Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Síða 14
TEIKNINGAR eru sjaldséðar í sýningarsölum íslenskrar myndlistar og teikningin hefur aldrei verið ofarlega á baugi hjá íslenskum myndlistar- mönnum. Þeir hafa í gegnum tíðina leitað í efn- ismeiri miðla, olíumálverkið hefur til dæmis jafnan haft yfirhöndina yfir vatnslitunum. Við eigum auð- vitað okkar teiknara engu að síður þótt flestir hafi þeir málað líka. Viðfangsefni teikninga þeirra var oftast íslensku þjóðsögurnar eða mannamyndir, eins og hjá Ásgrími, Muggi, Kjarval, Hring Jó- hannessyni og fleirum. Ætli Flóki sé ekki sá ís- lenski listamaður sem hvað helst helgaði sig teikn- ingunni í verkum sínum. Þær Ólöf og Hlíf hafa báðar sýnt verk af ýmsum toga hingað til. Ólöf hefur m.a. sýnt olíumálverk og þrívíð verk og Hlíf vatnslitamyndir og innsetn- ingar. Hér sýna þær báðar teikningar, flestar unn- ar sitt í hvoru lagi en tvær myndir gerðu þær sam- eiginlega. Hlíf sýnir að auki ljósmyndir og hversdagslega hluti. Umfjöllunarefni þeirra er í stórum dráttum samspil manngerðra hluta og náttúru, verkin sýna „líf þar sem eitt er öðru háð“ eins og segir í sýningarskrá. Eitt best heppnaða dæmið um þetta er ljósmyndin af innkaupakörfu þakinni þangdræsum í reiðileysi í fjöru. Í þessu verki kristallast þema sýningarinnar og hér birtist heimur hlutanna í samruna við náttúruna á ein- hvern máta sem stendur fullkomlega utan við okk- ur mannfólkið. Í teikningum Ólafar birtist alltum- vefjandi heimur sem er bæði ytri og innri og sem hefur sinn gang hvað sem á dynur en teikningar hennar eru lifandi, kraftmikil og sjálfstæð verk. Hjá Hlíf eru það frekar samverkandi áhrif ljós- mynda og teikninga sem skapa heildaráhrifin, teikningar hennar eru ekki eins lífrænar, það eru ljósmyndirnar sem eru sterkari þátturinn. Verk þeirra Ólafar og Hlífar vinna mjög vel saman og skapa fullkomlega eina heild, viðfangs- efnið er opið og býður upp á marga túlkunarmögu- leika án þess að þrengja sér um of upp á áhorfand- ann. Lífræn veröld hjá Sævari Hinn lífræni heimur, ytri eða innri, er líka við- fangsefni Bjargar Örvar sem nú sýnir verk unnin með olíu og krít í Galleríi Sævars Karls. Málverkin eru unnin í nokkrum þunnum lögum þannig að í gegnum hálfgagnsæ mjúk form sjást önnur undir, sum minna á himnur, innyfli eða heilabörk á með- an önnur gætu verið af fjarlægum vetrarbrautum eða stjörnuþokum úti í geimnum. Í bók sinni Les mots et les choses sem út kom árið 1970 skrifar Michel Foucault um heimsmynd sextándu aldar hvað varðar hugmyndir um míkró- kosmos og makrókosmos, örheiminn og hinn stóra heim. Þær hugmyndir voru ekki nýjar á þeim tíma heldur voru endurvaktar með endurreisninni og byggðust á yfirborðslegum líkindatengslum allra hluta. Sem dæmi má nefna að mælt var með val- hnetum við höfuðverk vegna þess hve útlit hnet- unnar í skurn sinni líktist mannsheilanum í haus- kúpunni. Foucault bendir á að þessi hugsun sé ekki frjó, hún leiði ekkert af sér nema stöðnun vegna þess að það eina sem er við hana að bæta eru fleiri dæmi um líkindi milli hins smáa og hins stóra. Í þessari heimsmynd eiga allir hlutir sér sinn spegil. Þetta er ennfremur lokuð heimsmynd, ólíkt heimsmynd okkar í dag sem hefur ekki skýr endamörk. Engu að síður kom þessi mynd upp í huga mér við skoðun mynda Bjargar, kannski er hún enn til staðar í hugum okkar, á einhvern óljós- an hátt tengjum við okkar smáa heim hinum stóra alheimi, lífrænar himnur minna einnig á fjarlægar stjörnuþokur. Eins og Björg segir í sýningarskrá rennum við saman við náttúruna á áreynslulausan hátt. Myndirnar á sýningunni eru missterkar en þess eðlis að þær bjóða upp á frekari úrvinnslu, þær eru frjór jarðvegur og sumar þeirra heilsteyptar nú þegar. Þær krefjast sterkari samruna listakon- unnar við viðfangsefni sitt, samruna þar sem skreytikennd form og formhugsun myndu víkja fyrir lifandi og sjálfstæðri lífrænni heild. Hér gæti hugsunin um að stökkva án fallhlífar eða stinga sér í djúpu laugina komið sér vel, það þarf kjark og þor til að koma þessum verkum yfir næsta þrösk- uld en það er greinilegt að Björg hefur í sér það sem til þarf. Evrópskar sveitakonur Guðrún Elín Ólafsdóttir, betur þekkt sem lista- konan Gunnella, sýnir nú olíumálverk í Galleríi Fold. Myndir Gunnellu eru kunnuglegar, mynd- efnið minnir til dæmis mjög á myndir Karólínu Ei- ríksdóttur. Í sýningarskrá segir Gunnella íslensk- ar sveitakonar birtast á striganum hjá sér en í raun er fátt við þessar myndir sem tengir þær ís- lenskri sveit, það var helst í mynd númer sjö, Tek- ið á móti afmælisgestum, að mér fannst votta fyrir íslenskri eða skandínavískri birtu. Málverkin eru flest eru í skærum litum og sýna sverar sveitakon- ur við ýmsa sýslu. Þær virðast staddar einhvers staðar í Evrópu, Englandi eða Mið-Evrópu. Hvaða veruleika verið er að lýsa þarna er mér alls ekki ljóst og tenging myndefnis við íslenskan veruleika eða íslenska málaralist er lítil. Myndirnar eru mál- aðar í bernskum stíl og oft á tíðum eru andlit og líkamsburður klunnaleg. Gunnella er þó alls ekki næfur málari, enda lærð í Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands. Það má segja um verk hennar að þau séu litrík og skemmtileg en þó eru þau full stirðlega máluð. Þau eru svo skrautleg að óhemju breiðir og íburðarmiklir, gylltir rammar gera þeim lítið nema ógagn. Gunnella málar litríkar myndir sér og öðrum til ánægju, myndir hennar eru án efa vinsælar til gjafa eða einkakaupa. Sem slíkar eru þær góðar og gildar þó spyrja megi sig að verðlagningu upp á hálfa miljón fyrir myndverk sem hefur fyrst og fremst skreytigildi. Gunnella gefur sig ekki út fyr- ir velta fyrir sér þáttum eins og stöðu málverksins í dag eða möguleikum málaralistarinnar og því ástæðulaust að fjalla um myndirnar í slíku sam- hengi. Lífrænn samruni á sýningu Ólafar og Hlífar í Hafnarborg. LÍFRÆN HRINGRÁS MYNDLIST Hafnarborg Til 14. apríl. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðju- daga frá 11–17. MEÐ LÍFSMARKI, BLÖNDUÐ TÆKNI, ÓLÖF ODDGEIRS- DÓTTIR OG HLÍF ÁSGRÍMSDÓTTIR Gallerí Sævars Karls Til 30 apríl. Sýningin er opin á verslunartíma. OLÍUMÁLVERK, BJÖRG ÖRVAR Gunnella: Tekið á móti afmælisgestum. Björg Örvar, Roðinn. Gallerí Fold Til 16. apríl. Opið virka daga frá kl. 10–18, laugardaga til kl. 17 og sunnudaga frá kl. 14–17. OLÍUMÁLVERK, GUNNELLA Ragna Sigurðardóttir 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 2003 BROS Mónu Lísu á hinu þekkta verki ítalska endurreisnarlista- mannsins Leonardos da Vinci hefur jafnan verið sérfræðingum ráðgáta og upp komið skýringar á borð við þá að fyrirsætan hafi verið með skyrbjúg. Nýjasta skýring sérfræðinga á brosinu dularfulla er hins vegar sú að Móna Lísa hafi verið ólétt. Mart- in Kemp, einn helstu sérfræð- inga í verkum Leonardos, heldur því fram að sterk tengsl séu milli Mónu Lísu-myndarinnar og líf- fræðilegrar teikningar eftir Leonardo sem nú er geymd í konunglega breska safninu í Windsor, en Kemp telur hægt að líta á teikninguna sem eins konar röntgenmynd af Mónu Lísu. „Ef maður gefur sér að Leonardo hafi í raun verið að skoða líkama hennar að innan, þá áttar maður sig á að þetta er það sem hann sá. Hann telur sig vera að nálgast ráðgátuna um lífið, eðli fæðing- arinnar, þroskann og dauðann,“ sagði Kemp. En hann hefur m.a. bent á fjölda teikninga sem lista- maðurinn gerði af fóstrum í móð- urkviði máli sínu til staðfest- ingar. Fleiri sérfræðingar hafa tekið í sama streng og vilja meina að í þeirri áralöngu vinnu sem Leonardo eyddi í Mónu Lísu hafi hann í raun verið að takast á við leyndardóma lífsins. Níunda sinfónía Beethovens á uppboði SOTHEBY’S uppboðshúsið í London mun á næstunni bjóða upp á nótnahandrit af níundu sinfóníu Beethovens. Nótnabókin sem er í þremur heftum og tæpar 500 síður að lengd, geymir m.a. mjög heillegt handrit af sinfón- íunni. Beethoven sjálfur hefur párað ýmsar athugasemdir á nóturnar, en talið er að það kunni að hafa verið notað við frumflutning verksins 1824 og að þetta sé handritið sem nótnabók- in, er gefin var út 1826, byggist á. „Þetta er líklega merkasta handrit Beethovens sem komið hefur í sölu í langan tíma,“ sagði Robert S. Winter sérfræðingur sem hefur sérhæft sig í tónskáld- inu. „Það er erfitt að ofmeta mik- ilvægi þess.“ Talið er að handritið muni selj- ast fyrir um 230–310 milljónir króna. „Art Deco“ í V&A VICTORIA & Albert-safnið í London hýsir þessa dagana sýn- ingu á Art Deco-munum, en lista- stefnan nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. En strauml- ínulagaður stíllinn sem ein- kenndi stefnuna var vinsæll á ár- unum 1910–1939. Um 300 munir eru á sýningunni sem þykir veru- lega yfirgripsmikil, en meðal þess sem þar er að finna er and- dyri Strand-hótelsins í London, sem þótti á sínum tíma lýsandi fyrir Art Deco-stefnuna eins og hún naut sín hvað best. ERLENT Móna Lísa ólétt? Móna Lísa eftir Leonardo da Vinci.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.