Lesbók Morgunblaðsins - 09.08.2003, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. ÁGÚST 2003 15
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurlaug Stefánsdóttir Knudsen og Blake Fischer, en á
myndina vantar Martyn Parkes.
SÖNGTÓNLEIKARverða í Norrænahúsinu á morgun,sunnudag, kl.
14.30. Þar koma fram Sig-
urlaug Stefánsdóttir
Knudsen sópran, Blake
Fischer tenór og Martyn
Parkes píanóleikari, en
þau búa öll og starfa í
Bretlandi.
Nýverið var
Fischer ráð-
inn hjá
Glyndbo-
urne-
óperunni og
hefur hann störf í haust.
Sigurlaug syngur um þess-
ar mundir í Sumaróperu
Reykjavíkur og fer þar
með hlutverk Vallettos og
Virtu í Krýningu Poppeu
eftir Monteverdi. Parkes
er mikils virtur meðleikari
og hefur m.a. starfað með
Hallé Symphony Orch-
estra, BBC Symphony og
er fastráðinn meðleikari
hjá Royal Northern Coll-
ege of Music. Að sögn Sig-
urlaugar verður efnisskrá
tónleikanna á morgun tví-
skipt. Fyrir hlé verða
fluttir ljóðaflokkarnir
Fraun Lieben und Leben
eftir Schumann og Op. 27
eftir Strauss, en eftir hlé
verður dagskráin á léttari
nótum og flutt þekktar óp-
eruaríur og lög úr
Broadway-söngleikjum.
Hafið þið starfað lengi
saman?
„Já, við höfum haldið
talsvert af tónleikum sam-
an úti. En Blake og
Martyn hafa starfað sér-
staklega mikið saman því
þeir halda tónleika nánast
vikulega.“
Hvernig kom það til að
þið ákváðuð að halda tón-
leika hér heima?
„Martyn hefur nú alltaf
verið volgur fyrir því að
koma til Íslands, en þetta
er í fyrsta skiptið sem
hann kemur hingað. Blake
hefur hins vegar komið
hingað áður, t.d. fyrir
tveimur árum þegar við
héldum tónleika saman.
En í þetta skiptið sóttumst
við sérstaklega eftir því að
fá Martyn með okkur og
hann reyndist afar spennt-
ur fyrir því að koma, okk-
ur til mikillar ánægju.“
Af hverju varð þessi
ákveðni ljóðaflokkur Schu-
manns fyrir valinu?
„Sagan sjálf í þessum
ljóðaflokki er svo falleg og
talar sterkt til mín, enda
þroskasaga konu frá því
hún er áttavilltur ungling-
ur og þar til hún verður
að fullorðinni konu. Þar
fyrir utan hefur ljóða-
flokkurinn alltaf verið í
miklu uppáhaldi hjá mér,
en það var amma mín sem
kynnti mér hann fyrir
mörgum árum. Síðan þá
hefur mig alltaf langað til
þess að syngja hann og
hafði svo tækifæri til þess
fyrir hálfum öðrum mán-
uði, en þá söng ég hann á
tónleikum úti. Óneitanlega
er afskaplega gaman að
geta sungið hann hérna
heima líka.“
Hvað ætlið þið svo að
bjóða upp á eftir hlé?
„Við verðum með smá
lagaflokk úr Töfraflaut-
unni eftir Mozart og Sög-
ur úr Vesturbænum eftir
Bernstein, auk þess sem
við flytjum nokkrar aríur
t.d. úr Manon eftir
Massenet. Að endingu
verðum við með smá grín-
lög á borð við Let́s call the
whole thing off og fleiri
gullmola.“
Hvers vegna völduð þið
Norræna húsið?
„Það er bara svo gott að
syngja þar, því það hentar
sérstaklega vel fyrir
ljóðatónleika. Nálægðin
við áheyrendur er mikil,
en samt er hljómburð-
urinn góður og allt berst
svo vel. Í raun finnst mér
frekar sérkennilegt að það
sé ekki notað meira til
söngs, því þetta er frábær
salur.“
Þroska-
saga konu
STIKLA
Söng-
tónleikar í
Norræna
húsinu
Næsta v ika
Laugardagur
Hafnarhúsið við Tryggva-
götu
Kl. 14 Smekkleysubíó: Björk
Vespertine live at Royal Opera
House.
Kl. 16. Smekkleysubíó: Björk
Live at Shepherds Bush.
Kl. 18 Smekkleysukaraókí: Í
samstarfi við Gay
Pride. Kynnir og
formaður dóm-
nefndar er Rósa
Ingólfsdóttir.
Dómnefnd skipa
einnig Bogomil
Font og Margrét
Örnólfs. Veitt
verða verðlaun, geisladiskar að
eigin vali frá Smekkleysu, fyrir
frumlegustu sviðsframkomu,
besta frumsamda textann og
besta búninginn.
Hallgrímskirkja kl. 12
Danski organistinn Christian
Præstholm frumflytur orgel-
verkið Mynstur (Patterns) eftir
eitt af efnilegustu tónskáldum
yngri kynslóðarinnar hér á Ís-
landi, Gunnar Andreas Krist-
insson.
Hánefsstaðarreitur, Dalvík
kl. 18 Leik-
félagið Sýnir
bregður sér í
leikferð og
sýnir eina
sýningu af
Draumi á
Jónsmessunótt.
Reykholtskirkja kl. 20.30
Marteinn H. Frið-
riksson dómorg-
anisti lýkur tón-
leikaröð
sumarsins við
orgelið í Reyk-
holtskirkju. Mar-
teinn mun á laug-
ardaginn leika verk eftir
íslenska höfunda og J.S. Bach.
Reykjahlíðarkirkja, Mý-
vatni, kl. 21 Svava Kristín
Ingólfsdóttir, mezzosópran,
Ingibjörg Guðlaugsdóttir, bás-
úna, og Magnús Ragnarsson,
píanó, flytja fjölbreytta efnis-
skrá með íslenskri og norrænni
tónlist. Þau hafa öll numið og
starfað í Gautaborg og kynnt
íslenska tónlist í Svíþjóð. Mörg
verkanna sem þau flytja eru
sérstaklega löguð að hljóð-
færaskipan þeirra.
Sunnudagur
Hafnarhúsið, Tryggvagötu
Kl. 14 Smekkleysubíó: Björk
Vespertine live at Royal Opera
House.
Kl. 15 Ólafur Engilbertsson
með leiðsögn um sýningu
Smekkleysu, Humar eða frægð.
Kl. 16 Smekkleysubíó: Björk
Live at Shepherds Bush.
Hallgrímskirkja kl. 20 Á
sjöttu kvöldtónleikum Sumar-
kvölds við orgelið þetta árið
flytur þýski organistinn og
stjórnandinn Johannes Skudlik
þýska og franska orgeltónlist.
Norræna húsið kl. 14.30
Sópransöngkonan Sigurlaug
Stefánsdóttir Knudsen og ten-
órsöngvarinn Blake Fischer frá
Ástralíu halda söngtónleika.
Undirleikari er Martyn Parkes
frá Bretlandi. Aðgangseyrir er
1.200 kr.
Ash Gallerí, Lundi, Varma-
hlíð, kl. 14 Stef við síldaræv-
intýri. Ólafur Sveinsson mynd-
listarmaður opnar sýningu á
olíupastelmyndum sem allar
eru unnar árið 2000.
Þetta eru skissur sem unnar
voru sama ár fyrir myndröð
málverka frá Síldarverk-
smiðjum Kveldúlfs á Hjalteyri.
Sýningin stendur til 31. ágúst
frá 10 til 18 alla daga.
Allir eru velkomnir á opn-
unina eða síðar.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 17.30 Eingöngu
verða leikin verk eftir Franz
Schubert. Við þetta tækifæri
munu bandarískir og íslenskir
hljóðfæraleikarar stilla saman
strengi sína. Fyrst flytja Hlíf Sig-
urjónsdóttir fiðluleikari, Robert
La Rue sellóleikari og Adrienne
Kim píanóleikari tríó í Es-dúr
ópus 100 – D 929. Seinna
verkið á efnisskrá er Píanó-
kvintett í A dúr ópus 114 – D
667, Silungakvintettinn, og þá
mæta einnig til leiks þau Guð-
rún Þórarinsdóttir víóluleikari
og Þórir Jóhannsson bassaleik-
ari. Bandaríska sendiráðið á Ís-
landi styrkir tónleikana.
Listasafn Árnesinga kl. 16
Opnun á sýn-
ingu í öllum söl-
um safnsins,
sem er hluti af stærra verkefni
sem er styrkt af Menningar-
borgarsjóði. Umsjón verkefn-
isins er í höndum Birnu Kristj-
ánsdóttur, forstöðumanns
safnsins, og listamannanna
Hönnu Christel Sigurkarlsdóttur
og Melkorku Þ. Huldudóttur.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 20.30 Hlíf Sigur-
jónsdóttir fiðluleikari, Robert La
Rue sellóleikari og Adrienne
Kim píanóleikari. Á efnisskrá
eru verk eftir Jónas Tómasson,
Sjostakovítsj og Paul Schoen-
feld.
Föstudagur
Norræna húsið kl. 21 Nor-
ræna tríóið Koppel – And-
ersson – Gunnarsson. Að-
gangseyrir: Kr. 1.200. Tríóið
Koppel – Anderson – Koppel
spilaði í Norræna húsinu á
menningarnótt 2001 fyrir troð-
fullu húsi. Benjamin Koppel nýt-
ur styrks frá Norræna menn-
ingarsjóðnum til að ferðast á
milli Norðurlandanna og spila
með heimamönnum.
Frá uppfærslu
leikhópsins Sýnis.
Marteinn H.
Friðriksson
Bogomil Font
mun dæma
keppnina.
almenningssjónir. Til
1.9.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Sossa Björns-
dóttir. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur
– Ásmundarsafn: Ás-
mundur Sveinsson – Nú-
tímamaðurinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur
– Hafnarhús: Innsýn í
alþjóðlega myndlist á Ís-
landi. Til 7.9. Erró –
stríð er ný þemasýning
úr Erró-safneigninni. Til
3.1. Humar eða frægð –
Smekkleysa í 16 ár. Til
31.8.
Listasafn Reykjavíkur
– Kjarvalsstaðir: Nýir
tímar í íslenskri sam-
tímaljósmyndun. Til
17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýn-
ingin Andlitsmyndir og
afstraksjónir. Til 1.9.
Ljósmyndasafn
Reykjavíkur, Gróf-
arhúsi: Claire Xuan. Til
1.9.
Norræna húsið: Nor-
ræn fílasýning. Til 17.8.
Vestan við sól og norðan
við mána. Ragnar Th.
Sigurðsson ljósmyndari
og Ari Trausti Guð-
mundsson rithöfundur
og jarðeðlisfræðingur.
Til 31.8.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands,
Eyjafirði: Tíu úti- og
innisýningar. Til 14.9.
Safn – Laugavegi 37:
Íslensk og alþjóðleg
samtímalistaverk. Til 10.
okt.
Sjóminjasafn Íslands,
Vesturgötu 8, Hafn-
arf.: Gripir úr Þjóð-
fræðisafni Þjóðminja-
safns Íslands. Til 15.9.
Skálholtsskóli: Björg
Þorsteinsdóttir er stað-
arlistamaður Skálholts-
skóla árið 2003. Til
1.9.
Fjöruhúsið á Helln-
um, Snæfellsnesi:
Aðalheiður Ólöf Skarp-
héðinsdóttir. Smámyndir
unnar í þurrnál og
vatnsliti. Til 31.8.
Gallerí Dvergur:
Geirþrúður Finn-
bogadóttir Hjörvar:
„The weight of signific-
ance.“ Til 17.8.
Hafnarborg: Guð-
björg Lind. Anna Jóels-
dóttir. Til 8.9.
Nýlistasafnið: Sýn-
ingar félaga Gjörn-
ingakúbbsins, Heimis
Björgúlfssonar og Péturs
Arnar Friðrikssonar. Til
7.9.
Gallerí Skuggi: Val-
garður Gunnarsson. Til
23.8.
Kling og Bang:
Danski ljósmyndarinn
Peter Funch. Til 31.8.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: Lista yfir
fyrirhugaðar og yfir-
standandi myndlist-
arsýningar í öllum
helstu sýningarsölum
má finna á slóðinni
www.umm.is undir
Fréttir.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið:
Grease, mið., fim., lau.,
lau. Poppea, fös., sun.,
fös., lau.
Loftkastalinn: Ain’t
Misbehavin’, lau., sun.,
mán.
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Daglegt
líf í Reykjavík – sjötti
áratugurinn. Í tengslum
við sýninguna eru einnig
sýndar ljósmyndir eftir
Hans Malmberg sem
hann tók í Reykjavík ár-
ið 1951. Til 1.9.
Gerðarsafn: Sýning á
málverkum Jóhannesar
Kjarvals úr einkasafni.
Til 6.9.
Gerðuberg: Sumarsýn-
ingin „Hvað viltu vita?“
Þar eru til sýnis upplýs-
ingar um Breiðholtið á
18. og 19. öld. Til 5.9.
Handverk og hönn-
un, Aðalstræti 12: Á
sumarsýningunni er
bæði hefðbundinn list-
iðnaður og hönnun úr
fjölbreyttu hráefni. Til
31.8.
Hótel Edda Laug-
arbakka: Teikningar
Halldórs Péturssonar úr
Grettis sögu. Til 17.8.
Listasafn Borgarness:
Gunnar Ingibergur Guð-
jónsson: Málað fyrir
Hallstein. Ný olíuverk.
Til 13.8.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugar-
daga og sunnudaga kl.
14–17.
Listasafn Íslands:
Sumarsýning – Úrval
verka úr eigu safnsins.
Til 31.8.
Hönnunarsafn Ís-
lands, Garðatorgi: Úr
eigu safnsins –
Sýnishorn íslenskrar
hönnunar 1952–2002.
Að auki eru munir í eigu
nokkurra hönnuða, sem
sjaldan eða aldrei hafa
komið fyrir
LISTASAFN Árnesinga opnar á
morgun, sunnudag, 10. ágúst klukk-
an 16 sýningu á safneign og sýn-
inguna „Old but useful“ eftir Hönnu
Christel Sigurkarlsdóttur og Mel-
korku Þ. Huldudóttur.
Verkið „Old but useful“ er unnið
útfrá tveimur málverkum í eigu
safnsins og er hluti af stærra verkefni
styrktu af Menningarborgarsjóði.
Sýningarstjórn er í höndum Hönnu
og Melkorku en þær útskrifuðust
báðar frá Listaháskóla Íslands vorið 2002 úr fjöltæknideild. Á opnuninni verða
óvæntar uppákomur og Anonymous leikur tónlist.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Sýningin stendur til 21. Sept-
ember.
Safnið er opið alla daga milli 13:30 og 18.
Gamalt en gagnlegt
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Melkorka Þ.
Huldudóttir.
VALGARÐUR Gunnarsson
opnar málverkasýningu í dag
í Galleríi Skugga, Hverfisgötu
39, kl. 16. Á sýningunni, sem
stendur til 23. ágúst, eru
u.þ.b. 20 nýleg verk, sem eru
eins konar kvarkhugmyndir
um innri og ytri veruleika
eins og hann birtist lista-
manninum.
Gallerí Skuggi er opið
fimmtudaga til sunnudaga kl.
13 til 17. Aðgangur er
ókeypis.
Kvarkhugmyndir
Ein mynda Valgarðs Gunnarssonar.
SAMBÖND Íslands er heiti á alþjóðlegri myndlistarsýningu sem opnuð
verður í Safnahúsinu á Húsavík í dag, laugardaginn 9. ágúst kl. 14.
Þetta er farandsýning á verkum er lýsa landi og þjóð. Sýnendur eru 73
frá 19 þjóðum og er stærstur hluti þeirra erlendir listamenn, sem heimsótt
hafa Ísland, en einnig íslenskir listamenn búsettir erlendis.
Sýningin stendur til 31. ágúst og verður opin daglega frá 10–18.
„Sambönd Íslands