Morgunblaðið - 01.05.2004, Side 30
LISTIR
30 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KVARTETT skipaður Eydísi Franzdóttur
óbóleikara, Bryndísi Pálsdóttur fiðluleikara,
Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og
Bryndísi Björgvinsdóttur
sellóleikara, heldur tónleika í Hömrum á
Ísafirði kl. 15.15 á morgun, sunnudag.
Á efnisskránni eru verka fyrir óbó eða
enskt horn og strengi. Óbókvartettar eftir
Britten og Mozart, stef úr Fellini-bíómyndum
eftir Nino Rota í úts. Jóhanns G. Jóhanns-
sonar, tónlistarstjóra Þjóðleikhússins, og
kvartett fyrir enskt horn og strengi eftir
Francaix.
Síðari hluti efnisskrárinnar einkennist af
léttleika, glensi og gleði.
Þetta eru 4. og síðustu áskriftartónleika
Tónlistarfélags Ísafjarðar á yfirstandandi
starfsári.
Gleðitónlist
í Hömrum
S
endiherra Dana á Íslandi, hr. Leif
M. Reimann, opnar sýninguna
Ljós í Gallerí Kambi í dag kl. 15.
Sýninguna unnu dönsku lista-
hjónin Margrete Sørensen og
Torben Ebbesen en þetta er í fyrsta sinn
sem þau vinna saman sýningu þar sem eitt
þema er gegnumgangandi. Margrete Søren-
sen hefur lengi verið mikilvirk í dönsku
menningarlífi bæði sem listamaður og sem
fulltrúi listamanna í ótal ráðum og nefnd-
um. Um Torben Ebbesen hefur verið sagt
að hann sé einn af áhrifamestu og frumleg-
ustu myndlistarmönnum Dana á síðari ár-
um. Á síðustu áratugum hafa þau haldið
tugi einkasýninga víða um heim, bæði í gall-
eríum og söfnum, auk þess að vera fulltrúar
Dana á stórum alþjóðlegum sýningum. Má
þar nefna að Margrete Sørensen var fulltrúi
Dana á tvíæringnum í Sao Paulo í Brasilíu
árið 1987 og Torben Ebbesen m.a. fulltrúi
Dana á Feneyjartvíæringnum 1990.
Þótt Margrete Sørensen og Torben
Ebbesen hafi margoft sýnt samtímis á sama
stað er þetta fyrsta sýningin sem þau vinna
saman þar sem eitt þema einkennir öll
verkin, en það þema er ljósið í öllum sínum
margbreytileika. Aðspurður um tildrög sýn-
ingarinnar segir Torben Ebbesen að Gunn-
ar Örn Gunnarsson, sem á og rekur Gallerí
Kamb, hafi leitað til þeirra sl. haust í kjöl-
far Íslandsheimsóknar þeirra og nefnt það
við þau hvort þau vildu ekki sýna á Kambi.
„Okkur leist strax afar vel á það og fórum
að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera
á sýningunni. Niðurstaðan var sú að hafa
ljós sem meginþema á sýningunni, ekki síst
sökum þess hve heilluð við urðum af hinum
löngu björtu nóttum þegar við vorum hér
síðasta sumar.“
Að sögn þeirra hjóna fólst skemmtileg
áskorun í því að gera sýninguna eins ein-
falda úr garði og hægt var. „Við þekktum
auðvitað sýningarhúsnæðið og vissum að
staðurinn væri lítill, auk þess sem við gerð-
um okkur grein fyrir að við yrðum að koma
með flestallt efnið heimanfrá. Við urðum því
að hafa hlutina eins fábrotna og hægt
væri,“ segir Margrete Sørensen og bendir á
að þau hafi komið með allt efnið með sér í
farangrinum frá Danmörku. „Meira að
segja hraunmola frá Íslandi, sem við fórum
með okkur heim til Danmerkur úr síðustu
ferð. Við gátum nefnilega ekki verið viss um
að okkur myndi takast að finna jafngóðan
hraunmola, t.d. hvað litaafbrigði varðar, í
tæka tíð á þeim stutta tíma sem við höfðum
til að undirbúa sýninguna hér,“ segir
Torben Ebbesen.
Meðal þess sem sjá má á sýningunni eru
speglar með áföstum glerhylkjum, fylltum
brennisteini, sem sýna gang sólarinnar að
sumarlagi, auk þess sem sjá má teikningar
með sama mótívi. Á langborði má sjá sjö
form sem líkjast kökum, en þegar betur er
að gáð reynast þetta vera hraunmolar í sér-
stökum gelhringjum. Að sögn Margrete Sø-
rensen segist hún löngum hafa heillast af
brennisteininum sem efni enda sé það afar
leyndardómsfullt. „Á sínum tíma var það
einmitt brennisteinn sem gullgerðarmenn
reyndu að umbreyta í gull. En efnið getur
líka verið afar hættulegt og nýverið lásum
við að á 15. öld kom danski flotinn hingað
til lands til að ná í brennistein sem bland-
aður var saman við púðrið sem notað var í
danskar fallbyssur,“ segir Margrete Søren-
sen. Aðspurður um gelhringina segir Tor-
ben Ebbesen þá smám saman munu gufa
upp á sýningartímanum þannig að ekkert
verði eftir nema hraunmolarnir sem voru
innan í þeim. Raunar segist hann lengi hafa
verið heillaður af umbreytingu efna, þ.e.
þegar fljótandi efni tekur á sig fast form og
öfugt. „Slíkar umbreytingar í náttúrunni
minna okkur á að við getum aldrei höndlað
hlutina algjörlega, alhæft um þá eða fundið
einn algildan sannleika þótt við reynum það
sífellt.“
Færir alþjóðalist út á land
Að sögn Gunnars Arnar Gunnarsonar
myndlistarmanns og gallerista er sýning
Margrete Sørensen og Torben Ebbesen tí-
unda sýningin sem haldin er í Gallerí
Kambi á þeim fimm árum sem hann hefur
rekið galleríið. Spurður um aðdraganda
þess að hann stofnaði galleríið á sínum tíma
segist Gunnar Örn einfaldlega hafa langað
til að færa alþjóðalist út á land. „En mark-
miðið hjá mér er setja upp metnaðarfullar
sýningar hér á landsbyggðinni sem ekki
væru endurteknar í Reykjavík, þannig að ef
fólk vill sjá sýningarnar þá verður það að
leggja leið sína hingað.“ Gunnar Örn segist
hafa fyrir reglu að sýna ávallt annars vegar
í maí og hins vegar í september. „Hug-
myndin var að vera nokkurs konar vorboði í
maí og hafa síðan sýningu snemma hausts
áður en fólk leggst í þennan hálfgerða dvala
yfir veturinn.“
Aðspurður um val á listamönnum segist
Gunnar Örn hafa úr nógu að moða, ekki síst
vegna tengsla sinn við Stalke-galleríið í
Kaupmannahöfn þar sem hann sýni sjálfur.
„Í gegnum gallerista Stalke hefur staðurinn
hér spurst út og því bíða hreinlega lista-
menn í röðum eftir að fá að koma hingað og
sýna. Satt að segja hafa þessar óvæntu vin-
sældir gallerísins í Danmörku komið mér
nokkuð á óvart.“ Meðal listamanna sem
sýnt hafa í Gallerí Kambi má nefna Ólaf
Elíasson, en önnur einkasýning hans á Ís-
landi var á Kambi árið 1998. Til gamans má
geta þess að Torben Ebbesen kenndi ein-
mitt Ólafi þegar hann var við nám í Kon-
unglega Listaháskólanum í Danmörku á
sínum tíma.
Þess má að lokum geta að sýningin stend-
ur til 31. maí nk.Gallerí Kambur er á Þjórs-
árbökkum við Gíslholtsvatn og er opið alla
daga nema miðvikudaga milli kl.13 og 18.
Við getum aldrei
höndlað hlutina
algjörlega
Morgunblaðið/RAX
Margrete Sørensen og Torben Ebbesen og sonur þeirra hjóna, Magnus, speglast í einu verk-
anna á sýningunni Ljós sem verður opnuð í dag í Galleríi Kambi austur á Rangárvöllum.
Torben Ebbesen og Margrete Sørensen ásamt
Magnusi, syni þeirra hjóna, hjá einu verka
Ebbesens. Í forgrunni er Gunnar Örn Gunn-
arsson, galleristi á Kambi.
silja@mbl.is
Sýning dönsku listahjónanna Margrete Sørensen og
Torben Ebbesen, Ljós, verður opnuð í Galleríi Kambi í
dag. Silja Björk Huldudóttir ræddi við listafólkið og
Gunnar Örn Gunnarsson gallerista á Kambi.
TVÆR hönnunarsýningar verða opnaðar í
Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21, Hvera-
gerði, kl. 16 í dag. Annars vegar afmælissýn-
ing Handverk og hönnun sem haldin er í til-
efni þess að verkefnið er tíu ára um þessar
mundir og hins vegar sýning sem nefnist
Category X. Þar sýna þrettán aðilar fjöl-
breytta hönnun.
Sýning Handverks og hönnunar verður síð-
an sett upp á fleiri stöðum á landinu. Næsti
viðkomustaður verður Norska húsið í Stykk-
ishólmi. Ferðalagið mun síðan halda áfram
för sinni um landið.
Sýningarnar eru opnar alla daga kl. 13.30–
17 og standa til 30. maí.
Hönnun í Lista-
safni Árnesinga
HEIMSFRÆGIR listamenn munu
koma fram á Höfn í Hornafirði,
Stykkishólmi, Akureyri og víðar í
tengslum við Listahátíð í Reykja-
vík næstu árin, með samstarfi
Listahátíðar í Reykjavík, Byggða-
stofnunar og Flugfélags Íslands.
Skrifað var undir samkomulag
milli þessara þriggja aðila um
borð í flugvél Flugfélags Íslands í
gær. Markmiðin með sam-
komulaginu eru m.a. að styðja við
menningarlífið á landsbyggðinni
og auka kynningarmöguleika
sveitarfélaga og landshluta. Sam-
ið er til þriggja ára og er verð-
mæti samningsins 11,5 milljónir
króna yfir samningstímann. Þar
af leggja Byggðastofnun og
Listahátíð til 4,5 milljónir hvor, og
Flugfélag Íslands leggur til 2,5
milljónir.
„Verkefnin verða í tveimur
flokkum,“ segir Þórunn Sigurð-
ardóttir, stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík. „Annars vegar verður
veittur árlegur styrkur fyrir eitt
afburðaverkefni sem sett er upp á
landsbyggðinni. Hins vegar verða
veittir styrkir til að auðvelda að-
gengi listamanna, íslenskra og er-
lendra, á fámenn svæði, eða til
landshluta sem eiga almennt ekki
kost á slíku sökum kostnaðar.“
Spennandi fyrir listamennina
Þórunn segir að erlendir lista-
menn hafi alls ekkert á móti því
að fara í ferðir út á land, þvert á
móti í sumum tilvikum. „Þeim
finnst það mjög spennandi viðbót
við það að koma hingað til höf-
uðborgarinnar að fá tækifæri til
að fara út á land líka.“
Hún nefnir sem dæmi írska
nóbelshöfundinn Seamus Heaney,
en hann mun frumflytja ljóða-
dagskrá á Höfn í Hornafirði og
koma svo fram á Listahátíð í
Reykjavík. Einnig fer franska
skemmtisveitin Klezmer Nova til
Seyðisfjarðar, en Þórunn segir að
hljómlistarmönnunum finnist það
sér í lagi spennandi vegna tengsla
bæjarins við Frakkland.
„Það er mikið mál að skipu-
leggja ferðir listamannanna og
það þarf að vinna með áhuga
mjög margra. Miða þarf við að-
stæður á staðnum, áhuga heima-
manna, tíma og áhuga listamann-
anna og fleira í þeim dúr,“ segir
Þórunn og því nóg að gera hjá að-
standendum Listahátíðarinnar í
Reykjavík við að skipuleggja ferð-
irnar.
Heimsfrægir listamenn
um allt land
Morgunblaðið/Eggert
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flugfélags Íslands (t.v.), Herdís Sæmund-
ardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, Árni Gunnarsson frá
Flugfélagi Íslands, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, Þórunn
Sigurðardóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, og Aðalsteinn
Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar.
♦♦♦
SÝNINGUNNI Íslensk
myndlist 1900 - 1930 í Lista-
safni Íslands lýkur nú um
helgina. Á sýningunni má sjá
gott yfirlit yfir þær hræring-
ar sem áttu sér stað í íslenskri
myndlist í upphafi 20. aldar.
Þar er lyft fram mörgum af
þeim listmálurum sem gátu
sér gott orð á þessum tíma en
orðspor þeirra hefur ekki far-
ið eins hátt síðustu áratugina.
Verkum þessara listamanna
er stillt saman með verkum
brautryðjendanna og skapað
gott yfirlit yfir straumana í ís-
lenskri myndlist fyrstu þrjá
áratugi 20. aldar.
Leiðsögn
Leiðsögn um sýninguna
verður sunnudaginn 2. maí kl.
15. Sýningin gefur yfirlit um
þá mörgu strauma sem voru í
íslenskri myndlist í upphafi
20. aldar. Dagný Heiðdal list-
fræðingur fylgir gestum
safnsins um sýninguna.
Sýning um vestrænt
neyslusamfélag
Þann 14. maí verður opnuð
sýningin Í nærmynd – banda-
rísk samtímalist sem er á
dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík 2004. Vestrænt
neyslusamfélag er til umfjöll-
unar í sýningu á bandarískri
samtímalist. Verkin eru eink-
um frá tveimur síðustu ára-
tugum 20. aldar.
Sýningu
lýkur