Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003
EDINBORG í Skotlandi iðar
bókstaflega af lífi og fjöri allan
ágústmánuð, en þá stendur yfir
fjöldi hátíða í borginni og má
nefna, auk alþjóðlegrar listahá-
tíðar, bókahátíð, djasshátíð,
kvikmyndahátíð og jaðarhátíð-
ina Edinburgh Fringe Festival
sem ekki er hvað síst þekkt fyrir
uppistand og gamanleiki. En
meðal þeirra sem þar koma fram
þetta árið er Aaron Barschak
„gamansami hryðjuverkamað-
urinn“ sem vakti mikla athygi er
hann gerðist boðflenna í afmæl-
isveislu Vilhjálms Bretaprins nú
fyrr í sumar.
Alþjóðlega listahátíðin, hin
svo nefnda Edinborgarhátíð,
hefst á morgun sunnudag og
stendur til 30. ágúst. Að venju
verður fjöldi viðburða í boði og
má nefna sem dæmi flutning á
Niflungahring og Lohengrin
Wagners, Mávinum eftir Tsjek-
hov, sinfóníum Brahms og hefð-
bundinni kínverskri, japanskri
og indverskri tónlist. Þá mun
Fílharmóníusveit Los Angeles-
borgar koma fram á hátíðinni og
einnig verður þar í boði sýningin
Picasso og dansinn, en verkið er
óður til frumlegra og byltingar-
kenndra dansverka rússneska
dansahöfundarins Serge Diaghi-
lev og þeirra áhrif sem verk
listamanna á borð við Pablo
Picasso höfðu á þróun dansins.
Breytingar hjá Kon-
unglega leikhúsinu
UM þriðjungur leikara við kon-
unglega leikhúsið í Kaupmanna-
höfn missir vinnuna er Mikkel
Harder Munck-Hansen tekur við
stafi leiklistarstjóra í júlí á næsta
ári að því er greint var frá í
danska dagblaðinu Politiken á
dögunum.
Þegar hefur sjö leikurum ver-
ið sagt upp störfum, en þeir eiga
allt frá 6 og upp í 16 ára feril að
baki hjá leikhúsinu. Hvorki
Munck-Hansen né leikhússtjór-
inn Michael Christiansen hafa
viljað tjá sig um málið en stað-
festa þó að leikararnir verði ekki
á launaskrá leikhússins frá og
með næsta sumri. Þegar hafa
þrír nýir leikarar, þau Sonja
Richter, Maria Rossing og Helle
Fagralid, hlotið fastráðningu við
leikhúsið og eru nú uppi getgát-
ur um hverjir aðrir muni fylla í
skörðin. Hafa nöfn einna 20 leik-
arar verið nefnd í því samhengi,
m.a. þau Sofie Gråbøl, Nicolaj
Lie Kaas, Anders W. Berthelsen
og Trine Dyrholm.
Að sögn Politiken ætla stjórn-
endur leikhússins að stækka
leikhópinn, sem í dag saman-
stendur af 23 fastráðnum leik-
urum, og hleypa einnig nýju lífi í
leikhússtarfið með því að nota
lausráðna leikara í auknum
mæli.
Líf og fjör
í Edinborg
ERLENT
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Edinborg iðar af lífi í ágúst.
Konunglega leikhúsið
LISTASAFN Reykjanesbæjar virðist ætla að
halda tryggð við málverkið í sýningum sínum en
nú sýnir þar listakonan Sossa rúm þrjátíu mál-
verk. Sossa, eða Soffía Margrét Björnsdóttir eins
og hún heitir fullu nafni nam við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og síðar við Skolen for
Brugskunst í Kaupmannahöfn en hún hefur einn-
ig sýnt verk sín þó nokkrum sinnum þar í borg.
Á síðustu árum hefur Sossa þróast frá fíg-
úratífu málverki þar sem manneskjan var í fyrir-
rúmi yfir í málverk sem eru einhvers staðar mitt á
milli hins hlutbundna og hins óhlutbundna. Verk-
in sem hún sýnir nú eru uppbyggð af ferhyrndum
formum sem ýmist mynda sjálfstæða óhlut-
bundna heild eða vísa til bygginga, húsaþyrpinga.
Það er þó ljóst að hún hefur ekki stigið skrefið yfir
í hið óhlutbundna til fulls, það má m.a. sjá af nöfn-
um verkanna, eins og Jafndægur, Uppstytta,
Kvöldsól, Hafís, Ljósaskipti osfrv. Litanotkun
Sossu er heit og skrautleg og verk hennar eiga
það flest sameiginlegt að vera falleg ásýndum.
Sýning Sossu í Listasafni Reykjanesbæjar vek-
ur spurningar. Hvernig á að skoða verk af þess-
um toga og hvaða kröfur á að gera til listamanns-
ins? Sossa fetar margtroðnar slóðir í verkum
sínum. Persónulega er hún að færa sig frá fíg-
úratífum myndum yfir í að nokkru leyti óhlut-
bundnar. Það er visst skref í hennar þróun. Fyrir
áhorfendur hefur þessi þróun kannski minni þýð-
ingu, hér er unnið með allt að því aldargömul hug-
tök innan málaralistarinnar. Það sem eitt sinn var
hugsjón, lífsspursmál, það sem listamenn á borð
við Svavar Guðnason og fleiri voru úthrópaðir fyr-
ir á sínum tíma hér á landi, vel að merkja löngu
eftir að óhlutbundin list ruddi sér til rúms, er nú
orðið að vel þekktu tungumáli sem listamenn í
dag geta leikið sér með að vild. Engan veginn er
hægt að gefa slíkum verkum vægi sem er nokkuð
í líkingu við það sem slík verk höfðu á sínum tíma.
Eftir stendur þá spurningin um hvernig ber að
skoða verk eins og málverk Sossu. List hennar er
á engan hátt framsækin innan samtímalistar og
hefur þar af leiðandi lítið vægi í slíku samhengi.
Þær kröfur sem þá standa eftir eru helst á grund-
velli færni hennar í að fara með pensil og liti og
þar stendur hún sig með ágætum. Ekki síst eru
þær myndir sem hvað minnst vísa í þekktan hlut-
veruleika áhugaverðar, þar sem hún leyfir sér að
vinna frjálst með með liti og form.
Saltfisksetur Íslands heitir eitt af nýrri söfnum
á landsbyggðinni en það er staðsett í Grindavík og
sýnir sögu saltfiskveiða og saltfiskvinnslu á land-
inu. Í safninu er einnig að finna sal sem nota má
fyrir listræna viðburði, fyrirlestra eða listsýning-
ar eins og nú er gert. Nú sýnir Daði Guðbjörnsson
málverk í salnum en þar er í boði einn sæmilegur
veggur þar sem hengja má tvívíð verk og nokkuð
gólfpláss þar sem koma mætti fyrir þrívíðum
verkum. Þetta er ekki svo slæmur salur og for-
vitnilegt að sjá hvort framhald verður þar á list-
sýningum.
Daða Guðbjörnsson þarf tæpast að kynna enda
hefur hann fyrir löngu unnið sér sess sem einn af
okkar vinsælustu málurum með skrautlegum og
sérstökum myndverkum sínum sem öll bera höf-
undareinkenni hans án þess að um verði villst.
Hann sýnir nú ellefu málverk sem öll tengjast
hafinu og djúpinu. Daði hefur alltaf verið frásagn-
armálari og svo er einnig hér. Myndir hans segja
sögu og fela gjarnan í sér húmor, en eru um leið
hrein myndræn upplifun. Oft er myndflöturinn
lagskiptur þar sem símynstur líkt og veggfóðurs-
mynstur er að finna yfir allan flötinn, stundum er
lögð enn meiri áhersla á mynstrið með samhverf-
um eða þá að mynstrið dreifist yfir mynd sem að
öðru leyti er einföld að gerð. Hér notar hann öld-
ur sem spegla veggfóðursmynstrið og notfærir
sér óspart möguleikana á heitum og skærum lit-
um sem sýna djúpan bláma hafsins, rauða fiska,
eða gullna sólargeisla á öldutoppum. Í verkum
Daða sem eru mjög persónuleg má ávallt finna
góðan skammt af íslenskum veruleika og
sagnaheimi, skrautleg verk hans geta jafnvel
minnt á verk Sölva Helgasonar og verk alþýðu-
málara, þó er Daði aldrei bernskur, til þess eru
myndir hans of fágaðar. Litanotkun hans og
myndmál hafa líka yfir sér evrópskan, jafnvel
suðrænan blæ.
Daði er einn af þeim listamönnum sem snemma
finna sér sitt myndmál og halda síðan sínu striki
hvað sem á gengur. Slík vinnubrögð geta leitt til
stöðnunar og endurtekningar en í þeim verkum
sem Daði sýnir hér sem eru af stærri gerðinni og
nokkuð kraftmikil vinnur hann af sköpunargleði
og ástríðu sem forðar honum frá þeirri hættu.
Daði hefur í gegnum árin fetað viðkvæma
braut, sum verka hans má flokka undir skreytilist
og það hefur gengið illa að setja hann á ákveðinn
bás. Það er jafnan jákvætt þegar illa gengur að
flokka fólk, það ber vott um sjálfstæða sýn sem
gengur á skjön við viðteknar venjur. Því má held-
ur ekki gleyma að hér á landi er hann einstæður í
sinni list, hann hefur þróað sitt myndmál á per-
sónulegan hátt og stendur fast á skoðunum sín-
um. Honum er í mun að ná til almennings og það
gerir hann svo sannarlega. En þó að myndir hans
séu nú flestum kunnar og falli vel í geð hafa verk
hans líka ögrað, í eina tíð þóttu myndir hans full
erótískar og einmitt það hversu skrautlegar þær
eru átti ekki upp á pallborðið í upphafi, það tók
hann sinn tíma að ná til fólks.
Daði sýnir hér með ágætum að hann er enn
listamaður í þróun, innan síns persónulega mynd-
heims heldur hann sínu striki.
MYNDLIST
Listasafn Reykjanesbæjar
Til 31. ágúst. Safnið er opið alla daga frá kl. 13–18.
MÁLVERK, SOSSA
Ragna Sigurðardóttir
Ljósmynd/Ragna Sigurðardóttir
Leikur að litum og formum í málverki Sossu í Listasafni Reykjaness.
Ljósmynd/Ragna Sigurðardóttir
Bátur á blárri öldu. Daði Guðbjörnsson sækir innblástur í djúp hafsins.
Listsýningarsalur Saltfiskseturs Íslands,
Grindavík
Til 31. ágúst. Saltfisksetrið er opið
alla daga frá frá kl. 11–18.
MÁLVERK, DAÐI GUÐBJÖRNSSON
Málverk í sumarhita