Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2004, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. JANÚAR 2004 7 Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan glugga; þarna siglir einhver inn ofurlítil dugga. S kömmu fyrir jólin 2002 fór fram skemmtileg umræða í Lesbók Morgunblaðsins um þessa al- kunnu vísu eftir Sveinbjörn Egilsson. Ólafur Halldórsson reið á vaðið 30. nóvember („Misskilin vísa?“). Hannes Pétursson svaraði 7. desember („Fiðrildin hvítu“), og loks kom Baldur Ragn- arsson á vettvang 14. desember („Enn um fiðrildin hvítu“). Þessir heiðursmenn voru að velta því fyrir sér hvort skilja ætti vísuna bók- staflega eða gera ráð fyrir myndlíkingum í henni, og hafði hver sína ráðningu á þeirri gátu. Eru fiðrildin raunveruleg eða eiga þau að tákna snjóflygsur? Er duggan fiskiskúta eða tákn einhvers annars? Á þessari skemmtilegu þraut eru fjórar hugsanlegar lausnir: 1. Bæði fiðrildin og duggan eru raunveruleg (sumarvísa). 2. Fiðrildin eru raunveruleg, en duggan ekki (sumarvísa). 3. Duggan er raunveruleg, en fiðrildin ekki (vetrarvísa). 4. Hvorki duggan né fiðrildin eru raunveru- leg (vetrarvísa). Fiðrildi flögra á sumrin, en snjóflygsur á veturna, svo að árstíðirnar skipta máli. Baldur Ragnarsson hallaðist að fyrstu lausninni og Ólafur að annarri. Hannes segist hafa trú á vetrarvísu, enda er það hefðgróinn skilningur á Álftanesi að vísan hafi orðið til að vetrarlagi og „hvítu fiðrildin“ séu snjóflygsur. Um dugguna hefir færra verið sagt. Ólafur benti þó á að „ofurlítil dugga“ gæti táknað fiðrildi, en Hannes lætur ekki uppi hvort hann telur hana raunverulega eða ekki. Hins vegar segist hann hafa gert það sér til gamans að leggja út af vísunni frá öðru sjónarhorni í einu ljóða sinna og lét þá sem allt væri raunveru- legt, bæði fiðrildin og duggan, og sumar í lofti. Sama kemur fram í nýjustu bók hans, Birtu- brigðum daganna (2002), en hún varð tilefni þess að Ólafur Halldórsson tók til máls. Sumarvísu hefir sem sé verið gert nokkuð hátt undir höfði í þessari umræðu, en mig langar til að hyggja betur að fjórða og síðasta kostinum. Áður en lengra er haldið skal það rifjað upp að þessi ágæta barnavísa var fyrst birt í ljóð- mælum undir fyrirsögninni „Kristín segir tíð- indi“, og er það skilið svo, að Kristín hafi sagt eitthvað við föður sinn sem kom honum á óvart og varð kveikjan að vísunni. ***** Allir eru víst sammála um að vísan hafi orð- ið til á Eyvindarstöðum á Álftanesi á fyrstu búskaparárum Sveinbjarnar Egilssonar þar. Sveinbjörn var skólakennari á Bessastöðum og bjó þar um skeið, en keypti Eyvindarstaði 1834 og fluttist þangað haustið 1835, nánara tiltekið 8. september. Jón Árnason, þjóð- sagna-safnari og bókavörður, sem þekkti Sveinbjörn vel og bjó hjá honum um tíma á Eyvindarstöðum, segir (1856:LXIII) að þar hafi hann húsað „ágætavel upp úr rústum, girti túnin og sléttaði mikið af þeim, og munu þess enn sjást lengi menjar, að dugandi maður hafi einhvern tíma setið á Eyvindarstöðum“. Benedikt Gröndal, sonur Sveinbjarnar, seg- ir einnig í Dægradvöl (bls. 21) að faðir sinn hafi látið byggja allt upp að nýju á Eyvind- arstöðum og lýsir híbýlum og háttum manna þar á þessum árum. Um bæinn sjálfan segir hann m.a. í Dægradvöl (bls. 22–23): Bærinn lá á aðlíðanda upp frá mýrinni að sunnanverðu, og er hann hæstur að vestanverðu og brattur. Á suð- urgafli stofunnar voru þrír gluggar, tveir á stofunni þar sem faðir minn sat og hafði bækur sínar, en einn á her- bergi þar við hliðina, sem kallað var „barnakamers“, því þar sváfum við börnin fyrstu árin á Eyvindarstöðum. Í norðurenda stofunnar var borðstofan, og þar við hliðina „mömmukamers“, þar sváfu foreldrar mínir. … Vegna aðlíðandans var norðurendi stofunnar eða aðalhússins í jörð upp að gluggum, og slétt flöt þar fyrir framan. Auk þessarar lýsingar er til mynd af bæn- um sem Gröndal teiknaði sjálfur um 1840, þegar hann var á fermingaraldri. Þar sést vel að aðalhúsið er stofan og myndarlegir gluggar á framhlið hennar. Við vitum nú að á skrif- stofu Sveinbjarnar voru tveir suðurgluggar og einn á herbergi barnanna, og sá sem setti rúð- urnar í hét Jóhannes Zoëga! Hins vegar vitum við ekkert um hvernig það atvikaðist að „Kristín sagði tíðindi“ sem urðu föður hennar að yrkisefni, og getur hver haft sínar hug- myndir um það. En einhvers konar tíðindi hafa það verið úr því að vísan fékk þessa fyr- irsögn. Enginn veit hvort þau feðgin hafa ver- ið úti við glugga eða ekki. Svo þarf ekki að vera, þótt það sé hinn venjulegi skilningur, en við skulum hugsa okkur það, og þá liggur beinast við að þau hafi verið við einn af þess- um suðurgluggum og horft þar út. Hvernig var þá útsýnið? Hvað sá heimilis- fólk á Eyvindarstöðum þegar horft var þaðan til allra átta? Því svarar Benedikt í Dægradvöl (bls. 22): Útsýnið frá Eyvindarstöðum er þannig, að til vesturs og norðurs blasir sjórinn við og Snæfellsjökull í fjarska; til austurs sést Fagraskógarfjall, Akrafjall, Skarðsheiði og Esjan, Seltjarnarnes allt og Valhúsið og ofan á Reykja- vík, en Skerjafjörður á milli; í austur og landsuður eru Bessastaðir, og bera [þ.e. ber] við hinar mógrænu hæð- ir, sem fela Digranes, Breiðholt og fleiri bæi þar; þar uppi yfir sést Hengillinn og Vífilfell; lengra til suðurs sést Lambhúsatjörn, Garðahraun, melarnir og Garða- holt, en yfir því er Langahlíð, og ber í hana Valafell, Helgafell og Ásfjall, sem er fyrir sunnan Hafnarfjarð- arkaupstað; þá taka suðurfjöllin á Reykjanesi við, Há- degishnúkur, Keilir og Trölladyngjur; á sjálfu Álftanesi sést Brekka og Skógtjörn, en í útsuður er Sviðholt og Bjarnastaðir; lengra til vesturs er Bakkakot og Bakka- kotstjörn; í landnorður Breiðabólstaðir og Akrakot. Líklega á að skilja þetta svo, að úr norð- urgluggum (á borðstofu og „mömmukam- ersi“) hafi mátt sjá út á sjó. Eða er einungis verið að lýsa útsýni frá bæjarstæðinu, hólnum fyrir ofan bæinn? Hvað sem því líður er ekk- ert í þessari lýsingu sem bendir til þess að sést hafi til sjávar þegar horft var til suðurs frá bænum. Nú hefir svo mikið verið byggt á Álftanesi að erfitt er að átta sig á þessu öllu nema rannsaka uppdrætti, en mér sýnist lítil von til þess að nokkur hafi getað séð til skipa- ferða úr suðurgluggum á Eyvindarstöðum, enda líklegt að þeir gluggar hafi vitað dálítið til suðausturs og inn til landsins. Í stuttu máli sagt hefir ekkert útsýni verið til sjávar úr skrifstofugluggum Sveinbjarnar Egilssonar. Ef vafi skyldi leika á því er hitt alveg víst að í snjókomu og dimmviðri, þegar skyggni er inn- an við 1 km, hefir ekkert sést til dugguferða úr neinum glugga á Eyvindarstöðum. Það getur sem sé skipt máli út um hvaða glugga er horft, og þó má efast um það. Önnur og fjórða lausn gátunnar eru óháðar gluggum, en fyrsta lausnin kemur því aðeins til greina að horft sé út um norðurglugga og þaðan hafi sést til skipa á siglingu. Þriðja lausnin er nán- ast dæmd úr leik, ef við hugsum okkur að fiðr- ildi tákni snjóflygsur, því að þá er skyggni lítið og sést ekki út á skipaleiðir. Þetta merkir m.ö.o. að myndhvörf eru í báðum vísuhelm- ingum ef vísan er ort að vetri til; og líkurnar mæla með því. ***** Sitt er hvað skáldskapur og veruleiki. Í báð- um sumarlausnunum er brugðið upp fallegum myndum, sem fara vel í skáldskap, eins og Hannes Pétursson hefir sýnt og sannað. En sá skáldskapur er ekki skýring á vísu Svein- bjarnar. Hannes telur sjálfur að Sveinbjörn hafi ort sína vísu að vetri til. Galdur hennar er einmitt sá hve vel hún leynir myndhvörfum sínum. Fyrri sumarlausnin heimtar að horft sé úr norðurglugga, og tíðindi vísunnar yrðu varla önnur en þau að Kristín hefði nefnt fiðrildi og duggu; síðan hefði faðir hennar fagnað því með vísu, að hún hefði lært að nota þessi orð. Hin sumarlausnin, sem Ólafur Halldórsson mælti fyrir, er nær því að vera bundin við suð- urglugga, þar sem aldrei sést til sjávar, og duggan ímyndun barnsins. En þau „tíðindi“ eru líka í daufara lagi. Í snjómuggu er loftið fullt af svifléttum kornum; þau flögra líkt og fiðrildi sem eru þó oftast á ferðinni eitt og eitt. En snjóflygsur eru nógu líkar fiðrildum til að minna á þau. Fiðrildin eru óneitanlega ljós og blikar á þau á björtum degi, en eru þau beinlínis hvít? Orðin „hvítu fiðrildin“ eiga vel við um snjóflygsur. En í sumarvísu hefði allt eins mátt kalla þau „létt“ eða „ljós“. Hannes Pétursson segir um ljóðaleik sinn í Birtubrigðum daganna (bls. 74) að það sé mikið um lítil hvít fiðrildi á Álftanesi í júlíbyrjun, „eins og grasið hafi snögglega gosið fiðrildum!“. En þó að fiðrildin okkar megi kallast hvítleit eða fölhvít lýsa náttúru- fræðingar þeim ekki svo, að ég hygg. Þau eru nær því að vera ljósgrá og jafnvel svolítið mó- leit. Þegar rökkva tekur síðsumars eru þau grá eða mógrá. En þau sem feðginin horfðu á voru ekki þessi venjulegu fiðrildi, heldur „hvítu fiðrildin“; þau voru öll hvít. Um dugguna er erfiðara að segja. Menn tengja hana víst helst við Dugguós. Frá bæj- arhólnum hefir sést út á Seyluna þar sem duggur lágu forðum. Seylan var höfn og skipalægi á 16. og 17. öld. Þangað sigldu skip hirðstjóra og höfuðsmanna á Bessastöðum. Vera má að skip hafi legið þar eitthvað á dög- um Sveinbjarnar Egilssonar, en ég held að það skipti ekki máli. Þó má vera að Kristín hafi einmitt séð duggu á þeim slóðum sumarið 1836 og snjóflygsa hafi minnt barnið á segl hennar. Reyndar má hugsa sér að Kristín hafi nefnt fiðrildin, en Sveinbjörn bætt við orðunum „of- urlítil dugga“, andað þeim út úr sér, til að ríma við fyrripartinn. En þá er Kristín ekki ein um að segja tíðindin, og vísan farin að minna á samtal. ***** Sveinbjörn stýrði myndarbúi, hafði menn til flestra verka og var sjálfur mikill eljumaður við ritstörf. En einhvern veginn fellur mér það ekki að sá mikli verkmaður hafi setið inni í bæ í glaðasólskini um hásláttinn (jafnvel inni í borðstofu eða „mömmukamersi“), horft á út- sýnið með dóttur sinni og gert um það vísu. Hann var þá maður á besta aldri, um það bil hálffimmtugur, og stundaði búskap með bók- iðjunni, að því er skilja má af ummælum Jóns Árnasonar og einnig af Dægradvöl. Þar segir Gröndal m.a. (bls. 21): „En faðir minn gat ekki gefið sig eingöngu við búskap, hann hafði önn- ur störf á hendi og varð því að trúa öðrum fyr- ir búinu.“ Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir að Sveinbjörn hafi eitthvað verið í búsýslu og úti- verkum fyrstu sumrin á Eyvindarstöðum, enda stóð hann þá í miklum endurbótum á jörðinni. Benedikt segir um þá drengina á bænum að þeir hafi tekið töluverðan þátt í vinnu með fólkinu. „Kennarar okkar gengu einnig að vinnu á sumrin,“ segir hann (bls. 25). – Þegar ég rifja upp bernskuminningar mínar um sumardaga í sveit, rétt liðlega hundrað ár- um síðar, sé ég engan fullfæran karlmann við glugga að sinna barni og horfa á sólskinið. ***** Á veturna var heimilislífið með öðrum brag. Sveinbjörn var ekki aðeins fræðimaður og skáld, heldur hafði hann numið flautuleik og dans á háskólaárum sínum í Kaupmannahöfn og lét fjölskyldu sína njóta þess. Jón Árnason segir svo frá (1856:LXV): Að því skapi sem Dr. Sveinbjörn var ástúðlegur konu sinni, var hann bæði eptirlátur og blíður faðir barna sinna; hann ól staka önn fyrir uppfræðíngu þeirra, þar sem hann annaðhvort kendi þeim sjálfur framan af, á meðan þau voru fá, eða hélt stöðugt menn til þess, eptir að þau fjölguðu. Mikla ánægju hafði hann jafnan af að vera í þeirra hóp; mér er enn í minni, eptir það eg var svo heppinn að komast í hús hans á Eyvindarstöðum 1843, hvílíkur fögnuður það var á vetrarkvöldin, þegar húma tók, fyrir börnin, að flykkjast þá inn í stofuna til hans, og annaðhvort stíga dans eða sýngja undir, er hann brá til gamla vanans, og blés bæði þeim og sér til gamans á þverpípu. Var þar þá tíðum að heyra sam- saung og dynjandi dansleik. Þessum rökkurstundum varði hann þannig ekki einúngis sér til dægrastyttíngar og hressíngar, heldur og börnum sínum til yndis. Á þessu heimili urðu barnavísur Svein- bjarnar til, flestar tengdar Kristínu, dóttur hans: „Kristín litla, komdu hér“, „Eitthvað tvennt á hné ég hef“, „Fuglinn segir bí, bí, bí“ og „Fljúga hvítu fiðrildin“. Kristín Sveinbjarnardóttir fæddist á Bessa- stöðum 29. maí 1833 og hefir því verið tveggja ára og liðlega þriggja mánaða þegar fjölskyld- an fluttist í Eyvindarstaði. Þá hefir Kristín verið lítið farin að tala, en tekið miklum fram- förum í máli fyrsta veturinn sinn á Eyvind- arstöðum. Hún hefir lært að þekkja fiðrildi ekki síðar en sumarið 1836, og ætla má að hún hafi snemma heyrt orðið dugga þegar seglbát- ur sást á sjónum úti fyrir eða við Dugguós. Hvít flygsa álengdar gat verið sama og dugga í vitund hennar. Með hliðsjón af aldri Kristínar gæti vísan verið ort sumarið 1836, í fyrsta lagi, en öllu fremur veturinn 1836–37 og helst ekki miklu síðar. Aldur barnsins kemur best heim við það að vísan sé frá þessum vetri. Hafa má í huga að 1. desember 1835, skömmu eftir flutning fjölskyldunnar í Eyvindarstaði, fæddist þeim Helgu og Sveinbirni dóttir, og var Kristín þá ekki lengur yngsta barnið á heimilinu. Fyrstu mánuðina eftir fæðinguna hefir Helga verið bundin af litla barninu og Kristín leitað meira til föður síns en áður. Það er tilvalið að láta vísuna verða til á milli vertíða þegar ekki var róið, t.d. um þrett- ándann 1837. Þá voru „fádæma hörkur og harðviðri“, segir Jón biskup Helgason í Ár- bókum Reykjavíkur (1941:102), „og kingdi niður svo miklum snjó í einu hér syðra, að varla varð komizt yfir jörðina“. Fjórða og síðasta lausnin á þrautinni er að minnsta kosti raunhæfust og styðst við gróna hefð á Álftanesi. ***** Hugmyndin er, í stuttu máli, þessi: Þau feðgin, Sveinbjörn og Kristín, horfa út um suðurglugga á Eyvindarstöðum einhvern tím- ann um veturinn 1836–37, þegar Kristín er á fjórða ári. Það er skæðadrífa, lítið skyggni og ekki útivistarveður fyrir lítil börn. En það er gaman að horfa á snjókornin svífa til jarðar. Sveinbjörn er með Kristínu á handleggnum svo að hún sjái betur út. Hún bendir þegar hún sér þessar hvítu flygsur og segir „fiðr- ildi“, og rismikla flygsu kallar hún „duggu“. Þannig segir hún föður sínum tvenn tíðindi, og hann hefir gaman af: fiðrildi um hávetur og dugga á siglingu þótt hvergi sjáist til sjávar, enda dimmviðri – og enginn bátur á sjó! Heimildir Anna Ólafsdóttir Björnsson. 1996. Álftaness saga. Bessastaðahreppur – fortíð og sagnir. Þjóðsaga. Reykja- vík. Baldur Ragnarsson. „Enn um hvítu fiðrildin“. Lesbók Morgunblaðsins. 14. des. 2002. Bls. 11. Benedikt Gröndal. Dægradvöl. Ingvar Stefánsson sá um útgáfuna. Mál og menning. Reykjavík 1965. Hannes Pétursson. Birtubrigði daganna. Lausablöð. Reykjavík 2002. Hannes Pétursson. „Hvítu fiðrildin“. Lesbók Morgun- blaðsins. 7. des. 2002. Bls. 5. Jón Árnason. 1856. „Æfisaga Drs. Sveinbjarnar Egils- sonar“. Rit Sveinbjarnar Egilssonar. Bls. V–LXXII. Jón Helgason. 1941. Árbækur Reykjavíkur 1786–1936. H.F. Leiftur. Reykjavík. Ólafur Halldórsson. „Misskilin vísa?“. Lesbók Morg- unblaðsins. 30. nóv. 2002. Bls. 11. Rit Sveinbjarnar Egilssonar, rektors og drs. theol. Annað bindi. Ljóðmæli. Útgefendur: Th. Johnsen. E. Þórðarson. E. Jónsson. J. Árnason. Reykjavík 1856. Ein- ar Þórðarson. Ég þakka Eyþóri Einarssyni grasafræðingi fyrir gagn- legar ábendingar og Önnu Ólafsdóttur Björnsson fyrir að ræða við mig og fræða mig um staðhætti á Álftanesi og um Eyvindarstaði sérstaklega. En hvorugt ber neina ábyrgð á því sem sagt er í þessari grein. FIÐRILDIN OG DUGGAN E F T I R B A L D U R J Ó N S S O N Vísan Fljúga hvítu fiðr- ildin eftir Sveinbjörn Eg- ilsson varð tilefni til tals- verðra umræðna hér í Lesbók í desember 2002. Í þessari grein er vanga- veltum um skilning þess- arar vísu haldið áfram. Höfundur er málfræðingur Eyvindarstaðir í tíð Sveinbjarnar Eglissonar. Myndin er eftir son hans Benedikt Gröndal skáld.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.