Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.2003, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.2003, Page 5
og Ólafs saga Tryggvasonar og Kristni saga greina, virðist fremur verið að lýsa undri og stórmerkjum en raunverulegum atburðum.9 Hægt er að taka undir þau orð Sigurðar Líndals að frásagnir nefndra heimilda af kristnitökunni virðist fela í sér ósættanlegar andstæður. Meginvandi rannsóknar á kristni- tökunni á Íslandi hefur einmitt verið í því fólginn að skýra andstæðar frásagnir og jafn- framt hugsanlega að finna öllum fráleitum lýsingum stað í heillegri, skiljanlegri, trúlegri og rökréttri atburðarás. Hugmyndaheimur tíundu aldar Íslendinga er okkur nútíma- mönnum framandi, en frásagnirnar verður að meta með hliðsjón af þeim gildum sem þá voru í heiðri höfð. Í Kristni á Íslandi birtir Hjalti Hugason ræðu Hjalta Skeggjasonar úr Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu og segir síðan: Frásaga þessi sýnir að menn hugsuðu sér að tvö þing færu samtímis fram á Þingvöll- um. Hún er þó um margt tortryggileg. Mannblót hafa verið fátíð ef ekki óþekkt hér á landi. Þá er ólíklegt að hugmyndir manna um kristilegt líferni og jafnvel einsetulíf hafi verið jafnmótaðar um aldamótin 1000 og fram kemur í ræðu Hjalta. Sögnin sýnir aft- ur á móti vel þá spennu sem miðaldahöf- undar tengdu við trúarbragðaskiptin og þær skörpu andstæður sem ríktu í hugum þeirra milli heiðni og kristni.10 Að sjálfsögðu er ræða Hjalta Skeggjasonar í Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu fyrst og fremst heimild um það hvernig kristnir helgisagnaritarar hugsuðu og rituðu á fjór- tándu öld, en sem heimild um atvik á kristni- tökuþinginu hefur hún mjög takmarkað sjálf- stætt gildi. Guðfræðihugmyndir nýskírðra Íslendinga hafa trúlega ekki verið upp á marga fiska eins og Hjalti Hugason tekur réttilega fram, en þó má ekki gleyma séra Þormóði, sem gat lagt sitthvað bitastætt til mála á þeim vettvangi. Um mannblót á Ís- landi í heiðnum sið verður nánar rætt hér á eftir. Þá er rétt að víkja að frásögn Kristni sögu af atvikum. Magnús Már taldi á sínum tíma litlum vafa undirorpið að Sturla Þórðarson (d. 1284) hefði ritað Kristni sögu og hefðu heimildir hans verið Íslendingabók og Ólafs saga Tryggvasonar eftir Gunnlaug Leifsson frá öndverðri þrettándu öld, eldri gerð Ólafs sögu Tryggvasonar hinnar mestu, auk Lax- dælu og rita sem nú eru glötuð.11 Í Kristni sögu sjálfri eru nokkur atriði sem skipta máli þegar heimildin er metin: 1. Kristnir menn kalla viðbrögð sín sigur- gjöf til Jesú Krists. Þetta minnir á hugtakið sigurblót, heiti sem í heiðnum sið var haft um blót til Óðins er gjarna var gripið til þegar mikið lá við í blóðugum og örlagaríkum átök- um. Þetta heiti, sigrgjöf, gæti því bent til þess að frásögnin feli í sér fornan kjarna.12 2. Ingileif, sem hvergi er nefnd annars staðar, mun hafa verið langamma Kolskeggs fróða sem ritaði elstu gerð Landnámabókar ásamt Ara. Þessi staðreynd bendir einnig til gamals kjarna blótfrásagnarinnar í Kristni sögu. 3. Blótfrásögnin sjálf er hlutlaus og for- dómalaus. Heiðingjum er ekki lagt til lasts að þeir skuli blóta, heldur einungis bent á að þeir færi guðum sínum að fórn hina „verstu menn“, sem munu hafa verið sakamenn. Hvað hlutlæga framsetningu snertir, þá svip- ar frásögunni allri mjög til blótfrásagna sem skráðar voru hér á landi fyrir miðja tólftu öld. Annars staðar hefur komið fram, að Sturla Þórðarson, líklegasti höfundur Kristni sögu, hefur markvisst fjarlægt blótfrásagnir úr sinni gerð Landnámabókar og einungis tekið með þær blótsögur sem ætla má að hafi verið skráðar af Ara fróða eða öðrum álíka traustum sagnariturum. Sturla virðist sam- kvæmt þessu tvímælalaust hafa litið á mann- blótið á Þingvöllum sem sögulega staðreynd. 4. Sérkennilegir útúrdúrar í frásögn af við- brögðum kristinna manna viö mannblóti heið- ingja hafa yfir sér ótvíræðan sennileikablæ og minna auk þess mjög á rithátt Ara fróða. Að samanlögðu benda öll þessi atriði til þess að frásögnin um mannblótið á Þingvöll- um sé gömul og gild.13 Mannblót á Íslandi Frásagnir fornra heimilda um mannblót á Íslandi í heiðnum sið eru fáar og brota- kenndar, svo sem að líkum lætur, enda skráðar eftir að landið hafði verið kristið svo öldum skipti. Sem menningarsögulegar heim- ildir eru þessar blótsögur þó margar hverjar ótvíræðar og haldgóðar. Samanburðarrann- sóknir hafa einnig reynst þess umkomnar að varpa nýju ljósi á eðli og inntak umræddra blótsagna og þannig hefur fengist furðugóð mynd af því hvernig mannblót fóru fram hér á landi og hver tilgangur þeirra var. Í ritgerð sem birtist í Skírni árið 1999 dró ég fram áþekk atriði í blótsiðum Semnóna sem Tacítus greinir frá að sögn staðkunn- ugra samtímamanna og blótsiðum á Þórs- nesþingi á Snæfellsnesi sem Ari fróði hefur að líkindum skráð. Það sem að minni hyggju skar úr um skyldleika í blótsiðum á þessum stöðum var að traustar heimildir voru fyrir því að á báðum stöðum hafi verið brotin bein þeirra manna sem blótað var.14 Sama aðferð, að bein fórnarmannsins eða fórnarlíksins hafi verið brotin, blasir við í fleiri íslenskum blótfrásögnum. Þannig bað heiðið skáld, Þorvaldur veili, Úlf Uggason í vísu að senda Þangbrand trúboða og hjálpar- hellu hans, Guðleif Arason, fyrir gnýskúta Geitis (hamra). Um þessa vísu sagði Ólafur Lárusson: Örlögin sem Þorvaldur ætlaði Þangbrandi og Guðleifi geta verið hvorttveggja í senn, refsing og blót, því dauðarefsing var blót.15 Í umfjöllun sinni um vísu Þorvalds veila vék Ólafur Lárusson að því sem segir í Við- auka Skarðsárbókar um óaldarvetur í heiðni: … sumir letu drepa gamalmenni oc omaga. oc hrinda fyrir hamra.16 og segir í framhaldi: Að hér er sérstakri líflátsaðferð beitt, sýn- ir það og, að um meira en það eitt er að ræða, að létta ómögum af fóðrunum. Hér hefur líka verið um helgisið að ræða, mann- blót til árs.17 Mat Ólafs Lárussonar á frásögn Viðauka Skarðsárbókar fær stuðning í frásögn Reyk- dæla sögu ok Víga-Skúta af sviplíkum að- gerðum. Þar segir: Þá gerði vetr mikinn þar eptir inn næsta, ok eigu þeir fund, Reykdælir at Þverá, at Ljóts hofgoða. Ok þat sýndisk mönnum ráð á samkomunni, at heita til veðrbata. En um þat urðu menn varla ásáttir, hverju heita skyldi. Vill Ljótr því láta heita, at gefa til hofs, en bera út börn ok drepa gamalmenni. En Ás- katli þótti þat ómæliligt ok kvað engan hlut batna mundu við þat heit, …sagði, at ráðligra var at gefa skaparanum tign 18 Auðvelt er að taka undir þau rök Ólafs Lárussonar að tilfærð dæmi sýni svo ekki verði um villst, að mannblót hafi verið framin á Íslandi í norrænum sið og hinum fórnfærðu mönnum varpað fyrir björg eða hamra. Virð- ist þar um hliðstæða aðferð að ræða við mannblót þau sem fyrr var að vikið í Semnónalundi og á Þórsnesþingi þar sem bein fórnfærðra manna voru brotin. Þessi síðustu samanburðardæmi renna styrkum stoðum undir þá ályktun að raunverleg mannblót hafi verið framin á kristnitöku- þinginu. Hárrétt viðbrögð heiðingja Í þeim dæmum sem tilfærð hafa verið hér að framan hafa birst sterkar vísbendingar um að mannblót hafi í raun verið framið á Þingvöllum á síðasta degi heiðninnar. Í því ljósi er rétt að varpa fram þeirri spurningu hvort slíkt mannblót hafi getað þjónað sér- stökum tilgangi að skilningi heiðinna tíundu aldar Íslendinga. Saga trúarbragðanna hefur svar við þessu. Í hugmyndaheimi fjölgyðistrúarbragða var mannblót gjarna talið æðst blóta. Sú hug- mynd á rætur að rekja til sköpunarblóts sem heimildir eru um að víða hafi verið framin í grárri forneskju. Sköpunargoðsögur sem lýsa nánar þessum blótum hafa verið dregnar fram í mörgum löndum. Þær greina að jafn- aði frá því að fyrstu mannveru eða einhverri annarri lífveru hafi verið fórnað, líkaminn hlutaður sundur og jörð og himinn gerð úr hlutunum. Einn allrafremsti goðsagnafræð- ingur síðustu aldar, Mircea Eliade, hefur fjallað sérstaklega um fjölda dæma um þess- ar sköpunarsögur árdaga sem greina frá fórninni sem færð var í heimssköpunar- blótinu. Í þeim flokki er goðsagan um ger- manska frummanninn Tvistó, sem Tacítus greinir frá að Mannus, sonur Tvistós, hafi fórnað, og einnig goðsagan um Ými sem syn- ir Bors fórnuðu. En þar með er sagan ekki öll sögð. Óskapnaðaröflin voru álitin vinna stöðugt gegn viðgangi og framþróun hins skapaða heims og því varð jafnan á ákveðnum fresti að endurtaka eftirlíkingu upprunalegs sköpunarblóts til að tryggja til frambúðar sigur sköpunar yfir óskapnaði. Af þessum sökum var mannblót til eflingar hinni sköpuðu tilveru árviss athöfn í fjölgyðistrúar- brögðum hvarvetna þar sem mannveru hafði verið fórnað í sköpunarblótinu.19 Þá vík ég aftur að magnþrunginni atburða- rás á Þingvöllum, þar sem kristnir menn og heiðnir höfðu sagt sig úr lögum hvorir við aðra.20 Þeir höfðu með þeim gjörningi leyst upp lögbundið samfélag sem menn eins og Þórólfur Mostrarskegg höfðu grundvallað, að öllum líkindum með mannblóti, í upphafi byggðar á landnámsöld og Þórður gellir og hans samtímamenn eflt og magnað, vænt- anlega með nýjum mannblótum, á tíundu öld- inni.21 Við úrsögn úr lögum höfðu óskapnað- aröflin hins vegar náð undirtökunum á Íslandi í svipinn. Ringulreið var brostin á. Andspænis þessum válegu atvikum var að- eins eitt úrræði að skilningi heiðinna Íslend- inga: Mannblót. Mannblót í líkingu uppruna- legs sköpunarblóts. Mannblót, þar sem bein fórnarmannanna voru brotin. Mannblót sem tók mið af stjórnskipan í hinu forna lög- bundna samfélagi og fórnaði tveimur mönn- um úr hverjum fjórðungi landsins. Mannblót í líkingu við það sem Kristni saga og Ólafs saga Tryggvasonar hin mesta greina frá. Mannblótið á Þingvöllum er því skóladæmi um hárrétt viðbrögð heiðinna manna á ör- lagaríkri úrslitastund. Heimildir: 1 Hjalti Hugason 2000. Kristni á Íslandi I. „Frum- kristni og upphaf kirkju“. 2 Sigurður Líndal 1974: „Upphaf kristni og kirkju“, Saga Íslands I. Ritstj. Sigurður Líndal, 227-288. Ström- bäck, Dag, 1975: The Conversion of Iceland. 3 Jón Hnefill Aðalsteinsson 1971 (1999): Kristnitakan á Íslandi. Sami 1978 (1999): Under the Cloak. 4ÍF I 1968, 16-17. 5 „Kristnisaga“ í ASB 11, 38-41. Útg. B. Kahle 1905. 6Ólafs saga Tryggvasonar en mesta 1961, 191-4. 7 Björn M. Ólsen 1900: Um kristnitökuna árið 1000 og tildrög hennar, 86. Jón Jóhannesson 1956: Íslendinga- saga I. Þjóðveldisöld, 160-166. 8 Halldór Laxness 1973: „Forneskjutaut“, Skírnir, 23- 24. 9 Sigurður Líndal 1974, 248. 10 Hjalti Hugason 2000: Kristni á Íslandi I, 94. Í at- hugagrein um mannblótið segir neðanmáls: Sjá þó Ólaf- ur Lárusson 1958b: 137-141. 11 Magnús Már Lárusson 1964: KHL IX, 356. 12 Ég þakka Terry Gunnell fyrir að hafa vakið athygli mína á þessu atriði. 13 Sjá ennfremur Jón Hnefill Aðalsteinsson 1999: Kristnitakan á Íslandi, 209-246 og tilv. rit. 14 Jón Hnefill Aðalsteinsson: „Mannblót í Semnóna- lundi og á Þórsnesþingi“. Skírnir 1999, 370-371 og tilv. rit. Sami 2001: „Mannblót í norrænum sið“. Kontinuität und Brüche in der Religionsgeschichte, Festschrift für Anders Hultgård, 1-11. Sami: Kristnitakan á Íslandi 1999, 219 og tilv. rit. 15 Ólafur Lárusson 1958: „Vísa Þorvalds veila“. Lög og saga, 141. 16Skarðsárbók 1958, 189. 17 Ólafur Lárusson 1958: „Vísa Þorvalds veila“. Lög og saga, 138. 18ÍF X, 169-170. 19 Eliade, Mircea, 1959: The Sacred and the Profane. The Nature of Religion, 100-102. Sami 1974: The Myth of the Eternal Return, 21-27 og tilv. rit. Sami 1983: Patt- erns in Comparative Religion, 97: 400-401 og tilv. rit. 20 Ég leyfi mér að vekja sérstaka athygli á því, að ágreiningslaust er meðal fræðimanna að umrædd upp- lausn hins lögbundna samfélags hafi raunverulega átt sér stað. 21 Sbr. Jón Hnefill Aðalsteinsson 1999: „Mannblót í Semnónalundi og á Þórsnesþingi“. Skírnir, 371 og tilv. rit. Á ÞINGVÖLLUM Morgunblaðið/Ómar Höfundur er prófessor. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 2. ÁGÚST 2003 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.