Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 2003 11 En nei, stúlkan í gullbíkíníinu segistengu trúa að óreyndu. Javier leggurtil að hún þreifi sjálf og við gífurlegfagnaðarlæti áhorfenda stikar hún að borulega náunganum handan pallborðsins og skyrtunni er svipt af honum í snarhasti, hann er hvattur áfram, „vertu ekki svona hræðilega mikil tepra!“ hrópar Javier um leið og dúndr- andi diskómúsik skellur á og þagnar jafn- harðan. Og jú, hann reynist bara nokkuð stinnur, maginn á honum, „en mikið ferlega ertu loðinn!“ hrópar stúlkan. Áhorfendurnir í salnum hlæja og æpa. Hún er ekki svo mikið gefin fyrir loðna karlmenn. Ónei. Javier spyr hvort hann komist þá ekki í pottinn. Enn á hún þó eftir að spyrja þann borulega nokk- urra spurninga. Boris notar tækifærið og fer fjálglegum orðum og lostafullum höndum um bringu mannsins. Þvílík vitleysa?!? Hvernig stendur á því að sjónvarpsþátt- urinn Crónicas marcianas á Stöð 5 nær að halda vinsældum sínum ár eftir ár á Spáni? Frá 1997 til 2003, alltaf jafn vinsæll. Líklega er það stjórnandanum, Javier Sardá, að þakka. Sardá er snillingur á sínu sviði, nær að sameina ærslagang og gagnrýnin viðtöl, hann blandar saman meinfýsnum skrílslátum og sjónvarpsfundum um alvarleg mál sem leys- ast raunar oftast upp í hávaðarifrildi með hrópum og frammígripum, ef þeir ekki bein- línis enda á slagsmálum. Og meðstjórnandinn, argentískur hommi að nafni Boris, leggur sitt af mörkum til vinsælda þáttarins: Hann er fí- gúra fram í fingurgóma, gríðarleg stjarna, gengur í salinn einsog drottning við sykur- sæta lyftutónlist og æpir svo alla sína skelm- islegu stríðni skrækum rómi. Í Krónikum frá Mars talar hver í kapp við annan, aggresívar spurningar um hápólitísk umfjöllunarefni blandast hreinum trúðslátum. Gestirnir eru hver öðrum öfgafyllri, verða raunar fastagest- ir ef þeir virðast frá nógu fjarlægri plánetu. Klæðskiptingur birtist í þættinum eitt kvöldið og varð fastagestur og bregður sér nú í gervi kvenráðherra í hverjum þætti. Samsíða heim- ur, samsettur úr öfgum? Crónicas marcianas er spjall- og skemmti- þáttur af sömu gerð og svo margir aðrir. Þannig þættir finnast útum allt. Óneitanlega getur þó munurinn á útfærslum verið tals- verður: Myndavélin myndi aldrei súmma á brjóstin á gestum Gísla Marteins, viðmæl- endur hans dilla ekki tungunni og skella lúk- unni í klofið á gestgjafanum þegar minnst varir, Gísli Marteinn káfar ekki á gestunum. Krónikur frá Mars eru enda sýndar seint á kvöldin og bannaðar innan átján. Drasl, lág- kúra, smekkleysa, það vantar ekki gagnrýn- ina sem þátturinn fær. Nei, þetta er skemmt- un, segir Sardá sem annars er hættur að veita viðtöl, hefur dregið sig í hlé í sinni öfgafullu plánetu. Þátturinn lætur sér ekki nægja ærslin held- ur er skipt yfir í grafalvarleg málefni – stríð í Írak, Prestige-slysið … og Sardá tekur hik- laust afstöðu í pallborðsumræðum sínum. Raunar snýst umræðan oftast um hver hafi tekið saman við hvern í nýjasta raunveru- leikaþætti eða þá að brestur á með löngum umræðum um nektarmynd sem einhver stjarnan hefur látið taka af sér – Hóra! Hróp- ar keppinautur hennar í raunveruleikaþætti. En í næstu andrá grípur Sardá athyglina – það tekst honum alltaf þrátt fyrir allt – og lýs- ir grafalvarlegur yfir gallharðri andstöðu við stríðið í Írak. Sú í gullbíkíníinu hefur ákveðið að feimni maðurinn sem svaraði spurningum hennar eigi skilið að fara með henni í pottinn. Svo hann er rifinn úr fötunum og hent útí nudd- pott á miðju sviðinu þar sem gullbíkíníið bíður fyrir; Boris flettir sig klæðum og fylgir með; þau kljást þegar í pottinn er komið og þeir reyna án árangurs að ná af henni bíkíníinu. Þeir tæta nærbuxurnar hvor af öðrum: Myndavélin leitar stöðugt á milli fótanna á þeim. Þetta er Krónika frá Mars. Og ég næ ekki að henda reiður á henni. KRÓNÍKA FRÁ MARS H e r m a n n S t e f á n s s o n Hver er munurinn á stjórn- málaflokki og stjórnmálahreyf- ingu? SVAR: Stjórnmálaflokkar eru ólíkir öðrum samtökum að því leyti að þeir bjóða fram í almennum kosningum. Þeir hafa líka oftast nær það yfirlýsta markmið að vilja stjórna ríkisvaldinu. Í þessari merkingu eru hug- tökin stjórnmálaflokkur og stjórnmála- hreyfing notuð á víxl yfir það sama. Þegar talað er um stjórnmálahreyfingar er þó yf- irleitt átt við annars konar samtök heldur en eiginlega stjórnmálaflokka. Það geta verið félög sem berjast fyrir ákveðum mál- stað eða hin ólíkustu hagsmunasamtök. Þau bjóða ekki fram í kosningum en reyna að hafa áhrif á almenningsálitið eða stjórn rík- isvaldsins með öðrum hætti. Hagsmunagæsla er óaðskiljanlegur hluti stjórnmála vegna þess að þegar teknar eru ákvarðanir í stjórnmálum, þá snerta þær yfirleitt hópa og hagmuni í samfélaginu með ólíkum hætti. Ólíkir hópar reyna því að hafa áhrif á ákvarðanir og koma sjón- armiðum sínum á framfæri, til dæmis við ríkisstjórnir, þjóðþing eða stjórnmálaflokk- ana sjálfa. Sum stjórnmálasamtök reyna á hinn bóginn fyrst og fremst að hafa áhrif á almenningsálitið. Í mörgum vestrænum löndum er rík hefð fyrir því að ríkisvaldið leiti til hagsmunasamtaka þegar teknar eru ákvarðanir eða stefna mótuð, og í mörgum tilvikum eru hagsmunasamtök formlegur hluti af ákvarðanatökuferlinu. Dæmi um hagsmunasamtök sem líta má á sem stjórnmálahreyfingar eru launþega- samtök og samtök neytenda. Evrópusam- tökin og félagið Heimssýn eru einnig dæmi um stjórnmálahreyfingar á Íslandi, en þau beita sér í Evrópumálum. Þegar talað er um stjórnmálahreyfingar er líka stundum átt við enn víðtækari baráttu sem ekki lýtur neinu formlegu skipulagi og nær jafnvel til margra landa. Dæmi um slíkar hreyfingar eru friðarhreyfingin og kvenréttindahreyf- ingin. Munurinn á stjórnmálaflokki og hags- munasamtökum er ekki alltaf skýr. Í mörg- um löndum þróuðust verkalýðshreyfingar yfir í stjórnmálaflokka og það sama hefur gerst þar sem umhverfisverndarsamtök hafa þróast yfir í græna flokka. Hagmuna- samtök geta líka ákveðið að bjóða fram í kosningum. Þá er tilgangurinn ekki endi- lega sá að komast í ríkisstjórn heldur frek- ar að nota framboðið til þess að vekja at- hygli á ákveðnum baráttumálum. Þetta geta verið hreyfingar á borð við samtök ellilíf- eyrisþega, félög bifreiðaeigenda eða trúar- hópar. Dæmi eru um að slíkir flokkar hafi komist í ríkisstjórnir landa sinna. Hrafnkell Tjörvi Stefánsson stjórnmálafræðingur. Hver er munurinn á vefsíðuheit- unum .asp , .htm , .html, .php o.s.frv.? SVAR: Þegar vafrað er um Netið sendir vafrinn fyrirspurn til netþjóns sem túlkar fyrirspurnina, vinnur úr henni og sendir niðurstöðu til baka til vafrans, venjulega á HTML-formi. HTML (Hyper Text Markup Language) er samsafn skipana um það hvernig vafrinn eigi að birta heimasíðuna, til dæmis hvar, hvernig og hvaða texti og myndir skuli birtast á skjá viðtakandans. Endingar eins og asp, html, php, jsp, txt og xml, hjálpa netþjóninum að skilja hvern- ig hann eigi að meðhöndla fyrirspurnina. Einföldustu fyrirspurninar enda til dæmis á html eða htm (endingar á skjölum sem inni- halda HTML-kóða), jpg, gif, png (endingar á myndum) og txt (endingar á skjölum sem innihalda texta). Þá finnur netþjónninn ein- faldlega það skjal sem spurt er um og send- ir innihaldið til baka til vafrans. Hann mót- tekur skjalið og birtir á skjá notandans. Þegar um einfalda mynd eða texta er að ræða birtir vafrinn það einfaldlega efst til vinstri, en ef um er að ræða HTML-skjal, túlkar vafrinn skjalið og birtir innihald þess í samræmi við skipanir html-kóðans. Sumir vefir eru afar stórir og það væri mjög óhagstætt að geyma eitt HTML-skjal fyrir hverja mismunandi síðu vefjarins. Ef vefurinn mbl.is er tekinn sem dæmi sést að allar fréttir líta eins út: Efst eru tengingar í mismunandi svæði vefjarins, vinstra megin eru meðal annars tengingar innan frétta- hluta vefjarins og hægra megin er pláss fyrir auglýsingar. Fréttin sjálf birtist alltaf í miðjunni, með fyrirsögn og texta með mynd efst hægra megin, ef mynd fylgir fréttinni. Nokkur þúsund fréttir eru á Morgunblaðsvefnum og ef allar hefðu sitt eigið HTML-skjal væri erfitt að hafa stjórn á innihaldinu, og ef ákveðið væri að breyta umbrotinu (til dæmis merki vefjarins) þyrfti að breyta því í öllum skjölunum. Þegar vefsíðuheitið er til dæmis asp eða php þýðir það að vefirnir eru forritaðir á einn eða annan hátt. Fréttahluti Morg- unblaðsvefjarins er til dæmis forritaður þannig að sjálfar fréttirnar eru í gagna- grunni og þegar beðið er um ákveðna frétt (til dæmis fréttina um dauða kindarinnar Dollýjar sem er nr. 1017725 í gagnagrunni Morgunblaðsvefjarins) sér forritið um að sækja hana í grunninn og birta hana á ákveðnum stað í fyrirfram ákveðnu um- broti. Forritið getur í raun unnið með fyr- irspurnina á óteljandi vegu, en algengast er að það sé notað til að sækja í gagnagunn texta og tilvísanir í myndir, sem síðan er sett á rétta staði í HTML-kóðann. Vafrinn túlkar síðan HTML-skjalið og birtir inni- hald þess. Daði Ingólfsson tölvunarfræðingur. STJÓRNMÁLA- FLOKKUR OG STJÓRNMÁLA- HREYFING? Á meðal spurninga sem hefur verið svarað á Vís- indavefnum að undanförnu má nefna: Hvers vegna fær fólk hrukkur, hver er munurinn á sprengigosi og seigfljótandi gosi og af hverju eru álver byggð svona löng og mjó? VÍSINDI Morgunblaðið/Kristinn Á Alþingi. Ég stansa í öngþveitinu sem ríkir í bænum og hlusta. Langt í fjarska kveður við sár barnsgrátur. Barnið kallar á frið meðan sprengjurnar óma í kringum það, en hann finnst ekki, hjartsláttur barnsins, sem kallar á frið langt í fjarska. Ég minnist þess að fyrstu dagana, klukkustundirnar, mínúturnar, var hvert einasta sjónvarp kveikt allir fylgdust með fréttamenn áttu erfitt með að hemja sig ekkert gat haldið fólki í skefjum orð, póstar, símtöl, gengu fólks á milli allir voru þöglir á meðan sprengjurnar lentu langt í fjarska. En er ég viss að einhvern tíma muni annar sigra fólk spyr, hversu lengi? dagar? vikur? mánuðir? kannski ár? Þeir koma fram við fólk líkt og keilur sem gefa stig ef þær falla Æ, lífið er svo flókið En almennt er fólk fegið að vera skilið út undan og standa í horni og glápa. Því unga stúlkan sem kallaði á frið er fallin líkt og keila sem gefur stig á meðan allir eru þöglir og fylgjast með. SNÆRÓS SINDRADÓTTIR Höfundur er 11 ára nemandi í Grandaskóla í Reykjavík. FRIÐUR

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.