Morgunblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2004 59
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundin/n og býrð
yfir staðfestu og yfirvegun.
Á sama tíma áttu auðvelt
með að sjá spaugilegu hlið-
arnar á hlutunum. Það verða
miklar breytingar á lífi þínu
á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
ræða við fjölskylduna bæði
um einkamál og viðskipti.
Hugmyndir ykkar eru skyn-
samlegar og raunhæfar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það liggur vel á þér í dag. Þú
hikar ekki við að hugsa stórt
en á sama tíma ertu jarð-
bundin/n og raunsæ/r. Þetta
er vænlegt til árangurs.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta ætti að verða mjög ár-
angursríkur dagur því þú ert
bjartsýn/n á sama tíma og þú
ert jarðbundin/n og
raunsæ/r.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft ekki að hafa neitt
fyrir því að koma vel fyrir í
dag. Það hljómar einfaldlega
allt sem þú segir eins og það
sé úthugsað.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að geta komið ár
þinni vel fyrir borð í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert sjálfsörugg/ur og
sannfærandi í dag. Þú átt
auðvelt með að koma auga á
nýja möguleika og leiðir til að
hrinda þeim í framkvæmd.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt að öllum líkindum
taka skynsamlegar ákvarð-
anir í atvinnumálunum í dag.
Þú lætur ekki úrtölur hafa
áhrif á þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt auðvelt með að greina
á milli raunhæfra og óraun-
hæfra markmiða þinna.
Hættu að hugsa um hið
ómögulega og einbeittu þér
þess í stað að því sem er
framkvæmanlegt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú lítur ekki á skyldur þínar
sem hindranir heldur sem
tækifæri til lærdóms og
þroska.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú getur lært eitthvað mik-
ilvægt af einhverjum í kring-
um þig í dag. Maki þinn eða
góður vinur mun hugsanlega
bregða sér í hlutverk kenn-
ara þíns en þó aðeins tíma-
bundið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú getur komið miklu í verk í
dag. Þú gengur til verka með
skynsemi þína og rökhugsun
að vopni. Hópvinna mun líka
ganga sérlega vel í dag.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður dagur til að
ræða sameiginlega ábyrgð á
börnum. Þú lítur á skyldur
þínar sem blessun en ekki
byrði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KONUNGSTIGN JESÚ
Víst ertu, Jesú, kóngur klár,
kóngur dýrðar um eilíf ár,
kóngur englanna, kóngur vor,
kóngur almættis tignarstór.
Kóng minn, Jesú, ég kalla þig,
kalla þú þræl þinn aftur mig.
Herratign enga að heimsins sið
held ég þar mega jafnast við.
Jesú, þín kristni kýs þig nú,
kóngur hennar einn heitir þú.
Stjórn þín henni svo haldi við,
að himneskum nái dýrðar frið.
Hallgrímur Pétursson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 1. maí,
er áttræð Halla Hafliða-
dóttir, Suðurbraut 10,
Hafnarfirði. Eiginmaður
hennar er Haraldur Guð-
mundsson. Þau taka á móti
gestum í dag frá kl. 16–19 í
Hrísholti 4, Garðabæ.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 1. maí,
er sjötugur Pálmi Ólason,
skólastjóri og oddviti á
Þórshöfn. Hann var einnig
aðalstofnandi og stjórnandi
Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar. Pálmi og kona hans,
Elsa Þ. Axelsdóttir, dvelja
erlendis á afmælisdaginn.
ALLTAF eru margar hliðar
á hverju spili, en það er
sjaldan sem þær eru allar
jafn áhugaverðar og hér.
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
♠G6
♥D9743
♦G5
♣G1064
Vestur Austur
♠– ♠K42
♥G652 ♥Á8
♦109732 ♦ÁK64
♣KD53 ♣9872
Suður
♠ÁD1098753
♥K10
♦D8
♣Á
Skoðum spilið fyrst frá
sjónarhóli suðurs, sem spil-
ar fjóra spaða eftir þessar
sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 tígull 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspilið er laufkóngur.
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Það er fljótséð að vörnin
á þrjá rauða slagi og síðan
má halda blindum úti og
koma í veg fyrir svíningu
fyrir trompkóng. Með
bestu vörn ætti spilið því
að fara einn niður.
En hvernig á að koma í
veg fyrir bestu vörn?
Alla vega þýðir lítið að
spila hjartakóng, því aust-
ur á auðvelt með að dúkka
þann slag eftir að hafa
fengið talningu frá makk-
er. Miklu betra er að spila
litlum tígli á gosann, eins
og hugmyndin sé að stinga
tígul í borði.
Víkur þá sögunni til
austurs. Spilið er frá ól-
ympíumótinu í Hollandi
árið 2000. Danskur sagn-
hafi spilaði tígli og austur
fór á taugum – lagði niður
hjartaás. Kóngurinn var
settur undir ásinn og nú
var drottningin innkoma
til að svína fyrir spaða-
kóng.
Þetta var veik vörn, eft-
ir á hyggja. Betra var að
taka annan tígulslag og
spila laufi, því ef sagnhafi
þarf að stinga tígul í borði
fær austur alltaf slag á
spaðakóng.
Þriðja sjónarhornið er
ekki hvað síst áhugavert.
Það er sagnvandi vesturs
við fjórum spöðum, því
vissulega kemur til greina
að segja fimm tígla þótt
hætturnar séu óhag-
stæðar. Ef vestur hefði
tekið þann kostinn hefðu
AV heldur betur snúið
dæminu sér í vil. Sennilegt
útspil gegn fimm tíglum er
laufás og síðan hjarta-
kóngur í öðrum slag. Spil-
ið er sjálfspilandi upp frá
því: sagnhafi tekur með
ás, spilar ÁK í trompi og
svo litlu hjarta að bindum
og dúkkar tíu suðurs! Við
því á vörnin ekkert svar.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6
4. Rf3 dxe5 5. Rxe5 Rd7 6.
Bc4 Rxe5 7. dxe5 e6 8. O-O
Rb6 9. Bd3 Bd7 10. Rc3 Bc6
11. De2 Rd5 12. Re4 Rb4 13.
Bc4 Dd4 14. Rg5 Bd5 15.
Bxd5 Dxd5 16. Hd1
Dc6 17. c3 h6 18.
cxb4 hxg5 19. Bxg5
Bxb4 20. Hac1 Db6
21. Dd3 O-O 22. Bf6
Bc5
Staðan kom upp í
rússnesku deilda-
keppninni sem er ný-
lokið. Pavel Smirnov
(2601) hafði hvítt
gegn Alexey Be-
letsky (2393). 23.
Hxc5! Nauðsynlegur
lokahnykkur í ljósi
þess að eftir 23. Dg3
Bxf2+ hefði svartur
getað bjargað sér. Svartur
gafst upp þar sem eftir 23...
Dxc5 24. Dg3 g6 25. Dh4
verður hann óverjandi mát.
Stórt mót fyrir grunnskóla-
nemendur verður haldið í
dag í Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar um það
er að finna á http://
skakmot.eyjar.is.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Ásdís
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 1.421
kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær eru Emilía Heiða
Þorsteinsdóttir, Hlíf Ólafsdóttir og Hildur Ýr Þórð-
ardóttir.
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.
Óskað er
eftir
að kaupa
myndir
eftir lista
mennina
Þórarinn
B. Þorlá
ksson
Ásgrím
Jónsson
Jón Ste
fánsson
Gunnlau
g Blönd
al
Guðmun
d Thors
teinsso
n
(Mugg)
Áhu
gasa
mir
send
i
uppl
ýsin
gar
til
aug
lýsi
nga
deil
dar
Mb
l.,
mer
kt:
„M-
152
54“
.
Námskeiðið „Frá umbúðum til innihalds“
verður haldið þriðjudaginn 4. maí kl. 20.00 í Grafarvogskirkju.
Erindi sem flutt verða: „Kristileg sýn á hjónabandið og hjónavígsluna“,
sr. Bjarni Þór Bjarnason, prestur í Grafarvogskirkju.
„Fjármál heimilanna“, Bärbel Schmid, félagsráðgjafi
og Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur.
„Verkefni, þróun og innihald ástarsambands“,
Elísabet Berta Bjarnadóttir, félagsráðgjafi Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Pör sem hugleiða að láta pússa sig saman eru velkomin.
Verð kr. 1.500 parið. Nýbökuð hjónabandssæla og kaffi innifalið.
Brúðhjón - sambúðarfólk
Nánari uppl. hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, s. 562 3600.