Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Blaðsíða 15
mundarsalur og Gryfja: Inga Jónsdóttir opnar sýningu sína Ryk. Töfratákn nefnist sýning Kristins Péturssonar sem hann opnar í Arinstofu. Opið þriðju- daga til sunnudaga kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis „Art Gallery Icelandic“ Skólavörðustig 25 a Sjöfn Har. sýnir 45 ný málverk og vatnslitamyndir. Opið virka daga kl. 12-18, laugardaga kl. 12-16 og sunnudaga kl. 14-18. Til 14. september. Sunnudagur Salurinn kl. 20 Opn- unartónleikar Tíbrárrað- arinnar: Krist- inn Sigmunds- son, bassi og Jónas Ingi- mundarson, píanó. Þeir flytja tvo stóra lagaflokka eftir Schuman: Liederkreis op. 39 og Kernerljóðin op. 35. Tón- leikarnir eru helgaðir minningu Halldórs Hansen barnalæknis og tónlistarfrömuðar. Miðvikudagur Salurinn kl. 20 Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari þreytir frum- raun sína. Flutt verður Pí- anósónata í Es-dúr op. 31 nr. 3 eftir Beethoven, Dansasvíta fyrir pí- anó Sz. 77 eftir Bartók og 24 prelúdíur op. 28 eftir Chopin. Fimmtudagur Þjóðarbókhlaða kl. 16 Málstofu í tengslum við sýn- inguna Eins og í sögu - samspil texta og myndskreytinga í barnabókum 1910-2000. Er- indi flytja: Margrét Tryggva- dóttir bókmenntafræðingur, Þórarinn Eldjárn, Sigrún Eld- járn, Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir. Tilkynningar sem birt- ast eiga á þessari síðu, þurfa að berast í síðasta lagi kl. 11 árdegis á fimmtudag. menn- ing@mbl.is. Sjá einnig mbl.is/Staður og stund. Laugardagur Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir kl. 14 Sýning á verkum myndhöggvarans Sæmundar Valdimarssonar. Trémyndir sínar vinnur lista- maðurinn úr rekaviðar- drumbum og sýna þær ævin- týraverur hulduheima sem standa landsmönnum nærri í gegnum þjóðtrú og sagna- minni. Kling og bang gallerí, Laugavegi 23 kl. 17 Nína Magn- úsdóttir mynd- listarmaður opnar sýningu sína „Opið“. Þetta er þriðja einkasýning Nínu. Nú tekst hún á við að opna meiningar og möguleika sem op í ýmsum myndum fela í sér. Nína notar myndbands- verk og ljósmyndir til að miðla hugmyndum sínum. Opið fimmtudaga til sunnu- daga kl. 14-18. Galleríi Sævars Karls kl. 14 Svanborg Matthíasdóttir opnar málverkasýningu. Svan- borg útskrifaðist úr MHÍ 1985 og frá Jan Van Eyck Akademi í Hollandi 1987. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum sam- sýningum, bæði heima og er- lendis. Svanborgar hefur kennt myndlist undanfarin ár í Mynd- lista-og handíðaskólanum svo og Listaháskólanum. Salatbarinn Ólöf Einarsdóttir sýnir olíumálverk. Ólöf lauk námi frá Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1980. Hún hefur tekið þátt í fjölda sam- sýninga. Opið virka daga kl. 11.30- 20.30. Laugardaga til kl. 16. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorg, Garðabæ kl. 15 Hönnunarsýningin Ágæti - Úrvalshönnun frá Svíþjóð. Sýn- ishorn af verkum sem „Sænskt form“ hefur sérstaklega valið og verðlaunað í Svíþjóð á árinu 2002. Sýning á sænsk- um iðnaðarvörum. Bókasafn Garðabæjar sýnir bækur eftir sænska höfunda í eigu safns- ins. Listasafni ASÍ kl. 15 Ás- Ástríður Alda Halldór Hansen Nína Magn- úsdóttir ljós- myndari sem Madonna ásamt syni sínum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 2003 15 Morgunblaðið/Kristinn Peter Máté, John Speight, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran. TRÍÓ Reykjavíkur heldur tón-leika í Hafnarborg kl. 20annað kvöld og eru þeirfyrstu tónleikarnir á nýju starfsári. Tríóið er skipað, sem fyrr, Gunnari Kvaran sellóleikara, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðlu- leikara og Peter Máté píanóleik- ara. Hvernig tón slær tríóið í upphafi starfsárs? „Vínarklassík, nútímaverk og rómantík er tónn dagsins,“ segir Gunnar, „en við reynum alltaf að setja saman fjölbreytilega dagskrá. Við byrjum á tríói í e-moll eftir Joseph Haydn. Dæmigert tríó í þremur köflum. Verkið er létt og grípandi og gott upphafsverk á tónleikum. Þar skiptist á gáski og tregi. Haydn samdi mikið af kammerverkum en þetta tríó höfum við ekki leikið áð- ur. Haydn hefur bæði verið kall- aður faðir strengjakvartettsins og faðir sinfóníunnar þó finnst mér verkin hans ekki heyrast nógu oft. Næst tekur við verk eftir John Speight. Verkið var upphaflega flutt af hollenska tríóinu Osiris en við frumfluttum það á Íslandi fyrir sex árum. Verkið heitir á íslensku Úr Gottneska norðrinu. Okkur þótti verkið gott er við fluttum það í fyrsta sinn og ekki er það síðra nú. Okkur finnst mikilvægt að góð nútímaverk fái tækifæri til þess að verða klassísk rétt eins og verk Beethovens, Mozarts og Brahms. Það gerist ekki nema fólk fái tæki- færi til að hlýða á þau oftar. Eftir hlé flytjum við eina af perl- um kammertónbókmentanna, tríó í C-dúr eftir Jóhannes Brahms. Hann samdi þrjú píanótríó og þetta er annað í röðinni, samið á árunum 1880-82. Það fer ekki framhjá nein- um þegar hlustað er á tónlist Brahms að hér er á ferð eitt merk- asta tónskáld rómantíska tímabils- ins. Hann átti ótrúlega auðvelt með að nota kammermiðilinn til að koma frá sér hugmyndum sínum og hugsunum. Hann er eitt af stærstu kammertónskáldum sem ég hef spilað.“ Hvernig verður framhaldið á starfsárinu? „Næstu tónleikar í röðinni verða 16. nóvember og bera yfirskriftina Mozart að mestu. Þar mun Sig- urður Yngvi Snorrason klarinettu- leikari leggja tríóinu lið. Það er gaman að breyta svolítið til og í stað þess að vera á sviðinu verð ég á áheyrendabekknum. Nýárstónleikarnir með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Bergþóri Páls- syni verða á sínum stað þann 25. janúar. Yfirleitt þurfum við að end- urtaka þá tónleika nokkrum sinn- um. Söngur á Íslandi er alltaf núm- er eitt og fólk kann að meta það að hlýða á frábæra söngvara. Ef hægt er að fá fólk til að hlusta á öðruvísi tónlist í gegnum sönglistina, þá er- um við vel sett. Síðustu tónleikarn- ir verða 28. mars. Þá frumflytjum við nýtt píanótríó eftir bandaríska tónskáldið Gerald Shapiro, en verkið er sérstaklega samið fyrir og tileinkað tríóinu. Við vorum ákaflega ánægð og stolt er hann óskaði eftir að fá að semja verk fyr- ir okkur. Hann mun verða við- staddur flutninginn. Tveir aðrir gestir verða með okkur á tónleik- unum, bandarísku hjónin, fiðluleik- arinn og víóluleikarinn Almita og Roland Vamos. Þau eru heims- þekktir kennarar og flytjendur. Með þeim mun tríóið leika verk eft- ir Kodaly og Dvorák.“ Hvernig er aðsóknin á tón- leikana? „Við sjáum töluvert af tryggum áheyrendum ár eftir ár og nýir bætast við. Eina staðreynd verða allir tónlistarmenn að horfast í augu við. Það er að framboð á tón- list er miklu meira en áður, en áheyrendum hefur ekki fjölgað að sama skapi. Við þurfum að gera eitthvað alvarlegt í því að kenna fleirum að njóta og koma á tón- leika. Það er ekki sambærilegt að hlýða á tónlist af diskum eða í hljómleikasal. Ég vildi sjá miklu fleiri ungmenni og börn á tón- leikum, sérstaklega börnum sem leggja stund á tónlistarnám.“ Er þú lítur til baka, hvernig hef- ur gengið? „Þegar við byrjuðum fyrir 14 ár- um gerðum við okkur grein fyrir því að vildum við vera kamm- erhópur, þyrftum við að hafa ákveðinn vettvang. Kammerhópur sem kemur fram einu sinni til tvisv- ar á ári þróast ekki auðveldlega. Það hefur verið einstakt fyrir tríóið að hafa aðstöðuna í Hafnarborg. Bæði er hljómburðurinn í húsinu mjög góður og öll aðstaða til tón- listariðkunar góð. Ekki spillir góða fólkið í húsinu fyrir.“ „Kennum fleirum að njóta tónlistar“ STIKLA Tríó Reykjavíkur í Hafnarborg Næsta v ika MYNDLIST Gallerí Dvergur, Grund- arstíg 21: Pétur Már Gunnarsson. Til 14.9. Gallerí Fold, Rauð- arárstíg: Baksalur: Helga Kristmundsdóttir. Ljósafold: Sigríður Bachmann. Til 14.9. Gallerí Hlemmur: Val- gerður Guðlaugsdóttir: Inn- setning. Til 28. sept. Gallerí Kambur, Rang- árvallasýslu: Hulda Vil- hjálmsdóttir. Til 5. okt. Gallerí Skuggi: Kristinn Pálmason. Til 21.9. Gerðarsafn: Jóhannes Kjarval. Úr einkasafni. Til 6.9. Gerðuberg: Breiðholt fyrr og nú. Ljósmyndasýningin Brýr á þjóðvegi 1. Til 21.9. Hafnarborg: Guðbjörg Lind og Anna Jóelsdóttir. Til 8.9. i8, Klapparstíg 33: Roni Horn. Undir stiganum: Hlynur Hallsson. Til 13.9. Kling og bang gallerí, Laugavegi 23 Nína Magnúsdóttir. Til 28. sept. Listasafni ASÍ: Inga Jóns- dóttir. Til 21. sept. Arinstofa, Kristin Pétursson. Til 12. okt. Listasafn Akureyrar: Þjóð í mótun: Ísland og Ís- lendingar fyrri alda. Vest- ursalur: Erla S. Haralds- dóttir og Bo Melin. Til 2. nóv. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Reykjanes- bæjar: Stefán Geir Karls- son. Til 19. okt. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Ásmund- ur Sveinsson – Nútímamað- urinn. Til 20.5. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Innsýn í al- þjóðlega myndlist á Íslandi. Til 7.9. Erró – stríð. Til 3.1. Innsetning Magnúsar Páls- sonar og Helgu Hansdóttur öldrunarlæknis. Til 14.9. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Eyjólfur Einarsson. Sæmundur Valdimarsson myndhöggv- ari. Til 12. okt. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Meistarar formsins – Úr högg- myndasögu 20 aldar. Til 28.9. Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Erna Hafnes. Til 7.9. Listhús Ófeigs, Skóla- vörðustíg: Norskir text- ílhönnuðir. Til 17.9. Mokkakaffi: Bjarni Bern- harður. Til 15. okt. Norræna húsið: Skart- gripir norsku listakonunnar Liv Blåvarp. Til 19. okt. Safnasafnið, Alþýðu- listasafn Íslands, Eyja- firði: Tíu úti- og innisýn- ingar. Til 14.9. Safn – Laugavegi 37: Opið mið-sun, kl. 14–18. Til sýnis á þremur hæðum ís- lensk og alþjóðleg samtíma- listaverk. Til 10. okt. Sjóminjasafn Ísland, Hafnarf.: Gripir úr Þjóð- fræðisafni Þjóðminjasafns Íslands. Til 15.9. Skálholtsskóli: Björg Þor- steinsdóttir. Til 12.9. Slunkaríki, Ísafirði: Hjörtur Hjartarson. Til 28.9. Undirheimar Álafoss- kvos: Andri Páll Pálsson og Brynja Guðnadóttir: inn- setning og ljósmyndir. Til 14.9. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu: Hand- ritin. Landafundir. Sum- arsýningin Íslendingasögur á erlendum málum. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Með fulla vasa af grjóti, lau. Borgarleikhúsið: Rómeó og Júlía, lau., sun. Kvetch, mið., fim., fös. Grease, lau., sun., fös. Nútímadanshátíð, Nýja svið: Sex danshöfundar frumflytja sex sólódansa, lau., sun. Iðnó: Sellófon, fim. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús Lab Loki: Baul- aðu nú... lau. kl. 14. Leikfélag Kópavogs: Grimms, sun. ÍTALSKI konsertorganistinn Marco Lo Muscio frá Róm leikur á Björgvinsorgelið í Hjallakirkju í Kópavogi kl. 17 á morgun. Marco Lo flytur m.a. nokkr- um vinsæl verk og lög í umritun fyrir pípuorgel. Meðal þeirra er Forleikur að Söng Selmu úr Myrkradansaranum eftir Björk Guð- mundsdóttur. Lo Muscio kemur hér við á leið sinni um Belgíu, Noreg, Rússland og Eistland en þar heldur hann einnig tónleika. Á efnisskránni er Mars eftir Henry Purcell, Fúga úr Messíasi eftir Handel, Sinfónía úr kantötu nr. 249 eftir Bach og Kontrapunktur I BWV 1080 eftir meistara Bach. Þá flytur hann Tilbrigði um stef eftir Paganini op. 68 eftir Hesford, Tilbrigði yfir norskt þjóðlag eft- ir B. Slogedal og fleira. Marco Lo Muscio er um þrítugt en hefur ferðast víða um heim. Hann hefur komið fram sem meðleikari og einleikari og gefið út geisladiska. Lag Bjarkar á pípuorgel Hjallakirkju Björk Guðmundsdóttir og Catherine De- neuve í Selmasongs. JAPANSKI rithöfundurinn Haruki Murakami heldur fyrirlestur í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16 á þriðjudag. Haruki Murakami er fæddur 1949 í Kyoto, Japan. Murakami kvaddi sér hljóðs árið 1987 með skáldsögunni Norskur skógur. Verk Murakami hafa verið þýdd á fjölda tungumála, með- al annars íslensku. Skáldsagan Sunnan við mærin, vestur af sól kom út árið 2002 í þýðingu Ugga Jónssonar. Haruki Murakami er jafnframt virtur þýðandi og hefur þýtt bandaríska höfunda á borð við F. Scott Fitzgerald, John Irving, Raymond Carver og Truman Capote yfir á japönsku. Fyrirlestur er í upphafi haustdagskrár Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur sem helguð er japönskum bókmenntum. Murakami er hér á landi á vegum Bókmenntahátíðar í Reykjavík 2003. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Aðgangur er ókeypis. Haruki Murakami talar um bækur sínar Haruki Murakami Í GALLERÍ Skugga á Hverfisgötu 39 opnar Kristinn Pálmason mál- verkasýningu kl. 17 í dag. Verk Kristins er unnið sérstaklega inn í rými gallerísins á þann hátt að mál- að er beint á veggi og glugga. Verk- ið felur í sér tilraun til að umbreyta sjálfu galleríinu í málverk og hefur þetta áhrif á skynjun sýning- argesta; afstaða þeirra til verksins sem áhorfenda breytist því og verða hluti af sjálfu verkinu. Kristinn á að baki sjö einkasýningar og fjölda samsýninga auk þátt- töku í ýmsum samvinnuverkefnum, síðast í Hafnarborg. Undanfarin ár hefur Kristinn markvisst unnið með samhengi aðferðar og áferð- ar í málverki og innsetningu þess í rými. Kristinn sýnir nú öðru sinni í Gallerí Skugga. Opið alla daga nema mánudaga kl. 13–17. Aðgangur er ókeypis. Kristinn að störfum ásamt hund- inum Bangsa. Málað á veggi Skugga

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.