Morgunblaðið - 01.05.2004, Page 46

Morgunblaðið - 01.05.2004, Page 46
MINNINGAR 46 LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Arndís Þorbjarn-ardóttir fæddist á Bíldudal í Suður- fjarðarhreppi í Arn- arfirði 26. mars 1910. Hún lést 16. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þor- björn Þórðarson, héraðslæknir á Bíldudal, f. 21.4. 1874, d. 25.12. 1961, og Guðrún Pálsdótt- ir, f. 25.1. 1883, d. 3.7. 1971. Börn Þor- björns og Guðrúnar eru auk Arndísar þau: Páll, f. 1906, d. 1975, skip- stjóri og alþingismaður í Vest- mannaeyjum; Þórður, f. 1908, d. 1974, Ph.D. fiskiðnfræðingur og forstjóri Rannsóknastofununar fiskiðnaðarins; Sverrir, f. 1912, d. 1970, hagfræðingur og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins; Guðrún, f. 1915, d. 1959, húsmóð- ir, var gift Brodda Jóhannessyni, dr. phil og skólastjóra Kennara- skóla Íslands; Björn, f. 1916, d. 1920; Björn, f. 1921, yfirlæknir við New York Hospital og prófessor við Cornell University Medial Col- lege í New York; Kristín, f. 1923, húsmóðir, gift Guðmundi Ingva Sigurðssyni hæstaréttarlög- manni. Eiginmaður Arndísar var Mar- teinn Björnsson verkfræðingur og byggingarfulltrúi Suðurlands, f. 28. 2. 1913, d. 22. 10. 1999, sonur Björns Eysteinssonar á Orrastöð- um í Austur-Húnavatnssýslu og Kristbjargar Pétursdóttur. Börn Arndísar og Mar- teins eru Björn, f. 9.1. 1950, arkitekt og byggingarverk- fræðingur hjá Rann- sóknastofnun bygg- ingariðnaðarins. Sambýliskona hans er Ólöf Helga Þór, kennari. Sonur hennar er Gunnar Sveinn Magnússon; Guðrún, f. 8.1. 1955, Ph.D, prófessor í fiskifræði við Há- skóla Íslands. Maður hennar er Kristberg Kristbergsson, Ph.D, matvæla- efnafræðingur og dósent við Há- skóla Íslands. Dóttir þeirra er Hlín Kristbergsdóttir. Arndís ólst upp á Bíldudal og lauk burtfararprófi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík árið 1927. Hún dvaldi hjá prófessor J.R. Tol- kien í Oxford 1929–1930. Hún starfaði hjá Fiskifélagi Íslands við söfnun aflaskýrslna og skýrslna um útflutning sjávarafurða 1933– 1949 og við húsmóðurstöf í Reykjavík 1949–1959 og eftir það á Selfossi. Arndís var formaður æskulýðsráðs á Selfossi frá stofn- un þess 1960 til 1968, formaður Kvenfélags Selfoss 1970–1978 og sat í hreppsnefnd Selfosshrepps 1962–1974. Einnig var hún forseti og stofnandi Inner Wheel á Sel- fossi og umdæmisstjóri þess á Ís- landi stofnárið 1987–1988. Útför Arndísar fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Tengdamóðir mín, Arndís Þor- bjarnardóttir, andaðist þann 16. apríl síðastliðinn eftir stutta en snarpa sjúkdómslegu. Þrátt fyrir háan aldur hélt Arndís fullri reisn fram á síðasta dag og fylgdist með öllu sem var að gerast en hún var ákaflega fróð og tignarleg kona. Ég kynntist Arndísi fyrst fyrir um 25 árum þegar við Rúna vorum að byrja að draga okkur saman og hún bauð mér heim til for- eldra sinna að Víðivöllum 10 á Sel- fossi en þar bjuggu þau hjón mest- allan sinn búskap. Það er til marks um heilsufar Arndísar að hún hélt heimili að Víðivöllum þar til fyrir tveimur árum er hún flutti á Grund, þá 92 ára gömul. Það er mér ákaflega eftirminnilegt að koma til þeirra hjóna þar sem Marteinn gerði ítrek- aðar tilraunir til að hlýða mér yfir Ís- lendingasögurnar og kenna mér ætt- fræði en Arndís sagði mér frá veru sinni hjá Fiskifélaginu og frá dvöl sinni í Englandi fyrir stríð þegar hún dvaldi á heimili prófessors R.J. Tol- kien sem skrifaði Hringadróttins- sögu. Arndís hafði þann starfa að gæta barna Tolkiens en var þarna einnig til að læra enska tungu sem hún talaði með afbrigðum vel. Jafn- framt varð henni og Tolkien tíðrætt um íslenskar hetjusögur og goða- fræði en margir telja að hann hafi m.a. sótt efnivið sinn í þau fræði. Annað áhugamál þeirra hjóna var fé- lagskapurinn Rótarý en Marteinn var um tíma umdæmisstjóri Rótarý á Norðurlöndum og Arndís var um- dæmisstjóri Inner Wheel sem er fé- lagsskapur eiginkvenna Rótarý- manna. Á þessum árum ferðuðust þau hjón víða á vegum Rótarý bæði austan hafs og vestan en þá dvöldum við Rúna við framhaldsnám í Banda- ríkjunum. Það voru miklir gleðifund- ir þegar þau komu og dvöldu hjá okk- ur um tíma þar. Kom þá glöggt í ljós hve vel Arndís bjó að dvöl sinni hjá Tolkien á árum áður. Þá ferðuðust þau vítt og breitt um Bandaríkin en dvöldu jafnframt hjá Birni bróður Arndísar sem er skurðlæknir og var þá prófessor við Cornell-háskóla í New York ríki. Eftir að við fluttum aftur til Íslands urðu heimsóknirnar á Selfoss mun tíðari og var alltaf jafn gott að sækja þau hjón heim. Ekki hef ég komið í fallegri garða hér á landi en garð þeirra hjóna en hann var girtur af með miklu gróðurhúsi sem Marteinn byggði en þar ræktaði Arndís mikið af rósum og öðrum blómum þannig að garðurinn og gróðurhúsið mynduðu eina heild sem minntu meira á ævintýraland en hús- garð norður á hjara veraldar. Þær voru ófár stundirnar sem við dvöld- um þar og vil ég helst minnast Arn- dísar þar sem hún dundaði í garð- inum sínum, sér til ánægju og okkur hinum til yndisauka. Um leið og ég þakka Arndísi góð kynni votta ég Rúnu, Bangsa, Hlín, Ólöfu og Gunnari ásamt öðrum vin- um og vandamönnum samúð mína. Kristberg Kristbergsson. Elsku besta amma mín. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért farin. En það sem huggar mig í sorginni er að ég veit að þér líður vel núna. Nú sit ég og hugsa um hvað ég ætti að skrifa. Minningarnar streyma fram og þær eru svo margar að ég veit varla hvar ég á að byrja. Það sem kemur fyrst í hugann eru stundirnar á Víðivöllunum. Mér þótti alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar afa. Það var svo gaman að leika í garðinum og garðskálanum innan um allar fallegu rósirnar, blómin og trén sem þið höfðuð plantað og ræktað. Ég þóttist vera álfaprinsessa sem átti heima í þessu dýrlega blómaríki og gat dundað mér þar tímunum saman. Þegar litli álfurinn var svo orðinn kútuppgefinn af hinu erfiða hlutverki að vera álfaprinsessa var svo gott að koma inn og setjast í fang- ið á þér þar sem þú last fyrir mig teiknimyndasögur úr dönsku blöðun- um þínum. Þú varst alltaf svo hress og skemmtileg og hafðir alltaf nóg að skemmtilegum sögum til að segja frá. Ég man þegar ég kom einu sinni með vini mína í heimsókn til þín og það var ekki talað um annað en hvað ég ætti hressa og skemmtilega ömmu þrátt fyrir háan aldur eða eins og vin- ur minn sagði: „Þetta er bara ein elsta og hressasta manneskja sem ég hef hitt,“ og það var alveg rétt hjá honum. Þú varst alltaf svo jákvæð og jafnvel þegar ég kvaddi þig síðast þá varstu svo lifandi að mér datt ekki í hug að þetta væri síðasta kveðju- stund okkar. En lífið gengur sinn gang og það er komið að kveðju- stund. Þótt það sé sárt að kveðja þig þá veit ég að þú munt alltaf vera hjá mér og minningu þína geymi ég í hjarta mér. Ég þakka fyrir allar þær stundir sem ég átti með þér og vona að þér líði nú vel hjá afa og englun- um. Hlín. Arndís móðursystir mín er látin, 94 ára gömul. Þar fór vönduð kona, stolt, fáguð, skapheit og fylgin sér. Kvenleg, sterk og frjálsleg. Alltaf brosandi, alltaf góð. Ég er að tína saman minningar og brot, frá því ég var stelpukrakki. Fyrst er Adda bráðfalleg, ung og gjafvaxta. Tíminn líður, hún verður áttræð, níræð, en ávallt sú sama og sjálfri sér samkvæm. Sjálfsstjórn og réttlætiskennd var henni í blóð borin og aðlögunarhæfnin aðdáunarverð. Greind, útsjónarsöm og óhrædd við að taka frumkvæði. Allt þetta fas, ættarmótið, bar hún sterklega með sér. Mikið var hún lík móður sinni, henni ömmu Guðrúnu. Komin fast að fertugu, gengu þau Marteinn í hjónaband. Hún missti hann haustið 1999, eftir 50 ára far- sælan hjúskap. Heilsu hans fór hægt aftur með aldrinum. Undir það síð- asta varð hann mikill sjúklingur. Eft- ir að hann var orðinn dauðvona, ann- aðist hún hann ein, heima á Selfossi, rígfullorðin konan. Ástin og skyldan buðu henni að gera miklu meira en mannlegum mætti var í raun bjóð- andi. Hún varð aldrei söm eftir. Hún var vel að sér og sagði ágæt- lega frá. Tengslin við liðna tíð og nú- tímann voru skýr. Aldrei varð hún gamla konan, sem helst vildi sitja og rifja upp fortíðina. Hún mundi allt, en hafði enn meiri áhuga á framtíð- inni. Nýjustu tækni og vísindum, svo sem því, sem börn hennar voru að fást við. Það eru viss forréttindi í dag að eiga þess kost að vera samvistum við hennar líka. Það var fræðandi og ljúft að hlýða á hana segja frá æsku sinni og upp- vaxtarárum vestur í Arnarfirði. Lýsa heimilinu og starfi föður síns, héraðs- læknis í afskekktu sjávarplássi, þar sem ekki var fært í vitjanir til sjúk- linga nema gangandi, ríðandi á hest- um eða sjóleiðina. Hún, elsta dóttirin á barnmörgu heimili, mundi vel, hvernig móðir hennar tók þátt í starfi manns síns. Sjúkramóttakan var á heimilinu, því ekkert var sjúkraskýl- ið. Sjúklingar höfðu mislanga viðdvöl á heimilinu og þær mæðgurnar og systkinin aðstoðuðu pabba hennar oft. En æskan fyrir vestan var full af tilbreytingu, fegurð Arnarfjarðarins engu lík. Hún mundi líka vel tímann í Ox- ford, þegar hún gætti barna breska rithöfundarins J.R.R. Tolkiens, þá er hann að skrifa um hobbitann. Arndís hélt alheilli hugsun til hinstu stundar og fylgdist með mál- um, fjær og nær. En fyrst og fremst fór hún ekki í neinar grafgötur með, hvað stóð næst huga hennar og hjarta. Afkom- endur hennar, óskabörnin tvö, Björn og Guðrún og fjölskyldur þeirra voru henni allt. Gleði og stolt yfir og vel- gengni þeirra allra var ómælt. Þökk sé þeim, er öllu ræður, að Adda háöldruð fékk að kveðja, hægt og hljótt, rétt eins og hún hefði sjálf lagt á ráðin. Hennar tími var kominn. Andlátið bar nokkuð brátt að en Rúna hennar sat hjá henni. Þrátt fyr- ir viðbrigðin og sorgina, orðaði hún viðskilnað móður sinnar svona: Þetta var svo flott hjá henni mömmu. Blessuð sé minning Arndísar Þor- bjarnardóttur. Guðrún Broddadóttir. Það kom stundum fyrir þegar ég var barn og foreldrar mínir þurftu að bregða sér af bæ, að mér var komið í pössun austur á Selfoss til Arndísar móðusystur minnar. Mér fannst það vera mikil forréttindi. Ég leit óskap- lega upp til frændsystkina minna, barna Arndísar, þeirra Bangsa og Rúnu. Þá fannst mér það óskaplega spennandi að fá að fara með Mar- teini, eiginmanni Arndísar, sem þá var byggingarfulltrúi Suðurlands, í ferðir út um sveitirnar til að taka út nýbyggingar. Ég botnaði aldrei í því að þau frændsystkini mín skyldu ekki vilja fara með í þessar ævintýra- ferðir, gerði mér þá ekki grein fyrir því að fyrir þeim var þetta ákaflega hversdagslegur hlutur. Marteinn sagði mér þegar ég spurði hann um þetta að það væri svona með bakara- börnin, þau vildu ekki brauð. Það voru góðir tímar að vera á Selfossi og ekki virtist það vera mikið mál fyrir frænku að bæta við aukakrakka. Í seinni tíð var fátt skemmtilegra þegar maður heimsótti Arndísi en að fá hana til segja manni frá uppvaxt- arárunum á Bíldudal. Arndís hafði ótrúlegt minni og hélt andlegri reisn sinni til dauðadags. Hún sagði mér eitt sinn frá heimsókn sem hún fékk að fara í til afa síns og ömmu, pró- fastshjónanna í Vatnsfirði við Ís- fjarðardjúp, þeirra Páls Ólafssonar og Arndísar Pétursdóttur Eggerz. Árið 1924 útheimti ferðalag frá Bíldudal við Arnarfjörð í Vatnsfjörð við Ísafjarðardjúp aðeins meiri fyr- irhöfn en nú. Þær fóru þrjár frænk- urnar saman, Adda, Kristín Hannes- dóttir f. 1910 og Sigríður Ágústsdóttir f. 1914. Fyrst var farið með skipi frá Bíldudal til Ísafjarðar og þaðan með Djúpbátnum inn í Vatnsfjörð. Adda mundi þessa ferð í smáatriðum. Hún lýsti húsakosti og herbergjaskipan í Vatnsfirði, afa sín- um og ömmu og öðru heimilisfólki. Vatnsfjörður var mikil hlunninda- jörð. Adda fór í sellátur og sagði mér að henni hefði fundist erfitt að sjá vorkópana drepna, þeir höfðu mannsaugu. Þá var farið út í Borg- arey til að taka egg og dún. Adda sagði að það hefði verið svo mikið af lunda í Borgarey að það vældi undan í hverju skrefi. Lundinn í holunni var ekki sáttur við það þegar stigið var til jarðar yfir holunni. Þá lýsti Adda fyr- ir mér verklaginu og vinnubrögðun- um við verkun á afurðunum. Kjötið af selnum var nýtt til matar, en skinnið flegið, þurrkað og selt. Dúnninn var hreinsaður og seldur. Þetta verklag er nú horfið. Arndís var fríð kona og alltaf ákaf- lega vel til fara. Allt til þess síðasta hafði hún sérstakt yndi af því að fara í tískuverslanir til að kaupa handa sér föt. Ég velti því stundum fyrir mér hvort afgreiðslufólkið í verslun- um gerði sér grein fyrir því að þarna færi kona á tíræðisaldri, með vand- aðan fatasmekk, sem væri að máta og kaupa dragtir, sem væru nógu fínar til að fara í „middagskaffiboð“ í. Með frænku minni er horfinn tengiliður okkar hinna við tíma, sem eru að hverfa. Fari hún í friði. Þórunn Guðmundsdóttir. Kveðja frá Inner Wheel klúbbi Selfoss Í dag kveðja félagskonur Inner Wheel Selfoss, heiðurskonuna Arn- dísi Þorbjarnard. sem fallin er nú frá eftir viðburðaríka starfsævi. Fyrir um það bil 27 árum hóf Arn- dís undirbúning að stofnun I.W. Sel- foss, þegar hún hóaði saman eigin- konum Rotary félaga á Selfossi, og kynnti okkur þennan félagsskap sem hún hafði haft spurnir af að væri starfandi á alþjóðavísu. Einnig voru þá starfandi tveir klúbbar á höfðuð- borgarsvæðinu. Fyrir hennar tilstilli og áhuga var klúbburinn stofnaður hér formlega árið 1978, og var hún fyrsti forseti klúbbsins. Henni var umhugað um velferð klúbbsins og miðlaði af reynslu sinni til þeirra sem seinna meir tóku við forystu. Það var ávallt reisn yfir Arndísi þegar hún kom á fundina, sem og endranær enda „dama“ af gamla skólanum. Hún lagði ríka áherslu á að vanda sig í klæðavali og útliti, til að dekra við „pjattið“ eins og hún orðaði, þá pass- aði hún upp á að að eiga alltaf pant- aðan tíma á hárgreiðslustofunni þá daga sem fundir voru. Arndís var góðum gáfum gædd, vel lesin og fróð um menn og málefni og notaleg heim að sækja. Hún fór margar ferðir til útlanda með manni sínum á vegum Rotary hér fyrr á ár- um og urðu þá málefni Inner Wheel henni ofarlega í huga. Að hennar frumkvæði var Umdæmið Inner Wheel Ísland nr. 136 stofnað 1987 og var hún jafnframt fyrsti umdæmis- stjóri þess hér á landi. Arndís var gerð að fyrsta heiðurs- félaga klúbbsins fyrir nokkrum árum og mat hún það mikils. Félagskonur í Inner Wheel, Sel- foss minnast Arndísar með þakkkæti og virðingu, og biðjum við fjölskyldu hennar blessunar og styrks um ókomin ár Segið það móður minni, að mold sé farin að anga, svali leiki um sali og sólbrennda vanga. Býst ég nú brátt til ferðar, brestur þó veganesti. En þar bíða vinir í varpa sem von er á gesti. (Davíð Stef.) F.h. Inner Wheel Selfoss, Þóra Grétarsdóttir. Heiðurskonan Arndís Þorbjarnar- dóttir hefur lokið góðri göngu eftir 94ra ára veru hér á okkar jarðar- kringlu. Ég get ekki látið hjá líða að senda henni nokkur kveðjuorð eftir nærri 20 ára samveru í Inner Wheel klúbbi Selfoss, en hún var ein af stofnfélögum þar og driffjöður frá upphafi og allt til þessa dags. Alltaf var Arndís reiðubúin til að leiðbeina okkur ef við vorum í einhverjum vafa um hlutverk okkar í félaginu og alltaf var hennar tilsögn ljúf og gott að fara eftir henni, en hún tileinkaði sér regl- ur og lífsviðhorf Inner Wheel strax í upphafi og vann eftir þeim. Inner Wheel er félagsskapur sem byggist á vináttu milli kvenna og stóð Arndís þar fremst meðal jafningja. Hún fór með eiginmanni sínum, Mar- teini Björnssyni, margar ferðir til framandi landa til að kynnast Rotary og Inner Wheel hreyfingunni og kom hún alltaf full af fróðleik til baka, sem hún miðlaði til okkar vinkvenna sinna á landinu öllu, því Arndís var síðar kosin fyrsti umdæmisstjóri landsins, þegar Inner Wheel umdæmi 136 á Ís- landi var stofnað. Fyrir um það bil fjórum árum, eft- ir að Arndís varð ekkja, sá hún sér ekki fært að búa lengur ein í húsinu hér á Selfossi og seldi hún það við fyrsta tækifæri eftir að hún fékk inni á Litlu-Grund í Reykjavík. Eftir það fækkaði fundarsetum og samveru- stundum, en oft fengum við góðar kveðjur frá henni á fundi og alltaf lét hún vel af sér. Ræktum vináttuna er kjörorð IW fyrir sl. ár. Með þeim orðum kveð ég þig og þakka þér allar ljúfar og góðar minningar. Fyrir hönd Umdæmis IW 136 óska ég þér góðrar heimkomu. Sigríður J. Guðmundsdóttir (Sirrý), forseti Inner Wheel Ísland umdæmi 136. Arndís var glæsileg kona, vel á sig komin og sköruleg. Geislaði af henni þegar hún ræddi hugðarefni sín. Hún hafði lifandi áhuga á mönnum og mál- efnum og var órög við að taka þátt í rökræðum. Hún var í alla staði jafnoki eigin- manns síns, þess mæta manns Mar- teins Björnssonar verkfræðings en skipaði sér í stöðu sem hans mikla stoð og stytta í lífinu. Á heimili þeirra var skýr verka- skipting milli eiginmanns og eigin- konu. Arndís helgaði krafta sína fjöl- skyldu og eiginmanni og segja má að hún hafi verið gerandi fremur en þiggjandi í því hlutverki. Þau hjón voru hvort í sínu lagi áhugaverðar og sérstakar persónur og bar heimilið þess greinileg merki. Húsið þeirra var búið ýmsum byggingartæknileg- um nýjungum miðað við íslenskar að- stæður og ekki dæmigert hvorki byggingin sjálf, innviðir né búnaður innan stokks. Aðsetur þeirra á Sel- fossi, þeim vinalega og friðsæla stað, hefði getað verið staðsett í miðju heimsþorpinu, ef slíkt þorp er þá til. Fyrir um áratug áttum við hjónin einkar fróðlegt viðtal, sem við tókum upp á segulband, við Martein um starf hans sem byggingarfulltrúa, um byggingar, skipulag, fráveitur og vatnsbúskap á Suðurlandi. Arndís tók okkur með kostum og kynjum við það tækifæri og átti ekki lítinn þátt í að gera daginn eftirminnilegan. Að leiðarlokum minnumst við þeirra Arndísar og Marteins með virðingu og sendum afkomendum þeirra samúðarkveðjur. Björn Erlendsson, Sigríður Á. Ásgrímsdóttir. ARNDÍS ÞOR- BJARNARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.