Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.2003, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.2003, Blaðsíða 9
om, sem var leikari í Hollywood, og bróðirinn giftist þekktri, enskri leikhúsleikkonu.“ En þrátt fyrir nálægðina á Íslandi töluðust þær systur ekki við. Því olli frásögn í Fjallkirkju Gunnars Gunnarssonar af myndhöggvara og konu hans. Gígja Björnsson segir að Anna hafi verið mjög stíf út af þessu. Anna Jónsson hefur verið trúuð, víðlesin og framúrskarandi hannyrðakona eftir herbergi hennar í Einarssafni að dæma. Þar eru bækur, orgel og bænastóll og stólsessa og borðrefill, sem hún hefur saumað út. Júlíana Gottskálksdóttir, forstöðumaður Lista- safns Einars Jónssonar, segir að mikið bréfasafn sýni að Anna og Einar hafi stundað miklar bréfa- skriftir til fólks erlendis. Margt sé í sambandi við verk Einars, en einnig af persónulegum toga og í þeim efnum sé Anna enginn eftirbátur manns síns. Þau hafi greinilega átt góðan vinahóp er- lendis og því ekki verið eins einangruð og oft var látið að liggja. Anna Jónsson fórnaði sér ekki fyrir mann sinn. En hún vildi lifa fyrir hann. „Hún var orðin fullorðin kona, þegar ég kynnt- ist henni,“ segir Lilja Kristjánsdóttir, sem starf- aði í Einarssafni í mörg ár. „Hún var afskaplega góð kona manni sínum. Hún var í eðli sínu fé- lagsvera og ég sá hana aldrei kátari og hressari en með margt fólk í kringum sig. Það var því aðdáunarvert, hvað hún lokaði sig og þau af til þess að skapa honum vinnufrið. Hún var langt í frá skaplaus kona og gat bein- línis verið hvöss þegar henni mislíkaði. Það man ég meðal annars í sambandi við af- steypurnar af Ingólfi Arnarsyni, sem safnið lét gera 1974. Hún hafði reyndar gefið samþykki sitt fyrir þeim eftir mikla eftirgangsmuni, en var alla tíð ósátt við þær. Sambandsleysið milli þeirra systranna var henni ábyggilega erfitt og því finnst mér gott að geta sagt frá því, að þær sættust síðar. Ég man að einu sinni heimsóttum við hjónin Önnu á Landa- kot og þá sat Franzisca systir hennar við rúm- stokkinn og þær héldust í hendur allan tímann. Þetta var eitthvað svo fallegt eftir allt sem á undan var gengið.“ Eftir að Einar lézt 1954 bjó Anna í garðhúsinu og sinnti safninu meðan hún mátti. Hún lézt á Landakoti 1975, níræð að aldri. Elsie og Jón Haustið 1908, þegar hann var 27 ára, hélt Jón Stefánsson ásamt skandinavískum listaskóla- bræðrum til Parísar og settist í einkaskóla Henri Matisse. En Jóni varð fleira af París en listin, því þar flaug ástin yfir og birtist honum í Elsie Dähr- ing. Hún var fædd 1883 í Danzig. Þau giftust 1909. Nini dóttir þeirra segir m.a. svo í samtali við Huldu Valtýsdóttur: „Foreldrar mínir kynntust í París, þegar pabbi var þar við nám í skóla Matisse. Hann stundaði þar nám þau fjögur ár sem sá skóli starfaði. Móðir mín var þá ung ekkja, aðeins 21 árs, hafði verið gift miklu eldri manni. Sjálf var hún af efnuðu fólki, ættuðu frá Danzig sem þá tilheyrði Póllandi. Hún var við frönskunám og bjó á heimavistar- skóla í París.“ Síðar í samtalinu segir Nini, að móðir hennar hafi komið með Jóni til Íslands; „ á skipi til Sauð- árkróks og þau riðu um Skagafjörð. Hann vildi kynna fyrir henni landið og fólkið sitt. Mér var sagt, að henni hefði verið tekið ákaf- lega vel og sérstaklega var afi hrifinn af þessari fallegu brúneygu tengdadóttur sinni. Ég fæddist 1913 í Svíþjóð, en foreldrar mínir bjuggu sinn búskap á Friðriksbergi í Kaup- mannahöfn. Þau höfðu nóg fyrir sig að leggja í nokkur ár; hún var efnuð og honum hafði tæmst arfur. Þá var mikið um dýrðir í Kaupmannahöfn og vinahópurinn stór.“ Nini nefnir svo til ýmsa vini foreldra sinna; ís- lenzka og skandinavíska listamenn og segir þessi ár „litrík í endurminningunni, hvort sem ég man þau sjálf eða mér hefur verið sagt frá þeim.“ „Árið 1920 hélt pabbi sína fyrstu málverkasýn- ingu í Kaupmannahöfn og brenndi þá öll þau mál- verk sem hann hafði gert fyrir þann tíma svo ekki eru til nein eldri málverk en þau sem voru á þeirri sýningu. Foreldrar mínir höfðu þá slitið samvist- um og skildu 1921. Ég var hjá pabba á veturna en mömmu á sumr- in. Seinna giftist hún lækni á Jótlandi. Alla tíð hélst þó góð vinátta á milli þeirra; pabbi skrifaði henni alltaf og hún heimsótti hann oft þegar hann hafði vinnustofu í st. Kongensgade í Kaupmanna- höfn á heimsstyrjaldarárunum síðari. Ef ég ætti að lýsa henni með nokkrum orðum mundi ég segja, að hún hafi alltaf verið mjög sjálfri sér sam- kvæm, en hún átti erfitt með að laga sig að breytt- um aðstæðum. Sjálf sagði hún oft, að hún væri eins og ljóti andarunginn í ævintýri H.C. And- ersens „som skulle kanöfles“ af því hann var öðru- vísi en hinir.“ Í bókinni um Jón Stefánsson segir Poul Utten- reitter svo, en Tómas Guðmundsson snéri orðum hans á íslenzku: „En það var þó kona Jóns frú Elsie sem hafði meiri þýðingu fyrir hann en nokkur þeirra félag- anna. Hún átti sér ríka og umsvifalausa fegurð- argleði og var gersamlega laus við smáborgara- lega afstöðu gagnvart umhverfi sínu. Hún var heimsborgari og heimsdama – og þannig hefur Jón líka kynnt hana í nokkrum af sínum fyrstu myndum. Hleypidómaleysi hennar og örugg eðlisávísun fékk honum evrópskara viðhorfs en honum gat áður hlotnast í félagsskap við skandinavíska vini og hafði á hinum fyrstu erfiðu árum hina mestu þýðingu fyrir listrænan vöxt hans.“ Í bréfi til mín segir Nini Andersen, að peninga- málin hafi leikið samband foreldra sinna grátt og hafi móður hennar mislíkað, þegar umsvifum Jóns með arfinn lauk svo, að „alt fór“. Elsie fór þá að heiman og fékk sér vinnu á skrifstofu „og pabbi og ég erum orðin ein. En mamma kom oft í heimsókn. Svo hitti hún mann, sem var að læra læknisfræði og giftist hon- um og ég fór að dvelja hjá þeim í sumarfríi og hjá pabba á veturna.“ Seinna fluttu þau Elsie til Ameríku, en skildu eftir nokkur ár. Hún flutti þá aftur til Danmerk- ur; til Kaupmannahafnar og segir Nini að hún hafi ættleitt litla telpu, Sussie. Nini segir að foreldrar hennar hafi þrátt fyrir allt verið vinir alla tíð og Elsie hafi oft heimsótt Jón á vinnustofuna í Kaupmannahöfn og setið þar fyrir hjá honum; síðast þegar hún var 75 ára. „Hún gat setið grafkyrr tímunum saman, en var orðin svo lítil, að hann fékk stóran stól, barokk, og leiddi hana þar til sætis!“ Elsie andaðist 1963, fjórum mánuðum eftir lát Jóns Stefánssonar. Erna og Jón Síðari konu sinni, Ernu Metu Grunth kynntist Jón í Kaupmannahöfn á stríðsárunum og giftust þau 20. febrúar 1952. Erna Meta Grunth var fædd Lynge, 24. sept- ember 1902. Hún var ekkja þegar þau Jón kynnt- ust og rak fornmuna- og listaverkaverzlun í hjarta Kaupmannahafnar. Í Íslenzkri myndlist segir Björn Th. Björnsson m.a. í kaflanum um Jón Stefánsson: „Eftir að hann kom heim aftur að stríðslokum bjó hann í húsinu er hann byggði forðum ásamt með Ásgrími Jónssyni að Bergstaðastræti 74 og naut þar umhyggju síðari konu sinnar, frú Ernu, sem var auk þess hægri hönd hans í öllum verald- arsökum.“ „Ég kynntist frú Ernu Stefánsson, þegar þau Jón fluttu hingað heim. Hún var ekki ófríð kona, en ströng á svip og ákaflega ráðrík“ segir Björn Th. Björnsson, listfræðingur. „Hún vildi stjórna flestu í kringum Jón og það svo, að stundum mislíkaði honum. Einu sinni var ég að skrifa grein um hann fyrir skandinavískt tímarit og fékk léðar myndir til að birta með. Frú Erna hafði legið fyrir uppi meðan við töluðum saman, en kom svo niður, leit á mynd- irnar og sagði: Við lánum ekki þessar myndir nema að fá viðtökukvittun. Síðan settist hún niður og skrifaði kvittun, sem hún ætlaði mér að skrifa undir, en Jón reiddist og sagði sem svo: Þessi maður er að ræða við mig en ekki þig og ég lána það sem ég á. Svo fleygði hann kvittuninni í hana aftur. Hún var líka mikil bísnissmanneskja og kunni stundum ekki við það, sem Jón gerði. Það kom hjá honum tímabil sem hann málaði litlar Þingvalla- myndir og þeim var hún mótfallin, því hún taldi þær ekki hafa neitt söluverðmæti. Hún var eins og ljónynja að passa upp á ung- ann sinn.“ Valtýr Stefánsson segir m.a. í grein um Jón sjö- tugan: „Á síðustu árum hefir Jón hvað eftir annað átt við þungbæra vanheilsu að stríða. Hann fjekk t.d. illkynjaða æðabólgu seint á styrjaldarárunum meðan Danmörk var hernumin. Það var honum þá mikið lán að hann naut aðhlynningar frú Ernu Grunth. Síðan hefir hún verið honum ómetanleg- ur styrkur.“ Og í minningargrein um Jón Stefánsson vottar Valtýr Pétursson ekkju hans samúð sína „og færi henni þakkir fyrir ómetanlegan stuðning, er hún veitti manni sínum, fyrir þá umönnun, er hún sýndi hinum mikla málara.“ Björn Th. Björnsson segir ennfremur í kafl- anum um Jón Stefánsson í Íslenzkri myndlist: „Að honum látnum fluttist frú Stefánsson til síns heima í Danmörku, en hús Jóns keypti vinur hans og listbróðir, Gunnlaugur Scheving, sá íslenzkra málara sem er honum hvað eðlisskyldastur um marga hluti.“ Ég ræddi við fleira fólk, sem kynntist Ernu persónulega, en enginn þeirra vildi koma fram opinberlega í þessari grein. Af samtölum við þetta fólk ræð ég, að hún hafi verið þeirrar gerðar, að eignast ekki marga formælendur hér á landi. Dætur Jóns Stefánssonar vilja fátt sem ekkert af síðari konu föður síns segja. Bryndís Jónsdóttir, dóttir Jóns og Sigríðar Zoega ljósmyndara, sagði það eitt til birtingar, að samskipti þeirra feðg- inanna hafa verið minni í seinni tíð hans, en hún hefði viljað. Og Nini segir það hreint út í bréfi til mín, að Erna hafi haldið Jóni að verki peninganna vegna, hreinlega lokað hann inni á vinnustofunni og selt afraksturinn! Erna Grunth Stefánsson lifði Jón í rétt rúm átta ár. Hún lézt 28. desember 1970. Tove og Kjarval Meðan Jóhannes Kjarval dvaldi á Íslandi sum- arið 1914, þá 28 ára , og málaði altaristöflu í Bakkagerðiskirkju fyrir kvenfélagskonurnar í Borgarfirði eystra skrifaðist hann á við danska stúlku, Tove Merrild, sem Indriði G. Þorsteinsson segir í ævisögu Kjarvals að hafi verið „falleg stúlka, há og grönn og stórgáfuð, enda varð hún þekktur rithöfundur í Danmörku og víðar fyrir skáldsögur sínar og ljóðræn leikrit.“ Ári seinna; 17. maí 1915, giftust þau. Tove Merrild var fædd 24. október 1890. For- eldrar hennar voru Mads Christian Merrild, mús- íkliðsforingi – spilaði á trompet í hljómsveit stórksotaliðs, og Franziska Katharina Hansen. Tove vann á skrifstofu í Kaupmannahöfn, en hafði skrifað fyrir sig og fjölskylduna frá tólf ára aldri. Frásögn eftir hana birtist fyrst á prenti í Berl- inske Tidende um nýár 1916. En meðan Kjarval málaði uppi á Íslandi, þreyði Tove í Kaupmannahöfn og skrifaði hugrenningar sínar um lífið og tilveruna í litla rauða bók. Það var „enginn viðvaningsbragur á rauðu bókinni. Þar birtust hugrenningar óvenju þroskaðrar konu sem gæddi skrif sín skáldlegu innsæi, enda liðu ekki nema þrjú ár þangað til fyrsta skáldsaga hennar var komin á prent og þótti tíðindum sæta í heimi bókmenntanna.“ Tove gerði hlé á rauðu bókinni þegar Kjarval kom aftur til Hafnar og síðasta færslan er frá 16. febrúar 1916. Hún gaf svo Kjarval bókina og geymdi hann hana meðan hann lifði. - Skömmu fyrir andlát sitt sendi Tove honum aðra bók með hugsunum sínum, „sem hann átti að líta á sem framhald eða annað bindi stórbrotinnar ástar- játningar.“- Aðalsteinn Ingólfsson segir m.a. í bók um Kjar- val, að á þessum fyrsta tíma þeirra hafi Tove stundum getað selt blöðum greinar eftir sig og dönsku riti nokkrar teikningar manns síns til birtingar, sem hjálpaði upp á bágan fjárhaginn. Námsdvöl Kjarvals í Höfn lauk 1919 og næstu tvo vetur eftir Ítalíuferð 1920, þar sem þau skoð- uðu; hann málaði og hún hófst handa við fjórðu skáldsögu sína, bjuggu þau með börnin sín tvö, Ásu og Svein, í Kaupmannahöfn. Þriðja skáldsaga Tove fékk ekki eins góðar við- tökur í Danmörku og fyrstu tvær, en aftur á móti fékk hún góðar móttökur í Noregi og á Íslandi. „Í blaðaumsögn var Tove lýst þannig að mitt í há- vaða og ónæði stórborgarinnar fylgdi því þægileg friðartilfinning að tala við höfundinn. „Orð henn- ar falla kyrrlát og hæg, eins og sú sem talar búi yfir djúpum hugsunum og rósemi sálarinnar.“ Trúarlegt og heimspekilegt ívaf skáldsagna hennar féll í góðan jarðveg, en þau atriði felldi hún að mannlegum þáttum lífsins.“ Árin eftir Ítalíuferðina voru fjölskyldunni þröng; Kjarval seldi lítið í Kaupmannahöfn og Tove gekk ekkert að koma fjórðu skáldsögu sinni á framfæri; reyndar kom hún ekki út fyrr en 1928 og þá mjög umskrifuð. Ljósi punkturinn var Ís- landsferð málarans, sýningasigrar og góð sala í Reykjavík. Reyndar stefndi hugur Kjarvals alltaf heim til Íslands, en vera má að það hafi ekki verið auðveld hugsun fyrir rithöfundinn Tove að flytja. „Fram- tíðin varð ekki ráðin nema með samþykki beggja, og vegna aðdáunar og ástar sinnar á Kjarval hlaut svo að fara að Tove samþykkti búsetuskipt- in,“ segir Indriði G. Þorsteinsson. Vorið ’22 kom fjölskyldan til Íslands og flutti í litla íbúð við Freyjugötu. Indriði segir að þótt íbúðin hafi verið sögð þröng hafi þeir sem þangað komu minnzt þess hversu Tove tókst að gera hana vistlega með litlum eignum. Fjölskyldan dvaldist sumartíma á æskustöðvum listamanns- ins í Borgarfirði eystri. Í ævisögu Kjarvals vitnar Indriði í bréf Björns Jónssonar um þröngan hag fjölskyldunnar og Anna G. Helgadóttir segir í bréfi, að Kjarval uni hvergi nema á Íslandi og hún ekki nema úti. „Og þá urðu bæði að skilja. Það var samkomulag á báðar hliðar og þá er vel þegar svo tekst til.“ Aðalsteinn Ingólfsson segir að það hafi komið sem reiðarslag þegar Tove fór fram á skilnað árið 1925. „Sár fátækt þeirra hjóna réð þar nokkru um, en auk þess skildi Tove það manna best að hvorki hjónaband né önnur náin fjölskyldubönd áttu við mann sem hrærðist svo mjög í eigin heimi eins og Kjarval gerði. Og þótt Kjarval hafi e.t.v. gert sér grein fyrir þeirri staðreynd sjálfur, lagð- ist skilnaðurinn þungt á hann. Þrátt fyrir hann, ARAÐARINNAR Elsie 1918. Málverk eftir Jón Stefánsson. Erna Grunth Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Jón Stefánsson á vinnustofu sinni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ 2003 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.