Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 04.01.2003, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. JANÚAR 2003 15 skáldið Peter Poulsen, þýðanda Fernandos Pessoa, sem þangað leitar reglulega og sökkt hefur sér niður í tungumálið og menningu þjóð- arinnar. Eðlilega lá leið okkar Tryggva Ólafssonar fljótlega á safn eldri lista, O Museu Nacional de Arte Antiga, ekki síst fyrir þá sök að þar er að finna eitt frægasta verk Hieronimusar Bosch, þrískiptu altaristöfluna, Freisting heilags Ant- oníusar, sem ein sér væri tilefni heimsóknar til Lissabon að áliti fyrrnefnds Peters Poulsens, og næsta auðvelt að samsinna. Annars getur þar að líta evrópska og portúgalska list og list- iðnað frá fjórtándu fram til tuttugustu aldar, mjög fjölþætt og áhugavert samsafn, einkum hvað samanburðarfræði snertir. Þarna eru frægar myndir eftir Dürer, Velasques, van Dyck, Lucas Cranach, Pieter Brueghel, Pieter de Hooch og Hans Memling svo einhverjir séu nefndir, að maður nefni ekki Piero della Franc- esca, en stórt málverk af heilögum Ágústi mun eitt fárra sem til eru eftir meistarann, utan freskómyndarinnar óviðjafnlegu í Arezzo í ná- grenni Flórenz. Hið splunkunýja og mikla hönnunarsafn í Belém stingur mjög í stúf við eldri byggingar í nágrenninu, ekta nútímagímald í þunglama- legri ópersónulegri módernískri útfærslu, þótt ekki skorti flottheitin. Yfirlitið á nútímahönnun mjög skilvirkt en um sumt fullkeimlíkt því sem getur að líta alls staðar í Evrópu, þó gott og upplýsandi sýnishorn fyrir innlenda. Norrænni hönnun gerð mjög góð skil, en hér saknaði ég Íslendinga sem enn eru eðli málsins samkvæmt einungis viðhengi straumanna. Bókaverslunin yfirgripsmikil og mjög áhugaverð. Er ég var á leið þaðan um garðinn meðfram strandlengunni, framhjá Belém-turni og stytt- unni af Vasco da Gama, sá ég álengdar á götu- slóðanum undarlegt og druslulegt fyrirbæri og gekk hratt saman. Um að ræða miðaldra úti- gangsmann sem misst hafði bæði hægri fót og hönd, en hoppaði á vinstri löpp, eina skólengd í senn. Hafði engan stuðning, hvorki af hækju né staf, fór því löturhægt en áfram komst hann samt, og þóttu mér þetta mikil býsn enda aldrei rekist á slíkt áður. Því miður hafði stafræna kortið í myndavélinni fyllst í garðinum og ekk- ert til vara, svo ekki gat ég náð mynd af fyr- irbærinu, en þessari óvæntu sjón á ég ekki eftir að gleyma. Þá ég gekk framhjá manninum leit hann á mig, sveiflaði heila handleggnum og muldraði eitthvað grettinn á svip, en ég lét sem ég sæi það ekki og hélt áfram án þess að líta um öxl. Kannski var hann að betla, slíkir mjög áberandi í borginni og helst miðju Baixa, urð- um vel varir við þá, einkum er við sátum á Figueira-torgi. Tryggvi var mjög hissa á þessu meður því að í Madrid, þar sem hann dvaldi um síðustu jól og áramót, hefur þeim stórlega fækkað frá því sem hann reyndi í fyrri heim- sóknum. Lítil bækluð hnáta, sem var á vakki á torginu og kom til okkar með hreistur eftir endilöngum útréttum framhandleggnum, sennilega vegna bruna, átti alla samúð okkar. Ljóst er að heil- brigiskerfinu hlýtur að vera stórlega ábótavant í landinu því víðast væri þetta útilokað norðar í Evrópu, og trúlega mögulegt að græða á stúlkubarnið nýtt skinn og færa önnur líkams- lýti til betra horfs. Annað mál, að börn með slík lýti eru oftar en ekki gerð út af fullorðnum og þau ýkt, en þótt maður renni grun í það getur verið fjarska erfitt að halda utan um klinkið er þau koma með biðjandi blik í auga og lítinn framréttan lófa. Á dagskrá var dagsferð til Sintra, undurfag- urs og sögufrægs þorps uppi í fjöllunum þrjátíu kílómetra frá Lissabon, en þangað héldu kóng- arnir fyrrum úr hitamollu borgarinnar á sumr- in. Þótt íbúarnir séu einungis tuttugu þúsund er hér um einstæða vin að ræða, hið stóra lunga höfuðborgarinnar, með mikla sögu örlagaríkra ákvarðana er teknar voru og sköruðu framtíð þjóðarinnar til riss og falls. Átti sér stað í hinni einstæðu byggingu Pavo Real eða Palàcio Naz- ional, Þjóðarhöllinni, eins konar Alhambra Portúgals, sem gnæfir hátt uppi, með tvo sér- stæða drifhvíta keilulaga reykháfa sem ber við þakskeggin og teygja sig eins og guðleg tákn upp í himinblámann. Rómverjar voru heillaðir af fegurð Estremadura-héraðisns og stofnuðu þar borgarkjarna sem þeir nefndu Cintra, fjöll- in í kring, Mons luna, Mánafjöll. Á sjöundu öld komu Márarnir og skreyttu borgina með höll- um og brunnum, rústa virkis þeirra sér enn stað og ber við brúnir Sintrafjallanna ofar þorpinu. Seinna reistu ríkir menn sér villur, skáld og andans stórmenni dvöldu þar, Byron lávarður tyllti þar tá og féll gjörsamlega fyrir staðnum, hyllti hann í skáldskap sínum sem há- fleygan Edens rann. Jóhannes mikli, Joao I, lét reisa viðbót við grunnbyggingu Máranna í upp- hafi 15. aldar, meðal annars sal í stíl Mára með gosbrunni úr marmara í honum miðjum. Í hinni miklu og undursamlegu höll getur að líta mesta úrval Azulejos-flísaskreytis í Portúgal. Hinum megin í þorpinu rís svo önnur for- vitnileg bygging í nýklassískum stíl vígð í júlí 1924, hönnuð af arkitektinum Notra Junior. Um er að ræða alþjóðlegt hús yfir þarfir heims- borgara, þar á meðal fjárhættuspil. Sögu þess þekki ég ekki en nú hefur það verið gert upp og hýsir helsta samtímalistasafn Portúgals; Sintra museum of Modern Art – The Berardo Collection. Þar getur að líta fulltrúa helstu stíl- bragða og strauma fram á daginn í dag, sem sagt núlistasafn út í fingurgóma. Í þessu flotta ríkmannlega safni voru þó örfáir gestir meðan við stóðum við, en þeir sem skoðuðu af hvað mestri athygli og rökræddu í ákafa það sem fyrir augu bar voru þrjár aldnar konur, og segi svo einhver að núlistir séu bara fyrir unga fólk- ið! Það sem vakti óskipta athygli okkar á aðal- götunni voru nokkur yfirgefin hús, sannkölluð draugahús. Um að ræða villur sem áður voru leigðar út, en þegar stjórnmálamenn komust með puttana í málin og frystu húsaleiguna var grundvellinum kippt undan starfseminni. Eng- inn peningur til endurnýjunar og eigendurnir stórum frekar að borga með útleigu en hagn- ast. Hörmuleg þróun í ljósi þess hve um fínan og merkilegan arkitektúr er að ræða, þjóðar- gersemi. En hvað kemur það seinheppnum stjórnmálamönnum og atkvæðaveiðurum við? Á einum staðnum þar sem nokkur slík standa hlið við hlið á að reisa félagsmiðstöð í skókassa- stíl (!), kannski að nútíminn sé á leiðinni í þetta sögufræga þorp, í þessu tilfelli sú hlið hans sem nefna má andlega eyðimörk. Módernisminn og síðari tíma útvötnun hans virðist hafa komið seint til Portúgals, þannig ekki eins áberandi í eldri hverfum og víðast annars staðar. Um leið er eins og síðmódernisminn í sinni skýrustu mynd falli mun betur að fortíðinni, í öllu falli ef mið er tekið af byggingunni Torres de Amor- eiras, Turni ástarinnar, í Lissabon, sem reist var á árunum 1983–85 og hannað hefur Tomàs Taveira. – Við höfðum komið á þriðjudegi, og á laug- ardegi fengum við góða heimsókn af ungum hjónum, Augusto Neto og Gullu Rún Margeirs- dóttur, sem höfðu ekið allar götur frá Figueira de Foz í Norður-Portúgal til að hitta Tryggva og spúsu hans. Ástæðan helst, að móðir Gullu er æskuvinkona Gerðar og vinkona út yfir gröf og dauða, að orða má. Þau snæddu með okkur kvöldverð á heimssýningarsvæðinu og ekki skorti umræðuefnið. Konan hafði nýlokið við að þýða Engla alheimsins eftir Einar Má, og er ég leitaði á hana um hvort það hefði ekki verið erf- itt gaf hún lítið fyrir það, sagði hins vegar að það hefði verið mjög gefandi. Í býtið daginn eftir óku þau okkur svo til Cascais, sem mun vestasti oddi meginlandsins. Einnig sumarað- setur konunga og stórmenna vegna hins milda loftslags líkt og í Sintra, að viðbættri annálaðri baðströnd með einstaklega fínum sandi. Akst- ursleiðin í björtu og fögru veðri mikil og fjöl- þætt lifun. Í leiðinni ókum við framhjá brim- brettaströnd þar sem fjöldi fáklædds fólks var á vappi, allt á fullu þótt komið væri fram í seinni hluta nóvember, hitinn fimm gráður yfir meðallagi. Við snæddum hádegisverð í Cascais og síðan var ekið að hinu alræmda klettarifi sem ber nafnið „Munnur heljar“, þar sem út- hafsaldan þvær hina skreipu og holu kletta- veggi og hvítfyssandi bárufaldar ólga, toga og soga. Allt þetta stórt og smátt mikið og hremmilegt sjónarspil, úti fyrir hafið eins langt og augað eygir. Þarna hefur úthafsaldan hrifsað til sín marg- an manninn sem hefur komið of nærri, eða ver- ið að veiða á klettasyllum við sjávarmál, og hver sá sem dettur í hafið feigur fyrir hina miklu strauma og sogkraft. Á bakaleiðinni var áð í Belém og þar á elsta veitingastað í Lissabon, Antigua Casa dos Pastëis de Belém, bragðað á nokkurs konar mjúkdeigstertu sem hefur verið bökuð þar frá því 1837 og fólk frá öllum hornum borgarinnar sækir í, enda troðfullt í öllum sölum staðarins, sem sumir eru miklir um sig. Einstakur sunnudagur sem endaði á því að við ferðalangarnir brugðum okkur inn á þjóð- minja- og þjóðháttasafnið í nágrenninu, en ekki til setunnar boðið hjá ungu hjónunum sem urðu að hafa hraðan á og aka til síns heima … Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson Munnur heljar í nágrenni Cascais. Útsýni niður garð Eduordo VII, að styttu Pombals og Avenida da Liberdade, Breiðgötu frelsisins, og áfram til miðborgarinnar, Baixa-hverfisins. Inngangurinn inn í gamla spilavítið í Sintra, nú helsta samtímalistasafn Portúgala. MYNDLIST Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Gróf- arhúsinu: Ljósmyndasýningin Reykja- vík í hers höndum. Til 2.2. Galleri@hlemmur.is: Viktoría Guðna- dóttir. Til 5.1. Gerðuberg: Myndskreytar sýna verk úr nýjum barnabókum. Til 6.1. Hallgrímskirkja: Aðalheiður Valgeirs- dóttir. Til 1.3. Listasafn Borgarness: Sigurður Freyr Guðbrandsson. Til 29.1. Listasafn Einars Jónssonar: Safnið er lokað í desember og janúar. Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1980–2000. Til 15.1. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Borg – innsetning Ingu Svölu Þórsdótt- ur. Nútímalist frá arabaheiminum. Til 19.1. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað- ir: Martin Bigun. Til 15.1. Miðrými: Odd Nerdrum. Til 31.1. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And- litsmyndir og afstraksjónir. Opið e. samkomulagi út janúar. Til 30.3. Mokkakaffi: Hildur Margrétardóttir. Til 15.1. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B: Giovanni Garcia-Fenech og JBK Ransu. Til 12.1. Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121: Ljósmyndasýning Ingólfs Júl- íussonar. Til 31.1. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu: Handritin. Landafundir. Skáld mánað- arins: Einar Sigurðsson í Eydölum. Ís- landsmynd í mótun – áfangar í korta- gerð. Til 8.8. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Kaffi Reykjavík: Zoffer-Larrabee-dúó- ið. Kl. 21. Salurinn, Kópavogi: Egill Ólafsson og hljómsveitin Le Grande Tangó, Edda Erlendsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir, Helga Þórarins- dóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Richard Korn. Stjórnandi franski band- óneonleikarinn Olivier Manoury. Kl. 20. Sunnudagur Kópavogskirkja: Kvennakór Kópavogs og Karlakór Kópavogs. Kl. 17. Salurinn, Kópavogi: Margrét Árna- dóttir selló og Lin Hong píanó. Kl. 20. Kirkja Óháða safnaðarins: Sólrún Bragadóttir og Peter Máté. Kl. 14. Miðvikudagur Háskólabíó: Vínartónleikar. Hljóm- sveitarstjóri: Peter Guth. Garðar Thór Cortes, einsöngvari Lucero Tena, ein- leikari á kastanettur. Kl. 19.30. Fimmtudagur Háskólabíó: Vínartónleikar. Kl. 19.30. Föstudagur Háskólabíó: Vínartónleikar. Kl. 19.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Halti Billi, fös. Með fullri reisn, lau. Jón Oddur og Jón Bjarni, sun. Með fulla vasa af grjóti, sun., fim. Karíus og Baktus, sun. Veisl- an, fös. Borgarleikhúsið: Sölumaður deyr, sun. Kvetch, fim. Herpingur og Hinn full- komni maður, fös. Rómeó og Júlía, fös. Loftkastalinn: Benedikt búálfur, sun. Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga, fös. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi: Egg-leikhúsið sýnir Dýrlingagengið, lau., sun. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U Morgunblaðið/Jim Smart Garðar Thór Cortes

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.