Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Page 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MARS 2003 TVÖ verk sem talin eru vera eft- ir spænska listamanninn Goya verða seld á uppboði hjá spænska uppboðshúsinu Subast- as Alcala í maí nk. Verkin eru ómerkt en þeir Goya-sérfræð- ingar sem uppboðshúsið hefur haft samband við á Spáni eru all- ir á einu máli um að þetta séu verk listamannsins. „Frummat okkar er að verkin verði seld fyrir 3,5–5 milljónir evra,“ sagði Richard Willermin, yfirmaður myndlistardeildar uppboðshúss- ins, en upphæðin nemur tæpum 300–420 milljónum króna. Málverkin sýna annars vegar Jósef og Maríu með Jesú og hins vegar Tóbías og engilinn og telst fundurinn sá merkasti í spænska listaheiminum síðustu 20 árin. Ekki er nema mánuður liðinn frá því að verkin uppgötvuðust en þau fundust fyrir algjöra til- viljun á heimili efnaðrar fjöl- skyldu í Madríd. Saga þernunnar á fjalirnar BÓK kanadíska rithöfundarins Margaret Atwood, The Hand- maid’s Tale, eða Saga þernunnar eins og hún var þýdd á íslensku, mun á næstunni verða sett upp sem ópera í Coliseum-leikhúsinu i London. Óperan er samin af Poul Rouders en textinn er endur- unnin af Bretanum Paul Bentley sem byggir hann að öllu leyti á texta Atwood og með fullu leyfi hennar. Að sögn Daily Tele- graph hélt Bentley sig fast við sögupersónur, atburðarás og samtalssenur rithöfundarins sem hefur lýst sig ánægða með árangurinn. Óperan var fyrst sett upp í Kaupmannahöfn árið 2000 eftir að texti Bentleys hafði verið þýddur á dönsku og naut hún mikilla vinsælda þar en þetta er fyrsta enska útfærslan. Asíuvika í New York FJÖLDI listasafna og gallería á Manhattan í New York taka þessa vikuna þátt í svo kallaðri Asíuviku. En undanfarin ár hefur á hverju vori verið efnt til sérstakrar Asíuhátíðar þar sem söfn og tug- ir gallería setja upp sérstakar sýningar tengd- ar álfunni. Að þessu sinni geymir borgin sýn- ingu á klassískum kínverskum húsgögnum og fornum súlum svo dæmi séu nefnd. Þeim sem taka þátt í Asíuvik- unni hefur fjölgað um 55 úr 49 söfnum og galleríum frá því í fyrra þó að stríðið í Írak varpi óneitanlega skugga á sýning- arnar. Segir New York Times, til að mynda að sýningarnar séu í ár nokkuð minni en áður, en telur Asíuvikuna engu að síður góðan vettvang til að kynna menningu, trúarbrögð og þá ólíku þjóðfélagshópa sem byggja álfuna. Verk Goya á uppboði ERLENT Reuters Starfsmenn uppboðshússins við myndir Goya. Indverskur Búdda. Svartir sauðir þá og nú Nýlistasafnið hefur á undanförnum árum sinnt af natni listamönnum eins og Megasi, Rósku og nú Degi Sigurð- arsyni, haldið listþing og sýningar. Nú stendur yfir listþing og sýning um Dag Sigurðarson ljóðskáld sem lést fyrir aldur fram. Dagur var ötull við mynd- gerð af ýmsum toga, dúkristur, mál- verk og teikningar prýða sýninguna og einkennast flestar þeirra einna helst af einlægni listamannsins en margar eru fallegar og bera hæfileikum vitni sem hefðu getað þroskast betur hefðu þeir verið ræktaðir af elju. En Dagur var auðvitað fyrst og fremst ljóðskáld, sem skrifaði frá hjartanu og ljóð hans eru tilfinninganæm og falleg. Í Nýlistasafninu má líka sjá nokkur ljóða hans og bréfa auk myndbanda og tónlistar sem gerð hefur verið við ljóðin. Dagur var uppreisn- armaður, í stöðugri uppreisn gegn borgaraleg- um gildum, hann uppfyllti allar klisjurnar um misskilda, drykkfellda, hjartagóða listamanninn en hann sjálfur var auðvitað engin klisja né líf hans. Í dag eru menn honum líkir ekki lengur til, listamenn eru löngu hættir að drekka sér til óbóta, þeir vinna bara frá níu til fimm og enginn talar um innblástur lengur. Klisjan um líf þeirra er í mesta lagi tilefni til háðs. Tóm steypa? Háð er einmitt rauði þráðurinn í verkum Ás- mundar Ásmundssonar sem nú sýnir í Gallerí Hlemmi. Klisjan um listamanninn hefur oft verið inntak verka hans, til dæmis sýndi hann eitt sinn frystikistu fulla af áfengi og kallaði hjálpartæki listamannsins. Áhugavert er að skoða sýninguna um Dag í samhengi við sýningu Ásmundar, það er líkt og einlægnin og kaldhæðnin kallist á en kannski eiga þeir tveir þó meira sameiginlegt en virðist við fyrstu sýn. Samtíminn býður ekki upp á möguleikann á listamannalífi eins og lífi Dags lengur, – en er það afstaða Ásmundar sem við tekur eða er hún andstæðan? Það má telja verk- um Ásmundar það hiklaust til tekna að erfitt er að gera upp við sig hvort er. Eins og Dag þá dreymir Ásmund, eða listamanninn sem hann leikur, um frægð og frama. Hann hefur reynt að gera sýnilega þá oft nokkuð vonlausu baráttu þeirra sem helst hugsa um myndlist í formi nafna á galleríum, kúratorum og greinum í tíma- ritum. Í einu verka sinna hefur Ásmundur til dæmis myndgert þá athöfn að míga utan í vegg, líkt og allt sem hann gæti nokkurn tíma afrekað á listabrautinni væri að vitna í verk annarra. Verk Ásmundar hafa stundum einkennst af aulahúmor sem er afar misfyndinn, sumt er í ætt við Jackass-húmorinn ameríska. List hans ber einnig veru hans í Bandaríkjunum nokkuð vitni, oft virðist um eina hugmynd að ræða sem skellt er fram án þess að hún sé unnin eða dýpkuð frekar, en bandarískir listamenn eiga slík vinnu- brögð til í meira mæli en evrópskir kollegar þeirra. Nú sýnir Ásmundur innsetninguna Steypa í Gallerí Hlemmi. Steypa hefur auðvitað bæði sína bókstaflegu merkingu og svo merkinguna bull og vitleysa, en oft er sagt um eitthvað í dag að það sé tóm steypa. Það er alþekkt að myndlist sem annað er misgóð og vissulega margt þar sem betur mætti fara, klisjur á borð við þessa breyta litlu þar um. Ásmundur gengur hreint og beint til verks hér sem áður og hefur látið fylla galleríið af steypu, auk þess sýnir hann á myndbandi hvern- ig það fór fram. Skjárinn sem sýnir myndbandið er að auki hálfkaffærður í steypu. Þar sjást þrjár bikiniklæddar stúlkur hella steypunni á gólf gall- erísins. Myndbandið er fyrirsjáanlegt og lang- dregið í hæsta máta, eftir nokkrar sekúndur hef- ur áhorfandinn áttað sig á hvað það sýnir og ekkert kemur á óvart. Bikiniklæðnaður stúlkn- anna vísar hér í klámiðnaðinn að sögn Ásmund- ar, reyndar á afar prúðmannlegan og saklausan hátt. Líklega er hann með því að vísa til þess að listin og klámiðnaðurinn eigi sitthvað sameig- inlegt, þar gangi margt yfirborðskennt kaupum og sölum, önnur gömul sannindi og klisja. Ásmundur hefur í list sinni ítrekað reynt að stinga á kýlum sem er þarft verk. Hann deilir m.a. á háæruverðugleika listarinnar og gerir ekki síst grín að listamanninum sjálfum. Líkt og Dagur leitast hann við að vera einhverskonar enfant terrible, rugla íhaldssama góðborgarana í ríminu. En ef verk hans missa marks verða þau ekkert nema enn ein sjálfhverf innsetningin, ætluð þeim sem hlæja með án þess að spyrja hvað búi að baki. Yfirborðslegar tilvísanir í lista- söguna og fortíðina og ýmis fyrirbæri samtímans líkt og klámiðnaðinn segja fátt ef þær eru ekki rökstuddar. En svo ég víki aftur að Degi og spurningunni um andstæður eða sjálfstætt framhald þá er það lík- lega það síðarnefnda sem hefur yfir- höndina, Dagur hefði fílað verk Ás- mundar. Rauður snjór Í sýningarskrá um Serge Comte er honum lýst sem vafrandi borgara í sýndarveruleika tölva. Það er einmitt tækniheimur tölva og Netsins sem er jarðvegur verka Serge sem sjá má í Ný- listasafninu ásamt sýningunni um Dag. Hann fjallar um tölvuna sem bútar ljós- myndir niður í agnarsmáar einingar, ferninga, tungumál Netsins, sundurslit- in orð, merkingu eða merkingarleysi. Serge sýnir einnig tvær myndraðir sem minna á skuggamyndir en í sýningar- skrá kemur fram að myndirnar eru teknar á minniskubb. Texti í sýning- arskrá fylgir öðru verkinu, Rougeneige eða Rauður snjór. Hann birtir óljósar myndir af af einstaklingum í nútíma- þjóðfélagi sem einkennist af neyslu, of- beldi og tilfinningakulda og það er ekki laust við að listamaðurinn heillist að einhverju leyti af þessum sundurslitna heimi. Myndirnar sem varpað er á vegginn sýna svo að nokkru leyti það sem textinn fjallar um. Myndröðin 4 x 4 er öllu óljósari. Serge sýnir líka myndir úr hamaperlum líkt og börnin leika sér oft að. Myndir Serge eru stærri en þær sem börnin gera oftast, hér skapa að- skildar perlurnar myndir af andlitum sem leysast upp í aðskilda ferninga þeg- ar nær kemur, líkt og rafrænu mynd- irnar sem þær eru án efa unnar eftir. Hann sýnir einnig verk úr legókubbum en áhrifamesta verk sýningarinnar er post-it veggmyndin, þar sem auðir minnismiðar mynda eins konar landslag. Í því verki birtist einna helst sú sundurslitna heimsmynd og leitin að merkingu sem listamaðurinn leitast við að birta áhorfandanum. Þessi heimsmynd kemur þó ekki ókunnuglega fyrir sjónir enda hefur hún verið til staðar um nokkurt skeið. Alistair Macintyre Frá ystu brún hins sýnilega heims nefnir Mac- intyre sýningu sína í sal félagsins Íslenskrar Grafíkur baka til í Hafnarhúsinu við Tryggva- götu. Þetta er þriðja sýning hans hér á landi en áður hefur hann sýnt í Gerðarsafni í Kópavogi 1996 og í Hafnarhúsi árið 2000. Hann er í hópi þeirra útlendu listamanna sem sækja efnivið í verk sín meðal annars til íslenskrar náttúru en hér sýnir hann verk sem eiga rætur sínar að rekja til fjalla bæði hér á landi og í Bretlandi. Verk Alistairs eru stór, óvenjuleg og áferðarfal- leg. Aðferðin við gerð þeirra er frekar flókin, hann tekur vaxmót af yfirborði náttúrunnar, nú sérstaklega af stöðum sem sýna upplýsingar sem notaðar eru við kortagert. Útkoman sýnir svo hvernig hann hefur látið járn í formi þessara vaxmóta ryðga ofan í stórar pappírsarkir fyrir tilstilli ísmassa sem bráðnar. Myndirnar eru fal- legar og stærðin gerir þær áhrifamiklar. Sér- staklega í þeim verkum þar sem tölur koma fram fær áhorfandinn tilfinningu fyrir einhvers konar listrænni fornleifafræði. Þessi verk eru að ein- hverju leyti byggð á tilviljunum, minna til dæmis á tvívíð og þrívíð náttúruþrykk Jóhanns Eyfells. Hér er aðferðin sjálf þó tiltölulega flókin og listamaðurinn stjórnar útkomunni að svo miklu leyti að slagkraftur verkanna fer að nokkru leyti forgörðum, tilviljanakennd fegurð náttúrunnar víkur fyrir skreytikenndum formum listamanns- ins. Allt um það eru verkin óvenjuleg, forvitnileg og lifandi með sínum dularfulla ryðgróðri sem einna helst minnir á mosaskófir. Tveir svartir sauðir, íbúi sýndar- veruleikans og listræn kortagerð „Either side of here and now“, grafíkverk eftir Alistair Macintyre. Breytilegt veggfóður eftir Serge Comte. MYNDLIST Nýlistasafnið Til 7. apríl. HLUTABRÉF Í SÓLARLAGINU, SÝNING HELGUÐ DEGI SIGURÐARSYNI Til 6. apríl. Nýlistasafnið er opið miðviku- daga til sunnudaga frá kl. 14–18. BLÖNDUÐ TÆKNI, SERGE COMTE Gallerí Hlemmur Til 30. mars. Opið miðvikudaga til sunnu- daga frá kl. 14–18. STEYPA, BLÖNDUÐ TÆKNI, ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON Salur félagsins Íslenskrar Grafíkur Til 6. apríl. Opinn fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. FROM THE EDGE OF THE VISIBLE WORLD, BLÖNDUÐ TÆKNI, ALISTAIR MACINTYRE Dagur Sigurðarson á rómantískum nótum. Yfirlitsmynd af innsetningu Ásmundar Ásmundssonar. Ragna Sigurðardóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.