Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2003, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2003, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. MAÍ 2003 H ÚN þykir hafa eina fegurstu söngrödd sinnar kynslóðar og á meðan óperuvitringar deila um það hvor fyrri kyn- slóðarsöngkonan, Suther- land eða Callas „eigi“ Luciu di Lammermoor og Normu, hefur Kiri te Kanawa þótt ein um hituna að „eiga“ greifynjuna í Brúð- kaupi Fígarós, og jafnvel líka Desdemónu og Arabellu og að sumra mati enn fleiri óperuhlut- verk. Fæstir söngvarar ná slíkri viðurkenn- ingu. Það leikur í það minnsta enginn vafi á því að hún er í hópi virtustu söngkvenna síðustu aldar. Og nú er hún á leið til Íslands, syngur í Háskólabíói 15. nóvember. Sló í gegn sem greifafrúin Kiri te Kanawa fæddist á Nýja-Sjálandi 1944 í fjölskyldu innfæddra Maóría. Fyrir tvítugt hafði hún þegar hreppt öll helstu söngverðlaun Eyjaálfu og þá þegar var farið að gefa söng hennar út á hljómplötum. Hún hélt til Lundúna til að læra meira og leita fyrir sér; sótti nám í London Opera Center og var svo heppin að fá lítið hlutverk í óperu sem Sir Colin Davis stjórnaði. Hann tók strax eftir Kiri og vildi fá hana í stærri hlutverk. Hún söng hlutverk Carmenar í uppfærslum þar og heima á Nýja- Sjálandi, en stóra stundin rann upp 1971, þeg- ar hún söng sitt kunnasta hlutverk, Greifynj- una í Brúðkaupi Fígarós undir stjórn Sir Col- ins Davis í Konunglegu óperunni í Covent Garden. Á svipstundu var hún komin í röð fremstu söngkvenna á alþjóðlegum vettvangi og varð eftirsótt af óperuhúsum um allan heim, valið var hennar. Kiri te Kanawa hefur aldrei verið bundin á klafa einnar tegundar tónlistar, hvað þá einnar tegundar óperu. Hún hefur þótt skara fram úr í óperum þýsku og austurrísku tónskáldanna, en jafnframt frábær bæði í ítalskri óperu og franskri. Helstu Mozarthlutverk hennar eru auk greifynjunnar, Donna Elvira í Don Giov- anni, Pamina í Töfraflautunni og Fiordiligi í Cosi fan tutte. Í óperum Richards Strauss syngur hún Marschallin í Rósariddaranum, greifynjuna í Capriccio og Arabellu í sam- nefndri óperu. Ítölsku hlutverkin hennar eru fjölmörg, þau helstu Mímí í La bohème, Víól- etta í La traviata, Elísabet í Don Carlo og helstu frönsku hlutverkin Margrét í Fást og Mikaela í Carmen. Klassík jafnt sem dægurlög Kiri te Kanawa þykir ekki einungis hafa eina fegurstu rödd sinnar tíðar. Um sviðsframkomu hennar hefur þótt leika ára heiðríkju og tígu- leika. Hljómsveitir um allan heim hafa sóst eft- ir Kiri sem einsöngvara, og á því sviði hefur hún sungið undir stjórn hljómsveitarstjóra á borð við Claudio Abbado, Sir Colin Davis, Charles Dutoit, James Levine, Zubin Mehta, Seiji Ozawa og Sir Georg Solti. Enn er ótalinn söngur Kiri með píanóleik- urum. Hún hefur spreytt sig á ljóðasöng, en ekki síður söng á sígildum dægurlögum, en plötur hennar með sönglögum Jeromes Kern, Irvings Berlin og George Gershwins hafa verið geysivinsælar. Það þótti vera Paul McCartney til mikils framdráttar að Kiri te Kanawa skyldi taka að sér að syngja aðalhlutverkið, Mary Dee í Liverpool óratoríu hans fyrir nokkrum árum. Kiri te Kanawa hefur sungið með öllum helstu söngvurum heims, og mótsöngvarar hennar spanna tvær kynslóðir karlsöngvara. Hún söng hlutverk Desdemonu í Ótelló á móti Luciano Pavarotti undir stjórn Soltis á geisla- diski frá Decca. Þau Pavarotti þóttu frábært dúó, og upptakan ein sú besta sem gerð hefur verið á þessari óperu Verdis. En hún hefur líka unnið með yngri mönnum, eins og Thomas Hampson og Roberto Alagna. Söng í brúðkapi Karls og Díönu Kiri te Kanawa er sá söngvari sem hefur náð víðfeðmustu athygli í einni sjónvarpsútsend- ingu, meiri athygli en jafnvel tenórarnir þrír hafa náð. Það var þegar hún söng einsöng í brúðkaupi Karls Bretaprins og Díönu prins- essu, en athöfnin var send beint út til um 600 milljóna manna um allan heim árið 1981. Ári síðar aðlaði Bretadrottning hana og Kiri te Kanawa varð Dame Kiri. Hún hefur hlotið við- urkenningar af öllum hugsanlegum toga og er heiðursdoktor við fjölda virtra háskóla, þeirra á meðal Cambridge og Oxford. Á fimmtugsafmæli sínu 1994 hélt Dame Kiri tónleika í Royal Albert Hall, og gaf í skyn að það yrðu síðustu opinberu tónleikar hennar. Hún er þó enn að og syngur enn í óperuhúsum víða um heim. Árið 1999 gaf hún út geisladisk með söngvum þjóðar sinnar, Maóríanna á Nýja-Sjálandi, söngvum sem hún söng sjálf í æsku, og þykir hann meðal þess persónuleg- asta sem hún hefur gert og virðingarvottur við eigin uppruna. Áhugaverðar upptökur Upptökur með söng Dame Kiri skipta tug- um, en hér eru nokkrar áhugaverðar:  Chants d’Auvergne eftir Canteloube. Kiri te Kanawa syngur með Ensku kammersveit- inni undir stjórn Jeffrey Tate. (Decca 1995).  Brúðkaup Fígarós eftir Mozart. Kiri te Kanawa, Lucia Popp, Frederica von Stade, Samuel Ramey og fleiri, Fílharmóníusveit Lundúna undir stjórn Sir George Solti. (Decca 1983).  Ótelló eftir Verdi. Kiri te Kanawa, Luc- iano Pavarotti, Leo Nucci og fleiri, Sinfóníu- hljómsveitin í Chigaco undir stjórn Sir George Solti. (Decca 1991).  Vier letzte Lieder og fleiri hljómsveitar- söngvar eftir Richard Strauss. Kiri te Kanawa syngur með Fílharmóníusveit Vínarborgar, Sir George Solti stjórnar. (Decca 1991).  Exultate jubilate og fleiri verk eftir Moz- art. Kiri te Kanawa syngur með Sinfóníuhljóm- sveit Lundúna, Sir Colin Davis stjórnar. (Phil- ips 1985).  West Side Story eftir Bernstein Kiri te Kanawa, José Carreras og fleiri. (Deutsche Gramophone 1985).  Cosi fan tutte eftir Mozart. Kiri te Ka- nawa, Frederica von Stade, Teresa Stratas og fleiri, Alain Lombard stjórnar. (Erato 1977).  Arabella eftir Richard Strauss. Kiri te Kanawa, Franz Grundheber, Helga Dernesch, Peter Seiffert og fleiri, Jeffrey Tate stjórnar (Decca 1986). Kiri te Kanawa syngur söngva Maóría. (Angel Records 1999). DAME KIRI SYNGUR Á ÍSLANDI Í HAUST Kiri te Kanawa er ein fremsta söngkona sinnar sam- tíðar og syngur á tónleikum í Háskólabíói í haust. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR kíkti á feril Maóríastúlk- unnar frá Nýja-Sjálandi, feril sem er langur og farsæll. Kiri te Kanawa begga@mbl.is TILKOMA óperunnar um aldamótin 1600 hafði margvísleg áhrif á þróun tónlistar. For- spil eða forleikir óperuverka urðu snemma vin- sælir og fluttir sérstaklega, og áttu sinn þátt í formskipan og stöðlun sinfóníunnar í kringum 1750, en ekki síður einstaka söngþættir eða arí- ur, sem vinsælt var að flytja sérstaklega og jafnvel spinna yfir helstu laglínur þessara óp- eruverka alls konar tilbrigðaverk. Sagt er að Franz Liszt hafi átt það til, eftir að hafa hlýtt á óperu, að leika fyrir gesti í mannfagnaði að lok- inni frumsýningu heilu og hálfu kaflana eftir minni og það oft með ekki litlum tilþrifum. Þessi tengsl frumgerðar og umritana höfðu mikil áhrif og sköpuðu almenningi, sem ekki hafði séð sjálfa óperuna, aðgang að því sem eft- irminnilegast þótti hverju sinni. Í raun er flutn- ingur á einstaka óperuaríum og afmörkuðum „senum“ mikilvægur fyrir stöðu óperunnar. Tónleikarnir í Íslensku óperunni sl. þriðjudags- kvöld, þar sem Chalimeaux-tríóið og þrír ein- söngvarar fluttu umritanir úr tveimur óperu- verkum og sex kammerverk eftir Mozart, eru í sama anda og tíðkaðist mjög fyrrum og það sem meira er, að þrátt nokkurn mun á upprunagerð- inni og þeirri kammergerð sem gat að heyra að þessu sinni var flutningurinn í heild sérlega þokkafullur. Þar koma fyrst og fremst til sér- lega vandaðar umritanir þeirra félaga, sem Sig- urður I. Snorrason hefur trúlega átt mestan þátt í, en með honum léku Kjartan Óskarsson og Óskar Ingólfsson aldeilis fallega, svo hvergi bar á skugga. Söngvararnir sungu nokkur at- riði úr Brúðkaupi Fígarós og voru fyrst tvö at- riði í samskiptum Súsönnu og Fígarós, fyrst þar sem hún var að máta brúðarkjólinn og þar eftir deila skötuhjúanna um staðsetningu einkaherbergis þeirra, sem staðsetja átti á milli herbergja greifahjónanna. Þetta snjalla ding- dong-atriði var sérlega vel flutt af Huldu Björk og Davíð. Hlutverk hins ástsjúka Cherubinos (Non so piu og Voi che sapete) var sérlega fal- lega sungið af Sesselju. Herkvaðningararían fræga (No piu andrai) var hressilega sungin af Davíð, þótt þar vantaði nokkuð á hljóðtjöldin í annars góðum leik Chalumeaux-félaganna. Aría Fígarós úr fjórða þætti, þar sem hann heldur að Súsanna sé sér ótrú, og svo þau kúnstugu varnarorð til áheyrenda, að láta ekki „kokkála“ sig, sem er undirstrikað í lokin með (gaggalagú) kokkálsstefi, var mjög vel flutt af Davíð. Önnur söngatriði, hin ofurfagra aría greifafrúarinnar, Pogi amor, og önnur álíka fögur aría, Deh vieni non tardar, þar sem Sús- anna er dulbúin sem greifafrúin, voru mjög vel flutt, þótt saknað væri ýmissa fallegra blæ- brigða, sem heyra má í upprunalegri hljóm- sveitargerð meistarans. Næturljóðin og kansónettan, sem Mozart samdi fyrir þrjár söngraddir, klarinettur og bassetthorn, flest yfir texta eftir Metastasio, eru falleg og voru nokkuð vel flutt en tónleik- unum lauk með þremur atriðum úr Cosi fan tutte. Þar var umritunin ekki eins vel gerð og í brúðkaupinu og söngurinn einhvern veginn vanbúnari. Fyrsti dúettinn úr öðrum þætti, Prendero quel brunettino, var glaðlega sung- inn, en í dúett Dorabellu og Guglielmo, Il core vi dono, vantaði allt kókétt flaður í söng Davíðs. Kveðjutríóið Soave sia il vento, sem er sérlega dapurt, var ekki vel valið sem niðurlag og næsta víst, að velja hefði mátt skemmtilegri atriði úr þessari galsafengnu óperu en hér var gert, sem má ske að verði gert síðar, í betri tíma. Hvað um það, þá voru þetta skemmtilegir tónleikar, leikur „skálmaranna“ sérlega fallega og fínlega mótaður og söngurinn í heild ein- staklega ljúfur. TÓNLIST Íslenska óperan Flutt voru kammersöngverk og umritanir úr óperum eftir meistara Mozart. Flytjendur voru Hulda Björk Garðarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Davíð Ólafs- son og Chalumeaux-tríóið. Þriðjudagurinn 13. maí. KAMMERTÓNLEIKAR Fínlegur leikur og ljúfur söngur Jón Ásgeirsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.