Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2003, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2003, Blaðsíða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 2003 É G ER eini Bandaríkjamaðurinn hér á bókmenntahátíðinni,“ seg- ir Bill Holm og þykir það greini- lega sérkennilegt. „Ég er fulltrúi Bush og Ashcroft; ég er fulltrúi Bagdad-gengisins!“ Hann hlær hásum hlátri um leið og hann hristir höfuðið. Bill Holm þætti ekkert óeðlilegt að teljast til íslensku höfundanna á hátíðinni, því þótt hann sé fæddur og alinn upp í Minneota í Minnesota- er hann í báðar ættir kominn af íslenskum inn- flytjendum. Þessi íslenska arfleifð hefur verið áberandi í skrifum hans. Þá starfaði Bill um skeið sem kennari við Háskóla Íslands og nú hefur hann keypt sér hús á Hofsósi, í nágrenni við Vesturfarasetrið, og unir sér þar vel stóran hluta ársins. Bill Holm er hávaxinn maður og ofurlítið hokinn, með snjóhvítt hár og skegg; hann er rómaður sagnaþulur og fer aldrei í launkofa með skoðanir sínar. „Þótt sumir segi mig vera fulltrúa Banda- ríkjanna hér eru rithöfundar venjulega utan- gátta í samfélaginu,“ segir hann. „Það er þeirra starf og getur verið óþægilegt. Nicolas Shake- speare er einn af fulltrúum Breta hér á hátíð- inni – og maður verður að skjóta því inní að hann er kvæntur Vestur-Íslendingi, Julian Johnson, gullfallegri konu frá Gimli, af gamalli íslenskri fjölskyldu. Þótt hann sé breskur hef- ur honum aldrei fundist hann vera heima hjá sér á Englandi. Hann hefur ekki einu sinni skrifað um það. Á einhvern undarlegan hátt er hann ekki breskur höfundur. Á dögunum hitti ég hann á Tasmaníu, utan við Ástralíu, og þar er hann fullkomlega hamingjusamur. Hann hefur eignast heimili. Og rétt eins og ég hér, þá hefur hann fundið þar ættingja, tvær gamlar frænkur, og fræðst um forföður sem var einn hvítu frumbýlinganna. Við erum tveir skrýtnir fuglar! Enskur rithöfundur sem þolir ekki England og bandarískur höfundur sem þolir ekki Bandaríkin.“ Þú segir að þið rithöfundar séu einskonar ut- angarðsmenn í samfélaginu. Í greinasafni þínu The Heart can be Filled Anywhere on Earth er fjallað um liðnar kynslóðir íslenskra landnema í Bandaríkjunum og afkomendur þeirra. Þetta er fjölskylda þín og fólk sem tengist þér og þú skrifar um þennan horfna heim af mikilli hlýju; úr ótal smáatriðum skaparðu heilstæðan heim sem var. Veitir það utangarðsmanninum skjól að geta horfið á þennan hátt inn í fortíðina? „Nei, ekki endilega. Ég vil hugsa um það liðna á svipaðan hátt og Friðrik Þór gerir í kvikmyndum sínum. Eitt af því merkilega við myndirnar hans, er að hann er alltaf með jarð- arfarir í þeim. Einhvern tímann sagði hann þessi listaverk sín vera um látið fólk sem hann bar virðingu fyrir og þótti vænt um. Ég lít á vissan hátt á bækurnar mínar sem eftirmæli eða grafskriftir. Það er hluti af starfi mínu að segja sögur þessa gamla fólks. Það var merkilegt að hlýða á Hanif Kureishi hér á há- tíðinni. Hann er hálfur Breti og hálfur Pakist- ani. Hann sagði frá föður sínum sem flutti frá Pakistan og upplifði algjöran umsnúning á til- verunni. Því þegar þú yfirgefur fæðingarland þitt taparðu menningu þinni, þú slítur upp ræt- urnar, þú tapar tungumálinu og tengslunum við landslagið og náttúruna. Hann var úr efri millistétt en þegar hann kom til London var hann ekkert annað en hver annar „Paki“, að- skotadýr sem spýtt var á. Íslendingarnir sem fluttu vestur um haf voru vissulega svolítið öðruvísi. Þeir voru svo sann- arlega ekki af efri millistétt, þeir voru fátæk- astir af þeim fátæku. En þeir voru Íslendingar, sem þýddi að þeir kunnu að lesa, að þeir fluttu með sér 1000 ár af íslenskri menningu og sögu. Og höfðu þessar fjárans gömlu bækur. Þegar þetta fólk kom til Bandaríkjanna, sem hefur alltaf verið stýrt af peningum, þá varð það full- komlega áttavillt. Fyrsta kynslóð innflytjend- anna gat aldrei orðið Bandaríkjamenn eins og George Bush – og ég segi nú bara: Guði sé lof! En það var hlutverk mitt sem rithöfundar að setja saman vitnisburð um líf afa okkar og ömmu og tilveru þeirra í þessum nýju heim- kynnum. Vissulega er verið að heiðra minningu þeirra um leið en þetta fólk gat aldrei orðið Bandaríkjamenn. Það talaði með hörðum ís- lenskum framburði; þetta var fólk sem hefði aldrei verið hleypt í sjónvarpið, hefði ekki vitað neitt um Baywatch og ólíkt Arnold Schwarz- enegger hefðu þau aldrei boðið sig fram til rík- isstjóra í Kaliforníu. Veit ekki lengur í hvaða landi ég bý Nú er ég eiginlega búinn með þennan kafla í skrifum mínum, þetta fólk er flest allt dáið. Hvort sem það er gott eða slæmt þá er nýja kynslóðin Bandaríkjamenn. Og mér finnst erfitt að segja þetta,“ segir Bill og pírir augun, „en ég kann ekki við það. Mér finnst að eftir því sem ég eldist meira verði Bandaríkin mín sífellt minni og Ísland stækkar. Bæði í raunveru og í ímyndun. Þegar þú ferð á flugvöll í Bandaríkjunum þarftu að fara úr skónum og þú sérð leitað á gömlu fólki, það þarf jafnvel að taka af sér gervifætur. Þetta eru ekki Bandaríkin mín! Þegar þú sérð myndir af Bush á bæn, og þegar þú sérð upphrópanir Rums- felds um sigur, þá er það ekki landið mitt. Í Minnesota er nú búið að samþykkja lög sem leyfa fólki að ganga um með hlaðnar skamm- byssur, rétt eins og í Texas. Nú eru skilti við dyr á bönkum og kirkjum, sem segja að fólk megi ekki fara með hlaðin skotvopn inn í bygg- inguna. Maður lítur á þessi skilti og hugsar: Ég bý ekki í ÞESSU landi! Einu sinni grobbaði ég mig af því að Minne- sota væri ólíkt öðrum ríkjum Bandaríkjanna – en svo er ekki lengur. Það hefur skorið niður styrki til lista. Það hefur hlaðið undir þá ríku og gert þeim fátæku erfiðara fyrir. Skattar hafa verið lækkaðir svo fólk geti keypt öflugri lása og fjárfest í stríðsskuldabréfum og um leið og efnahagur ríkisins versnar, hrörnar einnig vitsmunalíf landsins; siðferðinu hrakar. Banda- ríkin sem ég bý í nú eru ekkert annað en minn- ing og þar búa gamlir Íslendingar og bændur. Ekki George Bush. Svo kem ég til Íslands og er hamingjusamur. Manni léttir. Ég geri mér vel grein fyrir því að Ísland er ekki fullkomið. Eitt aðal vandamálið í Banda- ríkjunum er hömlulaus eyðing náttúrunnar og svo kemur maður til Íslands og upplifir þessa fáránlegu vitleysu við Kárahnjúka, þar sem stjórnvöld valta yfir ósnortna náttúruna. Það er hörmulegt. Það er mesta skömm þessarar þjóðar. Hafðu það endilega eftir mér, að allir sem koma nálægt þeim ákvörðunum ættu að skammast sín. Þeir munu lifa til að sjá eftir því og þeir munu lifa það að sjá orðstír sinn flekk- aðan af því að hafa komið nærri þessari fávisku. En Íslendingar upplifa hjálparleysi gagn- vart þessum framkvæmdum. Það er alveg eins og raunin er með Bandaríkjamenn. Ég vildi ekki fara í stríð í Írak! Ég vildi ekki skotvopn í bönkum, skólum og kirkjum! Mér er sagt að ég eigi að halda mér saman vegna öryggis þjóð- arinnar. Ég veit ekki lengur í hvaða landi ég bý. Landið mitt minnkaði frá Minnesota niður í Vestur-Minnesota; síðan minnkaði það frá Vestur-Minnesota niður í íslensku byggðirnar umhverfis Minneota; og nú eru næstum allir Íslendingarnir þar látnir og landið hefur minnkað niður í húsið mitt. Þar bý ég. Hálfs ekru land! Til að geta hreyft mig kem ég til Ís- lands, fer til Skagafjarðar, horfi út um gluggann og sé eitthvað stærra. Bandaríkjamenn eru mjög uppteknir við að eyða orkulindum sínum og náttúrunni og láta sér standa á sama um ástand heimsins. Svo fer ég að tala við fólk hér um ástand fiskveiða við Ísland og það gefur heldur betur ástæðu til að hafa áhyggjur. En það er fyrir ykkur Íslend- inga að laga, ekki mig. Að setja allan kvótann í hendur þeirra fáu sem geta borgað best, leyfa þeim að skrapa botn hafsins og henda burt helmingnum af því sem þeir veiða!“ Bill hristir höfuðið hneykslaður. „Ísland þarf ekki að ganga í Evrópusambandið til að láta skemma fyrir sér fiskveiðarnar, þið farið létt með það sjálf. Húsið mitt á Hofsósi er fimmtíu metra frá sjónum og ég hef mikinn áhuga á hafinu. Ég borða þorsk og ýsu upp úr sjónum, fer stundum á veiðar sjálfur. Það er eitthvað hressandi við kalt slímið á ferskum þorski.“ Er mikill sannleikselskandi Í skrifunum hefurðu mest fengist við ljóð og greinar, „esseijuna“. Ritgerð er ekki vinsæl- asta bókmenntaformið, nýtur ekki hylli eins og skáldsagan, en býður upp á mikið frelsi hvað varðar nálgun við umfjöllunarefnið. „„Esseijan“ er dásamleg því innan hennar geturðu einnig skrifað sögur og ég geri það svo sannarlega. Hlutar hafa verið teknir út úr rit- gerðum eftir mig og prentaðir í safnritum með smásögum. En þú getur einnig komið hug- myndum fyrir í þessu formi. Í skáldsögum nú- tímans ríkir mikil tortryggni gagnvart hug- myndum. „Esseijurnar“ mínar verða gjarnan eins og safn af því sem mér er annt um. Mér þykir svo gott að í þessu formi er hægt að koma fyrir nær öllu nema eldhúsvaskinum! Thoreau gerði það, Montaigne; allir forverar nútíma „esseijunnar“. „Esseijistar“ skrifa alltaf með sinni eigin rödd, það er ekkert um þetta grímubúna kjaft- æði. Hlutverk þeirra er að gera sitt besta við að segja sannleikann. Ég er mikill sannleikselsk- andi. Þú breytir ekki sannleikanum til að gera hann lesvænni. Stundum hefurðu rangt fyrir þér. Sérstaklega þegar „esseijistar“ lýsa stjórnmálaviðhorfum – meira að segja þegar ég lýsi mínum! Þú getur misskilið hluti, þér geta orðið á mistök, það getur verið að þú vitir ekki um hvað þú ert að tala, en það er ekki þitt starf að gefa ráð eða snúa fólki til fylgis við eitthvað – heldur að opinbera hvað það er að vera mað- ur. Sjónvarpið mun aldrei segja þér hvað það er að vera maður. 99% kvikmynda segja þér ekki hvað það er að vera maður.“ Finnst þér „esseijan“ njóta nægilegrar virð- ingar sem bókmenntaform? „Ég vildi vera ríkur,“ segir Bill og hlær. „Það væri gaman að geta setið á Hofsósi og framleitt söluvöru. Sumir „esseijistar“ njóta velgengni og eigan tryggan lesendahóp. En þeir munu aldrei þéna eins og skáldsagnahöfundar. Það gerir enginn kvikmyndahandrit eftir „esseiju“. Tekjumöguleikarnir eru færri. En meðan Bush gerir okkur ekki alveg gjaldþrota gengur þetta einhvern veginn upp. Ég er sextugur og hef ekki enn þurft að svelta. Það er ennþá þorskur í fjörðunum og svín í Vestur-Minnesota. EKKERT GRÍMUBÚIÐ KJA Bill Holm er fæddur og uppalinn í Bandaríkj- unum en ræturnar eru íslenskar. Hann er kunnur fyrir ljóð og ritgerðir, sem oftar en ekki sækja efni- við til íslenskrar arfleifðar höfundarins. Bill var einn gestanna á nýafstaðinni Bókmenntahátíð í Reykja- vík og sagði EINARI FAL INGÓLFSSYNI frá undursamlegu sumri á Hofsósi og efasemdum sínum um þróun mála í Bandaríkjunum. „Maður á bara að horfa á náttúruna og halda sér saman – og reyna að eyðileggja hana ekki. Náttúran mun bjarga sálinni,“ segir Bill Holm.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.