Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.2003, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ 2003 15
SNORRI Heimissonfagottleikari heldursína fyrstu op-inberlegu tónleika á
þriðjudagskvöldið kemur í
Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar kl.
20.30. Á
tónleik-
unum
verða flutt
verk eftir
Gabriel Pierné, Emil Petro-
vics, Chick Corea, Roger
Boutry og Heitor Villa-
Lobos, en með Snorra spila
Arne Jørgen Fæø píanó-
leikari og Berglind María
Tómasdóttir flautuleikari.
– Hvernig leggst svo
frumraunin í þig, Snorri?
„Mjög vel, ég er mjög
spenntur. Þar sem þetta
eru mínir fyrstu tónleikar
þá vil ég að áheyrendur
hafi gaman af tónlistinni.
Ég er ekki að spila tónlist-
ina fyrir mig heldur fyrir
fólkið. Öll verkin eru því
frekar stutt, þetta eru eng-
ar langlokur. Flest verk-
anna eru í kringum fimm
mínútur. Það má því segja
að þetta sé stutt og áheyri-
leg lítil fagottkynning.“
– Hvers konar verk eru
þetta?
„Þetta er allt tuttugustu
aldar tónlist. Verkin eru
flest samin í kringum 1920–
30 og öll eru þau fremur
kraftmikil og um leið afar
lagræn svo þau eru mjög
hlustunarvæn og skemmti-
leg. Verkið eftir Petrovics
er svona blúsverk, svolítið
poppað en voða létt og
skemmtilegt. Þarna er verk
fyrir flautu og fagott eftir
Villa-Lobos og spennandi
verk eftir Chick Corea fyrir
flautu, fagott og píanó sem
ég held að hafi ekki verið
flutt á Íslandi áður. Svo eru
þrjú fagottverk eftir Gabr-
iel Pierné og Roger Boutry
og Júgóslavann Emil Petro-
vics. Verkið eftir Boutry er
líklega hápunkturinn á tón-
leikunum, en það hefur
ekki verið mikið spilað.“
– Nú hefurðu einmitt lagt
sérstaka áherslu á flutning
nýrra verka, hvers vegna?
„Ég er mjög spenntur
fyrir nýrri tónlist því að
mér finnst eitthvað svo
spennandi við hana. Mér
finnst búið að spila gömlu
tónlistina nóg og kominn
tími fyrir eitthvað nýtt.
Auk þess þykir mér gaman
að spila tónlist eftir fólk
sem er enn á lífi því að þá
finnst mér ég vera að gera
eitthvað sem skiptir máli.“
Fyrir fólkið
STIKLA
Tónleikar í
Listasafni
Sigurjóns
Snorri Heimisson fagottleikari.
Næsta v ika
Sunnudagur
Krókur á Garðaholti í
Garðabæ kl. 13 til 17
Smábýlið
verður opið á
sunnudögum í
sumar milli kl.
13 og 17.
Krókur er lítill
bárujárns-
klæddur
burstabær sem var end-
urbyggður úr torfbæ árið
1923. Bærinn er gott dæmi
um húsakost og lifnaðarhætti
alþýðufólks á þessum lands-
hluta á fyrri hluta 20. aldar.
Í Króki var búið
allt til ársins
1985. Krókur er staðsettur
ská á móti samkomuhúsinu á
Garðaholti.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns kl.
20.30 Snorri Heimisson fa-
gottleikari heldur debut-
tónleika sína hér á landi
ásamt Arne Jørgen Fæø og
Berglindi Maríu Tómasdóttur.
Þau munu leika verk fyrir fa-
gott og píanó eftir Gabriel
Pierné, Emil Petrovics, Chick
Corea og Roger Boutry og
einnig Bachianas Brasilieras
fyrir flautu og fagott eftir
Heitor Villa-Lobos. Tónleik-
arnir standa í um það bil
klukkustund.
Miðvikudagur
Hafnarborg kl. 20 Tón-
leikar
norskrar
þjóðlaga-
sveitar. Fé-
lagar úr
Bærum
Spellemannslag, sem er
norsk hljómsveit sem sérhæf-
ir sig í spili á harðang-
ursfiðlur. Með í för eru börn
og fullorðnir og skiptast tón-
leikarnir niður í samspil, ein-
leik, dúetta og tríó. Einnig
koma fram tvö danspör med
hópnum. Stjórnandi sveit-
arinnar er Hallvard Kvåle.
Fimmtudagur
Salurinn, Kópavogi kl.
20 Kammersveit Tübingen
heldur tónleika. Á efnisskrá
er Divertimento í F-dúr KV
138 eftir W. A. Mozart,
Konsert fyrir tvær fiðlur í d-
moll BWV 1043 eftir J. S.
Bach, Rondo fyrir fiðlu og
strengjasveit í A-dúr eftir
Franz Schubert og Holbergs-
vítan í G-dúr op. 40 eftir
Edvard Grieg.
Hafnarborg kl. 20 Duo
Campanas halda tónleika.
Dúettinn, sem þeir Eric
Lammers frá Hollandi og
Þórólfu Stefánsson mynda,
var stofnaður árið 2001.
Þeir hafa komið fram á tón-
listarhátíðum víðs vegar og
iðulega verið í samstarfi við
tónskáld sem samið hafa
verk fyrir tvo gítara. Á tón-
leikunum verða flutt verk eftir
Joaquin Rodrigo, Þorkel
Atlason, Enric Granados og
Mario Castelnuevo-Tedesco.
Myndlist
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratug-
urinn. Til 1.9. Lárus Sig-
urbjörnsson, safnafaðir
Reykvíkinga. Til 20.7.
Gallerí Skuggi: Joris
Rademaker. Til 14.7.
Gerðuberg: Sumarsýn-
ingin: Hvað viltu vita? Upp-
lýsingar um Breiðholtið á 18.
og 19. öld. Til 5.9.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar – 1983-
2003. Til 4.8. Rambelta -
Samsýning. Til 30.6.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Kristján Dav-
íðsson og Þór Vigfússon. Til
31.7.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14.-17.
Listasafn Íslands: Sum-
arsýning –Úrval verka úr
eigu safnsins. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur -
Ásmundarsafn: Ásmundur
Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5. 2004.
Listasafn Reykjavíkur -
Hafnarhús: Innsýn í al-
þjóðlega myndlist á Íslandi.
Til 7.9. Erró - Stríð. Til 3.1.
Humar eða frægð - Smekk-
leysa í 16 ár. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur -
Kjarvalsstaðir: Nýir tímar í
íslenskri samtímaljósmyndun.
Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýningin
Andlitsmyndir og afstrak-
sjónir. Til 1.9.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Claire
Xuan. Til 1.9.
Mokkakaffi: Katrín Elvars-
dóttir. Til 5.7.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Ljós-
myndir Ragnars Th. Sigurðs-
sonar við texta Ara Trausta
Guðmundssonar. Til 31.8.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýn-
ingar. Til 14.9.
JAZZVAKNING efndi til minningartón-
leika um djassunnandann Jón Kaldal í
Súlnasal Radisson SAS hótelsins við Haga-
torg á fimmtudagskvöldið var. Aðsókn var
mjög góð og öll tiltæk aukasæti hússins
skipuð. Vegna anna Vernharðs Linnet tók
undirritaður að sér að hlaupa í umfjöll-
unarskarðið þrátt fyrir takmarkaða innsýn
í synkóperuðum harksöng. Af þeim sökum
verða dagskráratriðin reifuð með fyrirvara
um mistök – sumpart líka vegna þess hvað
umfjallandi sá lítið af sviðinu úr sæti sínu.
Andrúmsloftið var mettað góðlátri at-
hygli, og þó að meirihluti tónleikagesta
væri á grönum að sjá af kynslóðinni sem
efldi hérlenda endurvakningu djassins á 8.
áratug, slæddust þónokkrir yngri með,
einkum af fríðara kyninu. Bar nafn Jóns
Kaldal, er lézt s.l. febrúar, oft á góma, og
voru mörg lög leikin sem kváðu hafa verið í
sérstöku uppáhaldi hjá honum.
Tímasetning tónleikanna réðst ugglaust
af skammri viðdvöl dansk-norska kvart-
ettsins er var á leið til djasshátíðarinnar á
Egilsstöðum. Þótti manni því ólíklegt að ge-
fizt hefði mikill tími til samæfinga undir
fyrri hluta kvöldsins (eins og t.d. hlutfalls-
legur skortur á rödduðum „riffum“ bar með
sér), en samt var samspilið oft furðulipurt.
Í upphafi lék kvartett skipaður þeim
Ólafi Jónssyni, Birni Thoroddsen, Gunnnari
Hrafnssyni og Guðmundi Steingrímssyni
„Cheesecake“ Dexters Gordon. Sérstök
ánægja var að heyra aftur í Rúnari
Georgssyni eftir óralanga fjarveru, er kom
inn í öðru númerinu, „Au Privat“ (Charlie
Parker) í þar með fullskipuðum Kvintett
Jazzvakningar og Múlans. Tónninn var
engu minna glansandi en í minningum und-
irritaðs frá Íþökulofti MR fyrir fjörutíu ár-
um, þó að sprækar hríðskotarunur létu nú
sjaldnar á sér kræla. Parkerlagið endaði á
hressu trommurondói með sólóinnskotum
allra. Kvintettinn lauk síðan sinni syrpu
með árrjóðri úttekt á „Softly As In The
Morning Sunrise“ eftir Broadwayfrum-
kvöðulinn Sigmund Romberg; að vísu með
frekar loppnu sólói Björns Th. (er náði sér
þó vel á strik síðar, þrátt fyrir að vera enn
að jafna sig eftir handbrotsslys í vetur).
Einnig hjó maður eftir skrælþurru skamm-
lífi tóna á efsta sviði kontrabassans í rú-
bertu Gunnars Hrafnssonar, er benti til full
hálægra strengja og átti einkum eftir að
verða bassadömu Sophisticated Ladies eftir
hlé óþægur ljár í þúfu þegar hún fékk hljóð-
færið að láni.
Næst steig á stokk ARKO-loft kvintett-
inn, kenndur við tónleikastaðinn sem Jón
Kaldal og félagar ráku um árabil. Þeir Sig-
urður Flosason altsax, Eyþór Gunnarsson
píanó, Jóhann Ásmundsson rafbassi, Pétur
Grétarsson kongótrommur og Jóhann
Hjörleifsson trommur ýttu úr vör með
„Turnaround“ Ornettes Coleman við dún-
lipran einleik Sigurðar og ljóðrænt fram-
sækið píanósóló Eyþórs en heldur hornótt-
an kongóslátt. Eftir St. Thomas (Sonny
Rollins) söng Ellen Kristjánsdóttir lötur-
hægt en ljúflega Summertime Gershwins
(að sögn, og harla ótrúlegt, í fyrsta skipti á
ferlinum). Bandið lauk síðan hrinunni með
andríkri spiritual-ballöðu Cörlu Bley,
„Lord, Listen To Ya, Hallelujah“.
Seinni helmingur tónleikanna skartaði
norrænum kvennadjassi í líkamningu
danska tríósins Sophisticated Ladies og
norsku söngkonunnar Hilde Hefte. Fyrst
var leikin útgáfa af „Some Day My Prince
Will Come“ úr Mjallhvíti Disneys (harla
ófemínísk ósk á þessum síðustu og verstu)
er sýndi impressjónískt-ljóðræna æð pían-
istans. Með dönsku stöllum sínum söng
Hilde síðan Chet Baker lögin „The Thrill Is
Gone“ og „My Buddy“, og virtist ljúfsár
söngstíllinn ekki síður undir áhrifum frá
Billie Holiday en svölum barka Bakers. Í
seinna laginu vakti – auk þokkafulls „scat“-
söngskafla Hilde – athygli kraftmikið
trommusóló Benitu Haastrup, er lauk sér af
í glettinni samvinnu við Helle Marstrand.
Rödd og kontrabassi voru ein saman í hinu
meinfyndna „Easy Money“, þó að raddbeit-
ingin væri ekki jafnbiksvört og lagið krafð-
ist. Annars hefði verið gaman – og ólíkt
persónulegra – að fá líka að heyra eitthvað
á syngjandi norsku, en því var ekki að
heilsa þetta kvöld.
Eftir lúshæga og vankynnta ballöðu end-
aði fereykið með Round Midnight eftir
meistara Monk, þar sem söngurinn höfðaði
kannski hvað sízt til manns, en spilið því
meira; sérstaklega fjölskrúðugar hljóm-
borðsbaldýringar Schmidts er héldu ágætri
athygli án þess að þurfa að reiða sig á súð-
væðustu hraðatækni. Kvöldinu lauk með
samstilltu átaki innfæddra sem erlendra í
„Freddie Freeloader“ Miles Davis við al-
menna ánægju og hlýjustu undirtektir.
Minjadjass og
kvennadjass
TÓNLIST
Súlnasalur
Minningartónleikar Jazzvakningar um Jón Kaldal.
Ellen Kristjánsdóttir söngur, Sigurður Flosason A-
sax, Rúnar Georgsson T-sax, Ólafur Jónsson T-sax,
Björn Thoroddsen gítar, Gunnar Hrafnsson kontra-
bassi, Guðmundur Steingrímsson trommur, Eyþór
Gunnarsson píanó, Jóhann Ásmundsson rafbassi,
Jóhann Hjörleifsson trommur, Pétur Grétarsson
kongótrommur. Hilde Hefte söngur ásamt tríóinu
Sophisticated Ladies (Marie Schmidt píanó, Helle
Marstrand bassi og Benita Haastrup trommur).
Kynnir: Vernharður Linnet. Fimmtudaginn 26. júní
kl. 20:30.
DJASSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Leikhús
Borgarleikhúsið Grease,
sun., fim., fös., sun.
PÉTUR Már
Gunnarsson
heldur sína
fyrstu einkasýn-
ingu í Kling og
Bang galleríi á
Laugavegi 23
og hefst hún í
dag, laugardag-
inn 28. júní, kl.
17.
Pétur útskrif-
aðist úr
Listaháskóla Ís-
lands árið 2002 og hefur tekið
þátt í og staðið fyrir fjölda sýn-
inga hérlendis síðan. Pétur
mun að eigin sögn sýna vand-
aða skúlptúra og fallegar mynd-
ir sem unnar hafa verið upp úr
klisjukenndum hugmyndum
sem umbreytast í eitthvað nýtt.
Sýningin stendur til og með
13. júlí. Gallerí Kling & Bang,
Laugavegi 23, er opið fimmtu-
daga til sunnudaga frá kl. 14–
18.
Umbreyttar
klisjur
Tvífari lista-
mannsins, Vest-
ur-Íslending-
urinn Þórður
Diðriksson.
Af sögusýningu um Breiðholtið.
Skálholtsskóli: Björg Þor-
steinsdóttir. Til 1.9.
Þjóðmenningarhúsið: Ís-
landsmynd í mótun - áfangar
í kortagerð. Til 8.8. Hand-
ritin. Landafundir. Íslend-
ingasögur á erlendum mál-
um.
Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12, 2 hæð:
Sumarsýning Handverks og
hönnunar. Til 31.8.
Hótel Djúpavík: Sýning
Tolla Morthens. Til 6.9.
Sólon Íslandus: Rósa Matt.
Til 25.7.
Kirkjuhvolur, Akranesi:
Áslaug Woudstra Finsen og
Rebekka Gunnarsdóttir. til
6.7.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.