Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.2003, Page 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. SEPTEMBER 2003
LJÓSMYNDASÝNING þar
sem athyglinni er beint að
villtustu árum rokk-
hljómsveitarinnar Rolling
Stones
stendur nú
yfir í Getty
Images
galleríinu í
London.
Myndirnar
eru verk
ljósmynd-
arans
Christo-
pher Sim-
on Sykes, en hann fylgdi
hljómsveitinni eftir í þriggja
mánaða hljómleikaferð sinni
á miðjum áttunda áratugn-
um.
Myndirnar hafa aldrei
komið fyrir sjónir almenn-
ings áður, en Sykes þykir
hafa tekist vel upp með að
kalla fram nautnalífið og
spillinguna sem einkenndi líf
hljómsveitarmeðlimanna á
þessum tíma, sem og þá tón-
listarlegu stöðnun sem gerði
vart við sig í verkum sveit-
arinnar á tímabilinu milli
platnanna Exile on Main
Street (1972) og Some Girls
(1978).
Bernskan í Grikk-
landi til forna
BERNSKUÁR í Grikklandi
til forna voru enginn dans á
rósum ef mark skal taka á
sýningunni Coming of Age in
Ancient
Greece:
Images of
Childhood
From the
Classic
Past, sem
nú stendur
yfir í Hood
Museum of
Art í New
Hamp-
shire. En
myndrænar minjar, sem og
ritaðar heimildir virðast að
sögn safnayfirvalda benda til
þess að börn á þeim tíma hafi
oft sætt meðferð sem í dag
teldist til misþyrmingar.
Þannig voru líkamlegar refs-
ingar algengar sem og sú
venja að skilja börn eftir á
fjölförnum stöðum og láta
þau bíða örlaga sinna þar og
voru það einkum stúlkur sem
máttu hlýta þeim örlögum.
Sýningin þykir einkar lifandi
og áhugaverð að mati gagn-
rýnanda New York Times
sem segir hana fanga athygli
áhorfenda og því vel heim-
sóknarinnar virði.
Terry Frost látinn
BRESKI listamaðurinn
Terry Frost lést nú í vikunni
87 ára að aldri eftir langvar-
andi veikindi. Frost var með
virtari breskum samtíma-
listamönnum og var ekki
hvað síst þekktur fyrir
ástríðufulla notkun á hringj-
um og línum í verkum sínum.
„Hann hafði verulega mik-
il áhrif á þróun breskrar
myndlistar og áhrifa hans
mun gæta áfram,“ sagði Pat-
ricia Singh, vinur og kollegi
listamannsins, sem lýsti
Frost sem einum af und-
anförum abstrakt listar í
Bretlandi. „Hann var glað-
lyndur og það var styrkur
verka hans. Þau lögðu
áherslu á lífið og voru full af
litagleði og lofti.“
ERLENT
Villtir dagar
Stones
Mick Jagger í einu
verka Christopher
Simon Sykes.
Legsteinn fyrir
gríska stúlku frá
því um 100 f.Kr.
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands verður opnað
aftur sumardaginn fyrsta 2004 en það hefur nú
verið lokað um fimm ára skeið. Sýning sem nú
hefur verið opnuð í Listasafni Akureyrar á mál-
verkum úr Þjóðminjasafninu er því kærkomin.
Sýningin er tvískipt, annars vegar er þar að
finna málverk og teikningar af Íslendingum
fyrri alda, og hins vegar listaverk eftir nafn-
greinda Íslendinga frá sama tímabili en um er
að ræða tímabilið frá 1550–1900. Það sem er
kannski áhugaverðast við þessa sýningu er að
þarna sést svart á hvítu að búin var til myndlist
á Íslandi fyrir árið 1900, en það er viðtekin
skoðun að íslensk myndlist hafi ekki orðið til
fyrr en með einkasýningu Þórarins B. Þorláks-
sonar aldamótaárið 1900.
Myndlist Íslendinganna er þó ekkert sér-
staklega burðug í faglegu og alþjóðlegu tilliti
en frásagnargleðin og tjáningin er ósvikin. Um-
fjöllunarefnið er einsleitt og mótaðist af að-
stæðum á fyrri tímum.Sýningin ber heitið Þjóð
í mótun: Ísland og Íslendingar fyrri alda, og
sýnir að miklu leyti valdsmenn fyrri tíma, eða
einkum þá sem höfðu fjárhagslegt bolmagn til
að láta gera af sér myndir.
Á opnun sýningarinnar var boðið upp á auka-
efni, ef svo má segja. Ung stúlka í peysufötum
gekk um gólf og söng gömul íslensk þjóðlög,
ungir menn buðu upp á harðfisk og við inn-
ganginn var leikinn kvæðasöngur af diski. Er
hægt að hafa það þjóðlegra? Sýningin er
skemmtileg. Hún er fallega uppsett, hönnun öll
fyrsta flokks og kynningarefni sömuleiðis. Sam-
anlagt gerir þetta sýningarupplifunina eins full-
komna og hægt er að ætlast til.
Sýningin er enn eitt dæmið um stórhug og
hugmyndaauðgi safnstjórans Hannesar Sig-
urðssonar sem hefur að undanförnu bent á mik-
ilvægi þess fyrir safnið að fá meira húsnæði til
sýningarhalds, þar sem hærra er til lofts og
víðara til veggja. Núverandi rými setur sýning-
arhaldi ákveðnar takmarkanir.
Akureyringar og nærsveitamenn hafa sýnt
það í verki undanfarin misseri með góðri mæt-
ingu á safnið á hinar ólíku sýningar sem settar
hafa verið upp í tíð Hannesar, að þeir hafa
áhuga á myndlist. Til þess hlýtur bæjarstjórn
Akureyrar eða aðrir aðilar, sem hjálpað geta
safnstjóranum að láta draum sinn rætast, að
líta þegar kemur að því að taka ákvörðun um
stækkun safnins.
Abbast upp á Akureyri
Í Listasafni Akureyrar hefur einnig verið
opnuð sýningin Abbast upp á Akureyri þar sem
Bo Melin og Erla S. Haraldsdóttir sýna mynd-
list með félagsfræðilegum undirtóni. Lista-
mennirnir líta til óræðrar framtíðar og reyna
að ímynda sér hvernig Akureyri liti út ef fleira
fólk byggi á svæðinu en raunin er. Skemmst er
að minnast þess þegar þau settu upp sýninguna
Here, there and Everywhere í Galleríi Hlemmi
í Reykjavík þar sem þau sýndu myndir af
Reykjavík, með ýmsum stórborgarviðbótum
eins og veggjakroti, götusölum og fjölbreyttara
mannlífi. Um er að ræða ljósmyndir sem unnið
er með í myndvinnsluforriti.
Í sjálfu sér er aðferðin áþekk þeirri sem
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður
beitti þegar hann sýndi nýstárlegar hugmyndir
sínar í skipulagsmálum fyrir Reykjavík. Hug-
myndin að baki sýningunni er mjög góð og
tæknileg úrvinnsla sömuleiðis. Það eina sem ég
saknaði var að mér fannst breytingarnar á Ak-
ureyri mjög hófsamar svo ekki sé meira sagt en
listamennirnir miðuðu við að Akureyri væri
margfalt stærri en hún í raun og veru er, eða
700.000 manna borg. Þess sér einfaldlega ekki
stað í ljósmyndunum. Draslið vantar, það vant-
ar meira fólk og fleiri hús fyrir fólkið og höfnin
er óbreytt. Auk þess hefur ekki verið gert ráð
fyrir því að rýma hafi þurft svæði í bænum til
að koma fyrir öðrum og stærri byggingum með
stórborgarbrag.
Daginn sem ég heimsótti Akureyri var meira
líf í miðbænum en sýnt er á myndunum og seg-
ir það eitthvað um að Bo og Erla þyrftu að end-
urskoða forsendur sínar.
Nýtt gallerí
Nýtt og glæsilegt gallerí hefur verið opnað í
Amarohúsinu við göngugötuna á Akureyri,
Gallery 02. Galleristarnir heita Jón Viðar og
Þórarinn Blöndal og listi væntanlegra sýnenda
er hnýsilegur.
Sá sem hefur leikinn er myndlistarmaðurinn
Finnur Arnar, en stutt er síðan hann hélt síðast
einkasýningu á Nýlistasafninu þar sem karl-
mennskan, einmanaleikinn og einangrunin voru
umfjöllunarefnin í tveimur myndbandsverkum
sem sýnd voru hlið við hlið á tjaldi. Hér er
Finnur á svipuðum slóðum. Hann sýnir tvö tví-
skipt myndbandsverk. Í vinstri helmingi annars
verksins sést hvar Finnur hallar höfði sínu upp
að fálka þannig að við fyrstu sýn virðist vera
um einhvers konar skrímsli að ræða. Hægri
helmingur verksins er upptaka af víðerni á há-
lendinu, sem gæti í raun endurspeglað ákveðið
hugarástand eða draum sem býr yfir bæði friði
og ógn.
Í næsta verki er stúlka sofandi og við hlið
hennar upptaka úr Látrabjargi þar sem fugla-
gerið flýgur fram og til baka inn og út úr mynd,
í fullkominni óreiðu. Þegar litið er á verkin í
samhengi má vel ímynda sér að myndskeiðin
séu í raun öll draumur stúlkunnar sem sefur.
Þannig verður sýningin heillandi en setur í
senn að manni beyg. Í raun má segja að hér sé
komin íslensk nútímamyndlist þar sem unnið er
með íslenskt hugarástand og íslenskt umhverfi
með áhrifaríkum hætti.
Ær og mök
Síðast en ekki síst langar mig hér að minnast
á sýningu tveggja akureyrskra myndlistar-
nema, þeirra Jónu Hlífar Halldórsdóttur og
Baldvins R. Vignissonar. Baldvin er undir sjá-
anlegum áhrifum frá Birgi Andréssyni, þar sem
hann birtir textalýsingu á tveimur hrútum og
sýnir svo einnig myndir unnar með gulli á við-
arpanel af nafngreindum hrútum af hinum
ýmsu bóndabæjum. Það sem er áhugavert við
hlut Baldvins eru tengsl sýningarinnar við um-
ræðuna í samfélaginu en um fátt hefur verið
meira rætt undanfarið en bága stöðu sauð-
fjárbænda í landinu. Þar hefur sauðféð sjálft og
þeir „persónuleikar“ sem hver ær og hrútur
búa yfir gleymst, en Baldvin minnir hér á með
sýningu sinni.
Jóna Hlíf á hins vegar það verk sem kom
mér hvað mest á óvart í Akureyrarferð minni,
myndbandsverkið Mök. Þar stendur drengur
ber að ofan og horfir í myndavélina og segir sí-
endurtekið orðið Mök. Spennan vex í herberg-
inu, orðið fær á sig skúlptúrkenndan blæ,
drengurinn vill auðsjáanlega hafa mök við eitt-
hvað eða einhvern, og eftir stendur mynd af
dreng með óuppfyllta þrá eða þráhyggju, sem
heldur áfram að kalla fram spurningar langt út
fyrir sýningarrýmið.
Akureyri í óræðri framtíð. 700.000 manna borg.
Íslensk myndlist
MYNDLIST
Listasafn Akureyrar
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12–17.
Til 2. nóvember.
MÁLVERK, ÚTSKURÐUR, TEIKNINGAR, LJÓSMYNDIR.
ÝMSIR LISTAMENN
ERLA HARALDSDÓTTIR OG BO MELIN
Bögglageymslan, Listagili
Sýningunni er lokið
MÁLVERK, TEXTI, MYNDBAND.
BALDVIN R. VIGNISSON OG JÓNA HLÍF HALLDÓRS-
DÓTTIR
Gallerí 02
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14–18.
Til 21. september.
MYNDBAND, LJÓSMYNDIR.
FINNUR ARNAR
Þóroddur Bjarnason
Líkneski af Maríu Guðsmóður eftir séra Hjalta
Þorsteinsson í Vatnsfirði. Útskorið og málað lík-
neski úr tré frá um 1700–1730.