Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Page 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 2003
NÝJASTA bók Brian Vickers,
yfirmanns Endurreisnarfræða
við ríkistæknistofnunina í Zür-
ich tekur á verk-
um eignuðum
William Shake-
speare á mjög
vísindalegan
hátt, en fræði-
menn hafa lengi
deilt um hvort
öll þau verk sem
skáldinu hafa
verið eignuð séu
hans með réttu.
Að mati Vickers, líkt og fram
kemur í bók hans Shake-
speare, Co-Author eða Meðhöf-
undurinn Shakespeare, eru að
minnsta kosti fimm leikrit
skáldsins að hluta til skrifuð af
öðrum höfundum og þykja rök-
semdafærslur Vickers það
sannfærandi að til stendur að
bæta athugasemdum við allar
framtíðarútgáfur á þessum
verkum skáldsins.
Verkin fimm sem Vickers,
ásamt hópi annarra fræði-
manna, þykir sannað að skáld-
ið hafi skrifað í félagi við aðra,
eru þó ekki meðal þekktustu
verka Shakespeares, en meðal
þeirra eru Títus Andróníkus,
Tímon Aþeningur, Períkles og
Hinrik áttundi.
Góði læknirinn
Í NÝJUSTU skáldsögu sinni
nær Damon Galgut að semja
bókmenntalega spennusögu um
óvenjulega vináttu. Bókin
nefnist The Good Doctor sem
útleggja má sem Góði lækn-
irinn á íslensku, og segir frá
því er Laurence Waters tekur
við læknisembætti við sveita-
sjúkrahús. Hann mætir sam-
stundis bæði tortryggni og
virðingu meðal samstarfsfólks
síns, utan læknisins Franks
sem er honum eldri og svart-
sýnni og á milli þeirra mynd-
ast þvinguð og óvenjuleg vin-
átta.
Blóðug saga Afríku
FRANSKI sagnfræðingurinn
Jean-Pierre Chrétien hefur í
nýjustu bók sinni The Great
Lakes of Africa: Two Thous-
and Years of History, eða Hin
miklu vötn Afríku: Tvö þúsund
ára saga, tekist á hendur hið
mikla hlutverk að rekja rætur
ofbeldis og haturs í álfunni er
leitt hefur af sér þjóðarmorð í
Rúanda, Búrúndi og Kongó svo
dæmi séu tekin.
Í bók sinni beinir Chrétien
athyglinni að fjölmörgum þátt-
um afrískrar sögu frá nýlendu-
tímabilinu til nútímans sem og
veðurfari og landafræði sem
hann telur einnig hafa haft sín
áhrif á þróun mála.
Svefnherbergispólitík
FYRSTA skáldsaga Adam
Thirlwells, Politic eða Pólitík,
vakti umtalsverða athygli á
höfundinum áður en hún
komst á prent. Var þetta ekki
síst fyrir þær sakir að nafn
Thirlwell birtist á Granta list-
anum yfir bestu ungu bresku
rithöfundana, en honum var
þar líkt við ekki ómerkari
menn en Milan Kundera og
Woody Allen.
Að mati gagnrýnanda
Guardian stendur höfundurinn
þó ekki undir öllu lofinu held-
ur er bókin eins konar athug-
un á svefnherbergisháttsemi
sem ískotin er stöðugum trufl-
unum sögumanns.
ERLENDAR
BÆKUR
Meðhöfund-
urinn
Shakespeare
William
Shakespeare.
S
KEMMTIÞÁTTURINN Á tali hjá
Hemma Gunn, sem sýndur var í
Ríkissjónvarpinu fyrir alllöngu,
er flestum landsmönnum enn í
fersku minni, reyndar í nokkuð
nostalgískum ljóma. Þátturinn
gekk ótrúlega vel og lengi og naut
mikilla vinsælda. Það var fyrst og
fremst meðfæddur sjarmi Hemma, einlægni
hans og samlíðun með öðru fólki, sem hélt áhorf-
endunum föngnum og öfluðu honum fjölda aðdá-
enda. Hemmi mætti sjálfur í spjallþáttinn Laug-
ardagskvöld með Gísla Marteini um daginn,
yfirlætislaus og blátt áfram eins og vani hans er.
Lífshlaup Hermanns er afar forvitnilegt og alveg
örugglega efni í heilan spjallþátt, ef ekki tvo. En
lögmál afþreyingarinnar í fjölmiðlabransanum
leyfa hvorki naflaskoðun né nákvæmni; hraði,
fjölbreytni og fjör verða að ríkja. Spjallþáttur
Steinunnar Ólínu, Milli himins og jarðar, var líka
þessu marki brenndur meðan þáttur Jóns Ársæls
á Stöð tvö, Sjálfstætt fólk, er gott dæmi um þátt
þar sem viðmælanda er gefinn tími. Elsti núlif-
andi spjallþáttur íslenska sjónvarpsins, Maður er
nefndur (sem reyndar er meira útvarpsefni en
sjónvarps-), hefur verið gagnrýndur fyrir hæga-
gang og leiðindi, m.a. vegna þess að tökuvélinni
er eingöngu beint ýmist að spyrli eða viðmæl-
anda. Áhorfandinn þolir ekki tilbreytingarleysið
(roskna og seinmælta viðmælendur) og hamast á
fjarstýringunni – ef hann er þá ekki löngu sofn-
aður í sófanum.
Það var gaman að sjá þáttastjórnendurna tvo;
meistarann og lærisveininn; Hermann og Gísla
skrafa saman; ekki síst vegna þess hve ólíkir þeir
eru: Hemmi er spakur og gamalreyndur eftir
hrakninga í lífsins ólgusjó; Gísli ungur og síkátur,
holdgervingur fjölmiðlakynslóðarinnar með
beintengingu við tökuliðið í eyranu. Báðir eru
þeir hláturmildir, ágætlega máli farnir og fund-
vísir á viðkunnanlega viðmælendur. Þáttur Gísla
er af svipuðum toga og Á tali hjá Hemma; stjórn-
andinn fær til sín gesti sem eru áberandi í þjóðlíf-
inu hverju sinni og tónlistar- og skemmtiatriði
brjóta samtölin upp. Þættirnir eru báðir teknir
upp í stúdíói; Hemmi hafði alltaf áhorfendur í sal
að amerískum sið, en Gísli er einn. Hemmi hafði
oftast einn aðalviðmælanda í hverjum þætti en
Gísli hefur alltaf þrjá. Samtölin hjá Gísla eru því
oft ansi yfirborðskennd og það sem verra er;
hann býr ekki yfir þeim dýrmæta eiginleika að
hlusta.
Þátturinn Laugardagskvöld með Gísla Mar-
teini líður fyrir það að gestirnir koma til að sýna
sig en fá ekki að segja neitt merkilegt. Hann gæti
alveg eins heitið „Séð og heyrt í sjónvarpinu“ og
óvíst hvort þotuliðið er sólgnara í að koma fram
eða áhorfendur æstari í að berja það augum. Eft-
ir að þáttastjórnandinn hefur lofað útlit og hæfi-
leika gestanna hefst almennt hjal sem stendur
oftast stutt yfir. Tónlist tekur við, síðan kemur
næsti gestur og sami leikurinn endurtekur sig.
Þáttur Sigríðar Arnardóttur, Fólk á Skjá einum,
á margt sameiginlegt með Laugardagskvöldi en
þar ráða dramatík og auglýsingamennska ríkjum
í bland við gleðilæti. Öðru máli gegnir um þáttinn
Út og suður sem lauk göngu sinni fyrir stuttu og
er einskonar spjallþáttur. Viðmælandinn er oft-
ast einhver sem áhorfendur þekkja lítið eða ekki
og er jafnvel utan af landi! Þar er ekkert „sett“
heldur fara tökur fram úti undir berum himni eða
á heimavelli viðmælendanna og það sem gerir
gæfumuninn; viðmælandinn er í brennidepli –
ekki spyrillinn.
FJÖLMIÐLAR
SÉÐ EN EKKI HEYRT
S T E I N U N N I N G A
Ó T TA R S D Ó T T I R
Eftir að þáttastjórnandinn
hefur lofað útlit og hæfileika
gestanna hefst almennt hjal sem
stendur oftast stutt yfir.
I Í frábærum fyrirlestri um fagurfræðilega mögu-leika okkar tíma, sem fluttur var á ráðstefnu um
efnið vorið 2002 tileinkaðri Guðbergi Bergssyni sjö-
tugum, sagði Álfrún Gunnlaugsdóttir prófessor og
rithöfundur að skáldsagan hefði farið í gegnum
sjálfa sig á síðustu öld og endaði nú, að því er virt-
ist, þar sem hún var stödd á 18. öld, í eins konar
sjálfhverfu. Álfrún tekur dæmi af Jakobi forlaga-
sinna eftir Diderot sem hafi fjallað um það hvernig
ætti að segja sögu og hún spyr hvort sjálfhverfan í
skáldsögum samtímans sé af öðrum toga. Hún segir
hafa verið feng að hugmyndinni um að skáldsaga
ætti að vera heimur út af fyrir sig sem var efst á
baugi um miðja síðustu öld, skáldsagan átti að vísa
sem minnst út fyrir sig og helst ekki að vera annað
en list. Áður hafði mönnum hætt til að beina sjón-
um sínum eitthvert annað en að sögunni sjálfri, svo
sem að einkahögum höfundarins, hugsanlegum fyr-
irmyndum o.fl. Skáldverkið sem skáldað verk hafði
tæpast verið á dagskrá. „Nú var öldin önnur,“ segir
Álfrún, „og þeir sem tóku við verkinu, lesendurnir,
urðu að taka þátt í að skapa það líka. Menn þóttust
eygja Edensgarð. En eins og vitað er var Adam ekki
lengi í Paradís. Fyrr en varði skrapp hlutur lesand-
ans eða meðskapandans saman. Hann fékk
splunkunýtt hlutverk, það að vera aðgerðalaus neyt-
andi, og annaðhvort með eða móti skáldsögu, með
eða móti höfundi. Með öðrum orðum, lesendur tóku
að líkjast ískyggilega fótboltabullum.“
IIOg þar stöndum við nú, segir Álfrún og heldurþví fram að höfundum sem skrifa til að tjá eitt-
hvað mjög einkalegt hafi fjölgað ört; „þeir virðast
fyrst og fremst líta á athöfnina að skrifa sem tján-
ingu sjálfsins, og fellur sú hugmynd ágætlega að
hugmyndinni um lesanda sem er aðeins reiðubúinn
að vera með eða móti og ekkert umfram það. Í slík-
um tilfellum er tæpast á ferðinni samræða milli
höfundar og lesanda,“ segir Álfrún. Og hugsanlega
er búið að ýta höfundinum út af kortinu líka. Eða
getur það verið að höfundurinn sé lítið annað en
tæki tungumálsins sem talar gegnum hann, spyr
Álfrún. Tungumáls sem getur af sér texta sem kall-
ast á við aðra texta, eða seilist jafnvel djarflega til
þeirra. Og Álfrún bætir við: „Þegar notað er orðið
texti, líkt og hér er gert, eða gert er nú á dögum, er á
ferðinni eins konar útjöfnun. Texti getur verið nán-
ast hvað sem er og vísar ekki endilega til listar.“
IIIOg Álfrún heldur enn áfram: „Hafi rithöfund-urinn, eins og mörgum virðist, glatað sam-
félagshlutverki sínu, nema sem hugsanlegt fram-
leiðslutæki texta eða markaðsvöru, gefur augaleið
að hann hefur fátt að miða við þegar kemur að því
að skapa list. Glatað samfélagshlutverk leiðir til
þess að öll verk rithöfunda eru lögð að jöfnu, þau
gera ekki annað en keppa á svokölluðum markaði.
Allt er orðið list, allt er menning.“
IV Að endingu svarar Álfrún spurningunni semhún varpaði fram í byrjun erindis síns, hvort
sjálfhverfan í skáldsögum (og á hún þá við að sag-
an snúist að miklu leyti um sjálfa sig) sé af sama
meiði og sú sem Diderot var að fást við þegar hann
samdi Jakob forlagasinna, og hún segir: „Diderot
var leitandi höfundur. Hann var að prófa þanþol
skáldskaparformisins, og skoða, eins og áður sagði,
takmarkanir þess. Að hluta til er hið sama upp á
teningnum í skáldsagnagerð nú á dögum, enda
hafa ýmsir beinlínis gengið í smiðju Diderot. En ég
undirstrika að þetta á aðeins að hluta við um skáld-
sagnagerð okkar tíma. Til er önnur tegund af sama
fyrirbæri, sem er upphafning sjálfsins, hún var aftur
á móti fjarri Diderot, en þrífst prýðilega eins og
stendur. Þegar viðmiðanir, og þá um leið lifandi
umræða, eru lítt í sjónmáli liggur beinast við fyrir
höfund að snúa sér að sjálfinu. Þó er eins og það
hafi tilhneigingu til að leysast upp, vegna þess
hversu einkalegt það er og hefur takmarkaða skír-
skotun.“ Þessi orð Álfrúnar eru gott veganesti á bók-
menntahátíð.
NEÐANMÁLS
JÆJA, loksins var hann sýndur í vikunni,
þátturinn af West Wing þar sem vara-
forsetinn neyðist til að segja af sér vegna
framhjáhalds og lausmælgi. Þátturinn
vakti hjá mér þá umhugsun; Hvað ef
þetta hefði gerst á Íslandi?
Ef við breytum og staðfærum gæti at-
burðarásin verið eitthvað á þessa leið:
Ráðherra í ríkisstjórninni heldur framhjá
og lekur upplýsingum úr leynilegri
skýrslu til hjákonu sinnar. Hjákonan ætl-
ar sér að skrifa bók og ljóstra upp um
sambandið og lekur einni af hinum safa-
ríku sögum í eitt af dagblöðum landsins.
Lögfræðingur í ráðuneytinu kemst að
öllu saman og innan sólarhrings hefur
ráðherrann sagt af sér. Er þetta sennileg
atburðarás? Nei, ekki hér á landi. Og af
hverju er það? Ég held að þar séu það
helst tvö atriði. Annars vegar það að
ráðamenn hér hafa það fyrir sið að sitja
sem fastast hvað sem almenningsáliti líð-
ur. Enda vita þeir að fennir yfir sporin
með tímanum. Og á sumri eins og þessu
þar sem nýtt hneyksli varð á u.þ.b. hálfs-
mánaðarfresti er hætt við að eitt og eitt
hneyksli gleymist hratt. „Hvað munar um
einn kepp í sláturtíðinni,“ sögðu menn í
gamla daga. Og hitt er það að ein-
hverra hluta vegna virðist þjóðin ekki
hafa nægilega döngun í sér til að rísa
upp og mótmæla.
Jón Einarsson
Maddaman
www.maddaman.is
Fagrir íþróttamenn
Áður hefur á þessum vettvangi verið
fjallað um fagra íþróttamenn. En aldrei
er góð vísa of oft kveðin og í tilefni
Heimsmeistaramótsins í frjálsum íþrótt-
um þykir Múrnum við hæfi að birta hér
eitt fróðleikshorn um fagra frjáls-
íþróttamenn – enda af nógu að taka.
Löngum hefur fegurð knattspyrnu-
manna verið viðurkennd en í frjálsum
íþróttum má finna allar tegundir manna:
Hina mjög svo kraftalegu spretthlaup-
ara, mjóa og veiklulega langhlaupara,
sterklega kastgreinabangsa og hávaxn-
ar stökkvaragelgjur. Þeir sem sameina
það besta úr öllum heimum eru auðvitað
tugþrautarmenn. Þeir þurfa að vera
góðir í öllu – og líkamsburðir þeirra
bera þess vitni. Sá sem sigraði að þessu
sinni kallast Tom Pappas frá Bandaríkj-
unum og Múrinn gefur nú svo sem ekki
mikið fyrir hann þótt sumum finnist hann
án efa ágætur á sinn rauðbirkna hátt. Í
öðru sæti varð hins vegar maður sem
Múrinn telur skyldu sína að benda sem
flestum fegurðarunnendum á en það er
Tékkinn Roman Seberle. Þar er maður
sem sameinar allt það besta.
Roman, eins og við kunningjar hans
köllum hann, er lágvaxinn en mjög
sterklegur, dökkhærður og andlitsfríður
og nýtur sín mjög vel í kastgreinum [...].
Katrín Jakobsdóttir
Múrinn
www.murinn.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Norðurljósadýrð.
NEI, EKKI HÉR Á LANDI