Morgunblaðið - 16.06.2004, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2004 27
DAGSKRÁ lista- og menning-
arhátíðarinnar Bjartir dagar í
Hafnarfirði í dag er eftirfar-
andi:
Kl. 12 Hafnarborg Bland í
poka. Hádegistónleikar með
Antoníu Hevesi píanóleikara og
Auði Gunnarsdóttur sópr-
ansöngkonu sem syngur létt lög
og aríur. Aðgangur ókeypis!
Kl. 13.30 Hraunsel, Flata-
hrauni 3 Opið hús – Skemmti-
dagskrá í boði Félags eldri
borgara í Hafnarfirði. Opið til
kl. 17.
Kl. 16 Fjörukráin Setning vík-
ingahátíðar. 120 íslenskir og er-
lendir víkingar veða á svæðinu.
Bardagamenn, bogaskyttur,
glímumenn, útskurðarmenn,
steinhöggvarar, járnsmiðir,
sögumenn, seiðkonur, tónlist-
armenn og galdramenn.
Kl. 19 Gamla bókasafnið
Rokkdagur þar sem fram koma
hljómsveitirnar Lada sport,
Amnesia, Form áttanna, Pan,
Han Solo, Fóbía, Gizmo, Lizark
og Morris.
Kl. 20.30 Fríkirkjan Sum-
arsveifla með Fríkirkjukórnum
í Hafnarfirði. Flutt verða söngv-
ar frá suðrænum slóðum auk ís-
lenskra sumarlaga og sálma.
Kl. 21 Hafnarborg Djassperlur
með Ragga Bjarna, Birni Thor-
oddsen og Gvendi Steingríms.
Sígild djasslög eftir Gershwin
og Ellington ásamt sígildum ís-
lenskum lögum.
Bjartir
dagar
Stofnun Vigdísar Finn-bogadóttur í erlendumtungumálum hlýtur í ár 4,5milljóna króna styrk frá
Norræna menningarsjóðnum. Styrk-
urinn verður nýttur til þess að halda
þrjár ráðstefnur undir heitinu Nor-
rænir tungumála- og bókmenntadag-
ar, sem haldnar verða í Svíþjóð í
haust, í Noregi á næsta ári og Finn-
landi árið 2006, auk útgáfu rits með
völdum fyrirlestrum frá ráðstefnu
um rannsóknir á norrænum málskiln-
ingi og vestnorrrænum bókmenntum
sem stofnunin hélt í Kaupmannahöfn
í fyrra. Það var Vigdís Finn-
bogadóttir, sem er formaður styrkt-
arsjóðs stofnunarinnar, sem veitti
styrknum formlega viðtöku við at-
höfn í Skólabæ í gær, úr hendi Rann-
veigar Guðmundsdóttur alþing-
ismanns, sem er formaður Norræna
menningarsjóðsins. Styrkurinn er
einn sá stærsti sem Norræni menn-
ingarsjóðurinn hefur veitt einstöku
verkefni.
Útrás skiptir máli
„Við erum himinlifandi að fá þenn-
an myndarlega styrk,“ sagði Auður
Hauksdóttir, forstöðumaður Stofn-
unar Vigdísar Finnbogadóttur, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Norrænn
málskilningur er hornsteinn í nor-
rænu samstarfi og samkennd. Stofn-
un Vigdísar Finnbogadóttur í erlend-
um tungumálum stundar meðal
annars rannsóknir á þessu sviði og
leitast við að vekja athygli á þeim. Við
erum í mjög nánu samstarfi við bæði
fræðimenn í norrænum málum á
Norðurlöndum og við fræðimenn og
tungumálakennara sem kenna önnur
mál á norrænum málsvæðum. Þau
tengsl skipta miklu máli fyrir tungu-
málakennslu og tungumálarann-
sóknir hér á landi og eftir því sem
fræðasamstarfið er víðtækara og líf-
legra, þeim mun traustari fótum
stendur það.“
Að sögn Auðar skiptir útrás stofn-
unarinnar miklu máli, bæði til kynn-
ingar á eigin starfsemi og tengsla-
myndunar við fræðimenn annarra
landa. „Það gerum við meðal annars
með því að halda þessar ráðstefnur
sem til stendur og styrkurinn er
grundvallaratriði í þeirri fram-
kvæmd. Þannig að þetta er mikill
gleðidagur fyrir okkur og við erum
afskaplega þakklát stjórn Norræna
menningarsjóðsins og óskum ís-
lensku menningarlífi til hamingju
með þessa aukningu á fjárframlagi
sem þar kemur fram.“
Einhuga vilji sjóðsstjórnar
Að sögn Rannveigar Guðmunds-
dóttur, sem hefur veitt Norræna
menningarsjóðnum forstöðu síðan
um áramót ásamt Þorsteini Gunn-
arssyni varaformanni, er það þeim
mikið ánægjuefni hversu margar
áhugaverðar og faglega unnar um-
sóknir hafa borist sjóðnum á þessu
ári. „Norræni menningarsjóðurinn og
Norðurlandaráð hafa mjög hátt á sín-
um forgangslista norrænu tungu-
málin, málvísindi og málskilning.
Þarna er feikilega áhugavert og
óvanalegt verkefni að fara í gang sem
snertir grunnstoðir norrænnar
menningar, með mjög sterkri þátt-
töku viðurkenndra vísindamanna,
verkefni sem hægt er að byggja á til
framtíðar. Það var einhuga vilji til
þess í stjórn sjóðsins að styrkja þetta
verkefni, og styrkja það vel.“
Rannveig segir málskilning milli
Norðurlandanna afar mikilvægan.
„Hann er undirstaða þess mikilvæga
samstarfs sem er milli þessara landa,
ekki síst varðandi sameiginlegan
menningararf.“
Styrkir úr Norræna menning-
arsjóðnum til íslenskra verkefna hafa
aukist á þessu ári sem Íslendingar
hafa gegnt formennsku í sjóðnum.
Þannig hafa rúmlega 16 milljónir
króna verið veittar á fyrri helmingi
ársins, sem er meira en framlög til ís-
lenskra verkefna voru allt árið í fyrra.
Á ráðstefnunum þremur sem
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
mun standa fyrir á næstu árum verð-
ur lögð áhersla á norrænu tungu-
málin sem erlend mál og grannmál,
þýðingar, menningarlæsi, gildi
tungumálakunnáttu fyrir atvinnulífið,
tungumálarannsóknir, tungutækni
og menningartengsl Íslands og Norð-
urlanda og eru þær ætlaðar fræði-
mönnum, rithöfundum, háskólanem-
um, fjölmiðlafólki,
menningarfræðingum og stjórn-
endum fyrirtækja. Vigdís Finn-
bogadóttir mun sjálf taka þátt í þeim,
en hún tekur einnig þátt í kynningum
á starfsemi stofnunarinnar á þessu
ári í Þýskalandi og Frakklandi. Ráð-
stefnurnar koma í kjölfar ráðstefnu
um rannsóknir á norrænum málskiln-
ingi og vestnorrænum bókmenntum
sem haldin var í nóvember í fyrra í
tengslum við vígslu Norðurbryggj-
unnar í Kaupmannahöfn og var hluti
af umfangsmikilli kynningu á starf-
semi Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í Danmörku, en hún hlaut
1,2 milljóna króna styrk frá Norræna
menningarsjóðnum í fyrra.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fær 4,5 m.kr. frá Norræna menningarsjóðnum
Málskilningur er hornsteinn í
norrænu samstarfi og samkennd
Morgunblaðið/Eggert
Vigdís Finnbogadóttir tekur við styrknum af Rannveigu Guðmundsdóttur. Páll Skúlason, rektor HÍ, stendur hjá.
MADDAMA, kerling, fröken, frú
var yfriskrift tónleika Kvennakórs
Hafnarfjarðar. Undirritaður hlýddi á
seinni tónleikana sem haldnir voru við
rífandi stemningu fyrir fullu húsi í
Hafnarborg. Þrátt fyrir yfirskriftina
var komið víða við í verkefnavalinu,
allt frá latneskum altarisgöngusálmi
og Maríubæn til söngleikja með ýms-
um viðkomum á leiðinni, en alls var 21
kór- og einsöngslag á efnisskránni.
Mamma, lag Björgvins Valdimars-
sonar var fyrst á dagskrá, vel sungið
með fallegum flautuleik Melkorku
Ólafsdóttur. Flest lögin fyrir hlé voru
vel flutt, þó fataðist flugið í íslenska
þjóðlaginu Vinaspegill, þetta gullfal-
lega lag var skotið niður í flugtaki
með of hárri tóntegund og allt of
hröðum flutningi og var það synd því
lögin á undan voru virkilega vel sung-
in. Einsöngvari í Vinaspegli var
Ágústa I. Arnardóttir sem naut sín
ekki af fyrrgreindum orsökum. Kór-
inn náði sér fljótt á strik aftur og lag
Knuts Nystedt Ég er heimsins ljós
var mjög gott svo og altarisgöngu-
sálmurinn Panis angelicus. Ólafur
Kjartan Sigurðarson söng með kórn-
um í sálminum og einnig í lagi Kalda-
lóns Mamma ætlar að sofna sem var
áhrifamikið. Ólafur söng síðan einn
Sprett Sveinbjörns Sveinbjörnsson-
ar, Í fjarlægð og Hamraborgina.
Rödd Ólafs virkaði dálítið þreytt í
byrjun en fór hægt og rólega í gang
og varð loks sjálfri sér lík í tveim síð-
ustu lögunum fyrir hlé. Ólafur fór síð-
an á kostum eftir hlé, fyrst í lagi föður
síns Fylgd sem var vel sungið hjá
Ólafi og kórnum síðan söng hann
nokkur lög úr söngleikjum þar sem
hann var í banastuði og átti hvern
smellinn á fætur öðrum, ýmist einn
eða með kórnum. Kórinn fór einnig á
kostum eftir hlé fyrst í Draumnum
um Adam eftir Lajos Bárdos og síðan
fylgdi hvert lagið á fætur öðru í lifandi
og vönduðum flutningi.
Hljómur kórsins er bjartur og yf-
irleitt hreinn innbyrðis. Söngurinn
góður og vel mótaður með góðri dyna-
mík bæði með og án undirleiks og
textinn skýr. Mikil sönggleði ríkir í
kórnum sem söng alla tónleikana ut-
anbókar. Hrafnhildur Blomsterberg
leyfir kórnum að syngja og heftir
hann ekki. Hún hefur kennt kórnum
að grípa upphafstóninn við tóntöku án
þess að apa hann eftir og er það vel.
Antonia Hevesi sá um píanóleikinn af
miklu öryggi og með góðum stuðningi
að vanda.
Söngstund í Digraneskirkju
Katla Björk Rannversdóttir sópran
hélt einsöngstónleika í Digranes-
kirkju og með henni lék Pavel Manas-
ék á flygilinn. Katla söng fyrst fallega
perluna Panis angelicus eftir César
Franck. Oft hefur Gounod fengið bágt
fyrir Ave Maríuna sem við hann er
kennd en hann á ekkert í. Gounod
heyrði C dúr prelúdíu Bachs úr
Wohltemerierte Klavier leikna og
heyrði þá út laglínu sem hann skrifaði
niður og kallaði Méditation as coun-
terpoint og var alls ekki hugsuð til
söngs, síðar sá einhver ástæðu til að
texta þessa laglínu Gounods og setti
þá við hana latnesku Ave Maríu bæn-
ina og er sú gerð því miður mun
þekktari en frumgerð Gounods.
Handel eða Händel var á sínum tíma
þekktastur fyrir óperur sínar og
hljóðfæratónlist. En eftir að fór að
halla undan fæti í óperunum fékk
hann slag og þegar hann hafði jafnað
sig aðeins fór hann að semja óratorí-
ur, stórbrotin tónverk með fallegum
aríum og voldugum kórum sem halda
nafni hans mest á lofti í dag. Tvær
þeirra þekktari eru Messias (1741) og
Samson (1743). Joseph Samson er
byggð á verki Miltons en Messias á
biblíutextum. Katla söng mjög fallega
Let the Bright Seraphim úr Samson
og He shall feed his flock, How
beautiful are the feet of them og I
Know that my Redeemer liveth úr
Messíasi. Allar Handel-aríurnar voru
vel sungnar og fallegar. Bæn hinnar
örvæntingarfullu móður úr Dansin-
um í Hruna sem biður Himnadrottn-
inguna að vernda son sinn og fleiri
sem eru að sökkva til Heljar á jólanótt
vegna gjörða sinna túlkaði Katla
mjög fallega og sama er að segja um
Friðarbæn Árna Thorsteinssonar.
Vertu, Guð faðir, eftir Jóns Leifs
Opus 12 er dýrmæt perla sem Katla
fór vel með. Undirleikurinn er alls
ekki fyrir píanó og nýtur sín engan
veginn á það hljóðfæri, þvert á móti.
Síðast söng Katla Allelúja úr mótett-
unni Exultate jubilate Kv. 165 eftir
Mozart. Mozart virðist henta léttri
rödd Kötlu vel og var flutningurinn á
Alleluia hreint út sagt glæsilegur.
Katla Björk hefur mjög fallega og
bjarta sópranrödd og nokkuð gott
raddsvið. Textinn var mjög skýr í ís-
lensku lögunum en ekki alltaf nógu
skýr í þeim erlendu. Hún er vandvirk
og var túlkunin vel úthugsuð og sam-
kvæm sjálfri sér. Mikið og ört víbrató
á röddinni skemmdi dálítið fyrir og
vann oft á móti fallegri tónmyndun og
framburði, en þar sem það minnkaði
blómstraði röddin. Pavel Manasék lék
á flygilinn af miklu öryggi, kanski full-
sterkt á köflum en oft mjög músik-
alskt og studdi vel við sönginn.
Jón Ólafur Sigurðsson
TÓNLIST
Hafnarborg
KÓRTÓNLEIKAR
Kvennakór Hafnarfjarðar. Einsöngvari:
Ólafur Kjartan Sigurðarson. Píanóleikari:
Antonia Hevesi. Stjórnandi: Hrafnhildur
Blomsterberg.
Digraneskirkja
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Katla Björk Rannversdóttir sópran og
Pavel Manasék á píanó.
Bjartur hljómur
Þingholtsstræti 27 kl. 17 Andri
Hafliðason opnar ljósmyndasýningu
undir yfirskriftinni „One Day“. Á
sýningunni, sem opin verður í sólar-
hring, má sjá ljósmyndir og kvik-
myndir sem Andri hefur tekið hér á
landi undanfarið hálft ár. Til að
magna áhrif myndefnisins notast
hann við tónlist og ýmiskonar hljóð
og er þar að nokkru leyti undir áhrif-
um frá föður sínum, tónskáldinu
Hafliða Hallgrímssyni.
Andri er ungur Íslendingur sem hef-
ur búið í Edinborg í Skotlandi frá
fæðingu. Hann stundar nám í arki-
tektúr við háskóla í Glasgow, en hef-
ur dvalist á Íslandi síðan í janúar
síðastliðnum og innt hér af hendi
hluta af verkþætti námsins.
Sýningin verður einnig opin á morg-
un kl. 10-20.
Sýningarsalurinn Þrúðvangi, Ála-
fosskvosinni, Mosfellsbæ kl. 20 Í
tengslum við myndlistarsýninguna
Lýðveldi Íslands
syngur Sigrún
Hjálmtýsdóttir
nokkur lög við
undirleik Jónasar
Þóris á tengi-
brúnni yfir
Varmá Á sama
stað mun Bryn-
dís Jónsdóttir
fremja gjörning í
tilefni þess að af-
mælisbarnið, lýð-
veldið Ísland er 60 ára.
Menningarsalur Hrafnistu kl.
13.30 Kynning á kennaranum og
bókaverðinum Leifi Eiríkssyni, sem
nú er 97 ára. Hann var um tíma odd-
viti Raufarhafnarhrepps. Dagskráin
verður í ljóðum og tónum ásamt frá-
sögnum af ferli hans og yrkingum.
Gallerí Klaustur, Skriðuklaustri
Kristinn G. Harðarson myndlist-
armaður sýnir verk í 11 hlutum frá
1992-1993, svipmyndir úr almenn-
ingsgarðinum Walnut Hill Park í
New Britain, Connecticut í Banda-
ríkjunum, en Kristinn bjó í nágrenni
garðsins um árabil. Þá sýnir Krist-
inn einnig nokkrar bækur sem hann
hefur unnið upp úr dagbókum er
hann hefur haldið undanfarin 20 ár.
Opið kl. 10-18 alla daga. Sýningin
stendur til 30. júní.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Sigrún
Hjálmtýsdóttir