð fyrir að fyrsti ársfjórðungur
sé sá lakasti á árinu. EBITDA-
framlegðin, sem er hlutfall hagnaðar
fyrir afskriftir af rekstrartekjum,
lækkaði enda frá seinni hluta síðasta
árs. Framlegðin var 15,1% á fyrsta
fjórðungi en tvo fjórðunga á undan
var hún 17,6%. Bankarnir spáðu svip-
aðri framlegð áfram eða yfir 17%.
Bakkavör á orðið digra sjóði og
reikna má með að þeim fjármunum
verði varið til ytri vaxtar með fjár-
festingum í öðrum félögum.
Nokkrar breytingar urðu á efna-
hagnum á fyrstu mánuðum ársins og
voru þær til hins betra. Birgðastaðan
lækkaði um 31% eða 174 milljónir
króna og skammtímakröfur lækk-
uðu um tæp 6% eða 168 milljónir. Að
auki fóru bæði langtíma- og skamm-
tímaskuldir lækkandi. Skamm-
tímaskuldirnar lækkuðu um næstum
19% eða 760 milljónir og lang-
tímaskuldirnar um 2% eða 275 millj-
ónir. Auk þess breytti KB banki
hluta af víkjandi breytanlegum lán-
um í hlutafé á tímabilinu og lækkuðu
þau um 400 milljónir.
Það munar um minna þegar allt
er tínt til. Spurning hvort verið sé að
undirbúa jarðveginn fyrir stóra fjár-
festingu í svipuðum rekstri?
INNHERJI | Bakkavör
Undirbúa ytri vöxt?
( ) **
+ +
+ +
, -.
!"# $%
&
'$%/
+
+
innherji@mbl.is
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● FYRIRTÆKIÐ Google, sem rekur
samnefnda leitarvél á Netinu, hefur
greint frá því að það hyggi á skrán-
ingu á markað, að því er segir í frétt
Reuters-
fréttastof-
unnar. Fyr-
irkomulag
frumútboðsins verður óvenjulegt, en
ætlunin er að hafa uppboð á hluta-
bréfunum á Netinu. Ekki hefur verið
ákveðið hvort fyrirtækið verður skráð
í Nasdaq-kauphöllinni eða í kauphöll-
inni í New York, NYSE. Selja á bréf
fyrir 2,7 milljarða Bandaríkjadala,
um 200 milljarða króna.
Tekjur Google á fyrsta fjórðungi
ársins námu tæpum 29 milljörðum
króna og hagnaður tvöfaldaðist milli
ára, nam tæpum 5 milljörðum króna.
Að sögn Reuters-fréttastofunnar
hefur ekki verið meiri eftirvænting
vegna frumútboðs frá því að Net-
scape fór á markað árið 1995. Haft
er eftir greinendum á markaði að
markaðsverð Google gæti verið 20
milljarðar dala, um 1.500 milljarðar
króna. Markaðsverð Yahoo, sem rek-
ur samnefnda leitarvél, er um 2.700
milljarðar króna og markaðsverð
Microsoft er um 21.000 milljarðar
króna.
Frumlegt frumútboð
Google
● SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna, SH, hagnaðist um 213 millj-
ónir króna á fyrsta ársfjórðungi og
er það rífleg þreföldun hagnaðar
frá sama tímabili í fyrra.
Vörusala jókst um 26% frá sama
tíma síðasta árs og nam 16,2 millj-
örðum. Aukningin er fyrst og fremst
rakin til félaga í samstæðunni sem
ekki tilheyrðu henni í fyrra, Ocean
to Ocean í Bandaríkjunum og Baro-
gel í Frakklandi. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði jókst um
66% frá fyrra ári og nam 633 millj-
ónum króna. Veltufé frá rekstri var
489 milljónir króna á fyrstu þremur
mánuðunum samanborið við 184
milljónir á sama tíma í fyrra.
Í tilkynningu frá SH segir að af-
koman sé sú besta í allmörg ár.
Fyrsti fjórðungur hafi gengið nokkru
betur en áætlun gerði ráð fyrir en
félagið telur ekki ástæðu til að
gera breytingar á heildaráætlun
ársins a.m.k. enn sem komið er.
Besti fjórðungur SH í
langan tíma