Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Síða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MARS 2003 Á INNAN við tveimur árum hefur Michael Moore færst í fremstu víglínu pólitískra ummælenda í Bandaríkjunum. Er það fyrst og fremst velgengni heimildarmyndarinnar Bowling for Columbine (Keilað fyrir Columbine; 2002) að þakka, en við gerð hennar brá Moore sér í flest helstu hlutverk; leikstýrði, skrifaði handrit, fram- leiddi og kom fram sem spyrill. Verk þetta hlaut einkar góðar viðtökur á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes í fyrra, svo mjög reyndar að stofnað var til nýs verðlaunaflokks til að heiðra myndina. Þá hefur hún gengið vel í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum síðustu mánuði, og þar komið flestum á óvart því við- fangsefnið er viðkvæmt, og hún stefnir nú óð- fluga í að verða vinsælasta heimildarmynd sögunnar. Nýr kafli í velgengnissögu mynd- arinnar hófst svo um síðustu helgi er myndin hlaut Óskarsverðlaun sem besta heimildar- mynd nýliðins árs og Moore hneykslaði að auki marga með því að stíga í pontu með áfell- isdóm yfir stríðsrekstri Bandaríkjanna í Írak í stað hefðbundinnar þakkarræðu. Þá hefur önnur bók Moores um þjóðfélagsmál, Stupid White Men, and Other Sorry Excuses for the State of the Nation (Vitgrannir hvítir karl- menn, og aðrar lélegar afsakanir fyrir hörm- ungarástandi landsins; 2001), prýtt metsölu- lista New York Times um hálfs árs skeið, en bókin hlaut jafnframt Bresku bókmennta- verðlaunin í marsbyrjun á þessu ári, en þau eru veitt í atkvæðagreiðslu meðal bókaútgáfu- og sölufólks sem og lesenda. Bókin hefur líkt og kvikmyndin vakið mikið umtal, verið lofsömuð og gagnrýnd í jafn- ríkum mæli. Það þarf svo sem ekki að koma á óvart að þessi tvö verk hafi vakið athygli – Moore er pólitískur róttæklingur og „aktív- isti“, afskaplega gagnrýninn á land sitt og þjóð og meinfyndinn í þokkabót. Hann á auð- velt með að koma skoðunum sínum á framfæri á aðgengilegan og skemmtilegan máta en sú staðreynd að hann tekur iðulega á viðkvæm- um og margflóknum málefnum gerir verk hans umdeild. Ennfremur mætti nefna að á bak við saklaust yfirbragð og kímnigáfu leynist harðsvíraður fjölmiðlamaður sem hef- ur yfir einbeittri pólitískri sannfæringu að búa. Hæfileikum sínum beinir Moore gjarnan gegn einstaklingum eða fyrirtækjum sem honum þykja gagnrýnisverð og þeir sem und- ir slíkum kringumstæðum „lenda“ í viðtali eiga sér sjaldan griðavon. Viðfangsefnum Moores mætti reyndar líkja við efnafræði- formúlur, svo vísindalega skipta þau fólki í hatrammar og andstæðar fylkingar. Þannig tekur Keilað fyrir Columbine t.d. á skotvopna- eign Bandaríkjamanna, vopnastýringunni þar í landi og mögulegum tengslum milli tíðni of- beldisglæpa og þess hversu auðvelt er að verða sér úti um byssur. Kenningar af þessu tagi eru ekki nýjar af nálinni en hafa jafnan valdið úlfúð; vopnaframleiðendur hafa mikilla hagsmuna að gæta og ekki er síður höggvið nærri beini þegar reynt er að takmarka stjórnarskrártryggð réttindi bandarískra þjóðfélagsþegna til að bera vopn. Moore tekur þátt í þessari umræðu og afraksturinn er eld- fim og hugvekjandi heimildarmynd. Vitgrannir hvítir karlmenn Þá fjallar áðurnefnd bók Moores, Vitgrann- ir hvítir karlmenn, einkum um forsetakosn- ingarnar 2000 sem Moore lítur á sem tákn- rænan atburð sem hrint hafi af stað víðtæku hnignunarferli hvert sem litið er í bandarísku þjóðlífi. Gagnrýnin og víðtæk samfélagsskoð- un af þessu tagi er án efa vandasamt verkefni og velta má upp þeirri spurningu hvort kald- hæðni og hótfyndi (en hvort tveggja eru óað- skiljanlegir hlutar af persónuleika höfundar- ins) geti talist hentugustu verkfærin til að sundurgreina og setja fram skoðanir um mik- ilvæg þjóðfélagsmál. Slíkum spurningum er erfitt að svara nema með tilvísun í einstök og afmörkuð verk og í tilviki Moore gegna kald- hæðni og dramatískar framsetningaraðferðir því hlutverki að skapa nýtt samhengi utan um málefni sem þykja annaðhvort sjálfsögð eða ekki umræðunnar virði. Hann notar nýstár- legan og stundum allt að því öfgakenndan samanburð til að benda á það sem að hans mati eru undirliggjandi lykilatriði, sannindi sem týnst hafa í óminnissarpi fjölmiðlaum- ræðunnar. Jaðaráhrifin eru svo óneitanlega þau að áhrifarík og áhugaverð framsetning greiðir fyrir viðtökuferlinu og gerir inntakið eftirminnilegra, eykur jafnvel sannfæringar- kraft þess sem mælir. Hitt er ekki síður mikilvægt að samhliða kaldhæðinni og grípandi framsetningartækni sinni heldur Moore út á hála braut samfélags- gagnrýni vel útbúinn staðreyndum, tölfræði og rökstuddum ályktunum. Sérstaklega er hann naskur við að grafa upp fróðleiksmola sem annars hefur farið hljótt um í tengslum við hin ýmsu málefni sem snerta almennings- og þjóðarhag og gerir það umfjöllun hans bæði upplýsandi og áríðandi. Pólitísk sannfæring Michaels Moores liggur án vafa vinstra megin í stjórnmálalandslaginu enda er hann fyrrverandi aðstoðarmaður for- setaframbjóðandans og neytendafrömuðarins Ralphs Nader. Líkt og Nader er Moore ekki ókunnur deilum, gagnrýni og ýmiss konar mótbyr, enda áberandi orðinn í almennri um- ræðu í Bandaríkjunum, sem og víðar, um þjóðfélagsmál og mætir oft harðri andstöðu þeirra sem ekki deila stjórnmálaskoðunum eða sannfæringu hans. Kemur þar líka til að- ferðafræði og upplýsingamiðlunartækni fjöl- miðlamannsins sem, þrátt fyrir að nýta sér hefðbundinn vettvang (kvikmyndir, sjón- varpsþætti og bækur), líkist einna helst hern- aðarfræði skæruliðans. Með lítið milli hand- anna gerir hann skyndiárásir á bandarískt þjóðlíf og að hætti skæruliðans villir hann á sér heimildir því við fyrstu sýn er hann ekki ýkja ábúðarfullur. Þar virðist þvert á móti vera um að ræða hálfgerðan „slúbbert“ sem jafnan skartar trosnaðri derhúfu og lítt smekklegum klæðnaði, alls ólíkur stjörnu- kroppum og tannkremsbrosurum Holly- wood-aðalsins og skortir þá öruggu sviðsfram- komu og skjástýrðu framsögn sem einkennir fjölmiðlafólk í Bandaríkjunum. Moore er með öðrum orðum ósköp sauðs- legur í háttum en allt hylur þetta þó skarpa pólitíska greind og baneitraða kímnigáfu. Reynist því sauðargæran einstaklega vel til þess fallin að fá viðmælendur til að gá ekki að sér og vanmeta þann sem talað er við. Enda hefur það sýnt sig í heimildarmyndum og sjónvarpsþáttum Moores að lítt ógnandi og al- múgalegt yfirbragðið hefur ítrekað hjálpað honum til að fá tortryggna viðmælendur til að slappa af og opna sig. Og ósjaldan hefur gildra reynst bíða þeirra. Undir lúðalegu yf- irbragðinu leynist því sannarlega fjölmiðlaúlf- ur. Leitin að Roger Verk Moores síðustu ár hafa flest einkennst af nær þráhyggjukenndum vilja til að hrista upp í þeim sem halda mætti að hefðu komið sér svo vel fyrir á efstu þrepum efnahags- og samfélagsstigans að þeir væru ósnertanlegir. Þannig lýsir fyrsta heimildarmynd Moores, Roger and Me (Roger og ég; 1989), því hvern- ig Moore ákveður að leita uppi stjórnarfor- mann bandarísku risasamsteypunnar General Motors, Roger Smith, og grafast fyrir um álit hans á efnahagslegum afleiðingum þess að fyrirtækið loki verksmiðjum og flytji til fá- tækari landa og/eða þróunarlanda, í þeim til- gangi að lækka framleiðslukostnað. Persónu- legar ástæður eru fyrir efnisvalinu en heimabær Moores, Flint í Michigan-fylki, varð fyrir miklu áfalli þegar GM lokaði verk- smiðjum sínum þar og flutti starfsemina til Mexíkó. Með brotthvarfi fyrirtækisins var fót- unum kippt undan efnahagslegri tilveru bæj- arins, fólksflótti fylgdi í kjölfarið sem og við- varandi fátækt og niðurníðsla, bæði áþreifanlegra mannvirkja og huglægra gilda. Vill Moore m.a. halda því fram að starfshættir á borð við þá sem hér eru nefndir séu hálfgerð hryðjuverk, en Moore hefur frá upphafi verið talsmaður þess að fyrirtækjum beri að axla siðferðilega og félagslega ábyrgð, ekki síður en uppfylla skyldur í garð hluthafa. Í myndinni leitast hann við að ná tali af áð- urnefndum forstjóra í þeim tilgangi að fá skýringar á þeim hagsmunum sem ráða ferð- inni í málum sem þessum. Markmiðið er að gera Roger grein fyrir afleiðingum „endur- skipulagningar“ fyrirtækisins (og í raun margra annarra; GM var og er ekki eitt á báti með hagræðingaraðgerðir af þessu tagi) í þeirri von að honum sé ókunnugt um þau. Þannig lýsir stærsti hluti myndarinnar árang- urslitlum tilraunum Moores við að hafa uppi á Roger. Skýrt kemur fram að það er hægara sagt en gert að ná tali af slíkum valdamönnum en Moore er þrjóskur. Samfélagsgagnrýni hans í þessari mynd er bæði hjartnæm og að því er virðist rökleg – að minnsta kosti ef tek- ið er tillit til manngildissjónarmiða til viðbótar við stígandann á verðbréfamörkuðum. Mynd- in hefur þó verið gagnrýnd og það af fleirum en pólitískum andstæðingum Moores. Hefur þar stigið fram með mestum þunga einn af rit- stjórum bandaríska kvikmyndatímaritsins Film Comment, Harlan Jacobson, en hann gagnrýndi vinnuaðferðir Moores harðlega í ít- arlegri umfjöllun þar sem hann benti á nokk- ur atriði sem sett höfðu verið á svið en síðan í samhengi myndarinnar verið látin líta út fyrir að vera raunveruleg atvik kvikmynduð glóð- volg úr veruleikanum. Hin hlutlausa heimildarmynd Gagnrýni Jacobsons snertir á einum mik- ilvægasta en jafnframt flóknasta þætti í fram- leiðslu og viðtökum heimildarmynda, þ.e. „hlutleysi“ slíkra verka. Óhætt er reyndar að segja að heimildarmyndin sem tjáningarform hafi iðulega vakið margþættar spurningar um veruleikamiðlun, ekki síst vegna þeirrar ná- kvæmu eftirmyndar sem hún bregður upp af viðfangsefni sínu. En sú krafa að fyllsta hlut- leysis sé gætt við miðlun veruleikans er vand- uppfyllt, ekki síst þegar um kvikmyndagerð er að ræða. Miðillinn sem slíkur krefst ávallt einhvers konar meðhöndlunar og stjórnunar. Jafnvel þótt heimildarmyndaleikstjóri leggi sig í líma við að mynda atburð óskertan og láta sem minnst fyrir sér fara þarf hann ávallt að velja sjónarhorn og ákveða hvað á að liggja innan myndrammans og hvað verður utan hans. Þá þarf að meðhöndla efnið á einhvern hátt, skapa því formgerð eða ákvarða upp- byggingu þess myndverks sem miðlað verður áhorfandanum. Þannig er það stýring kvik- myndagerðarmannsins að tjaldabaki sem reynist afdrifaríkust fyrir boðskap og merk- ingarmiðlun verksins þegar öllu er á botninn hvolft, jafnvel „hlutlausustu“ heimildar- mynda. Staldra má við hvert ofantalinna at- riða í hvaða heimildarmynd sem er og spyrj- ast fyrir um ástæðurnar sem liggja tilteknum ákvörðunum til grundvallar. Á þann hátt skýrist það líka hversu erfitt er að tala um „hlutleysi“ í þessu samhengi. Moore hefur hins vegar aldrei leitast við að rækta með sér hlutleysisímynd, skoðanir hans og viðhorf liggja ljóslega fyrir áhorfendum. Sviðsetningar sem reynt er að framsetja sem óundirbúin veruleikabrot virðast þó standa handan viðurkenndra siðferðismarka heimild- armyndagerðar og varpar slík vinnuaðferð nokkrum skugga á þessa mynd Moores; skugga sem í framhaldi getur einnig litað reynslu áhorfenda af nýrri myndum hans. Vert er þó að geta þess hversu vafasamar almennar hugmyndir um hlutleysi þeirrar sýnar sem brugðið er upp í heimildarmyndum í raun eru, ávallt er um stýringu að ræða og mörkin óljós milli heiðarlegrar túlkunar og trúverðugrar hliðrunar sannleikans, sviðsetn- ingar og þess veruleika sem e.t.v. lagar sig óhjákvæmilega að nærveru myndavélarinnar. Varpa má fram þeirri spurningu hvort, og án frekari umhugsunar, eigi að dæma úr leik það vægi sem mat kvikmyndagerðarmannsins hefur á því hvernig best sé að höndla við- fangsefnið, og birta það sem fyrir honum er raunsannasta mynd þess. Án efa er hér um margflókið mál að ræða og vera má að ekki sé hægt að finna algilda reglu heldur verði að skoða hvert tilfelli fyrir sig en sennilega eru upplýstir áhorfendur mikilvægasta forsendan fyrir því að verk á borð við þau sem hér eru til umræðu séu metin að verðleikum. Þá er lyk- ilatriði að leikstjórar og rithöfundar virði tak- mörk heiðarlegrar umræðu og skref sé ekki stigið í átt að sögufölsun eða einfölduðum og staðlausum áróðri. En óhjákvæmilega verður að taka afstöðu til ofantaldrar gagnrýni; þannig hefur Moore í sjónvarpsþáttum sínum t.d. vísvitandi sent fá- tæklega klæddan blökkumann inn á skrifstofu heimsþekkts fyrirtækis til að bera fram kvört- un. Tilgangurinn var e.t.v. að skapa kring- umstæður þar sem búast mætti við að mann- inum yrði kaldranalegt fleygt á dyr – atvik sem Moore ætlar sér að ná á filmu sem dæmi um viðhorf fyrirtækisins – en í þessu sam- hengi ákvarðar hann ekki, eða sviðsetur, við- brögðin þótt hann hafi með meðvituðum hætti kallað þau fram. Og þótt aðstæðurnar sem skapast séu ekki hversdagslegar eru þær e.t.v. táknrænar. Hér mætti líka hafa í huga ummæli sem birtust í New York Times þar sem greinarhöfundur færir í orð þann mögu- leika að viðtökur á verkum Moores séu með þeim hætti að andstæðingar hans í pólitík hafni þeim sjálfkrafa meðan þeir sem heldur eru fylgjandi umbótakröfum og gagnrýni hans meðtaki og upphefji skilaboð hans gagn- rýnislaust. Þessi staða mála, sem greinahöf- undinn A.O. Scott grunar að kunni að vera til staðar, er hörmuð; í ígrundaðri umfjöllun um nýjustu kvikmynd Moores bendir hann á að svo mikið af áleitnu efni beri fyrir augu áhorf- enda og mörgum hugvekjandi spurningum sé varpað fram, og að svo fáir í bandarískum fjöl- miðlum taki á þessu eða sambærilegu efni, að miður væri að mikilvægi framlagsins drukkn- aði í pólitískri orrahríð. Þá má einnig nefna að sannleikurinn getur verið ótrúlegri en nokkur skáldskapur og nýjasta mynd Moores er sýni- dæmi um það; fjörugasta ímyndunarafl hand- ÚLFUR Í SAUÐARGÆRU Á bak við sauðslegt yfirbragð bandaríska kvikmyndagerðarmannsins Michaels Moores býr skörp pólitísk greind og baneitruð kímnigáfa. Í þessari grein er fjallað um feril Moores sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir heimildarmyndina Keilað fyrir Columbine sl. sunnudag en hún verður sýnd á kvikmyndahátíð í Regnboganum á næstunni. E F T I R B J Ö R N Þ Ó R V I L H J Á L M S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.