Morgunblaðið - 16.06.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 163. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Eldtefjandi
efni eitruð
Varað við skaðlegum áhrifum
efna í raftækjum | Daglegt líf
Bílar í dag
Fimm heitustu hjólin Colt og Lísa
í Undralandi Sjö manna Scenic
Svifnökkvi og Lamborghini í skúrinn
Næst verður
allt vitlaust!
Mummi í Götusmiðjunni kynnir
nýjan geisladisk | Fólk í fréttum
HERLÖGREGLA var kölluð til á
Sri Lanka í gær til að rannsaka
dauða dúfu einnar sem varn-
armálaráðherra landsins átti að
sleppa við athöfn um helgina. Her-
inn hafði fangað sjö hvítar dúfur
sem átti að sleppa lausum sem tákn
um frið í byrjun athafnar til heiðurs
fjölþjóða friðargæslusveitum Sam-
einuðu þjóðanna í landinu.
Sex mikilmenni slepptu sínum
dúfum vandkvæðalaust en þegar
Ratnasiri Wickremanayake varn-
armálaráðherra sleppti sinni dúfu
féll hún steindauð til jarðar.
„Herlögreglan mun rannsaka
málið og reyna að komast að því
hvort hér var um skemmdarverk að
ræða,“ sagði heimildarmaður úr
dómsmálaráðuneytinu. Eftir atvik-
ið fengu dagblöð hringingar frá
áhyggjufullum lesendum sem töldu
dauðu dúfuna slæman fyrirboða.
Fjörlítil
friðardúfa
Colombo. AFP.
GISTIHEIMILIÐ Frost og funi í Hveragerði er í
sérstöku landslagi. Allt í kring eru hverir en
heimilið stendur á bökkum Varmár. Engu er lík-
ara en þeir félagar Sigurður og þýskur vinur
hans Adrian standi á skýi þar fyrir utan. Knútur
Bruun, sem ásamt Önnu Sigríði Jóhannsdóttur
rekur gistiheimilið, segir svalir þess nærri
teygja sig út yfir Varmá. Hann hefur sagt að
gestirnir gætu kastað flugu út í ána af svölunum,
veitt sjóbirting, dregið hann upp og slakað ofan í
hverinn fyrir neðan svalirnar og gætt sér að því
loknu á gufusoðnum fiski.
Morgunblaðið/RAX
Gengið um í gufunni
STJÓRNVÖLD í nágrannaríkjum
Íraks hafa ákveðið að styðja bráða-
birgðastjórnina þar í landi sem til-
nefnd var í byrjun mánaðarins. Er
talið að þetta geti verið mikilvægt
skref í baráttunni við uppreisnar-
menn í landinu sem hafa mjög sótt í
sig veðrið að undanförnu.
Var þetta niðurstaða fundar
ríkjanna sem haldinn var í Istanbúl
í Tyrklandi í tengslum við þriggja
daga fund Samtaka íslamskra ríkja
(OIC), sem þar fer nú fram. Utan-
ríkisráðherrar Íraks, Tyrklands, Ír-
ans, Kúveit, Sádi-Arabíu, Jórdaníu,
Sýrlands og Egyptalands, sátu
fundinn. Þá samþykkti OIC ein-
róma ályktun þar sem lýst er yfir
stuðningi við bráðabirgðastjórnina í
Írak og óskað eftir hjálp utanað-
komandi þjóða við uppbyggingu í
landinu.
Ákvarðanirnar verða án efa til
þess að fólk geri meiri greinarmun
á bráðabirgðastjórninni og forvera
hennar, sem litið var á sem lepp-
stjórn Bandaríkjamanna. Stuðning-
urinn skiptir miklu máli nú þegar
bráðabirgðastjórnin þarf að takast á
við uppreisnarmenn sem hafa barist
gegn her bandamanna. Uppreisnin
hefur orðið sífellt ofbeldisfyllri und-
anfarið þar sem sprengjuárásir og
mannrán hafa færst í aukana.
Krefst „viðeigandi“
öryggisráðstafana
George W. Bush sagði í gær að
bandaríski herinn myndi einungis
framselja Saddam Hussein í hendur
Íraka ef bráðabirgðastjórn landsins
sem tekur við völdum 30. júní, léti
gera „viðeigandi“ öryggisráðstafan-
ir. „Ég vil bara vera viss um að
Saddam Hussein verði áfram í fang-
elsi eftir valdaskiptin,“ sagði hann.
Nágrannaríki Íraks
styðja nýju stjórnina
Istanbúl. AP. AFP.
Verður senn/31
♦♦♦
SÁDI-ARABÍSK
samtök sem
kveðjast tengd al-
Qaeda-hryðju-
verkanetinu birtu
í gærkvöldi
myndband á ísl-
amskri vefsíðu af
bandarískum gísl
sem þau segjast hafa í haldi. Var því
hótað að maðurinn, Paul Marshall
Johnson, yrði tekinn af lífi verði fé-
lögum í samtökunum, sem yfirvöld í
Sádi-Arabíu hafa í haldi, ekki sleppt
innan 72 klukkustunda. Johnson,
sem er 49 ára gamall flugvélaverk-
fræðingur, var rænt í borginni
Riyadh á laugardag en þar starfaði
hann fyrir bandarískt fyrirtæki.
Sádi-Arabía
Hóta að
myrða gísl
Dubai, Kaíró. AFP, AP.
STÖÐUGUR
straumur gesta
var á opnun sýn-
ingar Finnboga
Péturssonar
myndlistarmanns
á Art Basel, sem
er álitin mikil-
vægasta lista-
stefna sem haldin
er í heiminum ár
hvert. Verk Finn-
boga, Sphere, var keypt strax við
opnun af Francesca Von Habsburg,
sem á TBA 21 sem er stórt safn nú-
tímamyndlistar. Finnbogi segir að
miðað við viðtökur hefði mátt selja
verkið nokkrum sinnum á opnunar-
dag.
Verk Finnboga
keypt á fyrstu
mínútunum
Hefði getað/10
Finnbogi
Pétursson
ÍSLENSK stjórnvöld hvetja önnur
ríki til að standa við þúsaldarmark-
miðin sem miða að því að berjast
gegn fátækt í heiminum. Þetta kom
fram í máli Geirs H. Haarde fjár-
málaráðherra á ráðherrafundi UNC-
TAD, ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um viðskipti og þróun í Brasilíu
en hann er sóttur af um 6.000 fulltrú-
um frá 170 ríkjum. Geir sagði á fund-
inum að ef fram héldi sem horfði
mundu fæst ríki ná þúsaldarmark-
miðunum en hann benti að framlag
Íslands til þróunarmála yrði aukið
verulega á næstu fimm árum. Geir
benti á að grundvallaratriðið í bar-
áttunni gegn fátækt væri að auka
frelsi í viðskiptum. Til að vinna að því
markmiði hefði Ísland fellt niður
tolla á flestum vörum frá fátækustu
ríkjum heims. Geir sagði jafnframt
að kynjajafnrétti væri stór þáttur í
baráttunni gegn fátækt því að konur
gegndu þýðingarmiklu hlutverki í að
auka hagvöxt og þróun.
Geir flutti einnig ræðu á fundi Al-
þjóðaþingmannasambandsins en þar
kom hann m.a. inn á að öll lönd ættu
að hafa ákvæði um viðskiptafrelsi
inni í þróunaráætlunum sínum.
Frjáls viðskipti í
baráttu gegn fátækt
Geir H. Haarde fjármálaráðherra ávarpar ellefta ráðherrafund UNCTAD,
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun, í Sao Paulo.
Geir H. Haarde á ráðherrafundi SÞ