Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.2003, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.2003, Page 15
DÓMKÓRINN minnist þess í tali og tónum að á morgun eru 110 ár liðin frá fæðingu Páls Ísólfssonar dómorganista. Dagskráin hefst kl. 17 í Dómkirkjunni. Páll Ísólfsson var organisti Dómkirkjunnar frá 1939 til 1968 og mun kórinn minnast hans fyrst og fremst sem kirkjulistamanns. Á dagskránni verður orgel- og kórtónlist eftir Pál. Marteinn H. Friðriksson mun leika það verk sem Páll sjálfur lék oftast sinna verka, Cha- conne um stef úr Þorlákstíðum. Einnig verður flutt orgelverk Jóns Nordal, Tokkata, en það samdi hann í minningu Páls. Verk Jóns var frumflutt við vígslu orgels Dómkirkjunnar 1985. Þriðja orgelverkið sem flutt verður er Fantasía fyrir orgel sem Hjálmar H. Ragnarsson samdi fyrir réttum áratug. Dómkórinn syngur sálma og kórlög eftir Pál og tónskáldið Þorkell Sigurbjörnsson segir frá kynnum sínum af honum. Dómkórinn minnist Páls Ísólfssonar Páll Ísólfsson Jobeus sendi- herra Svíþjóðar og Lars-Göran Johansson sendi- kennari í sænsku við HÍ kynna skáldið. Súfistinn, Laugavegi 18 kl. 20.30 Útgáfuhátíð á veg- um bókaforlagsins Bjarts. Sjón: Skugga-Baldur. Listaháskóli Íslands, Skip- holti 1 kl. 12.30 Kanadíski ljósmyndarinn Edward Burt- ynsky flytur fyrirlestur um eigin verk. Í þeim fjallar hann um umbreytingu náttúrunnar fyrir tilstilli mannsins.Verk hans er að finna á öllum helstu lista- söfnum heims m.a. Guggen- heim og MOMA. Fimmtudagur Háskólabíó kl. 19.30 Sin- fóníuhljómsveit Íslands og Söng- sveitin Fílharm- ónía. Hljóm- sveitarstjóri er Rumon Gamba. Fluttar verða Sinfóníur nr. 1, 2 og 3 eftir Dmítríj Shostakovitsj. Laugardagur Hafnarborg kl. 15 Sýning á leirlist Sigríðar Erlu Guð- mundsdóttur. Pétur Hall- dórsson sýnir verk sem hann vinnur á hefðbundin hátt. Op- ið kl. 11–17 alla daga nema þriðjudaga. Listhús Ófeigs, Skóla- vörðustíg kl. 16 Ásgeir Lár- usson sýnir 24 olíumyndir af stærðinni 18 x 24. Ásgeir hef- ur haldið á þriðja tug einka- sýninga og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum. Opið virka daga frá 10–18, laugardaga 11–16. Gallerí Tukt, Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5 kl. 16 Ólafur Orri Guðmundsson opnar sýningu á verkum sín- um: innsetning, málverk og skissur, sem lýsa neðanjarð- arlist. Ólafur stundaði nám í The American International School of Rotterdam. Þetta er fyrsta einkasýning Ólafs og stendur til 25. október. Kaffi List, Laugavegi 20 Haukur Dór sýnir málverk út október. Myndirnar eru án tit- ils, unnar með akrýllitum á striga. Verkin eru ný og eru til sölu. ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 21 kl. 17 Alda Sverrisdóttir sýnir ljósmyndir. Alda lauk nýlega BA námi í ljósmyndun við Queensland College of Art í Brisbane, Ástr- alíu. Myndröðin er svarthvítar myndir af áströlsku landslagi. Sýningin stendur til 6. nóv- ember. Opið alla daga nema sunnudaga kl. 13–17. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi Þorsteinn Helgason sýnir 48 olíumálverk. Þor- steinn starfar sem arkitekt en hefur tekið þátt í fjölmörgum myndlistasýningum. Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 15–18. Salurinn kl. 14.30 Nanna Hovmand mezzósópran og Jónas Ingimundarson píanó, flytja söngva eftir norrænu tónskáldin P.E. Lange-Müller, Carl Nielsen, Edvard Grieg og Peter Heise og íslensk sönglög eftir Sigvalda S. Kaldalóns, Hallgrím Helgason, Karl O. Runólfsson, Jón Ásgeirsson, Jónas Ingimundarson, Jórunni Viðar og Þórarin Guðmunds- son. Íslenska óperan kl. 20 Óp- erutvennan Madama Butterfly og Ítalska stúlkan í Alsír. Söngvarar: Hulda Björk Garð- arsdóttir, Sesselja Kristjáns- dóttir, Davíð Ólafsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Píanóleikari Kurt Kopecky. Sunnudagur Salurinn kl. 20 KaSa hóp- urinn og Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja kammertónlist og söng- lög eftir Richard Strauss: Són- ata fyrir fiðlu og píanó op. 18; úrval sönglaga fyrir sópran og píanó; Sextett fyrir strengi úr óperunni Caprice op. 85. Borgarleikhúsið, Nýja svið kl. 20.30 Bergur Þór Ingólfsson leikari flytur ljóð úr bók Jóns Thoroddsen, Flugur, (1922). Bókin var sú fyrsta hér á landi sem hafði eingöngu að geyma prósa- ljóð. Ljóðin flytur Bergur sem leik- húsverk og fær til liðs við sig Sölva Blöndal úr Quarashi. Trúð- urinn Úlfar legg- ur út af Flugum á sinn hátt. Listasafn Íslands kl. 15 Dagný Heiðdal listfræðingur gengur með gestum safnsins um sýninguna Vefur lands og lita –Yfirlitssýning á verkum Júlíönu Sveinsdóttur. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir kl. 15 Leið- sögn um sýningar Eyjólfs Ein- arssonar og Sæmundar Valdi- marssonar. Síðasti sýningardagur. Nýlistasafnið kl. 15 Bryn- dís Ragnarsdóttir myndlist- armaður verður með leiðsögn um sýninguna Grasrót 2003. Síðasti sýningardagur. Kl. 16 fer fram val á Myndlist- armanni Grasrótar 2003. Mánudagur Listaháskóli Íslands, Laugarnesi kl. 12.30 Guð- rún Einarsdóttir myndlist- armaður flytur fyrirlestur og sýnir skyggnur af verkum sín- um. Þriðjudagur Listasafn Íslands kl. 12.10–12.40 Rakel Péturs- dóttir verður með leiðsögn um sýninguna Vefur lands og lita –Yfirlitssýning á verkum Júl- íönu Sveinsdóttur. Íslenska óperan kl. 12.15 „Nú er það svart“. Davíð Ólafsson bassi og Daníel Bjarnason píanóleikari flytja m.a. negrasálma. Miðvikudagur Norræna húsið kl. 12.30 Marta G. Halldórsdóttir syng- ur Þjóðlög úr safni Bjarna Þor- steinssonar í nýjum útsetn- ingum Hildigunnar Rúnarsdóttur. Við píanóið er Örn Magnússon. Salurinn kl. 20 Helene Gjerris syngur með Caput undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Tvö af merk- ustu tónverkum 20. aldar; Pierrot Lunaire eftir Arnold Schoenberg frá árinu 1912 og Le Marteau sans Maitre eft- ir Pierre Boulez frá árinu 1954 en verkið er í fyrsta sinn flutt hér á landi. Norræna húsið kl. 20 Bókakaffi. Ljóðskáldið Per Helge flytur ljóð og segir frá rithöfundaferli sínum. Bertil Per Helge Rumon Gamba Bergur Þór Ingólfsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. OKTÓBER 2003 15 Morgunblaðið/Þorkell Margrét Bóasdóttir ásamt Sigurði Halldórssyni og Birni Steinari Sólbergssyni á æfingu í Langholtskirkju. BLÓMIN úr garðinumnefnist tónleikaröðsem Kór Langholts-kirkju stendur fyrir í tilefni af 50 ára afmæli kórs- ins. Næstu tónleikar verða kl. 17 í dag. Margrét Bóas- dóttir sópransöngkona velur lögin og fær til liðs við sig Sigurð Halldórsson selló- leikara og Björn Stein- ar Sól- bergsson orgelleik- ara. Hvaða lög valdir þú úr „garðinum þínum“ Margrét? „Ég ákvað að taka þau blóm úr mínum garði sem mér þykir fallegust. Þar eru tvö ný blóm, hin eru blóm sem ég hef flutt áður. Það má segja að íslenskt nútíma- barokk, úr fornum íslensk- um handritum, sé inn- rammað með glæsilegum lofsöngvum frá Claudio Monteverdi og Johann Seb- astian Bach. Meðal annars frumflytjum við í heild sinni útsetningar Elínar Gunn- laugsdóttur á Fjórum forn- um sálmum fyrir sópran og selló. Aðrir tónhöfundar eru Hróðmar Ingi Sigurbjörns- son, Hildigunnur Rúnars- dóttir, Mist Þorkelsdóttir, Smári Ólason og Snorri Sig- fús Birgisson, öll af kynslóð yngri tónskálda. Ekki síður valdi ég þessi verk vegna þess að í Kór Langholts- kirkju var mín fyrsta upp- lifun á kirkjutónlist, það var mjög áhrifarík lífsreynsla. Árunum mínum með kórn- um get ég þakkað það að ég hef lagt fyrir mig kirkju- tónlist framar annarri tón- list. Það er það sem ég kann best og þykir skemmtilegast að gera. Ég hef meira eða minna verið viðloðandi Langholtskirkju alla tíð og kirkjan hefur aldrei hætt að vera mitt heimahús.“ Evrópskt barokk og ís- lenskt nútímabarokk er yf- irskrift tónleikanna. Hvern- ig kom þessi titill til? „Allt mega nú blómin í garðinum heita. Titillinn er tilkominn vegna þess að tón- listin sem flutt verður er öll frá sama tíma. Þegar þessir ágætu meistarar, Monte- verdi og Bach, voru að skrifa sín gleðiljóð úti um alla Evrópu, sungu Íslend- ingar einföld sálmalög af bréfsnifsi eða skinnbót. Það er okkar forni arfur. Síðan koma hin ungu íslensku tón- skáld í fríðri fylkingu og gera hvert um sig mjög fjöl- breytilegar og skemmti- legar útsetningar á þessum sálmum. Þau sýna fram á að sálmarnir eru ekki lítils virði í einfaldleik sínum.“ Þú munt einnig syngja sálma án undirleiks. Hvern- ig tekur kirkjan við „ein- röddinni“? „Ég komst fyrst á bragðið í Skálholtskirkju, en þar er yndislegt að syngja án und- irleiks. Langholtskirkja er líka mjög vel fallin fyrir þetta söngform. Á tón- leiknum í dag flyt ég fjóra sálma úr hinni frægu kvæðabók Ólafs Jónssonar frá Söndum eins og þeir standa í handritinu. Fólk ætti að fá tilfinningu fyrir því hvernig þeir voru fluttir í fyrndinni. Að flytja þessa sálma? Mér finnst það frábært og það hefur verið mitt yndi að syngja þá án undirleiks. Ég er líklega svona forn í anda en ég hef alltaf fundið hinn hreina tón í þessum tæru og stórsérkennilegu sálmalög- um. Ég hef gert mjög mikið af því að syngja án undir- leiks, sérstaklega meðan ég bjó í Skálholti. Þar hófst vinna með þennan forna arf á vegum Collegium music- um, félags um tónlistarflutn- ing og tónlistarrannsóknir í Skálholti.“ Nú er sellóið og barokk- orgelið einleikshljóðfæri. Hvernig er að syngja með þessum „röddum“? „Það er mjög spennandi form, en þrælerfitt. Það er gaman að syngja með þess- um hljóðfærum, en þau eru ólík. Sellóið er sagt það hljóðfæri sem hefur mann- legasta hljóminn, en orgelið umlykur mann með breiðum faðmi sínum. Að syngja með sellói er svolítið eins og ganga á hárfínni línu því þetta er kammertónlist á hæsta stigi. Sumt af lög- unum er útsetningar sem ég hef flutt á Sumartónleikum, eftir Hróðmar og eins eftir Snorra Sigfús. Það sem er auðvitað skemmtilegt er að tvö tónskáldanna, Snorri og Elín, útsetja eða ætti ég frekar að segja semja, lög við sálmana fyrir einleiks- selló. Það er óskaplega fal- legt og mjög spennandi.“ Eru tónleikaferðir í far- vatninu? „Já, mér hefur verið boðið til Bandaríkjanna nú í jan- úar og held þar tónleika í fjórum borgum, New York, Philadelphiu, Princeton og Washington og flyt íslenska kirkjutónlist. Tónleikarnir eru allir inni í skipulögðum tónleikaröðum en það er mikill munur á því og að halda staka tónleika. Þetta er mjög spennandi. Með mér í för verður Guðmundur Sig- urðsson orgelleikari sem lauk námi frá Princeton á síðasta ári.“ Í fornum sálmum finn ég hljóminn tæra STIKLA Barokk- tónleikar í Langholts- kirkju Næsta v ika MYNDLIST Gallerí Hlemmur: Jon Brunberg. Til 26. okt. Gallerí Kling og Bang, Laugavegi 23: Birgir Andrésson, Sigurður Sveinn Halldórsson og Hlynur Sig- urbergsson. Til 26. okt. Gallerí Skuggi: Guðrún Öyahals. Til 12. okt. Gerðarsafn: Austursalur: Verk úr einkasafni Þorvald- ar Guðmundssonar og Ingi- bjargar Guðmundsdóttur. Vestursalur: Guðrún Gunn- arsdóttir. Neðri hæð: Hulda Stefánsdóttir. Til 2. nóv. Gerðuberg: Yfirlitssýning á verkum Koggu sl. 30 ár. Til 16. nóv. Hafnarborg: Pétur Hall- dórsson. Sigríður Erla Guð- mundsdóttir. Til 28. okt. Hallgrímskirkja: Gunnar Örn. Til 1. des. Hús málaranna, Eið- istorgi: Björn Birnir. Til 19. okt. i8, Klapparstíg 33: Guð- rún Einarsdóttir. Undir stig- anum: Tomas Lemarquis. Til 1. nóv. Listasafn Akureyrar: Þjóð í mótun. Vestursalur: Erla S. Haraldsdóttir og Bo Melin. Til 2. nóv. Listasafni ASÍ: Arinstofa, Kristinn Pétursson. Einar Garibaldi Eiríksson og Bruno Muzzolini. Til 12. okt. Listasafn Borgarness: Jóhannes Arason. Til 5. nóv. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Íslands: Júlíana Sveinsdóttir. Sara Björns- dóttir og Spessi. Til 26. okt. Listasafn Reykjanes- bæjar: Stefán Geir Karls- son. Til 19. okt. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Ásmund- ur Sveinsson – Nútímamað- urinn. Til 20. maí. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi: Erró – stríð. Til 3.1. Samsýning alþýðu- listar og samtímalistar, í samstarfi við Safnasafnið. Úr byggingarlistarsafni. Innsetning Bryndísar Snæ- björnsdóttur og Mark Wil- son. Til 2. nóv. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Eyjólfur Einarsson. Sæmundur Valdimarsson myndhöggv- ari. Til 12. okt. List án landamæra: Sigurður Þór Elíasson, Gísli Steindór Þórðarson og Simun Poulsen. Til 12. okt. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi: Þorsteinn Helgason. Til 26. okt. Listhús Ófeigs, Skóla- vörðustíg: Ásgeir Lárusson Til 30. okt. Ljósmyndasafn Reykja- víkur: Magnús Ólafsson ljósmyndari. Til 1. des. Mokkakaffi: Bjarni Bern- harður. Til 15. okt. Norræna húsið: Skart- gripir norsku listakonunnar Liv Blåvarp. Til 19. okt. Anddyri: Sari Maarit Ced- ergren. Til 12. okt. Nýlistasafnið: Grasrót 2003. Til 12. okt. Ráðhús Reykjavíkur: Myndlistarsýning í tilefni Al- þjóða geðheilbrigðisdags- ins 10. okt. Til 12. okt. Safn – Laugavegi 37: Opið mið-sun, kl. 14–18. Til sýnis á þremur hæðum ís- lensk og alþjóðleg samtíma- listaverk. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Skáld mánaðar- ins – Matthías Johannessen. Þjóðarbókhlaða: Humar eða frægð: Smekkleysa í 16 ár. Til 23. nóv. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www. umm. is undir Fréttir. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Ríkarður þriðji, frums. fös. Dýrin í Hálsaskógi, sun. Allir á svið, Veislan, lau., sun. Borgarleikhúsið: Lína Langsokkur, lau., sun. Öf- ugum megin upp í, fös. Pun- tila og Matti, lau. Kvatch, mið. Íslenski dansflokk- urinn: Þrjú dansverk: The Match, Symbiosis, Party, sun. Loftkastalinn: Erling, fim. Hafnarfjarðarleikhúsið: Vinur minn heimsendir, fös. Iðnó: Sellófon, lau., mið. Möguleikhúsið: Prumpuhóllinn, sun. Gamla bíó: Plómur í New York, sun., fim. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi: Kvenfélagið Garpur frumsýnir Riddara hringborðsins – Með veskið að vopni, lau. Mán., þrið., mið. Tónlistarhúsið Ýmir: 100% „hitt“ með Helgu Brögu Jónsdóttur, frums. fös.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.