Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2003, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2003, Blaðsíða 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. MAÍ 2003 Þ AÐ skal játað að fyrir fimmtán ár- um hvarflaði ekki að mér að lesa Jóhann Hjálmarsson, ekki ótil- neyddur. Þetta eru hugsanlega ýkjur, en samt; Jóhann Hjálm- arsson var ekki hátt skrifaður hjá öllum á níunda áratugnum. Hann var borgaralegur höfundur, rit- dómari Morgunblaðsins, hægrimaður. Ég hef heyrt því haldið fram að kynslóðin fædd í kring- um 1970 sé að mestu frábitin pólitík; „ef við yrð- um sálgreind kæmi í ljós illa rispað dægurlag frá árinu 1984“ skrifar Eiríkur Guðmundsson. Það sama á þó ekki við okkur sem fæðumst um 1960 og komumst til vitundar meðan ennþá virt- ist skýr munur á hægri og vinstri. Við vorum nógu gömul til að anda að okkur andrúmslofti kalda stríðsins og fara í Keflavíkurgöngu með þjóðfrægum og hvínandi rauðum baráttuhund- um; háleitum gáfumanni eins og Árna Berg- mann, flugmælskum Svavari Gestssyni – og Ólafur Ragnar Grímsson hélt kannski ræðu við aðalhlið Keflavíkurflugvallar, hvarf síðan upp í bíl og birtist göngumóður meðal kröfufólks í ná- munda við Skaftahlíðina. En við vorum hins- vegar ekki nógu gömul til að hrópa slagorðin Ís- land úr nató – herinn burt, því það hafði eitthvað gerst, það var búið að grafa undan orðunum; við drógum að okkur andrúm kalda stríðsins en í höfðum okkar snerust kaldhæðnin og efinn. Já, önduðum að okkur andrúmi heiftarinnar og tók- um í arf, ef ekki fordæmingu þá sjálfkrafa höfn- un á höfundi eins og Jóhanni Hjálmarssyni. Vinstrimenn höfðu fyrir löngu unnið kalda stríð- ið í bókmenntum og skoðanir okkar voru litaðar af túlkun siguvegarans; Mál og menning reis himinhátt yfir AB. Davíð Stefánsson, Guðmund- ur G. Hagalín, Guðmundur Daníelsson, þetta voru borgaralegir höfundar, örugglega hægri- menn og það var sparkað í þá, við létum höggin dynja á þeim, og þessi hugsun, eða sýn, féll yfir höfundarferil Jóhanns Hjálmarssonar; sá sem hreifst af kvæði eftir hann lét það helst ekki fréttast. Síðar áttaði maður sig blessunarlega á því að stjórnmálaskoðanir höfundar, staða í samfélagi, kemur skáldskapnum lítið við; ekkert skáld var eins hátt skrifað hjá byltingarhöfund- inum Maxím Gorkí og íhaldsmaðurinn Knut Hamsun. En hvað sem því líður; ég var að snuðra í forn- bókabúð fyrir nokkrum árum. Það var ógurlegt sólskin úti en rökkur inni og muldur í Rás eitt. Ég finn ljóðabók, hún er blá hvít græn, ég slæ henni upp á blaðsíðu 83, og les: Einn dag þegar rignir mun ég deyja í París, ég veit það núna, einn dag þegar rignir mun ég deyja í París, um haust, kannski verður fimmtudagur eins og í dag. Já, á fimmtudegi, því á meðan ég yrki þetta ljóð og sný mér undan í örvæntingu hef ég aldrei fundið einmanaleikann jafn nærri. César Vallejo er dauður, þið réðust allir gegn honum, án þess hann gerði á hlut ykkar: þið létuð höggin dynja á honum og spörkuðuð í hann, um það vitna fimmtudagarnir, kvölin í bakinu, einmanaleikinn, vegirnir og regnið. Tvö Ætli mér sé ekki óhætt að halda því fram að Jóhann sé með afkastamestu ljóðaþýðendum okkar, og í ljósi þess að sumar þýðingarnar eru úrvalsskáldskapur, þá hefur verið merkilega hljótt í kringum það starf. Þetta er talsvert magn, fast að 300 kvæðum í fjórum bókum sem komu út á árunum 1960 til 1988. Fyrst kemur Af greinum trjánna, þá er Jóhann rétt um 21 árs, síðan Hillingar á ströndinni árið 1971 og Þrep á sjóndeildarhring fimm árum síðar; sú bók er blá græn hvít, og ljóðið Svartur steinn á hvítum steini eftir César Vallejo er á blaðsíðu 83. Fjórða og síðasta bókin, Í skolti Levíatans, kom árið 1988. Sjálfsagt væri að nefna líka Vindar í Raumsdal, vandaðar þýðingar Jóhanns og Matthíasar Johannessen á kvæðum Knuts Ödegaards frá árinu 1997, en hér verður þó ein- göngu horft á bækurnar fjórar sem Jóhann stóð einn að. Fjórar bækur og skáld frá fleiri löndum en ég hef tölu á; fleiri skáld en ég get talið. Mikil skáld, eins og Paul Celan, Giuseppe Ungaretti, Salva- tore Quasimodo, Cesare Pavese, Gottfried Benn, Gunnar Ekelöf, Werner Aspenström, Juan Ramón Jiménez, Antonio Machado; spænska skáldið Machado sem stækkaði heim- inn með kvæðum sínum, hann sem orti einu sinni um torg, pilt og blómið hvíta: Torgið á sér turn, turninn á sér svalir, svalirnar eiga sér stúlku, stúlkan hvítt blóm. Piltur átti leið hjá – enginn veit hvers vegna hann átti leið hjá! – og hafði á brott með sér torgið og turninn og svalirnar, svalirnar og stúlkuna, stúlkuna og blómið hvíta. Merkilega hljótt sagði ég; það er varla að maður heyrir talað um þessar bækur, þær hafa ekki yfir sér sömu birtu og til dæmis Hrafnar í skýjum, þýdd ljóð eftir Einar Braga frá 1970, eða þá Trumban og lútan, ljóðaþýðingar Hall- dóru B. Björnsson frá 1959. Það gæti jafnvel dottið í mann að fullyrða að þýðingarsöfn Jó- hanns, fjórar bækur, séu einskonar þagnablettir í íslenskum bókmenntum Ég ætla þó ekki að draga fjöður yfir það að þýðingar Jóhanns eru misjafnar að gæðum, og hann hefur gert sig sekan um villur. Ég nefni þýðinguna á kvæði eftir Federico García Lorca, Son de los negros de Cuba, sem birtist í Af greinum trjánna undir heitinu Sonur negranna á Kúbu. Í bók sinni Tvímæli – þýðingar og bók- menntir ræðir Ástráður Eysteinsson um svo- kölluð svikatengsl og er þá átt við orð sem „hljóma eða líta eins út í málunum tveimur eða eiga (eða virðast eiga) sér sameiginlegan orð- stofn – en eru það ekki“. Svikatengslin liggja hér í orðinu Son; Jóhann þýðir það sem Sonur en Son er hinsvegar ákveðið tónlistarform sem leikið er á Kúbu, enda þýddi Jón Hallur Stef- ánsson kvæðið 30 árum síðar undir heitinu Negrasöngur á Kúbu. Vissulega slæm villa og kvæðið í ofanálag ekki sannfærandi í þýðingu Jóhanns, en hér er líka snúinn skáldskapur á ferðinni fyrir 21 árs þýðanda. Samt sitja línur í manni: Ég hef sagt öllum að ég muni halda til Santiago á hesti úr svörtu vatni „Nafnið á ljóðabókinni Dagbók borgaralegs skálds sem Jóhann sendi frá sér árið 1976,“ skrifar Þröstur Helgason í formála að ljóðaúr- vali á kvæðum Jóhanns sem kom út fyrir tveim- ur árum, „hefur sjálfsagt þótt djarft á sínum tíma. Það þótti að minnsta kosti ekki par fínt í vissum kreðsum skálda og menntamanna að vera „borgaralegur“ og að gangast við svo aumu hlutskipti þótti óþarfa hugrekki.“ Ég held að tónninn í frumortum ljóðum Jó- hanns á áttunda áratugnum hafi ekki verið hon- um til framdráttar á miskunnarlausum tímum, að hann sem orti eitt sinn um sólþyrstar hendur, fljúgandi næturlest, skyldi reyna að breyta ljóð- inu í dagbókafærslur borgarans. Þetta hlýtur að vera meginskýringin á fálæti gagnvart ljóða- þýðingum Jóhanns Hjálmarssonar; það snýst ekki um gæði, þótt hann gefi einstaka sinnum höggstað á sér þar, heldur stöðu hans í íslensk- um bókmenntum – borgaraleg staða, meintur hægrimaður og helsti ritdómari Morgunblaðs- ins. Það síðastefnda gerði hugsanlega útslagið, ekki þó vegna þess að ritdómar hans hafi á stundum þótt dauflegir eða óljósir, heldur að hann skyldi gangast við því að vera borgaraleg- ur á þeim tímum þegar heimurinn skiptist í tvennt, austur og vestur, á þessum svarthvítu tímum áður en allt sprakk í loft upp og veröldin varð óskiljanleg. Þetta er meginskýringin; upp- spretta neikvæðninnar. Þrjú „Því svo dýrmætt sem það er að eignast sígild verk í verðugum þýðingum,“ skrifar Snorri Hjartarson í formála að ljóðaþýðingum Magn- úsar Ásgeirssonar, Ljóð frá ýmsum löndum, „er hitt þó meira virði að fá upp í hendurnar það sem hæst ber á hverjum tíma, ný viðhorf og verkefni í nýju formi, nýjum söng.“ Það er auðvelt að taka undir þessi orð, en svo er annað að mörghundruð ára gömul kvæði geta borið með sér ný viðhorf, nýjan söng. Það sann- EINN DAG ÞEGAR RIGNIR MUN ÉG DEYJA Í PARÍS Það hefur verið merkilega hljótt um ljóðaþýðingar Jóhanns Hjálmarssonar segir í þessari grein þar sem fjallað er um fjórar bækur Jóhanns sem hafa að geyma þýðingar á um þrjú hundruð ljóðum eftir mörg merkustu skáld tuttugustu aldar. E F T I R J Ó N K A L M A N S T E FÁ N S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.