Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.2003, Page 15
JÓHANN Jóhannsson flytur tónlist
sína sem hann samdi við leikrit
Hávars Sigurjónssonar, Englabörn, í
Borgarleikhúsinu í dag kl. 15.15 og
eru þeir í 15:15 tónleikaröð Caput-
hópsins.
Upprunalega var tónlistin gefin út í
takmörkuðu upplagi af Hafnarfjarð-
arleikhúsinu Hermóði og Háðvöru
en var svo gefin út aftur á heimsvísu
af breska fyrirtækinu Touch. Með
Jóhanni kemur fram Eþos-
strengjakvartettinn og Matthías M.D. Hemstock. Jóhann er nú einn meðlima í orgel-
kvartettinum Apparat ásamt því að vera mikilvirkur í starfsemi Tilraunaeldhússins.
Englabörn
Jóhann Jóhannsson
Laugardagur
Gerðarsafn kl. 15 Yfirlitssýn-
ing á verkum
Gerðar Helga-
dóttur sem hefði
orðið 75 ára í
gær, 11. apríl. Á
sýningunni eru
um 150 verk.
Reykjavík-
urAkademían,
Hringbraut 121 kl. 16
Nemendur myndlistardeildar á
2. og 3. ári LHÍ opna sýn-
inguna Fórn eða fífldirfska.
Opið kl. 13-17 til 27. apríl.
Listasafn Borgarness kl. 14
Hildur Karlsdóttir og Guðrún
Hjörleifsdóttir opna sýningu á
verkum sínum. Nýlegar myndir
og skúlptúra unna í leir og olíu-
málverk.
Sýningin stendur til 27. apríl.
Opið kl. 13–18 virka daga og
til 20 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum.
Handverksgalleríið, Laug-
arvatni kl. 13 Þuríður Sigurð-
ardóttir opnar málverkasýn-
inguna Himinn og jörð. Þuríður
útskrifaðist með BA-gráðu frá
Listaháskóla Íslands vorið
2001.
Sýningunni lýkur 27. apríl.
Opið alla daga kl. 13–18.
Eldstó Café, Austurvegi 4,
Selfossi Gunnar Geir er með
myndlistarsýningu sem standa
mun út aprílmánuð. Opið virka
daga kl. 12-18 og til kl. 17 á
laugardögum. Gunnar Geir
hefur haldið nokkrar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýn-
ingum.
Borgarleikhúsið kl. 15.15
Jóhann Jóhannsson flytur tónlist
af plötunni Englabörn.
Langholtskirkja kl. 16
Karlakórinn Stefnir ásamt Borg-
arkvartettinum
flytja þekkt ís-
lensk og erlend
lög af léttara
taginu. Ein-
söngvarar úr
röðum kór-
félaga, þ. á m.
Þorvaldur Halldórsson.
Iðnó kl. 16 Tónlistarmenn frá
Færeyjum leika Spelmanns-
tónlist. Þau eru Kristian Blac pí-
anóleikari, Sharon Weiss
blokkflautuleikari og Angelika
Nielsen fiðluleikari.
Háteigskirkja kl. 17 Vor-
tónleikar Senjóríta kvennakórs
Reykjavíkur. Stjórnandi Sigrún
Þorgeirsdóttir. Undirleikarar
eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir
píanó og Hjörleifur Valsson
fiðlu.
Norræna húsið kl. 20 Eld-
gömul kvæði og nýsamin stef
með dansi. Flytjendur eru
Agnes Buen Garnås, Gísli
Helgason, Halvor Håkanes,
Aiva Insulander, Geirr Lystrup,
Marianne Maans, Cathrine
Smith og Eli Storbekken.
Sunnudagur
Salurinn kl. 16 Prokofieff og
Poulenc í flutningi KaSa-
hópsins.
Salurinn kl. 20 Kammerkór-
inn Vox aca-
demica, Rússí-
banarnir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir
sópran, Sigrún
Eðvaldsdóttur
fiðluleikari flytja
m.a. nýtt verk
eftir Hróðmar
Inga Sigurbjörnsson, „Hjört-
urinn“. Auk þess blandaða tón-
list fyrir kórinn a capella, söng-
konuna, hljómsveitina og
einleikarann, þar á meðal
klezmer-tónlist, íslensk þjóðlög
og napólískir söngvar.
Litla Kaffistofan, Sand-
skeiði Svandís Egilsdóttir sýnir
málverk sem hún hefur unnið á
þessu og sl. ári. Sýningin stend-
ur til 27. apríl.
Norræna húsið kl. 14
Danska barna-
myndin Ottó
nashyrningur
(1999) er byggð
á skáldsögu Ole Lund Kirkega-
ard. Ottó nashyrningur er stór
gulur nashyrningur sem birtist
óvænt í íbúð Toppers á þriðju
hæð. Aðgangur er ókeypis.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10
kl. 15 Rússneska kvikmyndin
Níu dagar af einu ári. Myndin
var gerð í Moskvu 1962, leik-
stjóri Mikhaíl Romm (1901–
1971), einn fremsti og kunnasti
kvikmyndagerðarmaður Sov-
étríkjanna um miðja síðustu
öld. Fjallað er um þá miklu sið-
ferðilegu ábyrgð sem vís-
indamenn bera á tímum kjarn-
orku. Myndin er talsett á ensku.
Aðgangur er ókeypis.
Mánudagur
Norræna húsið kl. 12 Há-
degistónleikar Norska kórsins
Ra Sanglag. Kórinn er skip-
aður 46 blönduðum söng-
röddum undir stjórn Ingu
Kjæraas. Ókeypis aðgangur.
Norræna húsið kl. 18 Pólski
harmonikkuleikarinn Krzysztof
Olczak flytur verk eftir J.S.
Bach, C.P. Atteignant, L.Milán,
L. de Narváez, V. Trojan, A.
Nordheim, L. Lake og tvö verk
eftir sjálfan sig.
Þriðjudagur
Íslenska óperan kl. 12.15
Ildikó Varga mezzósópran og
Antonía Hevesi píanó flytja
ungversk þjóðlög í útsetningum
nútímatónskálda.
Salurinn kl. 20 Tríó Artis:
Gunnhildur Ein-
arsdóttir harpa,
Kristjana Helga-
dóttir flauta og
Jónína Hilm-
arsdóttir víóla
flytja verk eftir Jol-
ivet, Takemitsu, Vieuxtemps og
Debussy. Þær flytja einnig ein-
leiksverk.
Grafarvogskirkja kl.
20.30 Karlakór Hreppa-
manna og Karlakórinn Fóst-
bræður.
Listasafn Íslands kl.
12.10–12.40 Harpa Þórs-
dóttir listfræðingur verður með
leiðsög um sýningar Georgs
Guðna, Ásgíms Jónssonar og
Steinu Vasulka.
Miðvikudagur
Salurinn kl. 20 Hanna Dóra
Sturludóttir sópr-
an, Finnur
Bjarnason tenór
og Nína Margrét
Grímsdóttir pí-
anó flytja öll
sönglög Páls Ís-
ólfssonar. Tilefnið
er 100 ára fæðingarafmæli
tónskáldsins. Afhjúpuð verður
brjóstmynd af Páli.
Seltjarnarneskirkja kl.
19.30 Tónleikar norsku skóla-
hljómsveitarinnar Oslo Youth
Representation Band, skipað
58 hljóðfæraleikurum.
Tilkynningar sem birt-
ast eiga á þessari síðu
þurfa að berast í síðasta
lagi kl. 11 árdegis á
fimmtudegi. Sjá einnig
mbl.is/staður og stund.
Gerður
Helgadóttir
Ildikó Varga
Hróðmar Ingi
Sigurbjörnsson
Páll Ísólfsson
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þau flytja gleðiverk eftir Prokofieff og Poulenc í Salnum á morgun.
SJÖTTU og jafnframt síð-
ustu KaSa-tónleikar starfs-
ársins í Salnum verða á
morgun, sunnudag, kl. 16.
Flutt verða tvö gleðiverk:
Sónata fyrir fiðlu og píanó
ópus 94 í
D-dúr eftir
Prokofieff
og Raps-
odie Nègre
eftir
Poulenc. Um tónleikaspjall-
ið sér Þorkell Sigurbjörns-
son. Flytjendur að þessu
sinni eru þau Miklós
Dalmay, Nína Margrét
Grímsdóttir, Áshildur Har-
aldsdóttir, Sigrún Eð-
valdsdóttir, Sif Tulinius,
Sigurður Bjarki Gunn-
arsson og Helga Þór-
arinsdóttir. Sérstakur
gestaflytjandi KaSa-
hópsins er Einar Jóhann-
esson klarinettuleikari sem
leikur í verki Poulenc.
– Hvað getur þú sagt
okkur um verkin, Einar?
„Verk Poulenc er hlaðið
miklum frumkrafti, mikilli
gleði og glensi, enda var
hann aðeins 18 ára þegar
hann samdi Rapsodie
Négre. Þegar það var fyrst
flutt vakti það mikla
hneykslan og einn helsti
kennari hans í háskólanum
í París spurði hvort hann
væri að hæðast að sér: allar
þessar samstíga fimmundir
og hvort þriðji kaflinn,
Honoloulou, væri klám-
brandari!
Verk Prokofieff er ein
glæsilegasta sónata síðustu
aldar, flutt bæði af flautu-
og fiðluleikurum, í þetta
sinn fyrir fiðluna og eru
það Sigrún Eðvaldsdóttir
og Miklós Dalmay sem
flytja.“
– Er ekki mikill munur
á verkunum?
„Það sem helst sameinar
þessi tónskáld er að þeir
eru líklega mestu laglínu-
höfundar síðustu aldar.
Verk Prokofieffs er marg-
slungnara enda ekki um
æskuverk að ræða. Poulenc
var í því að storka og ögra á
þessum tíma, t.d. er Hon-
oloulou kaflinn, sem saminn
er við ljóð Makoko
Kangourou, hugsanlega
eitthvert grín milli hans og
eins helsta átrúnaðar-
goðsins sem var tónskáldið
Eric Satie. Þeir eru í upp-
reisn gegn síðrómantíkinni
og hæðast svolítið að
henni.“
– Kemur mannsröddin
við sögu?
„Já, ljóðið er samið á ein-
hvers konar afrísku og þeg-
ar verkið var fyrst flutt á
sínum tíma, um 1918, fékk
Poulenc söngvara til að
syngja það, en hann gafst
upp og gekk út í miðjum
klíðum og Poulenc þurfti að
syngja sjálfur! Hver syngur
þennan kafla annað kvöld
er leyndarmál og verður
spennandi að vita hvað ger-
ist.“
– Er gaman að flytja
verk Poulenc?
„Já, hann er eiginlega
eitt af mínum uppáhalds-
tónskáldum. Það er ótrú-
lega gefandi að flytja verk
hans, alltaf mikill gáski en
þó svo mikill sársauki ná-
lægur. Hann sameinar í tón-
listinni klaustrin og klúbb-
ana, trúna eða götuna, hann
fylgdi aldrei neinum hug-
myndakerfum, skrifaði allt-
af frá hjartanu, til lífsins.“
Samstíga
fimmundir
frá hjartanu
STIKLA
KaSa-
tónleikar
í Salnum
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. APRÍL 2003 15
Næsta v ika
Myndlist
Galleri@hlemmur.is:
Thomas Broomé. Til 27.4.
Gallerí Fold, Rauð-
arárstíg: Gunnella. Til
16.4.
Gallerí Skuggi: Kristín
Pálmadóttir og Ragna Her-
mannsdóttir. Til 27.4.
Gallerí Sævars Karls:
Björg Örvar. Til 1.5.
Gerðarsafn: Gerður
Helgadóttir – 75 ára – Yf-
irlitssýning. Til 17.6.
Gerðuberg: „Þetta vil ég
sjá“. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir velur verkin. Til 4.5.
Hafnarborg: Úr vinnustofu
Louisu Matthíasdóttur. Ólöf
Oddgeirsdóttir og Hlíf Ás-
grímsdóttir. Til 14.4.
Hallgrímskirkja: Listvefn-
aður Þorbjargar Þórðardótt-
ur.Til 26.5.
i8, Klapparstíg 33: Bernd
Koberling. Undir stiganum:
Stella Sigurgeirsdóttir. Til
26.4.
Listasafn Akureyrar: Al-
þýðulistir og frásagnarhefðir
Indlands. Til 4.5.
Listasafn ASÍ: Þorgerður
Sigurðardóttir og G.Erla.
Arinstofa: Til 21.4.
Listasafn Borgarness:
Hylur, (Hildur Karlsdóttir) og
Guggú (Guðrún Hjörleifs-
dóttir). Til 29.4.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Yfirlits-
sýning á verkum Georgs
Guðna. Videoinnsetning
Steinu Vasulka. Ásgrímur
Jónsson. Til 11.5.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Sigurbjörn Jónsson.
Til 24.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Eygó
Harðardóttir – Kúlan. Til
11.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Patrick Huse.
Úr eigu safnsins: Sovésk
veggspjöld. Til 27.4.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Helgi Þor-
gils Friðjónsson. Ilmur Stef-
ánsdóttir. Til 11.5.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Skúlptúrar úr
silfri – Serling Stuff. Til 4.5.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Þorbjörg Hösk-
uldsdóttir (Tobba). Til 16.4.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur: Fjórir íslenskir sam-
tímaljósmyndarar. Til 4.5.
Mokkakaffi: Gylfi Gísla-
son. Til 15.4.
Norræna húsið: Hraun –
Ís – Skógur.Til 4.5. Viðarlist
frá Dalsåsen í Noregi. Til
27.4.
Þjóðarbókhlaða: Ísland
og Íslendingar í skrifum er-
lendra manna fyrr á öldum.
Til 1.5. Guðrún Vera Hjart-
ardóttir. Til 14.5.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir.
Skáld mánaðarins:
Vilborg Dagbjartsdóttir. Til
8.8.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Stóra svið: Allir á svið,
lau., sun.
Litla svið: Rakstur, sun.
Karíus og Baktus, sun.
Smíðaverkstæðið: Veisl-
an, lau., sun.
Borgarleikhúsið
Stóra svið: Puntila og
Matti, sun. Sól & Máni, lau.,
fös.
Nýja svið: Sumarævintýri,
sun.
„Halldóra Geir-
harðsdóttir átti stjörnu-
leik bæði í hlutverki
sínu sem hin smáða
drottning Hermione og
sem gömlum hirð-
ingjakona.“ Mbl. SAB.
Kvetch, sun.
Þriðja hæðin: Píkusögur,
sun.
Litla svið: Stígvélaði kött-
urinn, lau. Rómeó og Júlía,
lau.
Iðnó: Hin smyrjandi jómfrú,
mið.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Gaggalagú, lau., sun.
Loftkastalinn: Benedikt
búálfur, sun.
Nasa v. Austurvöll: Sello-
fon, lau., mið., fim.
Tjarnarbíó, Hugleikur:
Undir hamrinum, mið.
Bæjarleikhúsið, Mos-
fellsbæ: Hobbitinn, sun.,
mið.
ELDGÖMUL kvæði og nýsamin stef með dansi er
m.a. það sem boðið er uppá úr norræna farteskinu í
Norræna húsinu í dag, laugardag, kl. 20. Þau
Agnes Buen Garnås, Gísli Helgason, Halvor
Håkanes, Aiva Insulander, Geirr Lystrup, Marianne
Maans, Cathrine Smith og Eli Storbekken hafa sótt
samnorrænar vísur í hið norræna farteski og fléttað
þær saman í einn vef. Í dagskránni er að finna bæði
alvarlegt efni og gamanefni. Þar verða fluttar gátu-
vísur úr Eddukvæðum, bergnámsvísur frá síðari hluta
miðalda og skemmtivísur eða yngstu ballöðurnar. Dansarinn hefur heillast af
þessum textum og lögum og skapað sína eigin nútímalegu tjáningu. Tónleik-
arnir eru styrktir af Norræna menningarsjóðnum.
Eldgömul kvæði og
nýsamin stef með dansi
Gísli Helgason