Morgunblaðið - 01.05.2004, Qupperneq 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 57
TÆPAR 5 milljónir króna hafa
safnast í neyðarsöfnun Félagsins
Ísland-Palestína frá því söfnunin
hófst haustið 2000, í kjölfar þess
að síðari uppreisn Palest-
ínumanna gegn hernáminu
hófst, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að nærri hálf
milljón króna hefur safnast það
sem af er þessu ári. Aðallega er
um frjáls framlög einstaklinga
inn á bankareikning eða í merkt
söfnunarílát að ræða. Þá hefur
mikið fé safnast á fjöldafundum
og tveimur listahátíðum sem fé-
lagið hefur gengist fyrir í sam-
vinnu við listamenn og fé-
lagasamtök.
Meirihluti söfnunarfjárins hef-
ur verið varið til að styrkja
Læknishjálparnefndirnar
(UPMRC) sem eru palestínsk
grasrótarhreyfing undir forystu
læknisins Mustafa Barghouti.
Félagið sendi nýlega 375.000
krónur á bankareikning samtak-
anna. Þá fengu nefndirnar hálfa
milljón króna frá heilbrigð-
isráðherra fyrir tæpu ári til að
koma upp færanlegri heilsu-
gæslustöð. Þá hafa tvö sjúkra-
hús, geðhjálparverkefni fyrir
börn og blindrabókasafn verið
styrkt myndarlega, að því er
segir í fréttatilkynningunni.
20 sjálfboðaliðar styrktir
Tuttugu sjálfboðaliðar hafa
einnig fengið ferðastyrk til að
dvelja og veita hjálp á átaka-
svæðunum í 2–8 vikur hver.
„Sjálfboðaliðarnir hafa með
nærveru sinni freistað þess að
bjarga mannslífum og hindra
limlestingar og að hús saklausra
borgara væru jöfnuð við jörðu,“
segir í tilkynningunni.
Neyðarsöfnunin er alfarið
rekin í sjálfboðavinnu og segir
að fullvíst sé að hver króna
komist í réttar hendur. „Við að-
stoðum gjarna félagasamtök,
fyrirtæki og stjórnvöld við að
koma stuðningsfé til áreið-
anlegra aðila. Við auglýsum hér
með eftir fyrirtækjum og fé-
lögum sem vilja leggja þessu
hjálparstarfi lið. Stjórnvöld
mættu einnig sýna lit,“ segir í
tilkynningunni.
Félagið Ísland-Palestína hvet-
ur fólk til að leggja 5.000 krón-
ur inn á reikning félagsins, sem
er númer 542-26-6990 og er
kennitalan 520188-1349. „Neyð
Palestínumanna er mikil. Þeir
búa við stöðuga ógn og eiga erf-
itt með að stunda búskap, at-
vinnu, viðskipti og sækja skóla.
Mannréttindi þeirra eru fótum
troðin,“ segir í tilkynningunni.
„Neyð Palestínu-
manna er mikil“
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra tók á
móti upplýsingaspjaldi um ABC-
barnahjálp á fimmtudaginn og
markar það formlegt upphaf á söfn-
unar- og kynningarátaki samtak-
anna Börn hjálpa börnum.
„Við hjá ABC-barnahjálp viljum
leggja okkar af mörkum í baráttunni
gegn ólæsi. Með þessu átaki viljum
við kynna starfsemina og gefa fólki
tækifæri til að leggja sitt af mörkum
með því annars vegar að styrkja
barn eða hins vegar að styrkja bygg-
ingu grunnskóla fyrir fátæk börn,“
segir María Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ABC-barnahjálpar.
Menningarmálastofnun Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO, hefur
ákveðið að tileinka næsta áratug
baráttunni gegn ólæsi. María segir
að um 862 milljónir manna, 15 ára og
eldri, séu taldar ólæsar í heiminum í
dag og um 113 milljónir barna hafa
ekki tækifæri til að ganga í skóla.
Flestir grunnskólar á landinu
taka þátt í átakinu. Börnin fá að sjá
fræðslumyndband um starf ABC-
barnahjálpar og kjör fátækra barna
á Indlandi. Síðan fær hvert barn
upplýsingaspjald sem þau fara með
heim til foreldra eða forráðamanna.
Á spjaldinu gefst fólki kostur á að
gerast stuðningsaðili barns eða
styrkja byggingu skóla.
Um 4000 börn fá nú hjálp fyrir til-
stilli ABC-barnahjálpar og velvild
íslenskra stuðningsforeldra. Í átak-
inu nú verður að sögn Maríu safnað
fyrir grunnskólabyggingu í Kitte-
tika í Suður-Úganda. Þar hefur ver-
ið byggður forskóli einnig fyrir söfn-
unarfé. Næst á dagskrá er svo að
byggja grunnskóla fyrir El Shaddai-
barnaheimili sem samtökin reka á
Indlandi.
Í dag 1. maí er ABC barnahjálp
með sína árlegu kaffisölu til styrkar
starfinu í safnaðarheimili Grens-
áskirkju.
Morgunblaðið/Ásdís
Hinrik Örn Sölvason, 11 ára, úr Heiðarskóla, afhendir Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamálaráðherra upplýsingaspjald um ABC barna-
hjálp. María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri starfsins, fylgist með.
Börn hjálpa
ólæsum börnum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Glæsilegt 172 fm einbýlishús, byggt 1998 ásamt bílskúr, 32,4 fm,
á veðursælum stað neðst í Fossvogsdalnum. Í húsinu eru 4 -5
svefnherbergi, stór stofa og borðstofa, tvö baðherbergi og fleira.
Mjög vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og allur frágangur fyrsta
flokks. Lóð er fullfrágengin og m.a. hitalagnir í stórri innkeyrslu.
TIL SÖLU - ASPARGRUND
FOSSVOGSMEGIN Í KÓPAVOGI
Stórhöfði 31 • 110 Reykjavík
Sími: 580 5200 • Fax 580 5230
www. lifidn.is
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
Ársfundur 2004
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Lífiðnar 2004
verður haldinn þriðjudaginn 11 maí, kl. 17:00
í Sal H á Nordica Hotel, Suðurlandsbraut.
Aðildarfélögum sjóðsins hafa verið send fundarboð
og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir
7. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með
tillögu- og málfrelsi.
Reykjavík, 23. mars 2004.
Stjórn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar
Dagskrá
Önnur mál löglega upp borin.
Venjuleg ársfundarstörf
samkvæmt samþykktum sjóðsins.
1
2
G
ís
li
B
.
/
N
æ
st
Atvinna fyrir alla
Félag iðn- og tæknigreina, Félag járniðnaðarmanna og
Trésmiðafélag Reykjavíkur hvetja félagsmenn sína til
þátttöku í kröfugöngu dagsins í tilefni af alþjóðlegum
baráttudegi verkalýðsins 1. maí.
1. maí kaffi
Að loknum útifundi er félagsmönnum
og fjölskyldum þeirra boðið í
1. maí kaffi í AKOGES-salnum, Sóltúni 3.
Félagar fjölmennum!
Félag iðn- og tæknigreina
Félag járniðnaðarmanna
Trésmiðafélag Reykjavíkur
STANGAVEIÐI
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí.
Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs-
björgu, unglingar (innan 16 ára ald-
urs) og ellilífeyrisþegar úr Reykja-
vík og Kópavogi fengið afhent
veiðileyfi án greiðslu.