Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.2003, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MARS 2003
TVÖ verk sem talin eru vera eft-
ir spænska listamanninn Goya
verða seld á uppboði hjá
spænska uppboðshúsinu Subast-
as Alcala í maí nk. Verkin eru
ómerkt en þeir Goya-sérfræð-
ingar sem uppboðshúsið hefur
haft samband við á Spáni eru all-
ir á einu máli um að þetta séu
verk listamannsins. „Frummat
okkar er að verkin verði seld
fyrir 3,5–5 milljónir evra,“ sagði
Richard Willermin, yfirmaður
myndlistardeildar uppboðshúss-
ins, en upphæðin nemur tæpum
300–420 milljónum króna.
Málverkin sýna annars vegar
Jósef og Maríu með Jesú og hins
vegar Tóbías og engilinn og telst
fundurinn sá merkasti í spænska
listaheiminum síðustu 20 árin.
Ekki er nema mánuður liðinn frá
því að verkin uppgötvuðust en
þau fundust fyrir algjöra til-
viljun á heimili efnaðrar fjöl-
skyldu í Madríd.
Saga þernunnar
á fjalirnar
BÓK kanadíska rithöfundarins
Margaret Atwood, The Hand-
maid’s Tale, eða Saga þernunnar
eins og hún var þýdd á íslensku,
mun á næstunni verða sett upp
sem ópera í Coliseum-leikhúsinu
i London.
Óperan er samin af Poul
Rouders en textinn er endur-
unnin af Bretanum Paul Bentley
sem byggir hann að öllu leyti á
texta Atwood og með fullu leyfi
hennar. Að sögn Daily Tele-
graph hélt Bentley sig fast við
sögupersónur, atburðarás og
samtalssenur rithöfundarins
sem hefur lýst sig ánægða með
árangurinn.
Óperan var fyrst sett upp í
Kaupmannahöfn árið 2000 eftir
að texti Bentleys hafði verið
þýddur á dönsku og naut hún
mikilla vinsælda þar en þetta er
fyrsta enska útfærslan.
Asíuvika
í New York
FJÖLDI listasafna og gallería á
Manhattan í New York taka
þessa vikuna þátt í svo kallaðri
Asíuviku. En
undanfarin ár
hefur á hverju
vori verið efnt
til sérstakrar
Asíuhátíðar þar
sem söfn og tug-
ir gallería setja
upp sérstakar
sýningar tengd-
ar álfunni. Að
þessu sinni geymir borgin sýn-
ingu á klassískum kínverskum
húsgögnum og fornum súlum
svo dæmi séu nefnd.
Þeim sem taka þátt í Asíuvik-
unni hefur fjölgað um 55 úr 49
söfnum og galleríum frá því í
fyrra þó að stríðið í Írak varpi
óneitanlega skugga á sýning-
arnar. Segir New York Times,
til að mynda að sýningarnar séu
í ár nokkuð minni en áður, en
telur Asíuvikuna engu að síður
góðan vettvang til að kynna
menningu, trúarbrögð og þá
ólíku þjóðfélagshópa sem byggja
álfuna.
Verk Goya
á uppboði
ERLENT
Reuters
Starfsmenn uppboðshússins
við myndir Goya.
Indverskur
Búdda.
Svartir sauðir þá og nú
Nýlistasafnið hefur á undanförnum
árum sinnt af natni listamönnum eins
og Megasi, Rósku og nú Degi Sigurð-
arsyni, haldið listþing og sýningar. Nú
stendur yfir listþing og sýning um Dag
Sigurðarson ljóðskáld sem lést fyrir
aldur fram. Dagur var ötull við mynd-
gerð af ýmsum toga, dúkristur, mál-
verk og teikningar prýða sýninguna og
einkennast flestar þeirra einna helst af
einlægni listamannsins en margar eru
fallegar og bera hæfileikum vitni sem
hefðu getað þroskast betur hefðu þeir
verið ræktaðir af elju. En Dagur var
auðvitað fyrst og fremst ljóðskáld, sem skrifaði
frá hjartanu og ljóð hans eru tilfinninganæm og
falleg. Í Nýlistasafninu má líka sjá nokkur ljóða
hans og bréfa auk myndbanda og tónlistar sem
gerð hefur verið við ljóðin. Dagur var uppreisn-
armaður, í stöðugri uppreisn gegn borgaraleg-
um gildum, hann uppfyllti allar klisjurnar um
misskilda, drykkfellda, hjartagóða listamanninn
en hann sjálfur var auðvitað engin klisja né líf
hans. Í dag eru menn honum líkir ekki lengur til,
listamenn eru löngu hættir að drekka sér til
óbóta, þeir vinna bara frá níu til fimm og enginn
talar um innblástur lengur. Klisjan um líf þeirra
er í mesta lagi tilefni til háðs.
Tóm steypa?
Háð er einmitt rauði þráðurinn í verkum Ás-
mundar Ásmundssonar sem nú sýnir í Gallerí
Hlemmi. Klisjan um listamanninn hefur oft verið
inntak verka hans, til dæmis sýndi hann eitt sinn
frystikistu fulla af áfengi og kallaði hjálpartæki
listamannsins.
Áhugavert er að skoða sýninguna um Dag í
samhengi við sýningu Ásmundar, það er líkt og
einlægnin og kaldhæðnin kallist á en kannski
eiga þeir tveir þó meira sameiginlegt en virðist
við fyrstu sýn. Samtíminn býður ekki upp á
möguleikann á listamannalífi eins og lífi Dags
lengur, – en er það afstaða Ásmundar sem við
tekur eða er hún andstæðan? Það má telja verk-
um Ásmundar það hiklaust til tekna að erfitt er
að gera upp við sig hvort er. Eins og Dag þá
dreymir Ásmund, eða listamanninn sem hann
leikur, um frægð og frama. Hann hefur reynt að
gera sýnilega þá oft nokkuð vonlausu baráttu
þeirra sem helst hugsa um myndlist í formi
nafna á galleríum, kúratorum og greinum í tíma-
ritum. Í einu verka sinna hefur Ásmundur til
dæmis myndgert þá athöfn að míga utan í vegg,
líkt og allt sem hann gæti nokkurn tíma afrekað
á listabrautinni væri að vitna í verk annarra.
Verk Ásmundar hafa stundum einkennst af
aulahúmor sem er afar misfyndinn, sumt er í ætt
við Jackass-húmorinn ameríska. List hans ber
einnig veru hans í Bandaríkjunum nokkuð vitni,
oft virðist um eina hugmynd að ræða sem skellt
er fram án þess að hún sé unnin eða dýpkuð
frekar, en bandarískir listamenn eiga slík vinnu-
brögð til í meira mæli en evrópskir kollegar
þeirra.
Nú sýnir Ásmundur innsetninguna Steypa í
Gallerí Hlemmi. Steypa hefur auðvitað bæði sína
bókstaflegu merkingu og svo merkinguna bull
og vitleysa, en oft er sagt um eitthvað í dag að
það sé tóm steypa. Það er alþekkt að myndlist
sem annað er misgóð og vissulega margt þar
sem betur mætti fara, klisjur á borð við þessa
breyta litlu þar um.
Ásmundur gengur hreint og beint til verks
hér sem áður og hefur látið fylla galleríið af
steypu, auk þess sýnir hann á myndbandi hvern-
ig það fór fram. Skjárinn sem sýnir myndbandið
er að auki hálfkaffærður í steypu. Þar sjást þrjár
bikiniklæddar stúlkur hella steypunni á gólf gall-
erísins. Myndbandið er fyrirsjáanlegt og lang-
dregið í hæsta máta, eftir nokkrar sekúndur hef-
ur áhorfandinn áttað sig á hvað það sýnir og
ekkert kemur á óvart. Bikiniklæðnaður stúlkn-
anna vísar hér í klámiðnaðinn að sögn Ásmund-
ar, reyndar á afar prúðmannlegan og saklausan
hátt. Líklega er hann með því að vísa til þess að
listin og klámiðnaðurinn eigi sitthvað sameig-
inlegt, þar gangi margt yfirborðskennt kaupum
og sölum, önnur gömul sannindi og klisja.
Ásmundur hefur í list sinni ítrekað reynt að
stinga á kýlum sem er þarft verk. Hann deilir
m.a. á háæruverðugleika listarinnar og gerir
ekki síst grín að listamanninum sjálfum. Líkt og
Dagur leitast hann við að vera einhverskonar
enfant terrible, rugla íhaldssama góðborgarana í
ríminu. En ef verk hans missa marks verða þau
ekkert nema enn ein sjálfhverf innsetningin,
ætluð þeim sem hlæja með án þess að spyrja
hvað búi að baki. Yfirborðslegar tilvísanir í lista-
söguna og fortíðina og ýmis fyrirbæri samtímans
líkt og klámiðnaðinn segja fátt ef þær eru ekki
rökstuddar. En svo ég víki aftur að
Degi og spurningunni um andstæður
eða sjálfstætt framhald þá er það lík-
lega það síðarnefnda sem hefur yfir-
höndina, Dagur hefði fílað verk Ás-
mundar.
Rauður snjór
Í sýningarskrá um Serge Comte er
honum lýst sem vafrandi borgara í
sýndarveruleika tölva. Það er einmitt
tækniheimur tölva og Netsins sem er
jarðvegur verka Serge sem sjá má í Ný-
listasafninu ásamt sýningunni um Dag.
Hann fjallar um tölvuna sem bútar ljós-
myndir niður í agnarsmáar einingar,
ferninga, tungumál Netsins, sundurslit-
in orð, merkingu eða merkingarleysi.
Serge sýnir einnig tvær myndraðir sem
minna á skuggamyndir en í sýningar-
skrá kemur fram að myndirnar eru
teknar á minniskubb. Texti í sýning-
arskrá fylgir öðru verkinu, Rougeneige
eða Rauður snjór. Hann birtir óljósar
myndir af af einstaklingum í nútíma-
þjóðfélagi sem einkennist af neyslu, of-
beldi og tilfinningakulda og það er ekki
laust við að listamaðurinn heillist að
einhverju leyti af þessum sundurslitna
heimi. Myndirnar sem varpað er á
vegginn sýna svo að nokkru leyti það
sem textinn fjallar um. Myndröðin 4 x 4
er öllu óljósari. Serge sýnir líka myndir
úr hamaperlum líkt og börnin leika sér
oft að. Myndir Serge eru stærri en þær
sem börnin gera oftast, hér skapa að-
skildar perlurnar myndir af andlitum
sem leysast upp í aðskilda ferninga þeg-
ar nær kemur, líkt og rafrænu mynd-
irnar sem þær eru án efa unnar eftir.
Hann sýnir einnig verk úr legókubbum
en áhrifamesta verk sýningarinnar er post-it
veggmyndin, þar sem auðir minnismiðar mynda
eins konar landslag. Í því verki birtist einna
helst sú sundurslitna heimsmynd og leitin að
merkingu sem listamaðurinn leitast við að birta
áhorfandanum. Þessi heimsmynd kemur þó ekki
ókunnuglega fyrir sjónir enda hefur hún verið til
staðar um nokkurt skeið.
Alistair Macintyre
Frá ystu brún hins sýnilega heims nefnir Mac-
intyre sýningu sína í sal félagsins Íslenskrar
Grafíkur baka til í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu. Þetta er þriðja sýning hans hér á landi en
áður hefur hann sýnt í Gerðarsafni í Kópavogi
1996 og í Hafnarhúsi árið 2000. Hann er í hópi
þeirra útlendu listamanna sem sækja efnivið í
verk sín meðal annars til íslenskrar náttúru en
hér sýnir hann verk sem eiga rætur sínar að
rekja til fjalla bæði hér á landi og í Bretlandi.
Verk Alistairs eru stór, óvenjuleg og áferðarfal-
leg. Aðferðin við gerð þeirra er frekar flókin,
hann tekur vaxmót af yfirborði náttúrunnar, nú
sérstaklega af stöðum sem sýna upplýsingar
sem notaðar eru við kortagert. Útkoman sýnir
svo hvernig hann hefur látið járn í formi þessara
vaxmóta ryðga ofan í stórar pappírsarkir fyrir
tilstilli ísmassa sem bráðnar. Myndirnar eru fal-
legar og stærðin gerir þær áhrifamiklar. Sér-
staklega í þeim verkum þar sem tölur koma fram
fær áhorfandinn tilfinningu fyrir einhvers konar
listrænni fornleifafræði. Þessi verk eru að ein-
hverju leyti byggð á tilviljunum, minna til dæmis
á tvívíð og þrívíð náttúruþrykk Jóhanns Eyfells.
Hér er aðferðin sjálf þó tiltölulega flókin og
listamaðurinn stjórnar útkomunni að svo miklu
leyti að slagkraftur verkanna fer að nokkru leyti
forgörðum, tilviljanakennd fegurð náttúrunnar
víkur fyrir skreytikenndum formum listamanns-
ins. Allt um það eru verkin óvenjuleg, forvitnileg
og lifandi með sínum dularfulla ryðgróðri sem
einna helst minnir á mosaskófir.
Tveir svartir sauðir, íbúi sýndar-
veruleikans og listræn kortagerð
„Either side of here and now“, grafíkverk eftir Alistair Macintyre. Breytilegt veggfóður eftir Serge Comte.
MYNDLIST
Nýlistasafnið
Til 7. apríl.
HLUTABRÉF Í SÓLARLAGINU, SÝNING
HELGUÐ DEGI SIGURÐARSYNI
Til 6. apríl. Nýlistasafnið er opið miðviku-
daga til sunnudaga frá kl. 14–18.
BLÖNDUÐ TÆKNI, SERGE COMTE
Gallerí Hlemmur
Til 30. mars. Opið miðvikudaga til sunnu-
daga frá kl. 14–18.
STEYPA, BLÖNDUÐ TÆKNI, ÁSMUNDUR
ÁSMUNDSSON
Salur félagsins Íslenskrar Grafíkur
Til 6. apríl. Opinn fimmtudaga til sunnudaga
frá kl. 14–18.
FROM THE EDGE OF THE VISIBLE WORLD,
BLÖNDUÐ TÆKNI, ALISTAIR MACINTYRE
Dagur Sigurðarson á rómantískum nótum.
Yfirlitsmynd af innsetningu Ásmundar Ásmundssonar.
Ragna Sigurðardóttir